HR Hlaðvarpið

HR Hlaðvarpið

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
ประเทศ ไอซ์แลนด์
แนวเพลง Education
ภาษา IS
จำนวนตอน 114
ล่าสุด 18.06.2026

HR-hlaðvarpið er vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík þar sem vísindafólk, kennarar og sérfræðingar fjalla um rannsóknir sínar og verkefni. Þátturinn miðlar þekkingu út fyrir veggi skólans og veitir innsýn í líf nemenda og starfsemi háskólans. Umsjón með hlaðvarpinu hefur samskiptasvið HR.

ตอน

  • Íþróttarabb HR // 27. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Davíð Má Sigurðssyni 18.06.2026 41นาที
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Davíð Már Sigurðsson, íþrótta- og sundkennari í Rimaskóla. Hann, ásamt samstarfskonu sinni Sigrúnu Blomsterberg, hlaut viðurkenninguna fyrir einstaklega vel skipulagt verkefni í aukakennslu í sundi. Davíð segir okkur frá því hvernig þau styðja við nemendur sem glíma við vatnshræðslu eða óöryggi í vatni. Við ræðum meðal annars: Skref fyrir skref: Hvernig áfangamiðuð viðmið leiða nemendur áfram þar til þeir eru tilbúnir í almenna bekkjarkennslu.Skýrleika í fyr...
  • Verkfræðivarpið// 42. þáttur - Atli Snær Ásmundsson 17.06.2026 41นาที
    Spunagreind býður upp á ótal möguleika og þar á meðal til kennslu og fræðslu. Í Verkfræðivarpinu er tekinn tali Atli Snær Ásmundsson doktorsnemi við Verkfræðideild HR. Atli Snær segir frá doktorsverkefninu sínu sem gæti valdið straumhvörfum þegar kemur að kennslu og stjórnendaþjálfun. Hugmyndin er að nýta gervigreind til að lesa í tilfinningar nemenda og aðlaga kennsluna að þörfum hvers og eins. Allir nemendur eru sérstakir og allir nemendur tileinka sér þekkingu með ólíkum hætti....
  • Verkfræðivarpið// 41. þáttur - Jónas Ketilsson 03.06.2026 42นาที
    Gestur Verkfræðivarpsins að þessu sinni var Jónas Ketilsson, yfirverkefnisstjóri stækkunar ÞeistareykjastöðvarLandvirkjunar. Á síðustu þremur árum hefur hann gegnt lykilhlutverki í þróun nýrrar tækni, leitt umbreytingu fjölþættra leyfis- og umhverfisstjórnunarþátta, þróun og innleiðingu alþjóðlegra viðmiða auk samþættingar fjölmargra verkefna og hagsmunaaðila tengdri stækkun virkjunarinnar. Nýverið hlaut hann svonefnda A vottun IPMA, hæstu alþjóðlegu viðurkenningu IPMA fyrir forys...
  • Íþróttarabb HR // 25. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni 02.06.2026 30นาที
    Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025. Tryggvi Jóhann Heimisson fékk viðurkenningu fyrir sína umsókn vorið 2025 og hann er gestur þáttarins. Í viðtalinu fóru þ...
  • Verkfræðivarpið// 40. þáttur - Florence Kennedy 29.04.2026 44นาที
    Florence Kennedy er framkvæmdastjóri Negotiate Ltd. Hún er dóttir Gavin Kennedy sem var prófessor við Heriot-Watts háskólann í Edinborg og einn virtasti fræðimaður heims á sviði samingatækni. Florence tók við kefli föður síns og kennir, þjálfar og skrifar bækur um samingatækni. Hún hefur kennt í MPM-náminu frá upphafi þar sem fræðilegur bakgrunnur hennar auk víðtækrar alþjóðlegrar reynslu gerir vinnustofur hennar alveg einstakar. Í viðtalinu ræðir Haukur Ingi við Florence um samingatækn...
  • Verkfræðivarpið// 39. þáttur - Gervigreind sem einkakennari? Hinrik Jósafat Atlason segir frá Atlas Primer 28.04.2026 42นาที
    Hinrik Jósafat Atlason er stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer og hefur unnið að þróun gervigreindarlausna síðan árið 2005. Árið 2018 þróaði hann gervigreindareinkakennara sem hjálpar fólki að læra í gegnum talviðmót. Í dag leiðir hann alþjóðlega uppbyggingu Atlas Primer á þremur heimsálfum, en fyrirtækið hefur verið til umfjöllunar í Forbes og hlotið viðurkenningu frá TIME og Statista sem eitt af fremstu EdTech fyrirtækjum heims. UM VERKFRÆÐIVARPIÐ Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þei...
  • Verkfræðivarpið// 38. þáttur - Guðmundur Pálsson tónlistarmaður og fjölmiðlamaður um verkefnastjórnun og MPM námið 14.04.2026 52นาที
