Myrka Ísland

Myrka Ísland

Sigrún Elíasdóttir
ประเทศ Iceland
แนวเพลง History, Science, Social Sciences
ภาษา IS
จำนวนตอน 105
ล่าสุด 08.05.2026

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

ตอน

  • Hallmundur og hellarnir 08.05.2026 1ชม. 19นาที
    Við eigum afmæli! Af því tilefni heiðrum við uppruna okkar dreifbýlistúttanna og einbeitum okkur að uppsveitum Borgarfjarðar. Í þessum hundraðasta Myrka Íslands þættinum förum við ekki-jarðfræðingarnir yfir æsispennandi hraunbreiðuna Hallmundarhraun við Langjökul. Sagnfræði, kolefnimælingar, hellagerð, ferðamannabransi og goðafræði í bland við fornbókmenntir, þjóðfræði og aðrar lygasögur þar sem Surtur, Þór og heilmargir glæpamenn koma við sögu. Áhorfendur eru með okkur í notalegu Safna...
  • Morðabelgur 01.05.2026 1ชม. 22นาที
    Því miður vill það brenna við að morð eru framin á okkar litlu eyju. Mjög góðar skráningar og heimildir eru um þetta leiðinda athæfi hér. Við skoðum tvö afar ólík morðmál sem þó ekki eru svo langt frá okkur í tíma. Annað er frá 1891, þar sem durgurinn Jón fer á kostum. Hitt málið er frá 1929, þar sem hlífðargleraugu, ferðamaður og enn einn Jóninn leikur aðalhlutverk. Hversu marga Jóna þarf til að skapa eina smáþjóð? Og hvernig er hægt að refsa fyrir morð? Enn sýnum við snilli okkar í landafræ...
  • Fannbarið fé 24.04.2026 1ชม. 22นาที
    Eitt af svakalegustu óveðrum síðari tíma skall á landinu haustið 2012 sem hefur því miður ekki hlotið neitt sögulegt sérnafn ennþá. Norð Austurland varð sérstaklega illa úti í þessari tveggja daga stórhríð og mundu hvorki elstu menn, né veðurfræðingar þeirra aðra eins ofankomu að hausti. Svo óheppilega vildi til að fé var enn á fjalli og við tók þrotlaus vinna við að leita að og draga upp fé úr fönn. Við förum í gegnum veðurspár, rafmagnsleysi og hetjudáðir leitarfólks og öllum og óvörum, æsi...
  • Verbúðin Ísland 17.04.2026 1ชม. 43นาที
    Anna mætir til leiks með rafsuðuhanska og hjálm til að verjast meintum músagangi í stúdíóinu. Fyrir utan allt annað sem við tölum um, var ætlunin að ræða aðallega um fiskveiðar Íslendinga fyrr á öldum. Verið viðbúin að komast að uppruna ýmissa málshátta og orðatiltækja og hlusta á útúrdúra um formæður og krabbamein. Upp kemst að alhæfingar Sigrúnar um þorpamyndun á Íslandi, eigi alls ekki við rök að styðjast, því á þeim eru endalausar undantekningar. Hún veit heldur ekki úr hvaða borg Hansaka...
  • Af vandamálum presta 10.04.2026 1ชม. 22นาที
    Nú er komið að því að við veitumst að þjóðkirkjunni fyrr og síðar! Ekki í fyrsta skipti reynar, en Sigrún sló saman í samtíningsþátt af því skemmtilegasta frá svokölluðum 17. og 18. aldar prestastefnum. Prestastefnur voru, og eru eflaust enn, einhverskonar samkomur vígðra presta (einnig kallað LARP) þar sem lagt var á ráðin um hvernig ætti að taka á ýmsum málum, sérstaklega siðferðismálum. Kirkjusókn, messuvín, kirkjubekkir, Vottar Jehóva, vandræðaprestar, hjónaskilnaðir, lýsingar hjóna...
  • Krunk, krunk hrafnar 03.04.2026 1ชม. 24นาที
    Sigrún er krumma aðdáandi mikill og getur ekki staðist mátið að tala um hann í óratíma. Þessi ódrepandi Batman norðursins virðist geta lifað af kjarnorkuvetur á loftinu einu saman. Hann hefur lifað í nábýli við okkur frá landnámi og af honum hafa sprottið ótal sögur og þjóðsagnaminni. Sumt er ágætlega skynsamlegt en annað virðist tóm vitleysa.
  • Úr snjóflóði 27.03.2026 1ชม. 1นาที
