Silfrið

Silfrið

RÚV Hlaðvörp
Land USA
Genrer News, Politics
Språk IS
Avsnitt 34
Senaste 18.05.2026

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.<hr><p style='color:grey; font-size:0.75em;'> Hosted on Acast. See <a style='color:grey;' target='_blank' rel='noopener noreferrer' href='https://acast.com/privacy'>acast.com/privacy</a> for more information.</p>

Avsnitt

  • 34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar 18.05.2026 57min
    Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus 12.05.2026 45min
    Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu 05.05.2026 49min
    Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir:Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu SýnarEva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚVBryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafiÍ seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf 28.04.2026 46min
    Um 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóra, og Finni Beck framkvæmdastjóra Samorku. Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi 21.04.2026 45min
    Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin 14.04.2026 46min
    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.Gestir:Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur ÍslandsIngimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðiðSigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt 01.04.2026 46min
    Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Katla DMI, og Guðmundur Steingrímsson, auðlinda og umhverfisfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin 24.03.2026 55min
    Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi 19.03.2026 44min
    Í dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík.Björg Magnúsdóttir oddviti ViðreisnarHildur Björnsdóttir oddviti SjálfstæðisflokksinsPétur H. Marteinsson oddviti SamfylkingarinnarÍ seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og var nýlega selt fyrir 485 milljarða króna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar 10.03.2026 54min
    Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag. Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum 03.03.2026 45min
    Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða 25.02.2026 44min
    Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir:Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HRLilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum 17.02.2026 45min
    Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir og. Almenningur situr uppi með hærri lán og vöruverð, en bankarnir og risar á matvörumarkaði mala gull. Festi sem á Krónuna hagnaðist til að mynda um 6,2 milljarða í fyrra, mun meira en spáð hafði verið. Við förum yfir þessi mál og fleiri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins 10.02.2026 49min
    Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður ræða um Epstein-skjölin í Silfrinu í kvöld. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ingibjörgu Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur, sem báðar sækjast eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 20. þáttur: Kristrún Frostadóttir: Geigaði sleggjan? Og hvert stefnir í Evrópumálum? 03.02.2026 44min
    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum. Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samninganefnd Íslands, og Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, rifja upp gang viðræðnanna og spá í spilin um framhaldið.Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Þórunn Guðjónsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 19. þáttur: Aðildarviðræður að ESB á dagskrá 27.01.2026 46min
    Dagur B. Eggertsson, Jens Garðar Helgason, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eru gestir Silfursins.Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, atvinnuleysi hefur aukist, það er spáð hækkandi verðbólgu, verkalýðshreyfingin varar við að forsendur kjarasamninga gætu brostið í hausti og órói í alþjóðamálum bætir gráu ofan á svart. Forsætisráðherra segir að nú sé réttur tími til að huga að aðildarviðræðum við ESB á ný. Stjórnarandstaðan telur það vera kolranga forgangsröðun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 18. þáttur: Harðnandi deila um Grænland 20.01.2026 44min
    Deilan um Grænland, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands eru til umræðu í þætti kvöldsins.Í fyrri hluta þáttarins er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og stjórnarformann Hringborðs norðurslóða.Í seinni hlutanum koma þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Dagbjört Hákonardóttir og Pawel Bartoszek í pallborð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 17. þáttur: Prófkjörsslagur í Samfylkingunni og nýr ráðherra situr fyrir svörum 13.01.2026 44min
    Í fyrri hluta þáttarins koma Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Pétur H. Marteinsson rekstrarstjóri. Þau berjast um oddvitasætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Í seinni hlutanum er viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson sem er glænýr félags- og húsnæðismálaráðherra. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 16. þáttur: Varnir Íslands og Venesúela 06.01.2026 44min
    Aðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela hafa valdið uppnámi, þótt viðbrögð flestra ríkja hafi einkennst af varkárni. Nú óttast margir að Trump auki ásælni sína á Grænlandi. Hvar stendur Ísland í þessum veruleika, og hvernig gæti varnarsamningur okkar við Bandaríkin virkað við slíkar aðstæður? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 15. þáttur: Formenn flokkanna pústa í hálfleik 16.12.2025 56min
    Þetta er síðasta Silfur fyrir jól og þingið er á lokametrunum fyrir þinghlé. Formenn flokkanna á Alþingi koma og fara yfir stöðuna eins og hún horfir við þeim á miðjum þingvetri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Populär i

Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.