Eftirmál
Tal
0
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Епизоди
-
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni 01.04.2026 1ч 29минFá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega m...
-
Rock star Supernova ævintýrið 16.02.2026 1ч 5минÁtta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjá...
-
Wok On málið / Quang Le 02.02.2026 1ч 14минQuang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur. ...
-
PIP brjóstapúðamálið 19.01.2026 54минYfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp. Styrktaraðilar Eftirmála eru: Nettó Eldum Rétt Collab Alf...
-
Skáksambandsmálið 06.01.2026 1ч 8минSérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í málinu er enn ósvarað. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -NO...
-
Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan 22.12.2025 1ч 1минRex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu. Styrktaraðilar Eftirmála eru:...
-
Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík 08.12.2025 1ч 8минÍ dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38 -Nettó -Eldum Rétt -World Class -Collab
-
Braggamálið 18.02.2025 45минÞað hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
-
Gýgjarhólsmálið 03.02.2025 53минÍ mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
-
Flugslysið í Skerjafirði 20.01.2025 48минÍ ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir sautján ára drengs sem lést í slysinu, fer yfir málið og lygileg eftirmál þess í þæt...
-
Öskjuhlíðarmálið 29.12.2024 42минEitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en hann hafði sjálfur tekið þátt í leitinni að Einari. Systkini Einars segja okkur frá þessari lífsr...
-
Jón stóri 20.12.2024 44минJón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu hans. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afslá...
-
Aukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar 05.09.2024 33минFjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum.
-
Búsáhaldabyltingin 20.03.2024 1ч 19минMótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins á þessum tíma, rifjar í Eftirmálum upp hvernig var að vera sta...
-
Rauðagerðismálið 04.03.2024 1ч 21минNýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku og þótti marka aukna hörku í undirheimum Íslands. Í Eftirmálum förum við yfir atburðarásina í þessu umfangsmikla morðmáli með Birgi Olgeirssyni, fyrrum fréttamanni, sem rannsakaði málið og sat réttarhö...
-
Mál Róberts Downey og uppreist æra 20.02.2024 1ч 19минLíklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í þjóðinni og óvænta stefnu þegar þegar meðmælabréf með dæmdum barnaníðingum voru gerð opinber. Málið skók þjóðina, stjórnmálin og umræðuna en Sigríður Andersen, sem þá var dómsmálaráðherra, ræðir sína hlið af þessum atburðum í Eftirmálum. Þátturinn er í...
-
Bitcoin-málið 05.02.2024 1ч 5минInnbrot í gagnaver í Reykjanesbæ í lok árs 2017 markaði upphaf Bitcoin-málsins svokallaða, sem oft er talað um sem stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Málið tók nýja og ævintýralega stefnu þegar Sindri Þór Stefánsson, einn þeirra sem tók þátt í innbrotinu, trauk úr fangelsinu að Sogni og flaug til útlanda í sömu flugvél og forsætisráðherra. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, sem rannsakaði málið, ræðir þessa farsakenndu atburðarás í Eftirmálum. Málið er enn óupplýst að hluta en Bitcoin-tölvurnar fundust ...
-
Hvarf Valgeirs Víðissonar 22.01.2024 50минÍ sumar eru 30 ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi. Hvarfið er eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál okkar tíma og rannsóknin stóð yfir árum saman. Ótal flökkusögur urðu til og lögeglu bárust fjöldi ábendinga og samsæriskenninga í gegnum árin en allt kom fyrir ekki, hvarf Valgeirs er enn óupplýst. Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður rifjar upp rannsóknina í Eftirmálum og fer yfir hvað verður um mál sem lögreglu tekst ekki að upplýsa...
-
Lekamálið 09.01.2024 1ч 32минHanna Birna Kristjánsdóttir sætti líflátshótunum og þurfti lögregluvernd þegar hún var innanríkisráðherra fyrir áratug. Ástæðan er Lekamálið svokallaða, þegar minnisblaði með persónuupplýsingum um hælisleitendur var lekið úr ráðuneyti hennar til fjölmiðla. Í framhaldinu fór af stað fordæmalaus atburðarás og úr varð eitt stærsta fréttamál áratugarins. Lekamálið varð til þess að Hanna Birna hætti alfarið í pólitík en í Eftirmálum gerir hún atburðarásina upp í fyrsta sinn. Þátturinn er í boði: ...
-
Catalinumálið 12.09.2023 49минCatalina Ncogo var umtalaðasta kona landsins árið 2009 og hristi rækilega upp í íslensku samfélagi. Saga Catalinu er lyginni líkust en hún fór frá því að vera húsmóðir í Vestmannaeyjum í að vefja karlmönnum um fingur sér og halda úti umfangsmestu vændisstarfsemi Íslandssögunnar í næsta húsi við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Fallið var hátt þegar hún hlaut þungan fangelsisdóm fyrir milligöngu um vændi. Catalina fer yfir atburðarásina og sína hlið málsins í Eftirmálum auk þess að segja frá líf...
Популярен в
Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.