    Saga dagsins gerist á fyrri hluta 20.aldar, í hinum stórmerkilegu Öræfum í Skaftafellssýslu og sögumaðurinn af merkum stofni. Eflaust náðum við að móðga alla sem þaðan eru ættaðir, minnst 12 ættliði aftur í tímann. Ungur maður fór eitt sinn í eftirleit við annan mann í leit að sauðum í Breiðamerkurfjalli. En lenti fljótlega í sannkölluðum hremmingum sem töfðu verulega fyrir verkefninu. Við fáum smá innsýn inn í hugrenningar mannsins í einveru sinni og hvernig fór fyrir honum.
  • Þúsundkallinn Brynjólfur 19.03.2026 1ชม. 27นาที
    Í Marvelheiminum/Íslandssögunni höfum við í ótal þáttum rekist á aðal stjörnu þáttarins; Sjálfan þúsundkallinn, Brynjólf Sveinsson, sem var biskup 1639-1674. Sigrún talar óvenju hratt og mikið, nánast þar til röddin gefur sig. Nær engan vegin að halda sig við kirkjulegt efnið. Umræður fara um víða velli með viðkomu í spuna, manntölum, salsadansi, þrískiptingu valds, myrkfælni, njósnastarfsemi, legorðsskuldum, námstækni, lengd meðgöngu og peningaprentun. Efnið er tragískara en þáttastýra áætla...
  • Bárður Snjáfellsás 13.03.2026 1ชม. 40นาที
    Sigrún fær munnræpu og býður upp á fáránlega langa spin off Íslendingasögu, sem vill eiginlega frekar vera ævintýri. Það er skömm að því að búa svo nálægt Snæfellsnesi og þekkja ekki þessa sögu. Fjölskylduböndin eru á flækjustigi á pari við Bílastæðaverði Fóstbræðra og við sögu koma barnaperrar, vígahundar, galdramenn, gráðugir draugar, kristnisjúkir konungar og fjölmörg ný og skemmtileg orð í orðabankann. Konurnar spreyta sig á brotareikningi, sem hvorug er greinilega með meirapróf í.
  • Morð fyrir tvo 06.03.2026 1ชม. 1นาที
    Sakamálaþáttur frá 18. öld! Hvað gerir stjórnandi ekki til að gleðja morðóða hlustendur? Lítt þekkt og nánast ónotað morð fannst við heimildauppgröft, þar sem grjóthella virðist helsti sökudólgurinn og sögupersóna, hvort sem hún endaði í tveimur bútum eða sé enn í heilu lagi. Í Biskupstungunum var allavega heilmikið slúðrað um það sem virðist hafa verið nútímalegt hjónaband, og ótal margar útgáfur af sama atburðinum.
  • Auka þáttur! Ung, há, feig og ljóshærð, skrif Auðar Haralds 31.10.2025 1ชม. 10นาที
    Myrka Íslandi var boðið að marinera sig í kvenréttingamálum í eina klukkustund og tóku því fegins hendi! Þemað var konur, réttindabarátta og bókmenntir. Sigrún kaus að ræða um sitt helsta átrúnaðargoð og tótemdýr; Auði Haralds. Fyndnari og kaldhæðnari penna er erfitt að finna en hún gagnrýndi líka samtíma sinn og sagði frá sinni persónulegu reynslu sem féll oftar en ekki í grýttan jarðveg samborgaranna. Bækur hennar Hvunndagshetjan frá 1979 og Læknamafían frá 1980 segja frá reynsuheimi einstæ...
  • Vesturfarar 03.10.2025 1ชม. 27นาที
    Það er komið að síðasta þætti 9. seríu! Þar sem við förum yfir ferðir Íslendinga yfir Atlantshafið fyrir um 150 árum, ástæður þeirra og afdrif. Í leiðinni sendum við leiðréttingar út í alheiminn, gagnrýnum sértrúarsöfnuði, breytum okkur í bæði jarð og veðurfræðinga, sönnum um leið að við erum hvorugt, íhugum heimþrá og þjóðerni og Sigrún óskar eftir ættingjum sem gætu hafa flust til Ameríku á laun.
  • Berklar 26.09.2025 1ชม. 11นาที
    Það er komið að einni þrautseigustu og skæðustu pest síðari tíma. Margar kynslóðir Íslendinga voru haldnar mjög djúpstæðum ótta við berklana sem gátu gert fólk að sjúklingum um árabil eða að öryrkjum ævilangt og fellt heilu fjölskyldurnar. Veðurguðirnir höfðu skoðanir á þessum þætti og gerðu sitt besta til að koma sér í útsendingu. Um miðbik þáttar þurftum við að færa Batmobile í betra skjól fyrir haust rigningunni. Boðskapur dagsins: alltaf að klára sýklalyfjaskammtinn sem þið fáið úthlutaða...
