Kerfið
RÚV Hlaðvörp
0
Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Bölümler
-
3. þáttur - Staðan versnar bara 02.06.2026 57dkEmbætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins 26.05.2026 1saÞað tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1. þáttur - Börn og biðlistar 19.05.2026 59dkBörnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri 07.04.2026 58dkVerkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kristjana Stella Blöndal. Auk þess er rætt við nemendur í VMA. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4. þáttur FSu og MK 31.03.2026 56dkÍslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson og Stella Blöndal. Jafnframt er rætt við nemendur Matvælaskólans og gesti á opnu húsi í MK. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3. þáttur Tækniskólinn 24.03.2026 56dkAukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2. þáttur - Skortur á faglegri forystu 17.03.2026 57dkÞað þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1. þáttur Mælingar og margt fleira 10.03.2026 57dkMjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða bókstöfum. Hvort fimmtán ára drengir séu upp til hópa ólæsir og sífellt verri útkomu í PISA. Það hefur aftur á móti minna farið fyrir umræðu um hvers vegna hlutfall íslenskra nemenda sem búa yfir afburðahæfni lækkar á sama tíma og nemendum sem ekki ná meðalhæfni fjölgar. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
7. Virði íslensks stúdentsprófs 30.11.2025 43dkBorið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársælsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Sólveig Hannesdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
6. Við erum alls konar 23.11.2025 42dkVið erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardóttir, Gunnlaugur Magnússon, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Kristín Þóra Möller, Magnús Þorkelsson, Sigríður Anna Ólafsdóttir og Þóra Þórðardóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5. Kennaramenntun og faggreinar 16.11.2025 42dkÞað vantar faggreinakennara í ýmsum greinum, þar á meðal í svonefndum STEM-greinum. Vandamálið er að það er of fátt ungt raungreinafólk sem lítur á framhaldsskólann sem sinn framtíðarvinnustað. Viðmælendur í fimmta þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Freyja Hreinsdóttir, Guðjón Haukur Hreinsson og Gunnlaugur Magnússon. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4. Það vantar húsnæði 09.11.2025 42dkStjórnendur framhaldsskóla segja það áskorun að koma öllum fyrir sem stunda þar nám. Kennsla fer jafnvel fram í gámum og geymslum og þetta getur haft þau áhrif að færri sæki í verknám en annars væri. Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á verknáms-, starfsnáms- eða stúdentsbrautir velja framhaldsskólabraut. Viðmælendur í fjórða þætti eru: Berglind Halla Jónsdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, Kristján Ásmundsson, Kristín Þóra Möller, Sigríður Anna Ólafsdóttir, Sólveig Hannesdóttir, Víðir Stefánsson og nemendur í FB og FS. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3. Námsmat og námsefni 02.11.2025 42dkNámsmat og námsefni eru stór hluti af starfi innan framhaldsskólakerfisins. Félagslífið er líka mikilvægur hluti af framhaldsskólanum. Gervigreindin er tækni sem ryður sér hratt til rúms í menntakerfinu líkt og annars staðar. Á sama tíma eiga ýmsar námsbrautir undir högg að sækja. Viðmælendur í þriðja þætti Stakkaskipta eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Matthildur Ársælsdóttir og Sólveig Hannesdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2. Er skólakerfið á villigötum? 26.10.2025 42dkVegna þess hversu opin aðalnámskrá framhaldsskóla er þá er framhaldsskólum nánast í sjálfsvald sett hvaða hvaða námsefni er kennt og hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna til þess að ljúka námi. Engu að síður kemur fram í námskránni að í kjarnagreinum skuli námsmat í lokaáföngum til stúdentsprófs taka mið af viðmiðunarprófum sem ráðherra lætur í té eða viðurkennir. Þessu ákvæði er ekki framfylgt. Viðmælendur í öðrum þætti eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Harðarson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðbjörg Rut Þórisdóttir og Magnús Þorkelsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1. Samræmi lítið sem ekkert 19.10.2025 41dkHosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
6. Bekkjarkerfi eða áfangakerfi 14.05.2025 43dkFramhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur hvetja ungmenni til að horfa á styrkleika sína og velja skóla í samræmi við þá. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Eva Dögg Sigurðardóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir, Guðrún Inga Sívertsen, Jón Páll Haraldsson, Kristjana Stella Blöndal, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon, Meyvant Þórólfsson, Steinn Jóhannsson og nemendur í Hagaskóla og Laugalækjarskóla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5. Samstarf á milli skólastiga 14.05.2025 42dkMjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill meirihluti þeirra sem ljúka grunnskólanámi velur bóknám þegar kemur að framhaldsskólanum en verknám hefur unnið á. Bakgrunnur skiptir máli þegar kemur að vali á framhaldsskóla. Viðmælendur í fimmta þætti Kaflaskila eru: Árni Ólason, Berglind Rós Magnúsdóttir, Birgir Jónsson, Elsa Eiríksdóttir, Sigrún Blöndal, Sæberg Sigurðsson og nemendur í Egilsstaðaskóla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4. Hvað ef þú passar ekki í boxið? 14.05.2025 42dkVið komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið sem skólinn getur boðið þeim upp á. Í þættinum er einnig fjallað um fjölbreytt námsmat. Viðmælendur í fjórða þætti Kaflaskila eru: Anna Björk Sverrisdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Gunnar Gíslason, Ívar Rafn Jónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon og nemendur í tíunda bekk Laugalækjarskóla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3. Góður kennari er gulli betri 11.05.2025 41dkGóður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma mikilvægi læsis og lesskilnings á öllum stigum grunnskólans. Viðmælendur í þættinum eru: Gunnar Gíslason, Hjalti Halldórsson, Ívar Rafn Jónsson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Oddur Ingi Guðmundsson, Ómar Örn Magnússon, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í tíunda bekk Hagaskóla og Laugalækjarskóla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2. Samræmt námsmat og einkunnaverðbólga 04.05.2025 43dkNýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er staðreynd en Ísland er ekkert eyland þar. Viðmælendur í öðrum þætti Kaflaskila eru: Brynhildur Sigurðardóttir, Freyja Birgisdóttir, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Sigrún Blöndal, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í Egilsstaðaskóla og Laugalækjarskóla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Şurada popüler
Bu podcast şu ülkelerin podcast listelerinde de yer alıyor.