Víðsjá
RÚV
0
Víðsjá er íslenskur menningarþáttur sem fjallar um listir og menningu. Umsjónarmennirnir Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir varpa ljósi á það sem efst er á baugi hverju sinni, skoða menningu nær og fjær frá ólíkum sjónarhornum og setja skapandi miðla undir smásjána.
Епизоди
-
Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós 15.09.2026 52минVíðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sínum. Þá leggur Halldór Guðmundsson rithöfundur línurnar fyrir bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness sem heldur áfram á miðvikudag. Halldór segir frá högum Halldórs á 4. áratug síðustu aldar þegar hann er að skrifa sín stærstu verk og forvitnast er um aðdraganda skáldsögunnar Heimsljóss sem verður á dagskrá bókaklúbbsins í Víðsjá á morgun. -
Open og sýningarstjórnun 14.09.2026 59минVíðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna. Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu möguleika sem leynast í starfinu. -
Led Zeppelin, íslenska og gríska. 08.09.2026 53минLed Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að setja okkur inn í hugarheim fólksins sem sótti tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma. Haukur Þorgeirsson segir frá tengslum íslensku og grísku og leiðir okkur svo inn í Trójustríðið en þegar allt virtist glatað fengu íbúar Tróju liðsauka frá Amasónum sem blésu tróverskum konum baráttuanda í brjóst. -
Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti 07.09.2026 54минÍ fyrra sendi hlaðvarparinn frægi Jad Abumrad, sem þekktur er fyrir Radiolab og Dolly Partons America, frá sér nýja hlaðvarpsseríu um tónlistarmanninn Fela Kuti og arleifð hans. En við munum kynna okkur tónlistarmanninn að gefnu tilefni í þættinum. Nýverið kom út bókin The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800 (í. Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum síðari alda um 1.500 - 1800) hjá forlaginu De Gruyter. Í bókinni er sjónum beint að samspili milli trúarlegra og veraldlegra þátta í handritum og prentuðum bókmenntum. Við ræðum við ritstjóra bókarinnar þær Margréti Eggertsdóttur, Katelin Marit Parsons og Aðalheiði Guðmundsdóttur. -
Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian 03.09.2026 55минLeikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún varði nýverið doktorsverkefni sitt sem bar titilinn Lifandi texti - áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Við ræðum við Tunni í þættinum. Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, segir frá nýútkominni þýðingu Gyrðis Elíassonar á bókinni Veiðistöng handa afa mínum, eftir kínversk nóbelskáldið Gao Xingjian. Davíð Þór Jónsson, tónlistarmaður, rekur hlutverk sitt sem Ólafur Kárason Ljósvíkingur í listaverki Ragnars Kjartanssonar, listamanns, World Light sem hann vann upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness. Og af tilefni Eiríksþings rifjum við upp einn af pistlum Eiríks Guðmundssonar heitins um opnun H&M á Íslandi, frá árinu 2017. -
Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis 02.09.2026 50минSigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur til tónleika honum til heiðurs nú á sunnudag þar sem leikin verða lög af tveimur merkilegum stórsveitaplötum sem Miles sendi frá sér á 6. áratugnum. Tumi Árnason flytur stutta samantekt á Jazzhátíð Reykjavíkur og dregur saman það sem stóð upp úr, sem og bendir á það sem betur mætti fara. Við rifjum upp eina af ótal mörgum Miles-Davis-flökkusögum sem við gerðum skil í Víðsjá laust eftir að píanóleikarinn Herbie Hancock hlaut Pólar tónlistarverðalunin mikilsvirtu. -
Svipmynd af Magnúsi Jóhanni 01.09.2026 50минÍ þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra. Hann stendur nú fyrir stórtónleikum í Háskólabíói sem fara fram 17. september en þar fagnar hann 30 ára afmæli og tíu ára starfsafmæli sem tónlistarmaður. Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað saman og leikin lög sem spanna allan feril hans. Magnús og GDRN munu leika lög af geysivinsælum dægurlagaplötum sínum, þungavigtarmenn úr djassheiminum munu láta sjá sig og flytja lög af rómuðum samstarfsplötum. Magnús mun einnig flytja ný lög og gömul einn síns liðs, vopnaður hljóðgervlum af ýmsum toga -
Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar 31.08.2026 51минSýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem „flugu á vegg“ og fá að gægjast inn í ólíka klúbba. Katla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, er sýningarstjóri Saumó en hún hefur áður rannsakað viðhorf til hönnunar, handverka og föndurs. Við ræðum við Kötlu í þættinum. Áki Frostason, listamaður og tónlistarmaður, lagði, í sumar, legstein við gömlu BSO-lóðina við Strandgötu á Akureyri en nýlega var Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri gert að víkja þar af lóðinni þar sem hún hafði staðið í um 70 ár. Við ræðum við Áka um gjörninginn. -
Bjarmaband Frosta Fjalars, Olga Tokarczuk og rannsókn á gagnkynhneigð 27.08.2026 55минÞað er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi. Hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann vann í einrúmi í nær fjóra áratugi. Í kvöld opnar í Hafnarborg einkasýning Frosta Fjalars, Bjarmaband. Sýningin veitir innsýn í ævistarf listamannsins, sem hefur verið flestum hulið, þar til nú. Við ræðum við Ásdísi Spanó, sýningarstjóra, og listsagnfræðinginn Aðalstein Ingólfsson í Víðsjá dagsins. Kviss Búmm Bang er framandverkahópur sem hefur það að markmiði að rannsaka eðlileikann, hvað er eðililegt og hvað ekki, í þeirri von að fá fólk til þess að vera meðvitaðri um sinn eigin raunveruleika. Kviss Búmm Bang verða með innsetningu á Hamraborg festival um helgina sem nefnist Hvernig líður gagnkynhneigðum? Við ræðum við Vilborgu Ólafsdóttur eina af meðlimum Kviss Búmm Bang í þættinum. En við byrjum á verðlaunum. Í gærkvöldi birtist á miðlunum tilkynning um væntanlegan verðlaunahafa hinna Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness en í ár er það rithöfundurinn Olga Tokarczuk. -
Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar 26.08.2026 53минHamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til að hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð Hallgrímsson og Ásu Önnu Ólafsdóttur, eða Asalaus. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, hefur nýja pistlaröð í dag um íslenskuna okkar og um fornar og nýjar frændtungur hennar. Hann fer með okkur aftur á bronsöld og við heyrum um málin sem voru töluð í Tyrklandi þegar Trójuborg stóð með blóma. Í síðari hluta þáttar minnumst við svo Dolly Parton og hlýðum á nokkur lög eftir þá mögnuðu konu. -
Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö! 25.08.2026 56минÞáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni. Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi. Hljómsveitin er skipuð tveimur trompetleikurum og tveimur tenór saxófónleikurum; þeim Tuma Torfasyni, Hannesi Arasyni, Tuma Árnasyni og Björgvini Ragnari Hjálmarssyni. Við fáum líka til okkar í hljóðstofu sellóleikarann og tónskáldið Þórdísi Gerði Jónsdóttur, en hún gaf út plötu með eigin tónsmíðum fyrr í mánuðinum. Platan heitir Hljóð í ljóði og ber nafn með rentu, en lögin samdi Þórdís út frá gömlum og nýjum ljóðum íslensk ljóð þannig að stemning hvers ljóðs var þýdd úr texta yfir tónlist. En áður en við vindum okkur alfarið í jazzinn heyrum við pistil frá myndlistarrýninum Völu Sigþrúðar- Jónsdóttur, um sýningu Romans Signers í Skaftfelli á Seyðisfirði, sem stendur yfirút septembermánuð. -
Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band 24.08.2026 50минNú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu að baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, flytur sinn fyrsta pistil sem sviðslistarýnir. Hún fjallar um danssýninguna Heyrðu mig, eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, sem sýnt er í Ásmundarsal um þessar mundir. Verkið i er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Nú á miðvikudag stendur til að sýna í Sambíóunum hina klassísku kvikmynd The Last Waltz í leikstjórn Martin Scorsese frá árinu 1978. Við munum því að gefnu tilefni rifja upp eitt afar furðulegt atvik úr sögu þessarar sveitar. -
Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins 20.08.2026 55минSíðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands, upplýsir okkur nánar um verkefnið. Sölvi Halldórsson rýnir í sögufrægt verk eftir Sigurjón Friðriksson sem kom fyrst út árið 1929 og nefnist Skriftamál einsetumannsins. Að lokum lítum við inn í Kling & Bang, en þar opnar á morgun einkasýning Arnar Alexanders Ámundasonar sem nefnist því greinargóða nafni; Sýning sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna. Þar tekst Örn á við umræðuna um gangverk listheimsins sem fer oftast fram í hálfhljóði. -
Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness 19.08.2026 52минÍ ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrum þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum miðaldaklausturs í Viðey á árunum 1987-1995 og vinnur nú að bók um niðurstöður rannsóknanna, sem eru um margt merkilegar og gefa upplýsingar um samfélag og sögu langt út fyrir strendur eyjunnar. Víðsjá mælti sér mót við Margréti í Viðey en auk þess líta meðlimir hljómsveitarinnar Hist og...við í hljóðstofu, þau Róberta Andersen og Eiríkur Orri Ólafsson, til að segja frá nýrri hljómplötu sem heitir Hist Highness. -
Jarðvegur Önnu Rúnar, Mamma mjöll og draugapennar 18.08.2026 51минÁ einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri athugun. Síðustu ár hefur Anna Rún gjarnan unnið með náttúruleg fyrirbæri og ferli og beint með því sjónum okkar að stóra samhenginu. Við lítum við í gallerí Þulu í Víðsjá dagsins, heyrum rýni Gauta Kristmannsonar í venezúelsku skáldsöguna Mamma mjöll og minningar hennar og rifjum upp hugleiðingar Tómasar Ævars um draugapenna. -
Ásta Dóra, María Qing og Henry Threadgill 17.08.2026 54минFyrsti þáttur haustsins er tileinkaður tónlist úr mjög ólíkum áttum. Þær Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir eru meðal stærstu vonarstjarna okkar á sviði klassískrar tónlistar. Ásta Dóra stundar nám í Curtis, einum virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi, þar sem hún er búsett. Þrátt fyrir að vera rétt um tvítugt hafa þær báðar leikið einleik með fleiri en einni sinfóníuhljómsveit og framundan eru spennandi tækifæri hér heima og erlendis. Þær líta við í hljóðstofu en í framhaldinu höldum við svo áfram að huga að tónlistarmanninum Henry Threadgill og heyrum af tónleikum sem hann hélt með hljómsveit sinni Air í Gamla bíói árið 1982 -
Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi 02.07.2026 53минFreyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsinu og flytur hún rýni um sýninguna í þættinum. Tumi Árnason, tónlistarmaður, ferðaðist yfir fjöllin til Hveragerðis og heimsótti hátíðina Hverafugl sem fór fram um síðustu helgi og mun hann gefa okkur skýrslu af sinni upplifun. Við hringjum til útlanda og heyrum í íslenskum rithöfundi sem var að senda frá sér sína fyrstu skáldssögu. Vilhjálmur Pétursson á sigurbók Nýrra radda hjá Forlaginu og nefnist hún Harðindi og segir frá ævintýrum manns og merar í martraðarkenndum eftir-heimsenda-veruleika hér á Íslandi. -
Davíð Þór á Gljúfrasteini 01.07.2026 50минÍ Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans. -
Hermeto Pascoal, Jón Arason Hólabiskup og Jeff Parker 29.06.2026 54минÍ þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao, maracatu, marcha og frevo. Sigmar Þór Matthíasson, tónlistarmaður, er í forsvari fyrir þessa tónleika og ræðir við okkur um Hermeto. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, endar syrpu sína um íslenska ljóðlist miðalda í dag með Jóni Arasyni Hólabiskup. Jón orti um píslarsögu Krists en átti svo sjálfur eftir að upplifa að vera leiddur til aftöku. Undir lok þáttar kynnum við okkur síðan nýja plötu frá bandaríska tónlistarmanninum Jeff Parker og IVets hans sem nefnist Happy Today. -
Umbreyting, Dugguvogur 42 og Lisa O'Neill 25.06.2026 53минUmbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi nú klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum að því að skrásetja gjörninga í gjörningaarkíf Nýlistarsafnsins en sýningin rekur einnig slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast lengi eða komið stuttlega við á Íslandi og valdið óróa, hlátri eða hneykslun. Við gerum okkur ferð í Nýlistarsafnið. Við hugum einnig að örlögum Dugguvogs 42 en til stendur að rífa bygginguna til að koma fyrir tímabundinni hjáleið fyrir umferð á meðan framkvæmdir við Sæbrautarstokk standa yfir. Á byggingunni eru hins vegar verðmæt steypt lágmyndarverk listamannsins Gerðar Helgadóttur frá árunum 1971 til 1972. Við veltum fyrir okkur örlögum hússins og verðmætum verkanna í þættinum. Að lokum rifjum við upp innslag um breiðskífu írsku tónlistarkonunnar Lisu O'Neill, All of This is Chance.
Популярен в
Този подкаст се появява и в подкаст класациите на тези държави.