Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

RÚV
Land Island
Språk IS
Avsnitt 596
Senaste 19.10.2026

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Avsnitt

  • Sæunn Kjartansdóttir og gáfaða dýrið og Birgir Tjörvi lesandi vikunnar 19.10.2026 50min
    Hvernig stendur á því að við erum það sem við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Við töluðum í dag við Sæunni Kjartansdóttur hjúkrunarfræðing og sálgreini, en hún spyr einmitt þessara spurninga og leitast við að svara þeim á námskeiði sem hún er með hjá Endurmenntun HÍ, og hún fjallaði um í bók sinni, Gáfaða dýrið, þar sem hún hjálpar lesandanum að átta sig betur á sjálfum sér og öðru fólki, skilja samskipti og samfélagið og takast á við streitu, ótta og einmanaleika. Þar kemur einmitt dýrið í okkur til sögunnar. Sæunn útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn er Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður og nú rithöfundur, en þessa dagana kemur út hans fyrsta skáldsaga, Skuggar af Kili þar sem söguhetjan leggur í rannsókn á uppruna sérkennilegra reglna sem móðurfjölskylda hans hefur farið eftir í 250 ár. Svo segir hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Birgir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda. Þöglu myndirnar, Pensilskrift og Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson. The Wind-Up Bird Chronicle e. Murakami Bróðir minn ljónshjarta e. Astrid Lindgren Stephen King Tónlist í þættinum í dag: Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) This fire! / Tina Dickow og Emilíana Torrini (Tina Dickow) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Selma Björns föstudagsgestur og matarspjall í beinni frá Róm 16.10.2026 54min
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan, leikkonan, leikstjórinn og athafnastjórinn Selma Björnsdóttir. Hún hefur auðvitað sungið fyrir þjóðina á flestum sviðum landsins, náði í annað sætið í Eurovision og nú síðast frumsýndi hún nýja gamansýningu þar sem hún, ásamt Björk Jakobsdóttur og Sölku Sól, þær kalla þetta sketsa og uppistandssýningu með frumsömdum lögum. Sýningin Bíddu bara - Þetta reddast! Og 25.október heldur hún tónleika í Salnum til heiðurs Dolly Parton, sem hún hefur haldið mikið upp á lengi. Selma sagði okkur í dag frá þessari sterku tengingu sem hún hefur við Dolly og kánrtítónlist. Við flökkuðum aðeins með henni aftur í tímann og fengum hana líka til að segja okkur frá starfi sínu sem athafnastjóri hjá Siðmennt, nýju sýningunni og tónleikunum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en hún er stödd í Rómarborg og Selma Björns sat áfram með okkur þar sem Sigurlaug sagði okkur í beinu sambandi frá rjúkandi rómarmat. Tónlist í þættinum í dag: 9 to 5 / Dolly Parton (Dolly Parton) I will Always Love You / Dolly Parton (Dolly Parton) Islands in the Stream / Dolly Parton og Kenny Rogers (Barry Gibb, Robin Gibb & Maurice Gibb) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • 100 ára afmæli Fríkirkjuorgelsins og Jónatan Garðars um Ingimar Eydal 15.10.2026 53min
    Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma. Í tilefni af 100 ára afmæli þessa orgels stendur nú yfir tónleikaröð í Fríkirkjunni og við hittum Gunnar Gunnarsson núverandi organista við kirkjunna og skoðuðum með honum þetta merkilega hljóðfæri og fræddumst um sögu þess. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Ingimar Eydal, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður Norðurlands og hljómsveit hans er samofin tónlistarmenningunni þar og skóp einstaka stemningu meðal annars í Sjallanum á Akureyri. Jónatan rakti feril Ingimars eins og honum einum er lagið í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik) Hvínandi vindur / Skólakór Kársnes (Aðalsteinn Ásberg) Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal, Þorvaldur Halldórsson (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson) Í sól og sumaryl / Hljómsveit Ingimars Eydal, Bjarki Tryggvason (Gylfi Ægisson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Vínlaus lífstíll, tónlist Kurt Weill og vísindaspjall um hreyfingu og svefngæði 14.10.2026 54min
    Full af lífi - vínlaus lífsstíll er nafn á námskeiði sem Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingu og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi, hafa staðið fyrir. Þar fara þau yfir ýmsar leiði til að lifa án áfengis, eins og þau orða það þá miðla þau lyklum til að loka dyrum og opna aðrar til betri vegar. Lára G. Sigurðardóttir læknir er gestakennari á námskeiðinu þar fer hún yfir hvaða áhrif það hefur á líkamann að hætta að drekka áfengi í fimm vikur. Margrét og Lára komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Kurt Weill er eitt áhrifamesta og sérkennilegasta tónskáld 20. aldar. Tónskáld sem samdi óperu-, leikhús-, kabarett- jazz- og dægurtónlist. Hann skapaði tónlistarheim þar sem mörkin milli klassíkur og dægurtónlistar verða óljós. Í tilefni af afmælisári tónskáldsins tóku söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir saman fjölbreytta tónleikadagskrá með sönglögum og sviðstónlist frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Þær komu í þáttinn í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði okkur frá rannsóknum sem sýna fram á tengingu daglegrar hreyfingar og bættra svefngæða. Tónlist í þættinum í dag: Í kjallaranum / KK Sextettinn og Óðinn Valdimarsson (Jón Sigurðsson) The tide is high / Blondie (Holt) Mac the knife / Quincy Jones og Frank Sinatra (Kurt Weill, texti Bertolt Brecht, þýð. Marc Blitzstein) Congratulations / Cliff Richard (Bill Martin & Phil Coulter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Ráð og óráð við bakverkjum, sjónlýsingar á myndlistarsýningum og veðurspjallið með Hlyni og Einari 13.10.2026 53min
    Við fræddumst í dag um ráð og óráð við bakverkjum.Jósep Blöndal læknir og stofnandi háls- og bakdeildar SFS í Stykkishólmi og einn fremsti baksérfræðingur þjóðarinnar kom í þáttinn. Fólk með bak- og hálsverki fær ótal ráðleggingar, bæði frá fagfólki, en líka frá ættingjum, vinum og samstarfsfólki. Margar slíkar geta verið vita gagnslausar og jafnvel skaðlegar. Jósep fór betur yfir þessi ráð og órað í þættinum. Við kynntum okkur svo sjónlýsingar á myndlistasýningum. Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona verður einmitt með eina slíka fyrir blinda og sjónskerta á sýningunni Lekir líkamar - sameiginlegir heimar í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudaginn, á vitundardegi blindra og sjónskertra. Halla Margrét sagði okkur frá sjónlýsingum og þessari sýningu í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið, og með honum kom gestur, Hlynur Sveinsson sem rekur Veðurstofu Norðfjarðar. Það er leitun að öðrum eins veðuráhugamanni, en hann er einmitt staddur í höfuðborginni af því hann er að sækja námskeið hjá Veðurstofunni. Það er spurning hvort þeir félagar Einar og Hlynur verði svo sammála þegar kemur að veðurspánni framundan hér á fróni. Tónlist í þættinum í dag: Leiðin heim /Björgvin Halldórsson og Hjartagosarnir (C.Pyle, texti Bragi Valdimar Skúlason) Gulnuðu laufin / Sigvaldi Helgi Gunnarsson (Sigvaldi Helgi Gunnarsson, texti Andri Már Sigurðsson) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) The Tide is High / Blondie (J.Holt) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Solla um baunir í mat, viðtal við Albert Guðmundsson frá 1952 og Elín Sigrún lesandi vikunnar 12.10.2026 53min
    Baunir eru meðal næringarríkustu matvæla sem völ er á og spila stórt hlutverk í heilsusamlegu mataræði. Þær eru einstaklega ríkar af próteini og trefjum og þær styðja við meltingu, hjartaheilsu og stöðugan blóðsykur. En hvernig kemur maður baunum inní matargerðina og þarf til dæmis að leggja allar í bleyti? Sú sem svaraði þessum spurningum var Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla í Grænum kosti eða Solla í Gló. Við komum ekki að tómum kofanum hjá henni þegar kom að baunum, frekar en öðru þegar kemur að grænmetisfæði. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom enn með gullmola úr safni Útvarpsins og í dag var það viðtal við knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson í París sem var tekið af Daða Hjörvar 9.febrúar 1952. Albert ræðir þar um feril sinn í Frakklandi, leikform sitt, meiðsli og gang mála í deildar- og bikarkeppnum. Viðtalið var tekið á lakkplötu og var ekki útvarpað fyrr en tæpum mánuði eftir upptöku. Líklega hefur það tekið tíma að senda lakkplötuna til Íslands á þessum tíma. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í dag var Elín Sigrún Jónsdóttir lögmaður og stofnandi fyrirtækisins Búum vel. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Sigrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Enginn venjulegur lesandi e. Alan Bennett Ótíð í víti e. Gyrðir Elíasson Varkár e. Margréti Bjarnadóttur Arfur og umhverfi e. Vigdis Hjorth Döstädning e. Margareta Magnusson Ævisaga Gunnars Thoroddsen, e. Guðna Th. Jóhannesson Náðarstund, söguleg skáldsaga um Agnesi Magnúsdóttur, e. Hönnu Kent Tónlist í þættinum í dag: Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Bíldudals grænar baunir / Baggalútur (Valgeir Guðjónsson) Non,je ne regrette rien / Edith Piaf (Dumont & Vaucaire) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Aðalsteinn Ásberg föstudagsgestur og matarspjall um sveskjur 09.10.2026 53min
    Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur og tónlistarmaður. Hann hefur loks lokið að þýða Vísur Svantes, gríðarlega vinsælu bókina og lögin, eftir Benny Anderssen, verkefni sem hefur legið í skúffu hjá honum lengi. Verkið kemur út í bók og á nýjum hljómdiski Svante og haldnir verða tónleikar í Norræna húsinu og Hannesarholti af tilefninu. Aðalsteinn er uppalinn í sveit fyrir norðan en ætlaði sér aldrei að verða bóndi heldur ákvað snemma að verða rithöfundur. Við heyrum tvö lög af nýja diskinum og Aðalsteinn reynir að útskýra fyrir okkur af hverju svona margir tengja við Svante. Svo er það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti en hún ætlar að ræða um sveskjur í mat, eitthvað sem hún hefur aldrei þolað en nú er spurning hvort það hafi breyst? Svo grípum við niður í Eldhúsbókinni en þar má finna ýmsan fróðleik sem nýttist húsmæðrum á sjöunda áratug síðustu aldar og sá fróðleikur eldest ekki allur vel. Tónlist í þættinum í dag: Woman / John Lennon (John Lennon) Drykkjuvísur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Hamingjudagur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Tilfinningagreind og Herramennirnir, kostir húsaskipta og áhrif ADHD á fullorðna 08.10.2026 52min
    Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, félags og vinnusálfræðingur og stofnandi Hugarheims, er þessa dagana með námskeið þar sem fjallað er um tilfinningagreind og áhrif hennar á líðan, hegðun og samskipti. Og Ragnheiður skoðar viðbrögð, viðhorf, samskiptamynstur og ólík persónueinkenni og hvað getur legið að baki. Ragnheiður útskýrði þetta betur fyrir okkur í þætti dagsins og hvernig hún notar barnasögurnar um Herramennina í þessu samhengi. Snæfríður Ingadóttir fjölmiðlakona hefur áratugareynslu af húsaskiptum og hefur leiðbeint mörgum með þetta fyrirkomulag. Húsaskipti eru hagkvæm og ef rétt er að staðið mjög góð leið til að vera fjarri helstu ferðamannastöðum og kynnast hverfum borga. Við heyrðum í Snæfríði í dag. Hvaða áhrif hafa einkenni ADHD á daglegt líf þeirra fullorðnu einstaklinga sem eru með ADHD? Til dæmis á náin sambönd og ástarsambönd, fjármálin, foreldrahlutverkið