Stóra myndin

Stóra myndin

Stóra myndin
Land Island
Genrer Historia
Språk IS
Avsnitt 2
Senaste 02.10.2026

Stóra myndin er íslenskt hlaðvarp sem tengir málefni samtímans við sögu, heimspeki og mannlegt eðli. Þar er fjallað um hringrás sögunnar, ris og fall menningarheima og lærdóm fortíðarinnar. Í þættinum er horft á stóru myndina frekar en að festast í málefnum líðandi stundar. Rætt er um hugsuði og tímabil allt frá Móses til nútímans, svo sem Platón, Cíceró, Rómaveldi, Dante, Machiavelli, Shakespeare og René Girard. Einnig eru teknar fyrir bækur og einstakir hugsuðir.

Avsnitt

  • #3 - Brauð og leikar 02.10.2026 1h 41min
    Er síminn orðinn okkar eigið Colosseum? Brauð og leikar er gamalt hugtak úr Rómaveldi sem á enn erindi við nútímann. Þá voru það kornúthlutanir og stórkostlegir leikar. Hvað gegnir sama hlutverki í dag? Við ræðum hvernig þægindi og afþreying geta haldið fólki uppteknu á meðan stærri spurningar um vald, frelsi og ábyrgð sitja á hakanum. Við tengjum brauð og leika Rómverja við íþróttir, samfélagsmiðla, endalausar þáttaraðir og fréttaflæði sem gefur okkur stöðugt eitthvað nýtt til að horfa á, gleðjast yfir eða reiðast.Hvenær er afþreying góð hvíld og hvenær verður hún flótti frá eigin lífi? Þarf einhver að stjórna okkur ef við erum sjálf tilbúin að láta athyglina af hendi? Og þarf samsæri til, eða nægir að fyrirtæki græði á athygli okkar og stjórnmálamenn njóti góðs af því að við horfum annað?Við skoðum tengsl þæginda, neyslu og þátttöku í samfélaginu. Hvað verður um borgarann þegar hlutverk hans snýst sífellt meira um að horfa, kaupa og láta þjónusta sig? Og hvernig tökum við aftur ábyrgð á tíma okkar, athygli og því samfélagi sem við viljum byggja?
  • #2 - Hermiþrá og René Girard 29.09.2026 2h 13min
    Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma langanir okkar ? Hvað langar þig að langa í?Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal annars fjalla um það hvaðan langanir okkar koma og hvernig þær smitast manna á milli. Af hverju verður leikfang skyndilega spennandi þegar annað barn tekur það upp? Eru nútíma áhrifavaldar að spila á eðli mannsins?Hvernig breytist fyrirmynd í keppinaut eða samkeppni í fjandskap? Getur sundraður hópur fundið samstöðu með því að finna sér blóraböggul? Sumir vilja meina að pólitíkusar spili á þetta eðli þegar þeir búa til óvini til að sameinast gegn.Við tengjum Girard við Biblíuna, þjóðsögur, Peter Thiel, stjórnmál, vinnustaði og samfélagsmiðla. Einnig skoðum við hvort við stjórnumst alfarið af rökhugsun eða fyrst og fremst af ríkjandi orðræðu í samfélaginu, og hvernig tengist það hugmyndum Girard?
  • #1 - Ekkert nýtt undir sólinni 29.09.2026 1h 54min
    Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri? Við ræðum gamlar og góðar bókmenntir og skoðum hvað helstu hugsuðir fortíðarinnar höfðu að segja. Hér má til dæmis nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis. Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það hefur áhrif á samfélög og þróun sögunnar. Öfund, metnaður, freistingar, vald, sjálfsblekking og hjarðhegðun, en líka hugrekki, tryggð og fyrirgefning. Hvernig tengist þetta allt nútímanum, erum við að endurtaka gömul mistök? Samfélagsmiðlar, gervigreind og nútímastofnanir eru ný fyrirbæri, en tæknibreytingar geta gert það að verkum að maðurinn fær nýjar leiðir til að endurtaka sömu mistökin.

Populär i

Den här podcasten finns även i podcastlistor i dessa länder.