Gæðastjórnin
Gæðastjórnin
0
Vinkonur þínar að tala um gæðin í lífinu.
Avsnitt
-
Súpur og Skipulag 07.09.2026 43minJá annar þátturinn í röð þar sem súpan er rædd í þaula, þykkar súpur, tærar súpur, beikonsúpur.. svo reynum við að kenna hvorri annarri eitt og annað um skipulag og kíkjum í heimsþekktan bragðaref! -
Haust Naglasúpa 24.08.2026 59minÞað er útlit fyrir pumpkin spice latte season og við í stjórninni hentum í einn kósí naglasúpuþátt í tilefni þess. Sannkallaður haustbragur er yfir þættinum, hvað er svona gott við haustið? Kunna allir að klæða sig eftir veðri?? EN það var ekki bara rætt um haust heldur hefur hulunni verið svipt af HOT FLOKKUN KARLA eftir ítrekaðar beiðnir frá sponsornum okkar Stefáni í ekkert að frétta pod og það eru ekki einu stórfréttirnar í þættinum heldur verður skoðað ofan í bragðarefinn hjá engum öðrum en PÁLI ÓSKARI!!! hinum eina sanna og .. you won't believe your ears. Biðjum að heilsa öllum 😘 -
Íslenskt Sumar pt.2 09.08.2026 1hHvað er það besta við íslenska sumarið?Hvernig er hægt að vera sniðugur með nesti og mat í ævintýrum sumarsins? Er hægt að vera hot i útilegu?? Nýtt þemalag ADLsins?Er krúttlegra að vera loðinn einhversstaðar?Verður eitthvað partý sumarsins?Þurfum við kannski bara logn og einn bol til að sumarið sé gott?Hefuru strunsað út úr ísbúð?😤 -
Íslenskt Sumar pt.1 22.07.2026 1h 10minEr Vigdís svo tveggja flokka kona eftir allt saman?Myndiru drekka baðvatnsbrúnan Collab? Hvernig gerir maður ávaxtasýróp án hita? Hvernig eldar maður með hráefnum úr íslenskri náttúru? Er sumarkokteillinn Viðey spritz? Dagsferðir á Íslandi, sólarlanda ADL, gubbusögur og besta gosið í hita. -
Morgunstund 10.06.2026 55minGóðan dag elskurnar! Þema þáttarins er hin heilaga morgunstund, hvað gerir morgunstund góða? Við reynum að svara stóru spurningum lífsins; hvað þýðir stillingin á ristavélinni eiginlega, er hægt að eiga hugmyndir utan samfélagsmiðla, hvað er best að borða í morgunmat og hvað er super marmeladda? Andri Fannar Ottósson dregur okkur svo upp úr drullusvaðinu með ljóði sínu og við fáum hugljúfa innsenda kveðju frá Heru, mannfræðingi, macramé hönnuði og stofnanda Flóðs & fjöru, en hún er sérlegur sérfræðingur í morgunstundinni. Hellið uppá og njótið ❤ -
Sósa og (reyndar ekkert) salat 01.06.2026 53minAllt fyrir sósuna! Það er sumar í lofti og því lá beinast við að hafa þema þáttarins sumarlegt og hvað er sumarlegra en sósa og salat? Nema við gleymdum að tala um salat. Hins vegar ræðum við Subway sósur, bestu og verstu sósuna, hvernig Gagga smók gerir góða brúna sósu og auðvitað getum við ekki haldið kjafti með hotflokkunina okkar - hvaða sósa ert þú? Glænýr sponsor og vinkonudrama? -
Brúðkaupsþátturinn Já 07.05.2026 1h 6minÍ þættinum verður farið yfir brúðkaups tips & tricks & do’s & don’ts & kiss me nots & tie the knots. Ekki skilja okkur eftir á altarinu < 3 -
Allt er vænt sem vel er dænt 27.04.2026 57minÞátturinn fjallar um allt sem tengist því að fara út að borða. Í gæðastjórninni fyrirfinnast nefninlega tveir sérfræðingar í veitingastaðamálum og ein kona sem finnur fyrir vanmætti sínum (og staðsetur sig á óvæntu bæjarstæði á Suðurlandi). Í þættinum verður eftirfarandi spurningum svarað; hvar færðu besta forréttinn? Kokteilinn? Aðalréttinn? Eftirréttinn? Post djamm bitann? Er kál mjög æðislegt? Hraðaspurningar staðsetja okkur svo á forvitnilegum ás hámenningar og lámenningar og þroskasaga sósunnar er kynnt til leiks. Rapparinn Ó Sól-e-mic-o lýkur þættinum með þéttu rími og sjóðheitum takti. -
Einfalt og gott 17.04.2026 55minÍ þættinum er farið yfir allt þetta einfalda og góða (aðallega matarkyns). Óvænt og ódýrt, skilvirkar uppskriftir, foreldra hacks, besta nammið og óvænt !hot take! (og eitt sögulega basic take reyndar). Kimchi partý, náttföt við kertaljós, saffran perrinn og allir kjammsa Conga! Setjið hvítan dúk á borðið, mundið hníf og gaffal, setjið servéttu í kjöltuna og gúffið svo þennan þátt. Og nenni þér plís að verða að góðu!!! Ath, Snæfríður Sól toppar sig í lokin með eitt stk power ballöðu. -
Vinkonur (saumaklúbbs möns og karíókíkvarðinn) 10.04.2026 46minÞema þáttarins er vinátta! hversu cute? Við förum um víðan völl og ræðum m.a. bústaðaferðir og saumaklúbbinn, veitingarnarnar sem því fylgja (algjört aðalatriði), fáum innslag frá vinkonumálaráðherra Íslands Ellu Bjö og kynnum til leiks KARÍÓKÍ KVARÐANN! Ekki gleyma að hlusta í gegn því, eins og vanalega, gæti þar leynst eitt óvænt lítið lag úr smiðju Snæfríðar Sólar! -
Lof mér að skvísast 02.04.2026 57minUmræðuefni þáttarins er skvísan. Hotvaktin, skvísuvaktin, óbærilegur skvísuleiki tilverunnar, skvísland ögrum skorið, skvísland er land þitt, skvísa í blíðu og stríðu, á barmi skvísuáfalls, all things skvísa, skvísan - alvarlegt mál, þín innri skvísa. -
Hot Food Takes 26.03.2026 41minÍ þessum þætti ræðum við okkar allra heitustu skoðanir á öllu matartengdu og svörum spurningum á borð við: getur ís verið heitur? Er í lagi að drekka hvítvín með tælenskum mat? Hvað er boðlegt að setja í bragðaref? Forréttur eða eftirréttur? -
Sund (og pullur) 20.03.2026 47minÍ fyrsta þætti Gæðastjórnarinnar kryfjum við hið heilaga sund sem allir þekkja og elska. En er hægt að tala um sund án þess að tala um eftir-sunds pulluna? Nei ég bara spyr. Talandi um pylsur, í þessum þætti er rúsínan svo sannarlega í pylsuendanum.
Populär i
Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.