og fleira. Framundan er málþing ADHD samtakanna undir yfirskriftinni „Þegar ADHD fylgir þér“ þar sem einmitt þetta verður skoðað. Elín H. Hinriksdóttir, sérfræðingur hjá samtökunum, og Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðstjóri forvarna hjá Virk, komu í þáttinn í dag og sögðu betur frá. Tónlist í þættinum: Regndropar falla (við hvert fet) / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Yakkety yak smacketty smack / Changes (Jóhann Helgason) Síðasta sjóferðin / Brimkló (Steve Goodman, texti Þorsteinn Eggertsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Bodleaux Bryant, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Tónlist og sálgæsla, Geðheilbrigðisvika í H.R. og vísindaspjall um örveruflóruna og alzheimer 07.10.2026 51min
    Kirstín Erna Blöndal er söngkona,tónskáld og sálgætir. Hún skrifaði í meistararitgerð sinni frá Listaháskóla Íslands um áherslu á nýjum leiðum i miðlun og tengsl tónlistar við sálgæslu og kannaði mikilvægi tónlistar í sálgæslu syrgjenda við útfarir og í sorgarferlinu. Á síðustu árum hefur hún einnig komið að kennslu og tónlistarsköpun ungra barna og fólks sem glímir við heilabilun. Kirstín Erna sagði okkur betur frá sínum störfum í dag. Alþjóði geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10.október og af því tilefni er Geðheilbrigðisvika HR haldin þessa vikuna og er þetta tíunda árið. Þema vikunnar er „Sítengd en aftengd í heimi tækninnar“ og verður sjónum beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf. Eva Rós Gunnarsdóttir og Auður Friðriksdóttir eru sálfræðingar í nemendaráðgjöf HR og þær komu í þáttinn í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá nýrri rannsók sem rannsakar áhrif örveiruflórunnar á Alzheimer. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum: Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson) Place in the Sun / Stevie Wonder (Stevie Wonder) Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Allt í fína / Karl orgeltríó, Raggi Bjarna og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas 06.10.2026 50min
    Við veltum fyrir okkur hugmyndum um karlmennsku í dag með Þórði Kristinssyni kennara og doktorsnema í menntavísindum en hann veltir mikið fyrir sér karlmennskuhugmyndum og hvaða hugmyndir hafa karlmenn um karlmennsku. Hverjar eru fyrirmyndirnar? Nýlega birtust niðurstöður úr rannókn sem var unnin að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu karlmanna á Norðurlöndunum og hugmyndir þeirra um karlmennsku. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli þó það sé rétt að taka fram að sett hafa verið spurningamerki við það hvernig hún var unnin, að úrtakið hafi verið skekkt. En spurningarnar og efnið voru áhugaverð og við ræddum það við Þórð í þættinum. Hver erum við þegar starfstitillinn er ekki lengur til staðar, við starfslok? Hvernig getum við skapað okkur ný tækifæri, nýjan tilgang og hlutverk og um leið haldið félagslegri virkni og tengslum þegar við erum ekki lengur hluti af samfélagi vinnustaðarins. Þetta er allt hluti af því að hætta að vinna, en starfslokin og þau tímamót eru eitt mesta breytingaskeið ævinnar. Við forvitnuðumst um námskeið um fjallar um undirbúning fyrir starfslok sem Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi stendur fyrir, hún sagði okkur frá í þættinum í dag. Jónatan Garðarsson kom svo í þáttinn í dag hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Megas og fór yfir langan feril hans, en Megast lést í sumar. Tónlist í þættinum: Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson) Spáðu í mig / Megas (Megas, Magnús Þór Jónsson) Tvær stjörnur / Ragnheiður Gröndal (Megas) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar 05.10.2026 51min
    Menntaskólinn í Reykjavík átti hvorki meira né minna en 180 ára afmæli síðasta fimmtudag. MR hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina, Lærði skólinn, Reykjavíkurskóli, Latínuskólinn eða Schola Reykjavicensis og svo frá árinu 1937 Menntaskólinn í Reykjavík. Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor MR var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir þessa merkilegu sögu skólans og sagði okkur frá ljósmyndasýningu sem verður allan okktóber þar sem ljósmyndum er varpað á framhlið skólahússins við Lækjargötu. Alþjóðlegi kennaradagurinn er í dag og því var vel við hæfi að kynna tilnefningarnar til Íslensku menntaverðlaunanna í þættinum í dag. Verðlaunaafhendingunni verður svo sjónvarpað frá Bessastöðum 11. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: Fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, fyrir kennslu, fyrir þróunarverkefni og fyrir Iðn- og verkmenntun. Auk þess verða veitt sérstök hvatningarverðlaun. Guðfinna S Bjarnadóttir stjórnandi og eigandi í LC ráðgjöf og Magnavita kom í þáttinn og kynnti þessar 13 tilnefningar. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elísabet Katrín Friðriksdóttir verkefnastjóri á réttar- og öryggisgeðdeildunum á Kleppi. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elísabet talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Vaxtarræktarkonan einmanna e. Yukiko Motoya Allt sem við hefðum getað orðið e. Sif Sigmarsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur og óútgefna bók með vinnuheitið Umbreyting - leiðarvísir til framtíðar e. Guðrúnu Schmidt Bókin um veginn e. Lao Tse Dísa ljósálfur e. G.T. Rotman Tónlist í þættinum: Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Teach Your Children / Crosby, Stills, Nash and Young (Graham Nash) Gamli skólinn / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu 02.10.2026 50min
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Þórir Baldursson. Þórir á langan glæstan feril, bæði hér á landi og erlendis þar sem hann hefur unnið með þekktasta tónlistarfólki landsins og heimsþekktum nöfnum eins og Donnu Summer, Giorgio Moroder, Elton John og Grace Jones. Hann er auðvitað einn þriðji af Savanna tríóinu sem naut strax mikilla vinsælda á sjöunda áratugnum. Við litum yfir ferilinn og ferðuðumst aftur í tímann með Þóri í þættinum frá tónleikum sem hann heldur núna 16.október í Austurbæjarbíói sem kallast Tónlistarheimur í meir en hálfa öld. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað, þar var kakósúparædd í dag og ekki voru allir sammála um ágæti hennar svo kíktum við aðeins í Eldhúsbókina góðu. Tónlist í þættinum: Brúðarskórnir / Savanna tríóið (Þórir Baldursson, texti Davíð Stefánsson) C'est Magnifique / (La Bionda - Baldursson og Mazzoli) Í töfrandi heimi / Kjalar Martinsson Kollmar (Þórir Baldursson, texti Kristján Hreinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Heimildarmyndir um Leiðtogafundinn í Höfða og bók Matthildar um hamfarirnar í Grindavík 01.10.2026 51min
    Stríð og Friður í Reykjavík er heimildarmynd í þremur hlutum um leiðtogafund Reagan og Gorbachev í Reykjavík árið 1986. Íslensk stjórnvöld höfðu aðeins tólf daga til stefnu þegar ljóst varð að Reykjavík ætti að hýsa fundinn og Reykjavík umbreyttist á örfáum dögum. Árni Þór Jónsson leikstjóri myndarinnar fór með okkur í tímaferðalag fjörutíu ár aftur í tímann og við rifjuðum upp þennan merkilega tíma og viðburð og allt havaríið í kringum hann. Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlaut á dögunum Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026. Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Við ræddum við Matthildi, móður hennar Valgerður Jennýjardóttur og Þórunni Rakel í dag. Tónlist í þættinum: Ammæli / Sykurmolarnir (Sykurmolarnir) Moscow Moscow / Strax (Jakob Frímann Magnússon) Perfidia / Linda Ronstadt (Alberto Dominiques) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Stafræn heilsa, Prjónahelgi á Húsavík og vísindaspjall um Úralíþín A 30.09.2026 53min
    Við fræddumst í dag um Stafræna heilsu, miðstöð sem var stofnuð í upphafi árs og hefur það hlutverk að skapa heilbrigðiskerfi framtíðarinnar. Guðmundur Jóhannsson samskiptastjóri Stafrænnar heilsu sagði okkur í dag frá þeim markmiðum sem eru þar í gangi og horfa með okkur lengra fram í tímann á það hver þróunin er í heilbrigðistækni, til dæmis eitthvað sem kallast stafrænir tvíburar, skammtatölvur og nanó-örflögur og flutning Heilsuveru yfir á Ísland.is sem mun gerast á næstunni. Svo heyrðum við af Lykkjum í leyfi á Húsavík, en það verður prjónaviðburður haldinn þar 16.-18. október, svokölluð prjónahelgi, Lykkjur í leyfi.Þarna sameinast prjón, ferðalag, matur, kvöldvökur og samvera. Nanna Einarsdóttir og Thelma Steimann standa að helginni og sögðu okkur betur frá henni í þættinum. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn um efnið Úralíþín A sem getur mögulega verið notað til að meðhöndla erfið tilfelli hjartabilunar. En efnið Úralíþín A finnst til dæmis í granataeplum og bláberjum. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í vísindaspjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Vals nr.1 / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Sous le ciel de Paris (Under Paris Himmel) / Sören Brix (Hubert Giraud) Love is Blue / Paul Mauriat and his orchestra (André Popp, Pierre Cour & Brian Blackburn) Stranger on the shore / Acker Bilk (Robert Mellin & Bilk Acker) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Mannauðsdagurinn, veðurspjall um El Nino og Jane Austen klúbburinn 29.09.2026 53min
    Á föstudaginn verður Mannauðsdagurinn 2026 haldinn í Hörpu og þar sem rúmlega þúsund ráðstefnugestir munu koma saman. Í síbreytilegum heimi fyrirtækjareksturs og vinnustaða gegnir fólk sem starfar við mannauðsmál mikilvægu hlutverki og þeirra aðkoma að mótun menningar vinnustaðarins og því að hlúa að mannauðnum. Adriana K. Pétursdóttir formaður Mannauðs og Unnur Ýr Konráðsdóttir, varaformaður Mannauðs, sem standa að Mannauðsdeginum komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. „Bókabíó“ fór fram á kvikmyndahátíðinni RIFF í gærkvöldi en þá var sýnd verðlaunakvikmyndin Pride & Prejudice (Hroki og hleypidómar) frá árinu 2005 sem byggð er á sígildri sögu Jane Austen. Einnig var boðið uppá spjall með þeim Kristínu Lindu Jónsdóttur, formanni Jane Austen klúbbsins á Íslandi, og Silju Aðalsteinsdóttur, rithöfundi en Silja er helsti þýðandi verka Jane Austen á Íslandi. Silja og Kristín Linda komu til okkar í dag. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði hann við okkur um El Nino og helstu áhrifin af honum, undarlega hegðun fellibyljarins Polo og svo veðrið hér á landi næstu daga. Tónlist í þættinum: Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar) Litlu hlutirnir / Hildur Jónsdóttir (Hildur Jónsdóttir) Theme From a Summer Place /Percy Faith Orchestra (Max Steiner) Gæfa eða gjörvileiki / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Íslenski dansflokkurinn, gullmoli úr safni frá 1995 og Gísli lesandi vikunnar 28.09.2026 54min
    Við héldum áfram yfirreið okkar yfir það sem er að gerast á fjölum leik- og sviðlistahúsanna í vetur. Í þetta sinn var það Íslenski dansflokkurinn, en Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar á bæ. Hún sagði okkur frá dansflokknum og dansvetrinum framundan. Svo fengum við gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var brotið sem við fengum að heyra frá árinu 1995, úr þætti Þorsteins J. Vilhjálmssonar „Sumar í Héraði“ þar sem hann hafði farið um sveitina með upptökutæki og rætt við fólk í Dölunum. Þar heyrðum við samtal þriggja kvenna sem eru allar um nírætt þar sem þær sitja og hnýta heklubönd og karpa um allskonar ótengda hluti, peninga, kleinubakstur og skaphöfn hvorrar annarrar. Þetta voru þær Steinunn Gunnarsdóttir Grænumýrartungu í Hrútafirði, Margrét Oddsdóttir Jörfa í Haukadal og Gísla Sigríður Kristjánsdóttir frá Teigi í Hvammssveit. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Hvanndal íslenskukennari og meðlimur í leshringnum Austurlandahraðlestri. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Svanvængjuð þrá e. Valdimar Tómasson Næsta stríð e. Ásgeir H. Ingólfsson Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson Íslensk óhamingja e. Bragi Páll Sigurðarson bækur Steinars Braga og þjóðsagan Djákninn á Myrká Tónlist í þættinum: Komdu með / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Svantes lykkelige dag / Povl Dissing (Benny Andersen) Nótt / Friðrik Ómar Hjörleifsson (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Erlingsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Björn Thors föstudagsgestur og matarspjall á gondóla 25.09.2026 53min
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Björn Thors. Um síðustu helgi var leikritið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson, í leikstjórn Björns frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Við ferðuðumst með Birni aftur í tímann, til námsáranna í Hamrahlíðinni og Hlíðaskóla þar sem kviknaði fyrst á leiklistarperunni í höfði Björns og svo fórum við enn aftar með honum, þangað sem rætur hans liggja í eyjunum í Breiðafirði. Forfeður og formæður, nútíminn, fortíðin og framtíðin með Birni Thors föstudagsgesti í dag. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Hún var engu að síður stödd í Feneyjum, líklegast á gondóla, hvaðan hún fræddi okkur um matarmenningu staðarins. Tónlist í þættinum: Lífið yrði dans / HLH flokkurinn (erl.lag, texti Laddi, Þórhallur Sigurðsson) Raddir efans / Prins póló (Svavar Pétur Eysteinsson) Bambolero / Gipsy Kings UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • 40 ára söngafmæli Elínar Óskar og Jónatan Garðarsson um Björgvin Halldórsson 24.09.2026 54min
    Elín Ósk Óskarsdóttir heldur upp á 40 ára söngafmæli sitt með tónleikum í Salnum í Kópavogi 4.október nk. Elín Ósk hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga 11 ára gömul. Hún stundaði svo nám við Söngskólann í Reykjavík frá 1979-1984 og lauk þaðan einsöngvaraprófi. Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og henni við hlið var Jórunn Viðar tónskáld sem sá um undirleikin. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu frá 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro tenór og prófessor í Mílanó. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1986 aðeins 25 ára og var það jafnframt hennar fyrsta hlutverk á sviði. Elín Ósk fór yfir ferilinn með okkur og sagði til dæmis frá því þegar hún missti röddina og ekki fannst orsök þess fyrr en hún loksins fór til kvensjúkdómalæknis sem gat greint hvað var að hrjá hana. Jónatan Garðarsson hélt svo áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að Björgvini Halldórssyni, Bo. Björgvin var auðvitað magnaður söngvari, en líka góður lagahöfundur og stjórnaði upptökum á fjölda hljómplatna fyrir aðra. Hann varð gríðarleg stjarna mjög ungur og hélt áfram allan ferilinn að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Jónatani þegar kemur að Björgvini, frekar en fyrri daginn. Tónlist í þættinum: Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (bandarískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson) Vissi d'arte / Elín Ósk Óskarsdóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Giacomo Puccini, texti Luigi Illica og Giuseppe Giacosa) Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (Bob Calili, Michael Brown & Tony Sansone, texti Kristmann Vilhjálmsson (duln.f. Hrafn Gunnlaugsson)) Skýið / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Jakob og Karl um 60 ára afmæli MH, Pabba Reif, vísindaspjallið um heilann 23.09.2026 52min