    Guðmundur Pálsson er fjölmiðlamaður og tónlistarmaður með fjölbreyttan bakgrunn. Hann er BA í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands og starfaði meðal annars hjá Hafrannsóknarstofnun og Íslenskri erfðagreiningu áður en hann sneri sér að fjölmiðlum. Margir þekkja rödd hans eftir áralangan feril hjá RÚV, þar sem hann hefur komið að dagskrárgerð á Rás 1 og Rás 2 sem og í sjónvarpi. Guðmundur er jafnframt einn af stofnendum og lykilmaður í hinum landsþekkta fjöllistahópi Baggalúti, sem hefur sett m...
  • Íþróttarabb HR// 26. þáttur - Afreksvæðing barna og unglinga í brennidepli 13.04.2026 1ชม. 1นาที
    In this episode, Daði Rafnsson from Reykjavík University discusses the professionalization of children’s and youth sports with internationally renowned experts. It was recorded in connection with the Reykjavik International Games in January 2026. Guests are Mark O’Sullivan, Martin Camiré and Siubhéan Crowne. Professionalization in youth sport refers to the increasing adoption of adult professional sport structures, practices, and expectations within youth and junior sport environments, ...
  • Verkfræðivarpið // 37. þáttur: Vinningshafar nemendaverðlauna SIF 18.03.2026 28นาที
    Rætt var við hóp verkfræðinemenda sem vann nemendaverðlaun SIF - Rannsóknaseturs í sjálfbærni haustið 2025. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni sem hópurinn vann í sjálfbærninámskeiði undir handleiðslu Dr. David Finger. Í námskeiðinu er nemendum gert að takast á við raunveruleg vandamál í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, með áherslu á sköpunargáfu, kerfishugsun og slagkraft. Verðlaunaverkenfið nefnist Kolefnisfótspor Krónunnar og hópurinn samanstendur af ...
  • Verkfræðivarpið // 36. þáttur: Sveinn V. Ólafsson vélaverkfræðingur 27.01.2026 40นาที
    Sveinn V. Ólafsson er vélaverkfræðingur með langa og fjölbreytta starfsreynslu. Hann starfar sem sjálfstæður ráðgjafi og fyrirlesari á sviði gæðastjórnunar. Hann lauk meistaraprófi (MSc) í flug- og kerfisverkfræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum og hefur komið víða við á starfsferli sínum og m.a. unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem tengjast flugrekstri - þar sem mikil áhersla er lögð á notkun staðla og gæðastjórnun. Sveinn hefur einnig unnið að þróun ISO 9001 gæðastaðalsins fyrir Íslands...
  • Verkfræðivarpið // 35. þáttur: Ásdís Sigurðardóttir gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni 20.01.2026 25นาที
    Ásdís Sigurðardóttir er gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni. Hún er vélaverkfræðingur með sérhæfingu í framleiðslu- og gæðastjórnun frá NTNU í Noregi. Ásdís hefur víðtæka starfsreynslu, meðal annars hefur hún starfað við mannvirkjagerð og við verkfræðiráðgjöf, bæði á Íslandi og í Noregi. Einnig hefur hún átt farsælan íþróttaferil sem handknattleikskona, hún var um tíma í íslenska landsliðinu og hefur leikið með félagsliðum bæði hérlendis og erlendis. Sú reynsla hefur mótað sýn hennar á mikilvæg...
  • Íþróttarabb HR// 23. þáttur - Á toppinn með Kjartani Stefánssyni 19.01.2026 38นาที
    Gestur þáttarins er Kjartan Stefánsson, margreyndur grunnskólakennari og knattspyrnuþjálfari með meiru. Kjartan hefur kennt skólaíþróttir við Árbæjarskóla við góðan orðstír og stundar meistaranám við íþróttafræðieild HR. Í þættinum ræðir Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður meistaranáms til kennsluréttinda (MEd) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, við Kjartan um valfag í unglingadeild sem hann kom af stað fyrir þó nokkrum árum ásamt kollega sínum og kallaðist Á toppinn. Verkefnið ...
  • Verkfræðivarpið // 34. þáttur: Um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Íslandi - Rætt við Pál Jensson prófessor við HR. 16.01.2026 28นาที
