Þjóðmál

Þjóðmál

Þjóðmál
Země Island
Jazyk IS
Epizody 426
Nejnovější 17.07.2026

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Epizody

  • #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr) 17.07.2026 1h 49min
    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.
  • #440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni 14.07.2026 1h 7min
    Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og margt fleira. Þá er einnig rætt um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvort aðild að sambandinu sé það sem ætti að vera í forgangi hjá okkur næstu 5-10 árin.
  • #439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna 10.07.2026 2h 3min
    Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti í haust, ráðaleysi ráðamanna í efnahagsmálum, möguleg áhrif gervigreindar á láglaunastörf og fleira. Fastir liðir eins og hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar eru einnig á sínum stað, þar sem gamlar deilur Harðar og Sólveigar eru rifjaðar upp.
  • #438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu 07.07.2026 1h 17min
    Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja sér og margt fleira sem snýr að þessari hröðu tækniþróun sem nú eru að eiga sér stað.
  • #437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf 03.07.2026 1h 20min
    Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins, kjánaleg kynningarmyndbönd utanríkisráðherra, vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmæli að sjálfsögðu á sínum stað.
  • #436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi 30.06.2026 1h 12min
    Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.
  • #435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur 26.06.2026 2h 1min
    Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkanir, mótsagnakenndan stuðning við ferðaþjónustuna, ESB-umsókn ríkisstjórnarinnar og mýturnar sem haldið er á lofti í þeirri vegferð og margt fleira. Þá eru hraðaspurningar og hrós vikunnar á sínum stað auk þess sem gestirnir skella sér í útilegu.
  • #434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku 23.06.2026 55min
    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og verða á næstu árum og áratugum í töluverðum vandræðum með sín lífeyriskerfi. Þá ræðum við einnig um mögulega upptöku evru og þá hver áhrifin kunna að vera á lífeyriskerfið hér á landi og um leið stöðu almennings, samkeppni við erlenda sjóða, stöðu ungs fólks sem fær fasteignalán hjá sjóðunum og margt fleira.
  • #433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur 19.06.2026 1h 56min
    Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem beygja sig og bugta fyrir embættismönnum, kenningu forstjóra SKE um að afkoma fyrirtækja segi ekkert til um rekstur þeirra, gaslýsingu um ríkisfjármál, ásýndarstjórnmál og margt fleira. Þá eru hrós vikunnar og hraðaspurningar á sínum stað – auk þess sem við mælum með bæði bók og bíómynd þessa vikuna í eldhressum þætti.
  • #432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf 16.06.2026 1h 18min
    Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB Ferðir. Í þættinum ræðum við meðal annars um það hvernig Írum hefur gengið vel efnahagslega með því að lækka skatta og auka svigrúm fyrir alþjóðleg fyrirtæki til að athafna sig í landinu (oft þvert gegn vilja Evrópusambandsins), mýtur um ástæður þess að matvælaverð lækkaði í Svíþjóð og Finnlandi á sínum tíma, ótrúverðuga stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, afskipti ríkisins af bílainnflutningi og óraunhæf markmið um orkuskipti, barnfóstruríkið sem vill setja okkur reglur um allt mögulegt og margt fleira.
  • #431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita 12.06.2026 2h 4min
    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í stjórnarformennsku í Orkuveitunni og þörfina á því að losa um Carbfix svindlið, Pollýönnuaðferð ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, hugmyndafræðilegan slag um bankaskatta, ESB-vegferðina sem tekur á sig sífellt skrýtnari mynd, hlutdrægni Rúv, einkennilegt innlegg Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá er hrós vikunnar og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar að sjálfsögðu á sínum stað.
  • #430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi 09.06.2026 1h
    Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum, hvað má telja sem eðlilega hegðun einstaklinga á hlutabréfamarkaði, hvort að háir vextir dragi úr áhuga fólks á fjárfestingum og fleira í þeim dúr. Gestirnir horfa einnig fram á veginn og meta teikn á lofti um kólnandi hagkerfi, vaxandi atvinnuleysi, brothættan byggingarmarkað og áskoranirnar framundan í íslensku hagkerfi. Þá er einnig fjallað um viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins, til dæmis boðaðar skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem bætist þá við skattahækkanir á sjávarútveg og ferðaþjónustu.
  • #429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið? 05.06.2026 1h 55min
    Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun umræðunnar um útlendingamál, upplýsingaóreiðu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild, leyndardóminn um bein Jónasar Hallgrímssonar, breyttar fyrirsagnir á vef Rúv og margt fleira. Þættinum lýkur á léttari nótum með almyrkvasúkkulaði Nóa Síríus, hrósi vikunnar og krefjandi hraðaspurningum frá gestum Kringlukrárinnar.
  • #428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin 03.06.2026 52min
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur aðdragandann að þessari stóru ákvörðun, hvaða þættir vógu þyngst og hvað tekur við næst á hennar vegferð. Samhliða því að horfa fram á veginn stiklar hún á stóru á viðburðaríkum pólitískum ferli sínum, allt frá fyrstu skrefunum í ungliðahreyfingunni yfir í krefjandi ráðherraembætti.
  • #427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna 02.06.2026 1h 33min
    Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri stærðargráðu, kaup Brims á Lýsi, stöðu Icelandair í skugga harðra aðgerða flugmanna, oftúlkanir stjórnvalda og ríkisfjölmiðilsins á skýrslu um kosti í gjaldeyrismálum, horfurnar í hagkerfinu, ómarkvissar forsendur fjárlaga og margt fleira.
  • #426 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Það er hægt að hafa gaman án þess að tvöfalda embættismannakerfið 29.05.2026 1h 35min
    Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix. Sjónum er beint að Alþingi og yfirlæti Þorgerðar Katrínar gagnvart þeim sem ekki fylgja ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, umræðu um eignarhald útgerðarinnar í íslensku atvinnulífi, stöðunni hjá Icelandair og verkfallsaðgerðum flugmanna og mörgu öðru. Þá eru hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukrárinnar að sjálfsögðu á sínum stað.
  • #425 – Kaffispjall – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir ræða um ferðaþjónustuna og stöðu hennar 26.05.2026 1h
    Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir rýna í stöðuna og framtíðarhorfur í íslenskri ferðaþjónustu fyrir komandi sumar. Í spjallinu fara þau yfir helstu áskoranirnar sem greinin stendur frammi fyrir, allt frá breyttri hegðun ferðamanna til harðnandi alþjóðlegrar samkeppni um athygli þeirra. Sjónum er sérstaklega beint að skattlagningu á ferðaþjónustuna og þeim skilaboðum sem stjórnvöld senda til þessarar mikilvægu útflutningsgreinar með ákvörðunum sínum. Þá ræða þau samkeppnishæfni Íslands í víðu samhengi, hátt vaxtastig og hvernig innviðir og rekstrarumhverfi spila inn í getu fyrirtækja til að vaxa og dafna.
  • #424 – Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Pálssyni – Stýrihópur um vinnuhóp um aðgerðaráætlun ... í haust 22.05.2026 1h 38min
    Orri Hauksson og Þórður Pálsson rýna í nýjustu vendingar í efnahags- og stjórnmálum. Við ræðum um vaxtahækkun og trúverðugleika peningastefnunnar, líkur á því að kjarasamningar bresti, stöðuna í hagkerfinu, þá sem skapa verðmæti og þá sem tala um að skapa verðmæti, ESB umsóknina og villandi tal henni til stuðnings, hvernig stjórnmálin eru að þróast í kjölfar sveitarstjórnarkosninga og margt annað. Þá er hrós vikunnar á sínum stað ásamt áhugaverðum hraðaspurningum þar meðal annars er spurt um bestu ákvörðunina og verstu mistökin í íslenskri hagsögu.
  • #423 – Kaffispjall með Sigmundi Davíð 19.05.2026 1h 22min
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, hvar tækifærin liggja og hvernig flokkarnir standa á nýju pólitísku landslagi skautun í samfélagsumræðunni og hvernig hún hefur breytt samskiptum og ákvarðanatöku í stjórnmálum á Íslandi, hvar hægt sé að skilgreina Miðflokkinn á ásum stjórnmálanna, komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu og margt fleira.
  • #422 – Aukaþáttur – Stefán Einar og Þórður kryfja kosningarnar – Kristún reif upp sverðið en tapaði 17.05.2026 1h 14min
    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson rýna í og greina með ítarlegum hætti niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í gær. Við ræðum stöðuna eftir einstaka sveitarfélögum, mögulega samstarfsmöguleika ýmissa flokka, stöðu ríkisstjórnarflokkanna eftir kosningar, innkomu og áhrif forsætisráðherra í kosningabaráttunni og margt annað.

Oblíbený v

Tento podcast se objevuje také v podcastových žebříčcích těchto zemí.