Glæpir í gömlum húsum
RÚV Hlaðvörp
0

Í þáttaröðinni Glæpir í gömlum húsum eru gömul íslensk hús endurvakin í gegnum merkilega sögu þeirra og fólksins sem í þeim bjó. Húsin eiga það sameiginlegt að í þeim hefur eitthvað saknæmt átt sér stað og ekkert þeirra stendur enn í sinni upprunalegu mynd eða staðsetningu.

Umsjón: Adda Steina Ísfeld og Saga Sigurðardóttir

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bölümler

Dillonshús 28.06.2025 35dkDillonshús í Reykjavík er eina húsið í þáttaröðinni sem stendur enn, þó ekki sé á sama stað og þegar það var byggt. Fyrsti íbúinn var Sire Ottesen sem átti merkilega ævi og var oftar en ekki á milli tannana á Reykvíkingum á sínum tíma. Löngu seinna flytur önnur kona, Hulda Karen Larsen í húsið ásamt fjölskyldu sinni sem þurfti að berjast mikið fyrir sér og sínum áður en allt fór á versta veg og hún dó á heimili sínu í fjölmennasta morði 20. aldarinnar á Íslandi. Tónlist: Mary Lattimore, tónlistarhópurinn Umbra, Gadus Morhua, Patricia Brennan, Gyða Valtýsdóttir, Hildegard von Bingen, Brian Eno, Bruce Brubaker. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Svalbarð „Vofa Sólborgar” 21.06.2025 39dkSólborg Jónsdóttir liggur með barni sínu í Svalbarðskirkjugarði í Þistilfirði. Einar Benediktsson gegndi hlutverki sýslumanns í Sólborgarmálinu og er sagður hafa tekið andlát Sólborgar mjög nærri sér og trúði því líkt og margir að vofa Sólborgar fylgdi honum á milli bæja og sveita sem varð til þess að henni var gefið viðurnefnið draugurinn í Höfða. Viðmælandi : Aðalbjörg Jónasdóttir.Tónlist: Mary Lattimore, Gyðja Valtýsdóttir, Hildegard von Bingen, Jóhann Jóhannsson, Hildar Guðnadóttir, Robert Aiki Aubry Lowe, tónlistarhópurinn Úmbra, Lotte Pen, Nora Fischer. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Svalbarð „Sólborgarmálið” 14.06.2025 42dkSólborg Jónsdóttir starfaði sem vinnukona á bænum Svalbarð í Þistilfirði um tíma eða allt þar til hún dó í sínum eigin réttarhöldum í gestastofunni á bænum. Enn í dag rúmri öld síðar er fólk enn ósammála um hvernig dauða Sólborgar bar að garði og hverju sé um að kenna að svo fór sem fór.Viðmælendur: Daníel Hansen, Aðalbjörg Jónasdóttir og Aldís Gunnarsdóttir.Tónlist: Mary Lattimore, Gyða Valtýsdóttir, Hildegard Von Bingen, Jeremiah, Chiu, Marta Sofia Honer, tónlistarhópurinn Umbra, Theresa Wong, Pauline Oliveros, Lotte Pen, Nora Fisher. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þórarinsstaðir „Blóðskömm og dulsmál” 07.06.2025 45dkHalldóra Jónsdóttir bjó við mikla einangrun á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði ásamt föður sínum og systkinum. Lífið sem hún þekkti breyttist þó snögglega í kjölfar þess að fjórir menn frá sýslumannsembættinu gerðu sér ferð að bænum vegna gruns um glæpsamlegt athæfi. Halldóra fékk á endanum dauðadóm og henni drekkt líkt og fjölmörgum konum hér á öldum áður.Viðmælandi : Kristín Amalía AtladóttirTónlist: Mary Lattimore, tónlistarhópurinn Umbra, Theresa Wong, Brian Eno, Bruce Brubaker, Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir, Robert Aiki Aubrey Lowe. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Şurada popüler
Bu podcast şu ülkelerin podcast listelerinde de yer alıyor.