Út að hlaupa
Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson
0
Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!
Bölümler
-
#130 Laugavegs uppgjör! 13.07.2026 1sa 38dkÍ þessum þætti snýst allt um Laugavegshlaupið sem var gert upp í allri sinni mynd. Við fórum einnig yfir íslandsmótið í 10 km hlaupi sem haldið var í Ármannshlaupinu um daginn.
-
#129 Laugavegs upphitun! 07.07.2026 1sa 41dkAllt sem þú þarft að vita um Laugaveginn!
-
#128 Elísa elskar Ítalíu! 02.07.2026 1sa 38dkElísa Kristins, hlaupadrottningin sjálf kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um frækinn sigur í Lavaredo, kom með predictions fyrir Laugarveginn og gerði upp síðustu hlaup á landinu!
-
#127 Ísmaðurinn - alltaf í formi! 18.06.2026 1sa 22dkFengum Davíð Frey Magnússon í Bose stúdíóið sem gestastjórnanda. Fórum yfir hans stutta en magnaða hlaupaferil til þessa ásamt því að ræða það sem hefur verið á döfinni í íslensku hlaupasamfélagi!
-
#126 EM uppgjör! 10.06.2026 1sa 31dkVið vinirnir hittumst í Bose stúdíóinu og gerðum upp EM í Slóveníu ásamt síðustu hlaupum innanlands!
-
#125 Þú fokkar ekki í landsliðinu! 27.05.2026 1sa 40dkAndrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal!
-
#124 Tove Tvennan! 18.05.2026 1sa 34dkTove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu.
-
#123 Búinn að krakka hlaupin! 13.05.2026 1sa 29dkAllt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis.
-
#122 Bolirnir mættir! 08.05.2026 1sa 22dkVið strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann!
-
#121 Puffin run upphitun! 29.04.2026 1sa 19dkUppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið!
-
#120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli! 28.04.2026 1sa 34dkMagnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins!
-
#119 Gott hugarform! 22.04.2026 1sa 33dkNú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins!
-
#118 Apríl þrennan! 09.04.2026 1sa 13dkÍ þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi!
-
#117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða! 31.03.2026 1sa 17dkHin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún er í doktorsnámi í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna. Lára sérhæfir sig í mælingum, álagsstýringu, styrktar- og þolþjálfun og hefur kennt á KSÍ þjálfaranámskeiðum sem leiðbeinandi með KSÍ A leiðbeinendagráðu. Hún starfar sem fitnessþjálfari meistaraflokks kvenna Víkings og U23 landsliðs kvenna, sinnir rannsóknum við Háskólann í Reykjavík og kennir íþróttavísindi við grunnskólann NÚ. Lára hefur margra ára reynslu í líkamlegri þjálfun og knattspyrnu, bæði sem þjálfari og leikmaður yngri landsliða Íslands.
-
#116 DNF aftur elskan mín? 27.03.2026 51dkChianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur! ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun! 15 mín upphitun 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt. Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin. Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar minna þannig að ákefðin sé alltaf sú sama. 15 mín niðurskokk
-
#115 Tilbúinn að slá Íslandsmet! 20.03.2026 55dkVið fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni Andréssyni sem ræddi við okkur um nýjasta Íslandsmetið sitt, puffin run og næstu áskorun sína sem er heilt maraþon í Hannover!
-
#114 Orðlaus á Azores! 19.03.2026 1sa 11dkHugleiðingar, hlaupauppgjör síðustu hlaupa, íslandsmet og endurkomur. Glóðvolg skýrsla frá Azores eyjum. Hvað viljið þið meira?
-
#113 Winter is where it starts! 26.02.2026 59dkVið Út að hlaupa bræður fórum yfir síðustu æfingar og það sem framundan er. Heyrðum í Arnari Péturs sem er að undirbúa sig fyrir 100 km hlaup í Slóveníu eftir mánuð og fórum yfir góð ráð fyrir þá sem vilja ná árangri!
-
#112 Spikfeitur Latsi - Return of the king! 18.02.2026 1sa 50dkKing Latsi mætti í Bose stúdíóið og lokaði næringarþríleiknum stóra með spikfeitum þætti um fitu!
-
#111 Kóngamove að vera með rennt frá! 14.02.2026 1sa 5dkVið ræddum landsliðsvalið fyrir EM í Kamnik, fórum yfir síðasta powerade, vorum með spikfeitann Strava lið og fórum yfir góð ráð hvað varðar næringu fyrir stóru keppnina þína!
Şurada popüler
Bu podcast şu ülkelerin podcast listelerinde de yer alıyor.