VAKTINN
Vaktinn
0
Vaktinn er íslenskur podcast sem fjallar um þáttaseríuna Fangavaktin, sem var mjög vinsæl árið 2009. Í hverjum þætti er farið djúpt í einstaka þætti og persónur úr seríunni. Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram og TikTok undir notandanafninu VAKTINN.
Bölümler
-
Bjarnfreðarson Bindi III 03.04.2026 1sa 38dkKaflaskil og tvöfallt skriðdýrahorn í tilefni þess.
-
Bjarnfreðarson Bindi II 20.02.2026 2sa 25dkÞáttur vikunnar er ótrúlegur. Skriðdýrahorn vikunnar snýst að mestu leyti um að valdefla konur og förum yfir óskalög. Arnþrúður Karls er undir borði og valdeflum svo karla þegar líður á þáttinn.
-
Bjarnfreðarson Bindi I 30.01.2026 2sa 17dkFyrri hluti yfirferð okkar á Bjarnfreðarson myndinni. Förum í raun um víðan völl. Munum ekki einusinni hvað eðlutegundin í skriðdýrahorninu heitir, hún er svo óþekkt. Og með þriðja augað. Gætum skrifað mörg þúsund orð um þessa tegund. Haha þetta er ótrúleg tegund. Eðlan geðuga.
-
Áramóta Meme Sprengja 01.01.2026 1sa 35dkÞetta er Run it back á meme sprengju með ögn örðuvísi sniði. Förum mjög vel yfir Covid-19 faraldurinn.
-
S03E07 - "Jólafur Fagnar Hannesson er kominn á kreik." 14.12.2025 1sa 31dkÞað er jólabragur yfir þessu hjá okkur núna. Förum yfir Axolotl og þéttingu byggðar. The Rock eða Steini í áttunni og margt fleira
-
Stóra Meme-Sprengja Vaktans 14.11.2025 1sa 25dkVaktarseríurnar eru eins konar gróðrastía fyrir hin ýmsu meme. Við Vaktarbrósar elskum vaktirnar og við elskum memes svo við ætlum í þættinum að þessu sinni að fara yfir nokkur af ástsælustu meme-um Íslands. Ef ykkur finnst eitthvað vanta á listann ekki hika vik að skjóta því á okkur á Instagramið okkar.
-
S03E06 - Þú beygjir og þú borar 02.10.2025 2sa 12dkEinstaklega skemmtilegur þáttur þessa vikuna gjörsamlega smekkpakkaður af frösum.
-
S03E05 - “Baráttan um brauðið” 11.09.2025 2sa 39dkTil þess er málið varðar. Gott að koma eftir frí. Skoðum kónginn sjálfan, King Cobra. Það eru slöngur sem verða 5.5(!!!!!!) metrar að lengd. Georg fer með okkur víða einnig. Baráttan um brauðið er lýsandi titill fyrir margar sakir. Eru berklar the real fordæmalausu tímar?
-
Aukavaktinn - Ingvi | Sigurður Hrannar 31.07.2025 1sa 38dkÍ aukavakta vikunnar fáum við til okkar Sigurð Hrannar Hjaltason en hann er sá sem bjó til karakterinn Ingva í Fangavaktinni.
-
S03E04 - "Er pabbi þinn með þér?" 10.07.2025 2sa 48dkRisa þáttur. Rooney, Ronaldo og Darius Vassell. Skoðum Gharial og snertum á frægasta íþróttaleik sögunnar. Það í faglegri yfirferð.
-
S03E03 - “Ég er ekki konan þín.” 26.06.2025 2sa 27dkKæru vinir. Þátturinn þessa vikuna er jafn fræðandi og hann er skemmtilegur. Kvíðaköst, eitur, útrýming og kjólar. Takk.
-
S03E02 - “Hvítt í tappa!” 11.06.2025 2sa 10dkKæru vinir Mikil veisla framundan. Georg vantar aðstoðarmann og færum vel og vandlega yfir hvaða hættur leynast á vinsælustu sumaráfangastöðum íslendinga. Njótið vel kæru vaktarbrósar.
-
S03E01 - "Heimsveldi heimskunnar" 29.05.2025 1sa 45dkFyrsti þáttur í yfirferð okkar á seríu 3. Skriðdýrahornið á sínum stað og við förum "back to the roots" Skoðum linoleum dúka og dyslexíu. Njótið vel kæru vinir.
-
S03E00 - Kuldakast í Kringlunni 12.05.2025 1sa 32dkKæru vaktarbrósar og brósur. Loksins er komið að því. Ný syrpa að hefjast og í þætti dagsins leggjum við á borð fyrir veisluna sem framundan er. Förum yfir skemmtilega keppni sem haldin var í Kringlunni á sínum tíma og heyrum í skipuleggjendum og sigurvegara. Skriðdýrahornið fékk frí þessa vikuna og verður því tvöfallt í næsta þætti. Njótið vel kæru vinir.
-
Aukavaktinn - Ragnar Bragason 03.04.2025 1sa 37dkLoksins er komið að þeim eftivænta. Ragnar Bragason leikstjóri Vaktarseríanna fer með okkur eins langt á bakvið tjöldin og mögulegt er.
-
Atvinnuviðtalið - Guðjón Smári 24.03.2025 1sa 58dkGuðjón Smári er útvarpsmaður á FM957 og mikill aðdáandi vaktarseríanna. Guðjón Smári hefur líkt og Ólafur Ragnar tekið þátt í söngvakeppni á Stöð 2 og unnið í útvarpinu á FM. Hann mætir til okkar með faglega yfirferð sína á Dagvaktinni og kynnumst við honum og hans tengingu við þættina vel. Minnum á Pubquiz á fimmtudag næstkomandi kl. 21:00
-
Viðhafnarútgáfa Vaktans - Dagvaktin edition 29.01.2025 1sa 53dkÞorvar og Grétar einir bestu vinir okkar vaktarbrósa eru mættir í settið og eru tilbúnir til að gefa okkur nýja sýn á seríuna. Við förum í verðlaunaafhendinguna frægu og síðasta skriðdýrahorn seríunnar þar sem við kynnumst manninum Professor Alfred Romer en hann var langt á undan sinni samtíð. Takk fyrir samfylgdina í gegnum Dagvaktarseríuna og heyrumst fljótt aftur.
-
Dagvaktin Grand Final - "Þú ert besti vinur minn." 15.01.2025 1sa 51dkÍ þessum grand final förum við yfir margt. Skoðum ræðuna hans Georgs og hvaðan hún sótti innblástur. Förum yfir Phoenix Reptile Expo 2018 og til hvers eru snúningsprikin sem börn og fáránlingar veifa á 17. júní? Síðast en ekki síst svörum við að sjálfsögðu spurningunni sem allir spurðu sig um eftir síðasta þátt, er Gugga að rísa upp eins og fönix? Framundan er að sjálfsögðu Viðhafnarútgáfan og njótið vel þessara lokaþáttar af Dagvaktinni kæru vinir.
-
S02E10 - "Ert þú hrísmóðir?" 18.12.2024 2sa 23dkLoksins er komið að næsta þáttarþætti. Margt, mjög margt, sem þarf að fara yfir í dag. Bolsévikar og Romanov, hvað er það eiginlega? Hver er munurinn á hrísmóðir og ljósmóðir og heyrum í Bergþóri stórsöngvara. Þessi þáttur er einfaldlega úr efstu hillu. Vægast sagt. Góðar stundir.
-
Atvinnuviðtalið - Kristín og Starkaður Pétursbörn 25.11.2024 2sa 20dkKæru hlustendur, í Oranjeboom þætti vikunnar fáum við í heimsókn systkinin Kristínu og Starkað í Georgstof stúdíóið. Þau eru mun dýpri í vaktarheimum en flestir og var einstaklega gaman að fá þeirra sýn á seríurnar. Glöggt er gests augað eins og sagt var fyrir hart nær 50 árum og þau orð eru jafn sönn í dag og þau voru þá. Njótið einstaklega vel.
Şurada popüler
Bu podcast şu ülkelerin podcast listelerinde de yer alıyor.