Í FREMSTU RÖÐ
Dr. Edda Blumenstein
0
Hvað einkennir fyrirtæki, stjórnendur og starfsfólk sem skarar fram úr?
Í Fremstu Röð er hlaðvarp sem svarar þeirri spurningu með því að miðla fræðilegri þekkingu á hagnýtan hátt, í bland við reynslusögur úr íslensku atvinnulífi. Þannig brúar hlaðvarpið bilið milli fræða og atvinnulífs, milli rannsókna og reynslu og milli þekkingar og framkvæmda.
Í hverjum þætti færðu skýra innsýn í eitt viðfangsefni, byggt á ritrýndum rannsóknum og raunverulegum dæmum úr rekstri. Markmiðið er að efla þekkingu, bæta ákvarðanatöku og styðja við árangur árangur stjórnenda, starfsfólks og fyrirtækja.
Avsnitt
-
2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands 28.05.2026 58minÍ þessum þætti köfum við ofan í einn stærstu vildarklúbb Íslands - Icelandair Saga Club.Með mér er Magnús Þorlákur Lúðvíksson, forstöðumaður Saga Club, sem gefur okkur innsýn í hvernig vildarkerfi Icelandair hefur þróast frá hefðbundnum flugpunktum yfir í öflugt vistkerfi með yfir 2 milljónir skráðra meðlima og 400.00 þúsund virka notendur. Við ræðum meðal annars:Hvernig tryggðarvegferð Icelandair hófstMuninn á flugpunktum og fríðindastigumVerðmætustu viðskiptavininaHvernig vildarklúbburinn hefur þróast frá upphafi til dagsins í dagFramtíð vildarklúbbsins og leikjavæðingÁrangur og mælikvarðaTeymið og hvernig Saga Club er rekið eins og sjálfstæð rekstrareining innan IcelandairOg hvað þetta snýst allt raunverulega umÞetta er þáttur fyrir alla sem hafa áhuga á tryggðarstefnu og vildarklúbbum til að byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini sína.
-
Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt 05.05.2026 1h 16minÍ þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda.Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð. Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfum og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.Viðmælandi minn er Jón Björnsson stjórnarmaður hjá BOOZT.Ef þú hefur áhuga á að vita meira um:· Þróun Boozt frá startup í risaveldi· Af hverju Boozt lítur á sig sem tæknifyrirtæki, ekki bara verslun· Last mile leyndarmálið sem breytti leiknum· Mælikvarðana sem skipta máli og þá sem geta drepið vöxt· Hvað gerist þegar birgjar sjá gögnin þín í rauntíma· Hlutverk stjórnamanna, stjórnarformanns og samsetning stjórna· Hvað stjórnendur fyrirtækja eiga aldrei að hætta að gera· Gervigreindina og framtíðina.... og margt fleira.Þá viltu ekki missa af þessum þætti!
-
Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa 21.04.2026 1h 2minÍ þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði:að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti.Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni – frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir í að verða traustur ráðgjafi fyrir viðskiptavini.Í þættinum ræðum við meðal annars:· Hvernig rödd viðskiptavina mótar stefnu· Gagnadrifna ákvarðanatöku og mælanlegan árangur· Innleiðingu omnichannel og einstaklingsmiðaða upplifun· Hlutverk gervigreindar og stafrænnar þróunarÍ lok þáttarins deilir Óttar hagnýtum ráðum fyrir stjórnendur og teymi sem vilja ná lengra.Þessi þáttur er fyrir alla sem vilja:· byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini· taka betri ákvarðanir byggðar á gögnum· og leiða raunverulega umbreytingu í rekstri Sérstakar þakkir til Hans Pjetursson fyrir frumsamið stef þáttarins 🎶
-
NOVA Fyrir þig 07.04.2026 58minÍ þessum fyrsta þætti af Í Fremstu Röð fjöllum við um NOVA, fyrirtæki sem hefur hlotið íslensku ánægjuvogina 17 ár í röð. En frá því að þátturinn var tekinn upp bættist enn eitt árið við! Í þættinum ræði ég við þær Renötu Blöndal, fararstjóra upplifunar og Elfu Arnardóttur, þjálfara viðskiptaþróunar. Við köfum sérstaklega í tryggðarvegferð NOVA og hvernig fyrirtækið byggir upp langtíma samband við viðskiptavini sem snýst ekki um afslætti, heldur að skapa raunverulegt virði, þannig að viðskiptavinir elski að vera en hati að fara!Við förum yfir hvað liggur raunverulega að baki árangri, allt frá menningu og teymisvinnu yfir í gögn, mælikvarða, samstörf og nýtingu gervigreindar.Og að lokum gefa þær Elfa og Renata hlustendum hagnýt ráð til að hefja eigin tryggðarvegferð.Þessi þáttur er fyrir alla sem vilja byggja upp sterkari tengsl og raunverulegt langtímasamband við viðskiptavini.Góða skemmtun!Sérstakar þakkir fær Hans Pjetursson fyrir tónlistina í þættinum.
Populär i
Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.