Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór
Држава Исланд
Језик IS
Епизоде 123
Последња 11.10.2026

Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!

Епизоде

  • Topp 10 eitthvað 11.10.2026 1ч 15мин
    Skytturnar þrjár eru mættar og Daði fær að vera með aftur, en einfaldlega vegna þess að strákarnir gleymdu honum í stúdíóinu í síðustu viku. Hann var kominn í góða heiminn og fattaði ekki neitt. En í þessum þætti er farið yfir allskyns topp 10 lista. Birkir var til dæmis með topp 10 hasarmyndir frá níunda áratugnum, Davíð strögglaði eitthvað við þann lista enda eldri en sólin, en Daði var með lista yfir 10 greddupöddur sem létu lífið í samlífi....sem er fínt orð yfir kynlíf!
  • Miðaldra 04.10.2026 1ч
    Þrír miðaldra karlar, Birkir, Davíð og Þröstur fá fjórða miðaldra karlinn í heimsókn, hinn eina sanna Daða, ansi langt síðan hann stoppaði við í þætti. Þeir grípa tækifærið og fara yfir það í þessum þætti hvað það er að vera miðaldra, enda allir að verða góðir í því fagi með hverjum deginum. Hver kannast ekki við það að vera illt í bakinu, stynja þegar það er staðið upp úr sófa, nú eða tala um veðrið alveg upp úr þurru.
  • Shower Thoughts 27.09.2026 55мин
    Birkir og Davíð manna skútuna í dag og þeir ætla að fara yfir allskyns sturtupælingar, nei, það er ekki eins og það hljómar...engan perraskap, heldur eru þetta hinar þekktu "Shower thoughts" á enskunni. Djúpar og/eða heimskulegar pælingar, sem fer þó alveg eftir því hver er að hugsa þær!
  • Kraftaverk 20.09.2026 50мин
    Birkir og Davíð standa vaktina í dag á meðan Þröstur er í bústaðnum sínum, en strákarnir bjalla í hann í smástund og taka púlsinn. Birkir reynir svo að sannfæra Davíð um að kraftaverk séu til, eins og allt sem Jesús og Móses gerðu, en efasemdarmaðurinn Davíð er ekki sannfærður!
  • Ömurlegar framhaldsmyndir 13.09.2026 1ч 5мин
    Birkir og Davíð standa vaktina í þessum þætti á meðan Þröstur smíðar sér bústað. Þeir ræða um hvað sumar framhaldsmyndir eru gjörsamlega ömurlegar, eins og til dæmis Jaws 3D, Matrix 4 og Home Alone 3.
  • Óútskýranlegir atburðir 06.09.2026 53мин
    Birkir og Davíð eru í banastuði í þessum þætti og það var ansi mikið hlegið, enda elska þeir ekkert meira en kjánalegar hörmungar annarra! Þeir fara hér yfir óútskýranlega hluti, eins og Bermúda þríhyrninginn, spontaneous human combustion eða á íslenskunni, sjálfskviknun, og margt margt fleira!
  • Thriftshopping 30.08.2026 53мин
    Strákarnir eru mættir, þeir Birkir, Davíð og Þröstur á þessum frábæra degi og ræða hvað er hægt að græða á því að fara í góða hirðirinn eða thrift shopping. Það er ekki mikið hægt að græða á því hér á Íslandi en úti í hinum stóra heimi er hægt að græða milljónir eins og ein í Bandaríkjunum sem keypti skál á nokkra dollara og seldi skálina aftur á yfir milljón dollara!
  • Samsæriskenningar #2 23.08.2026 1ч 11мин
    Þríeykið er sameinað eftir sólarlandaferðina hans Þrastar, þá er ekkert annað að gera en að setja upp álhattana og komast að hinum raunverulega sannleika þarna úti! Strákarnir fara yfir helling af samsæriskenningum, eins og The Matrix (ekki beinlínis bíómyndin en samt), Charlie Kirk pælingar, Flat Earth snilldina og svo kemst smá hiti í leikinn þegar Birkir spyr strákana út í ESB kosningar!
  • Leikjaþáttur #2 16.08.2026 1ч 11мин
    Birkir og Davíð fá Krissu aftur í heimsókn af því að Þröstur er enn að tana suður með sjó. Í þessum þætti fara þau í nokkra leiki, hvort myndirðu frekar, are you smarter than a 5th grader og Krissa kannar hvor þekkir hvorn betur af strákunum.
  • Morðingjar 09.08.2026 1ч 12мин
    Birkir og Davíð fengu Krissu í heimsókn á meðan Þröstur er á Spáni að sóla á sér rassinn, þau ætla að fara yfir fullt af morðum og morðingjum í þessum þætti, þátturinn er jafn heillandi og hann er ógeðslegur...er heillandi rétt orð yfir þetta?....Birkir fer rækilega yfir kvenkyns morðingja enda algjör kvennabósi, og Davíð og Krissa fara yfir smáatriðin í nokkrum skuggalegum morðum, þorir þú að hlusta?  
  • Útihátíðir 02.08.2026 49мин
    Skytturnar þrjár eru mættar til þess að tala um bestu útihátíðir á Íslandi og erlendis, eins og til dæmis Þjóðhátíð í Eyjum, Ein með öllu, Woodstock fyrri og seinni og fleira
  • Er 80´s vanmetinn áratugur? 26.07.2026 41мин
    Birkir leggur áhugaverða pælingu undir hjá Davíð og svo fara strákarnir að kafa djúpt ofan í 80´s og kanna hvað kom gott út úr þeim áratug, var þetta vanmetinn áratugur eða ekki? Þú kemst að því í þessum þætti!
  • I am Batman 19.07.2026 52мин
    Spliff, donk og gengja eru mættir til þess að tala um Batman. Hver er besta Batman myndin? Hver er besti Batman, hver er besti Bruce Wayne, er Batman cool? Hér eru alls ekki allir sammála!
  • Fríið er búið hjá Birki 12.07.2026 45мин
    Strákarnir eru mættir til leiks eftir að Birkir fór í svaðalegu Ítalíuferðina sína. Í þessum þætti mætir Davíð of seint, Birkir fer yfir smá ferðasögu, og svo fara þeir yfir allt sem Birkir missti af í heiminum á meðan hann sat næstum rænulaus á sundlaugarbakka í ítölsku sveitinni í 40 stiga hita með búbbluglas í hönd. Umdeildustu bíómynd heimsins í dag, hvalveiðaævintýrin og fleira.
  • Horrible Deaths 05.07.2026 40мин
    Davíð og Birkir renna bobsleða dagsins af stað og þeir fara yfir hræðileg dauðsföll, drungalegur þáttur en þeim er nokk sama og gera grín af nokkrum framliðnum....öllu er nú hægt að hlægja að.
  • Íslenskir grínþættir 28.06.2026 43мин
    Birkir og Þröstur stýra bátnum í dag, Þröstur kemst að því hvað Birkir á mikið af skópörum...sem er súr niðurstaða. Svo fara þeir yfir íslenska grínþætti, hver af þeim er bestur? Heilsubælið, Fóstbræður, Steindinn okkar, Næturvaktin eða eitthvað allt annað?
  • Birkir fer til Ítalíu 21.06.2026 41мин
    Skytturnar þrjár eru mættar á sólríkum degi í umdeildum þætti þar sem þeir fara yfir ýmis mál sem eru að gerast í heiminum og deila þar sínum krassandi skoðunum varðandi það allt saman. Birkir er að fara til Ítalíu á meðan Davíð og Þröstur hanga heima að vinna, alltaf sami lúxusinn á þessum Garðbæingum!
  • Dumb History 14.06.2026 47мин
    Strákarnir eru mættir og fengu Daða í heimsókn og því ber að fagna. Talað er um heimskulega sögu eða dumb history þar fara þeir yfir til dæmis kanínuher sem réðst á Napoleon, þegar konum var bannað að fara í lestir og fleira gufuruglað og galið úr mannkynssögunni
  • Flott hönnun 07.06.2026 51мин
    Birkir og Davíð eru mættir í banastuði og í þessum þætti fara strákarnir yfir flotta hönnun að þeirra mati. Hvað er flott hönnun og hvað er ljót hönnun allt frá bílum, húsgögnum, símum og fatnaði sem dæmi.
  • Gott fólk 31.05.2026 53мин
    Skytturnar þrjár eru mættar í banastuði og ætla að fara yfir gott fólk, A.K.A. Amazing people! Það hefur verið margt gott fólk í gegnum tíðina, eins og til dæmis Leonardo Da Vinci, Robin Williams, og Birkir!