    Páll Jensson prófessor er einn af mikilvægustu fræðimönnum hérlendum í hópi verkfræðinga. Hann byggði upp kennslu og rannsóknir í iðnaðarverkfræði á Íslandi með félaga sínum Pétri heitum Maack prófessor, en þeir voru lykilmenn í Verkfræðideild Háskóla Íslands. Páll kom til HR 2011 og hefur komið ótrúlega miklu í verk í starfi sínu sem fræðimaður og kennari og mjög margir þekkja Pál sem afburðagóðan kennara. Í spjallinu ræddi Helgi Þór við Pál um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Í...
  • Sálfræðispjallið//Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-seinni hluti 15.01.2026 41นาที
    Í þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er seinni þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu. Vinsamlegast athugið að efni þáttarins er ekki við hæfi barna. Þáttur 2: Steinunn Eva Hauksdóttir og Ísabe...
  • Sálfræðispjallið// Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði -fyrri hluti 15.01.2026 45นาที
    Í þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er fyrri þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu. Vinsamlegast athugið að efni þáttarins er ekki við hæfi barna. Þáttur 1: Grímur Steinn Vilhjálmsson Magnú...
  • Íþróttarabb HR// 24. Þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Sillu 08.01.2026 28นาที
    Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025. Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir oftast kölluð Silla fékk viðurkenningu fyrir sína umsókn vorið 2025 og hún er...
  • Open Access Publishing: Human Right versus Monetised Commodity 20.10.2025 32นาที
    This podcast episode, produced for International Open Access Week, features a conversation between Ragna Björk Kristjánsdóttir, Library Director at Reykjavík University, and Professor Jack James, exploring the theme “Who owns our knowledge?” The discussion critically examines the evolution of academic publishing from its early ideals of freely shared knowledge to the current reality of monetised open-access systems dominated by commercial publishers. Professor James argues that the comm...
  • Viðskipta- og hagfræðivarpið; Dr. Hallur Þór ræðir við listamanninn ODEE 21.05.2025 1ชม.
    🎙️ ODEE og Hallur ræða hér samspil frumkvöðlastarfs og lista. Frumkvöðlar og listamenn eiga fleira sameiginlegt en marga grunar. Hvoru tveggja eru skapandi störf, sem vinna oft að því að hafa áhrif á umhverfi og samfélag. Hallur birti nýverið rannsóknargrein í tímaritinu International Journal of Entrepreneurial Behavior & Research, ásamt Marinu Candi og Dimo Dimov. Þar greina þau listagjörning ODEE, MOM Air (www.momair.is) og þróa hugmyndir um listræna nálgun og aðferðafræði (artistic log...
  • Íþróttarabb HR// 22. þáttur: Dr Magni Mohr forstöðumaður heilbrigðisvísindasviðs í Háskólanum í Færeyjum 09.05.2025 40นาที
    Í þessum þætti ræðir Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild og umsjónarmaður MED-námsins, við Dr. Magna Mohr, sem fer fyrir heilbrigðisvísindasviði í Háskólanum í Færeyjum. Magni er með doktorsgráðu í íþróttasálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og meistaragráðu frá sama skóla í lífeðlisfræði. RU Sport Psych Podcast er þáttasería innan Íþróttarabbs HR, sem er haldið úti af íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Í þessari syrpu er íþróttasálfræði skoðuð frá ýmsum sjónarhornum...
  • Sálfræðispjallið//Aðgengilegar aðferðir HAM þróaðar á stafrænu formi fyrir foreldra-Cathy Creswell prófessor við Háskólann í Oxford 02.05.2025 31นาที
    Prófessor Cathy Creswell er gestur Sálfræðispjallsins að þessu sinni. Hún er virtur breskur sálfræðingur sem sérhæfir sig í barna- og þroskasálfræði með sérstakri áherslu á kvíðaraskanir hjá börnum og unglingum. Crewsell gegnir prófessorsstöðu við Háskólann í Oxford þar sem hún stýrir rannsóknarhópnum The Oxford Psychological Interventions for Children and Adolescents (TOPIC). Eitt af hennar merkustu framlögun er stafræna lausnin Online Support and Intervention (OSI) sem tekið hefur verið upp...

ยอดนิยมใน

พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย