Ekkert að frétta
Stefán Gunnlaugur Jónsson
0
Ekkert að frétta en gaman að hlusta. Guðmundur Orri Pálsson og vinir ræða um ýmislegt.
Avsnitt
-
245 - Við erum með barnalæti 27.07.2026 1h 1minÍ dag erum við börn. Mikilvægt að gleyma ekki aðvera börn reglulega. Við tölum um allt sem börn vilja heyra. Ga ga gú gú. -
244 - Ég fer í fríið 20.07.2026 1h 20minHvað á að pakka með til tene? Veit það ekki, hef aldrei farið en ég get giskað. Fáum Gumma til að svara þessari spurningu og öllum öðrum sem við koma fríinu þínu. Gjöriði svo vel. -
243 - Orðið er: Stöng 13.07.2026 55minTilraun fyrir hlaðvarpið hennar Gunnlaðar. Orðið er... Mér fannst ganga vel. -
242 - Hvernig á að stinga lögguna af á Hopp bíl? 06.07.2026 1h 15minGóður þáttur hjá strákunum þessa vikuna. Slá hvergi af. Hvalveiðar, Hopp bíll og hvaða ráð þú mundir gefa sjálfum þér árið 2016. Top tier dæmi. -
241 - Ýmislegt um hitabylgjur og kirkingar 29.06.2026 1h 11minHelstu fréttir, helstu fréttamenn. Allt snýst þetta um að koma efninu rétt frá sér á skilvirkan og skemmtilegan hátt. -
240 - Sumartrend og uppsagnir 22.06.2026 1h 3minRebekka Magg og Gunnlöð úr listahópnum Eldklárum og Eftirsóttum og kryfja með okkur helstu trendin í tískunni í dag. -
Sumartónleikar Ekkert að frétta 2026 12.06.2026 1h 16minÞessi tími árs er runninn upp. Allir listamenn þjóðarinnar halda sumartónleika. Við erum engin undantekning. Gjöriði svo vel. -
239 - Leikfangasaga 2 (Ísl tal) 01.06.2026 1h 22min239 - Leikfangasaga 2 (Ísl tal) by Stefán Gunnlaugur Jónsson -
238 - Alvöru blaðamaður ræðir einkamál í bændablaðinu 25.05.2026 1h 11minFréttir vikunnar í baksýnisspeglinum sem er rétt stilltur með báðar hendur á sýri. -
237 - Ofbeldi og skólaskylda 18.05.2026 1h 14minNý vika, nýr þáttur. Svínabú og ofbeldismyndbönd í brennidepli. Björgvin er sérfræðingur í hvoru tveggja. -
236 - Íslenski kvikmyndabransinn undir rafeindasmásjá 04.05.2026 1h 41minSara Rut býr djúpt í viðjum kvikmyndabransans á Íslandi og talar hér tæpitungulaust um allt sem við skiptir máli. Enginn sem dregur andan má láta þetta fram hjá sér fara. -
235 - Buxnabrennur og pítsaparty 27.04.2026 1h 18minSara er listakona fyrst og fremst. Hún á marga hatta og róterar þeim eins og nærbuxum en er fyrst og fremst vinkona. Hún er með og kryddar yfir ferð um fréttir vikunnar sem hafa nota bene aldrei veirð meira spicy. Heyrn er sjón ríkari, hlustiði hér. -
234 - Sveitt gaurastemning og ilmkerti 20.04.2026 1h 19minGummi er gaur. Stefán er gaur. Þess vegna eru þeir góðir gaurar saman. -
233 - Dánarfregnir og njálgunarbann 13.04.2026 1h 20minGestir þáttarinns eru Hófí, Stingvar og Gunnlöð. Þau eru svo miklir sérfræðingar í öllu sem tengist dánarfregnum og uppsögnum því var ekki annað hægt en að fá þau í þáttinn til að ræða fréttir vikunnar. -
232 - Kraftlyftingar á mannamáli 06.04.2026 1h 11minAron og Þorbjörg eru með okkur aftur þessa vikuna til þess að útskýra fyrir okkur allt sem við þurfum að vita þegar kemur að kraftlyftingum og listdansi. Minna farið í listdansinn í þessum þætti samt. -
231 - Ógnandi hegðun og perukökur 30.03.2026 1h 7minGestir, gestir, gestir við fáum Aron Friðrik og Þorbjörgu Matt til að ræða við okkur mikilvægu málin í dag. -
230 - Sexy eins og sjómenn með fiskveiðikvóta 23.03.2026 1h 1minBjörgvin er nýkominn í land eftir langa veru á sjó, þar sem hann fékk mjög snögga en detailaða yfirferð á öllu sem við kemur því að vera sjómaður og veiða fisk. Enginn hefur gert það betur. Hann er besti sjómaður á íslandi að hans sögn. Kv. frá kónginum, Björgvin B. -
229 - Vasaþjófnaður og ógnandi hegðun Símans hf. 16.03.2026 55minÞú þarft að vita hvað er í gangi, við ÞURFUM að halda þér upplýstri/um/u, komdu nú með inn í álfanna heim þar sem ekkert er eins og það sýnist og við út´skýrum fyrir þér fréttir liðinnar vikur og höfum ekki gaman á meðan. -
228 - Vatnselgur og botoxpungur 09.03.2026 1h 3minSindri Kamban og Stefán Ingvar vinir þáttarins koma og hjálpa Stefáni að fara yfir fréttir vikunnar þegar aðrir meðstjórnendur hafa annað "betra" að gera. -
227 - Skólamygla og launaviðtöl 02.03.2026 1h 3minPeptíð-Gummi er kominn aftur til að fylgja okkur í gegnum völundarhús líðandi stundar á fjölmiðlum alnetsins. Takk fyrir pent.
Populär i
Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.