  • Vistarbandið; hið íslenska þrælahald? 19.09.2025 1ชม. 45นาที
    Í ljósi messufalls síðustu viku, töluðum við tvöfalt í þessum þætti! Um vistarbandið ógurlega, þrælahald, evrópskt kóngafólk, fordæmingu á verslun, landbúnaðarsamfélagið, eilífðar baráttuna um ódýrt vinnuafl, hörundssára bændastétt og æsilegar deilur um sjónvarpsþætti á Rúv. Nýyrði dagsins eru afbendismenn, skaufstofan og saurfíklar. Niðurstaðan er að samtal og endurmat á viðteknum söguskoðunum er bráðnauðsynleg öllum þjóðum, ekki síst gagnýni á krabbameinið sem hið kapítalíska, þjóðernissinn...
  • Anna á Stóru Borg 04.09.2025 1ชม. 2นาที
    Við elskum konur og ekki síst ef þær heita Anna! Tíminn eftir siðaskiptin einkenndust af miklum eldmóði í siðferðismálum á Íslandi. Sem hentaði Önnu á Stóruborg, hefðarkonu á 16.öld sem átti margar hurðir, afar illa. Þar sem sá maður sem henni hugnaðist að giftast var ekki henni samboðinn samkvæmt Páli bróður hennar. Sem varð til þess að þau systkinin hófu margara ára störukeppni þar sem hvorugt vildi gefa eftir, þrátt fyrir að sönnunargögnin hrúguðust upp.
  • Aftaka Jóns Arasonar 29.08.2025 1ชม. 26นาที
    Langt og flókið mál en það er svo áhugavert og mikilvægt að langur þáttur gæti verið fyrirgefanlegur. Menn eru með frekju og dramaköst, klaga yfirmenn, stinga á sig jörðum, deyja úr fátækt, þröngva presta til trúskipta, tala tungum, stunda byssubardaga í kirkjum og hanna almennt ljómandi gott handrit fyrir HBO þáttaraðir. Það er nú aldeilis gott að karlmenn eru skynsamir og stjórnast aldrei af tilfinningasemi. Meira snakk, meiri kirkjur! Anna er með dólg og læti við að búa til dúska í handavi...
  • Fleiri hrakningar á heiðum 22.08.2025 59นาที
    Hvað er þjóðlegra og napurlegra en að eigra einn síns liðs á íslenskri heiði? Sigrún er í það minnsta heilluð af slíkum sögum. Við förum til Skagafjarðar og fylgjumst með tveimur mönnum í eftirleitum á Hofs afrétt. Eða er það Hofsa frétt? Boðskapurinn er: ekki fara að heiman síma og nestislaus!
  • Spíritismi tekur land á Íslandi 15.08.2025 1ชม. 32นาที
    Spíritismi er málefni sem Sigrúnu hefur lengi langað að ræða á einhvern hátt. Hún fann nokkrar sögur af yfirnáttúrulegri reynslu en efnið er svo víðfeðmt og það var svo langt síðan þær Anna hittust að þátturinn varð óralangur því það gleymdist eiginlega að slökkva á upptökutækinu! Þið fáið því að heyra ýmislegt á bak við tjöldin en það er allt siðsamlegt og hollt tal um álfatrú, innri íhugun, andleg veikindi, legsteina, ferðamannastaði, hvað verður um Grindavík? Og börnin, er enginn að hugsa ...
  • Morð í Eyjum 08.08.2025 1ชม. 4นาที
    Við grófum upp óþekkt dauðsfall! Næstum í útlöndum, því atburðurinn gerðist í Vestmannaeyjum. Undarlegt mál sem hlýtur að vera morð. Við sögu koma mektar menn, skítlegur Dani, grunsamlegar konur, íbitin epli, forvitnar klöguskjóður, sögusagnir og við pirrum okkur að vanda yfir spurningum sem enginn spurði við yfirheyrslur á fólki í denn.
  • Björn Jórsalafari 01.08.2025 1ชม. 20นาที
    Hver elskar ekki að heyra að til hafi verið rosalega áhugaverð frásögn af ferðalagi en að hún sé því miður alveg týnd? Ekki Sigrún! Hún fær útundanótta af því að hafa misst af 600 ára gamalli ferðasögu. En er beinar heimildir þrýtur er alltaf hægt að fylla upp í með ágiskunum og klassískum skáldskap. Kannski er hún bara svona forvitin um sígillda upphafna ríkisbubba sem halda að þeir séu allra manna bestir? Sennilega af því að hana dreymir sjálfa um að dragnast með lútuspilandi sagnaskáld hve...

ยอดนิยมใน

พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย