Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Margrét Gunnarsdóttir
Ülke İzlanda
Dil IS
Bölüm 7
Son 19.08.2026

Ítalía heillar er hlaðvarp fyrir þá sem elska Ítalíu eða hyggjast ferðast þangað. Þáttastjórnandinn Magga deilir fróðleik um ítalska menningu, borgir, eyjar, héruð og sérkenni landsins, auk lítilla augnablika sem sjaldan er fjallað um. Hún byggir á eigin reynslu af búsetu og ferðalögum um Ítalíu, auk sagna annarra og leiðbeininga virtra ferðafrömuða. Hlaðvarpið er hugsað sem innblástur og leiðarvísir fyrir íslenska ferðalanga.

Bölümler

  • 7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð 19.08.2026 37dk
    Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta leitt til sekta ef ekki er rétt staðið að málum. Við skoðum ólík hverfi Rómar og kosti þeir...
  • 6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg 12.08.2026 17dk
    Í þessum fyrsta þætti af þremur um Róm er farið í svolítið óhefðbundið ferðalag um sögu borgarinnar, allt frá goðsögninni um Rómúlus og Remus til Rómar nútímans. Frá því að vera upphaflega einungis fáeinir kofar stækkaði Róm og varð miðja eins voldugasta heimsveldis sögunna. Borgin hnignaði eftir fall þess en reis aftur til vegs og virðingar á endurreisnartímanum. Í dag búa nærri þrjár milljónir manna innan um tæplega þrjú þúsund ára sögu. Við kynnumst borginni þar sem Colosseum, Forum...
  • 5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu? 05.08.2026 20dk
    Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik. Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær tryggingar sem fylgja kreditkortinu þínu og mögulega fá þér góða ferðatryggingu. Fyrsti viðkomustaður fyrir minni háttar veikindi ætti oftast að vera apótek (Farmacia). Ítalskir lyfjafræðingar geta ráðlagt um lausasölulyf og vísað áfram til læknis ef þörf kr...
  • 4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga 29.07.2026 48dk
    Lago di Garda – Lake Garda – Gardavatnið Gardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa landslag sem á sér engan líka annars staðar í Evrópu. Komið er víða við og m.a. fjallað um bæina Sirmione, Malcesine, Limone sul Garda og Riva del Garda. Gardavatn er miklu meira en fallegur áfangastaður: það er staður þar sem náttúra, saga, menning og daglegt líf renna saman...
  • 3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna? 22.07.2026 28dk
    Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur. Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægum minnismerkjum, dýfir fótum í gosbrunna eða gengur í óviðeigandi skóm á gönguleiðum Cinque Terre. Einnig er mikilvægt að bera alltaf vegabréf eða önnur gild skilríki á sér. Þátturinn varar við algengum ferðamannabrellum, svo sem „ókeypis“ armböndum, undirskr...
  • TRAILER - Ítalía heillar 15.07.2026 1dk
    Kynning á hlaðvarpinu Ítalía heillar. Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is
  • 2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu? 15.07.2026 25dk
    Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu Í þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntingum og veruleika og hvernig þú getur notið landsins betur með smá undirbúningi og réttu hugarfari. Þú kynnist ítalskri matarmenningu, þar sem einfaldleiki og gæðahráefni ráða ríkjum, og kaffivenjum sem geta komið ferðamönnum á óvart. Einnig er rætt um akstur á Ítalíu, ZTL-umferðarsvæði, bílaleigur og hvers vegna le...
  • 1. Ítalía I - Ertu að skipuleggja ferð til Ítalíu? 14.07.2026 26dk
    Ítalía heillar – hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu. Í þessum fyrsta þætti Ítalía heillar segir Magga frá því hvernig áhugi hennar á Ítalíu kviknaði þegar hún fór sautján ára gömul sem skiptinemi til landsins. Hún deilir eigin reynslu með þér og gefur hagnýt ráð fyrir þig sem ert mögulega að skipuleggja Ítalíuferð. Fjallað er um hvernig velja megi áfangastaði, kosti þess að ferðast utan mesta sumarhitans og hvers vegna „slow travel“ getur veitt þér meiri upplifun. Einnig er þér bent á að for...

Şurada popüler

Bu podcast şu ülkelerin podcast listelerinde de yer alıyor.