LANGA - hlaðvarp
Snorri Björns
0
Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.
Avsnitt
-
101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin. 04.09.2026 1h 51minBen Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu allra tíma? Gulli tók út Chamonix (sem er sprungið) og Egill kemur með fréttir af sviptingum hjá skóframleiðendum Slúður um íslenskt UTMB hlaup, minkur sást í Heiðmörk og allar helstu fréttir sem úthaldsíþróttafólk landsins þarf að fá veður af. -
100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör 02.09.2026 47minElísa Kristinsdóttir gerir upp frumraun sína í CCC, stærsta 100km hlaupi heims, á stálheiðarlegan máta. Hún er hvergi af baki dottin og frumflytur svakalega keppnisdagskrá sem er framundan og hlutina sem hún þarf að laga fyrir tilraun tvö. -
99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM 21.08.2026 1h 15minBaldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að Ólympíuleikunum, hvernig hann bregst við æfingum í háfjallalofti, að hafa áhyggjur alla keppnisvikuna, yfirburði Andreas Almgren, taktíkina í keppninni og möguleikann á því að hlaupa nálægt 13 mínútum í 5km hlaupi í næsta mánuði! -
Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma 18.08.2026 2h 7minÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins.Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet Baldvins, 800m rimman, ALMGREN og viðburðarríkt Evrópumeistaramót gert upp.SLÚÐUR um miðbik þáttar sem mun ekki fara framhjá neinum íþróttaáhugamanni á næstu dögum.Er Arnar Pétursson skemmtilegasti maðurinn í hlaupasenunni? Á hann brautarmetið í Laugaveginum?Elísa og Andrea eru komnar til Chamonix - Andrea lifir í einhverskonar draumi og Elísa var fædd til þess að gera góða hluti í CCC. -
97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra 14.08.2026 1h 35min„Hver er þessi Jón Diðriksson?“Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum hver í meira en 40 ár og eitt þeirra stendur enn þann dag í dag, þó það hafi verið sett fyrir algjöran misskilning!“Það var bara regla… maður var aldrei ánægður. Maður vildi alltaf hlaupa betur - og hraðar” -
96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk 07.08.2026 1h 29minGunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd.Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í ár en Gunni Palli upplýsir þig um allt sem þú þarft að vita fyrir mótið: Meiðsli og endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Baldvin héraði 5km á 15mín og mældist 1,7mmol í mjólkursýru, Nordås er hættur í þjálfun hjá Gjert Ingebrigtsen, Hlynur virðist leggja allt í sölurnar, Keely Hodgkinson ógnar ósnertanlega metinu, Andreas Almgren (LANGA favorite) mun skrúfa upp í 10.000m fyrir Baldvin, Femke Bol lengir og Gunni Palli mun, þó það sé þyngra en tárum taki, missa af maraþon göngunni.Það var í þokkabót ekki annað hægt en að bera undir Gunnar tímann hans Arnars á Laugaveginum og fá viðbrögð við stórbætingu á heimsmetinu í maraþoni. -
Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja 23.07.2026 1h 45minAf hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta þrekraun úthaldsíþróttamannsins, Tour de France, er í fullum gangi - hjólarar eru lyfjaprófaðir að næturlagi með ófyrirséðum afleiðingum, Latsi setti hæstu wöttin sín í pedalana eftir stutta og snarpa HYROX blokk í miðju hvíldartímabili og LANGA hlaðvarp fjallar um hjólreiðakeppnir svo lengi sem hlauparar vinni þær. -
94. Tove Alexandersson 10.07.2026 37minSú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum? -
93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin. 09.07.2026 1h 26minArnar Pétursson kann að hlaupa hraðan Laugaveg og Arnar Pétursson hikar ekki við að spá í spilin um frammistöðu bestu hlaupara Íslands í Laugaveginum um næstu helgi. Ekkert bendir til sub 4 Laugavegs, Tove mun hrista upp í karlaflokknum og keppnin um pallsætin verður gríðarsterk í ár. -
92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér 28.06.2026 1h 40minWestern States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í Ironman og LANGA gefur rautt spjald fyrir að skipta um vegalengd í miðju hlaupi. -
91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method 25.06.2026 1h 51minHandbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western States frá upphafi, red zone sprengjuárásir í hjólreiðum, sænsku hlaupasenuna - og leggja síðast en ekki síst drög að Langathoninu. -
90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona! 16.06.2026 1h 47minLatsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta. -
89. Þorbergur Ingi eftir EM 08.06.2026 1h 10minCrazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum. -
88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA 31.05.2026 2h 8minEngir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi. -
DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine 22.05.2026 1h 36minÁ ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þetta einhver áhrif? Eru allir á sterum? Eru lyfjaprófin að virka sem skildi? Munu Enhanced Games sýna að allir eru að dópa? Af hverju fá sumir undanþágur fyrir frammistöðuaukandi efnum?Ingimar er bjartsýnn, yfir meðalgreind og trúir á það góða í manneskjunni - rétt eins og hlustendur LANGA hlaðvarps. Eigið góða helgi! -
86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar 10.05.2026 1h 11minHlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgildi, að fá ekki mynd af sér með Jakobi Ingebrigtsen (?), Íslandsmetið í hálfu maraþoni og allt hitt sem langhlauparar landsins hugsa um þegar þeir leggjast á koddann eftir erfiðan æfingadag. -
85. KRISTIAN BLUMMENFELT 07.05.2026 1h 16minComing off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt.What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance performances be attributed to the super shoes and carbohydrates alone? Did Kristian hit the coach jackpot when he entered triathlon?We discuss the high-milage approach, cleaning up his diet while eating 7.000 calories, not being good at any sport as a kid but still wanting to be an Olympic champion, Norseman, Klæbo’s isolation tactics, training with the Ingebrigtsen brothers, almost not being accepted for class, knocking out a 1:08 half marathon in his off season, the possibility that he absorbs more calories from food than the average person, the 100+ VO2max test, deviating from the Norwegian measure-everything approach, and not signing with the Norwegian national team. -
84. Baldvin Þór Magnússon 30.04.2026 1h 5minViðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og vegferðin í átt að Birmingham 2026. -
BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb? 27.04.2026 1h 36minLatsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið undir tveimur en eru með samning við vitlausan skóframleiðanda? Virkaði bicarb á keppnisdegi og hvað tóku þeir inn mörg grömm af kolvetnum? -
82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón 23.04.2026 1h 38minEru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max??Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfur? Er það vinsælasti eða besti íþróttamaðurinn sem á peninginn skilið? Eru einstaklingar að þykjast vera sponsaðir? Eiga íþróttamenn peninga skilið yfir höfuð? Hverjir fá samninginn við Nike og Adidas? Hvað vilja fyrirtæki fá út úr samstarfi? Þarf að sýna frá öllu lífi sínu ef maður ætlar að hafa eitthvað upp úr íþróttinni? Eru fyrirtæki of varkár?Snorri rekur einnig samstarf sitt við Björgvin Karl (lirfan sem varð að fiðrildi), að hjálpa íþróttafólki sem fellur á lyfjaprófi og eigin raunir af því að fá annan séns í lífinu.
Populär i
Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.