    Þann 24. september 1966 var Menntaskólinn við Hamrahlíð settur í fyrsta skipti og árið 1972 var hann fyrsti skólinn til að taka upp áfangakerfi. 60 ára afmæli skólans verður fagnað svo um munar næsta laugardag með dagskrá frá morgni til kvölds. Ofursveit skólans mun koma fram, Hamraskáld að fornu og nýju lesa úr verkum sínum, boðið verður uppá gönguleiðsögn um skólann og margt fleira. Tveir fyrrverandi nemendur og nú meðlimir í Ofursveit MH, Jakob Frímann Magnússon og Karl Sigurðsson Baggalútur komu í þáttinn í dag. Pabba Reif er heitið á nýju dansverki sem frumsýnt verður eftir áramót í Tjarnarbíói. Aðstandendur sýningarinnar auglýsa nú eftir þáttakendum fyrir verkið, en leitað er eftir feðrum og ungmennum, sem munu svo dansa saman í sýningunni. Í kynningartexta segir að í verkinu munu feður fá tækifæri til að tengjast ungmennum sínum í gegnum dans og tónlist. Anna Kolfinna Kuran sagði okkur betur frá þessu verkefni og opnum danstíma á sunnudaginn í Dansverkstæðinu á Hjarðarhaga á sunnudaginn, en hún er danshöfundur verksins. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að heilinn hafi tvo mismunandi uppruna í fósturþroska. Þessi vitneskja auðveldar vísindahópum sem eru að rannsaka sjúkdóma í heilastofninum, en heilastofninn á líklega uppruna sinn í öðrum stofnfrumum en t.a.m. framheilinn. Edda útskýrði þetta betur í þættinum. Tónlist í þættinum: Við arineld / Erla Stefánsdóttir (Magnús Eiríksson, texti Kristján frá Djúpalæk) 10 dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Eldur / Gissur Páll (Sveinn M Sveinsson, texti Steinn Steinarr) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
  • Lífræn ræktun á Íslandi, Fuglar (og menn), málþing um mikilvægi hvala 22.09.2026 52min
    Á laugardaginn var haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Lífræni dagurinn og í þetta sinn í Kringlunni. Þar gat fólk kynnst lífrænni ræktun og framleiðslu og ekki síst hitt fólkið sem stendur á bak við íslenska lífræna matinn. Anna María Björnsdóttir var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir stöðuna á lífrænum landbúnaði á Íslandi og hvernig framtíðin lítur út. Heimildarmyndin Fuglar (og menn) var frumsýnd í síðustu viku. Í henni er fylgst með hjónunum Ólafi Aðalsteinssyni og Jóhönnu Ólafsdóttur sem hafa í rúma tvo áratugi helgað sumur sín verndun og uppbyggingu æðarvarps í Loðmundafirði á Austfjörðum. Myndin sýnir á afar fallegan og hispurslausan hátt samband manns og náttúru, en Ólafur hefur til dæmis byggt sex þúsund fuglakofa í firðinum fyrir kollurnar enda koma sífellt fleiri fuglar þangað á hverju ári. Ingvar Þórðarson, einn leikstjóra og framleiðandi myndarinnar, kom í þáttinn ásamt Pálma Benediktssyni, en hann er tengdasonur Ólafs og Jóhönnu og kemur sjálfur fram í myndinni. Að lokum kynntum við okkur málþingið Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar sem verður haldið á miðvikudaginn í Loftskeytasöðinni. Þar verður varpað ljósi á hlutverk hvala í vistkerfinu og tengsl þeirra við líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni, kolefnisbindingu og heilbrigði hafsins. María Theodóra Ólafsdóttir forstöðumaður Loftskeytastöðvarinnar og Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sögðu okkur frá því sem þar fer fram í þætti dagsins. Tónlist í þættinum: Ég elska þig í akkorði / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Neil Sedaka, texti Ómar Ragnarsson) Rogastans /Brek (Jóhann Helgi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Sigmar Þór Mattíasson, Guðmundur Atli Pétursson, texti Jóhann Helgi Benediktsson) Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Breaking up is hard to do / Neil Sedaka (Neil Sedaka & Greenfield) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Populär i

Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.