Helgaspjallið
Helgi Ómars
0
Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is. Það fjallar um ýmis málefni og viðtöl við gesti. Podcastið er á íslensku og er hýst af Helga Ómars.
Epizody
-
220 - Nostalgíu dans & FIFA spilling 14.07.2026 1h 3minÞátturinn er í boði: Húðfegrun - www.hudfegrun.is Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Heiðdís Erla er komin aftur eftir frí til Svíþjóðar sem átti að vera guld og grönne skogar en svo var ekki, helsjúk var hún blessunin og flugin skrautleg. Við dönsum nostalgíu dansa ásamt því að velta steinum um foreldragleðina og spillingu FIFA ásamt svooooo möööörguuu öðru eins og svo oft áður.
-
219 - Helgi & Pétur eftir bleika skýið, snus drama og hvort mundi hvað 07.07.2026 56minÞátturinn er í boði: Húðfegrun - www.hudfegrun.is Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Það tók við viss geðveiki eftir að hafa svifið um á bleiku skýi eftir brúðkaupið, svona meðal annars. Njótið vel!
-
218 - Ómæld virðing, skilnaðarteiti og virk hlustun 01.07.2026 1h 16minÞátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio -
-
217 - Lífskúnst, tónleikar og jomo? 23.06.2026 51minÞátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Mál líðandi stunda, erum við Íslendingar lokaðir við erlent fólk sem kemur til landsins? Við tölum um attachment styles, fomo-ið og jomo-ið ásamt öðru.
-
216 - Hvað er Enneagram og afhverju er það svona MAAAGNAÐ? 16.06.2026 1h 34minÞátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Við byrjum á Birgittu Haukdal, við förum í rútínu, og loks - Enneagram - Afhverju breytti það lífi mínu? Hvað er þetta? Hvað getum við lært? Hvernig getum við nýtt okkur þetta til þess að verða háþróaðasta og mennskasta útgáfan af okkur, kannski bara frelsað okkur. Nei ég segi svona, erum ekki alveg þarna. Þetta er samt magnað. Must hlust.
-
215 - Brúðkaups-special, karlmennska og .. fótbolti? 09.06.2026 1h 26minÞátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Helgi er orðinn giftur maður og Heiðdís er hæst ánægð með þann ráðahag og fögnuð. Við förum aðeins yfir málin, hvernig fór þetta allt saman fram og hvað gerðist. Heiðdís fór að tala um fótbolta sem vakti furðulega lukku og skoðuðum örlítið karlmennskuna. Morðmál Sharon Tate kom líka fyrir í sögu eins og svo margt annað eins og nú er orðið hlustendum kunnugt þegar opnað er fyrir munninn. Njótið vel!
-
214 - Fullt blátt tungl og fullt af gleði 03.06.2026 1h 19minÞátturinn er í boði: Miðbæ Selfoss Oche Reykjavik - https://oche.com/is/reykjavik Hugur Studio - www.hugur.studio Við Heiðdís splæstum í aukaþátt í miðri viku því það var nýlega fullt blátt tungl í Bogamanni sem við fórum yfir ásamt rosalega mörgu öðru.
-
213 - Sóley Eiríksdóttir - Grafin í snjóflóði í 9 tíma á Flateyri og andlega vinnan sem tók við seinna á lífsleiðinni 02.06.2026 1h 24minVið Heiðdís settumst niður með Sóleyju Eiríksdóttir en aðeins ellefu ára gömul, þegar hún lá í rúminu sínu og svaf þegar snjóflóð skall á heimilið hennar og var hún grafin í flóðinu í níu klukkustundir. Hún var heppin að lifa af en systir hennar sem var líka í húsinu gerði það því miður ekki. Ég hef fengið þá ánægju að kynnast Sóleyju og frásögnin hennar er í raun ótrúleg að hlusta á. Hvað tekur við eftir svona reynslu? Hvernig vinnur maður úr svona áfalli og hvað á sér stað í kerfinu eftir öll þessu ár? Við spjölluðum um þetta allt saman í þessum þætti. Takk fyrir viðtökurnar! Lovjú
-
NÆSTI KAFLI: Fyrsti þáttur - 25.05.2026 1h 17minHefjum nýtt ævintýri. Helgaspjallið snýr aftur og markmiðið er meiri gleði og meiri lærdómur. Það er brakandi ferskur nýr meðlimur í Helgaspjallinu, Heiðdís Erla. Hlakka til að halda áfram þessu ævintýri með ykkur, feiminn að koma tilbaka en spenntur. Ykkar Helgi - og nú Heiðdís líka!
-
Þáttur 211 - Helgi & Pétur um ársbyrjun 2025 og blessuðu sjálfsábyrgðina 13.01.2025 53minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Endum og byrjum árið með okkar góða manni, Pétri Björgvin. Við höfum eytt miklum tíma að skoða okkur og spjallað saman um árið sem leið og árið sem við erum nýgengin inní og förum yfir þá punkta. Svo endar þetta einhvernvegin alltaf á einu og sama atriðinu: Sjálfsábyrgðin - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
-
Þáttur 210 - Uppgjör á árinu með mér og Pétri Björgvin 31.12.2024 1h 2minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Við Pétur settumst niður á gamlársdag og áttum bæði einlægt spjall okkar á milli en á sama tíma fórum við yfir þau augnablik í okkar lífi, sem höfðu áhrif á okkur bæði sem par en einnig í sitthvoru lagi. Við berskjöldum okkur báðir um hvernig atvik eða tímar höfðu áhrif, hvað okkur langar að gera meira af, hvað við lærðum af og hvernig við sjáum fyrir okkur árið framundan. Ég er svo montinn að eiga maka sem ég get átt svona spjöll við, og sérstaklega að fá að deila með ykkur hlustendum. Ég vona að árið hafi verið ykkur ánægjulegt, og næsta verði fullt af nærandi upplifunum og þið finnið styrk til að stækka, þróast og fyrst og fremst, verða eins mikill vinur ykkar og tök er á hverju sinni. Gleðilegt nýtt ár elsku hlustendur, ég get ekki lýst því hvað ég kann að meta ykkur. Ást og kram Ykkar Helgi
-
Þáttur 209 - Svana frá Svartáhvítu loksins í Helgaspjallinu! Um nýjan veruleika & adhd gleðina 22.12.2024 1h 6minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Eftir mikla eftirspurn og ansi mikið suð (upp að heilbrigðum að mörkum vil ég meina!!) þá veiddi ég gull-laxinn minn í Helgaspjallið, hana Svönu Lovísu, betur þekkt sem Svana á Svartáhvítu á Trendnet, vöruhönnuður, bloggari per excellance og ein af mínum allra nánustu vinkonum. Við Svana er afskaplega lík og deilum þeim ofurkröftum að vera adhd dúllur og tvíburar og skemmtilega kaotísk. Við mættum saman einn morgun korter í jól, bæði þreytt af ólíkum ástæðum og tókum upp þátt handa ykkur. Líf Svönu hefur nýlega tekið harðar beygjur en hún hefur á stuttum tíma upplifað kulnun og í kjölfarið var fótum kippt undan henni og fjölskyldu hennar þegar dóttir hennar varð skyndilega langveik. Svana segir einlægt frá og var það mín mesta ánægja að sitja með henni og heyra og spjalla. Svana opnaði nýverið verslun sína www.studioflamingo.is þar sem hún selur blóm og gaf blogginu sínu vinsæla nýtt heimili. Hægt er að fylgjast með henni einnig á Instagram: @svana.svartahvitu Njótið vel kæru vinir og gleðileg jól! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
-
Þáttur 208 - Jara Giantara stjörnuspekingur um umbyltingartíma framundan 17.12.2024 1h 16minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Helgaspjalls-fan favorít og stjörnuspekingurinn Jara Giantara snýr aftur og við förum yfir magnaða tíma sem við búum við og umbyltingartíma framundan. Vatnsberi fór nýverið yfir í Plútó, og hvað þýðir það? Hafði stórar og sturlaðar fréttir útí heimi eitthvað með það að gera? Öld vatnsberans er komin til að vera en hvernig lítur næsta ár út? Hægt er að bóka tíma og kaupa gjafakort á www.jaragiantara.com Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
-
Þáttur 207 - Svandís Svavarsdóttir formaður VG um réttlætið, feminisma og feðraveldið innan þingsins 25.11.2024 1h 4minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Svandís Svavarsdóttir hefur verið þekkt fyrir að vera grjóthörð gegn feðraveldinu sem lifir inná þingi og fékk nýverið gælunafnið "Big Dick Energy Sva Sva" frá Komið Gott tvíeykinu sem á vel við. Svandís er kona réttlætis og mennsku í lífi og starfi og var það hin mesta ánægja að fá hana í Helgaspjallið. Fátt betra en að sitja á móti kröftugri konu sem talar frá hjartanu. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i í Podcaststöðinni
-
Þáttur 206 - Gísli Rafn Ólafson þingmaður pírata um ótrúlegu sögu hans og manngæskuna 22.11.2024 1h 24minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Það er ekki alltaf sem ég fæ að lyfta hökunni upp af gólfinu og kasta höndum uppí loft í sama spjallinu, en Gísli Rafn Ólafsson er án efa ein stórkostlegasta persóna sem ég hef fengið ánægju að kynnast. Hann var lygilega ungur þegar hann var farinn að prógramma tölvuforrit, vann fyrir Bill Gates og þróaði með honum tölvubúnað, hann hefur ferðast um heiminn allan í sjálfboðavinnu, meðal annars í björgunaraðgerðum á Haiti þegar jarðskjálfti reið þar yfir, e-bólu faraldurinn í Afríku og jarðskjálfann í Nepal svo eitthvað sé nefnt. Við Íslendingar að fengið hann inná þing Íslendinga og er hann í kosningarbaráttu eins og er. Ég vona að hlusta á þetta spjall sé eins nærandi og það var fyrir mig að taka það upp. Instagram Gísla: @disasterexpert Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i í Podcaststöðinni
-
Þáttur 205 - Diljá Ámundadóttir Zoëga um að leiða með mennskuna, samkennd og leiða með hjartanu 14.11.2024 1h 21minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Diljá Ámundardóttir Zoëga hefur komið að á ýmsum stöðum og er með marga hatta. Hún eignaðist dóttir sína á aðeins 25 viku, og ræðir þá upplifun ásamt störfum sínum og hugsjónum í pólitík. Hún hóf pólitískan feril í Besta Flokknum og hefur síðan unnið við pólitík ásamt því að sinna fjölda annarra verkefna. Diljá ræðir mennskuna í fagmennskunni og ástríðu sína á andlegri heilsu barna og almenna geðheilsu í landinu. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i í Podcaststöðinni
-
Þáttur 204 - HeilsuErla um mikilvægi hreyfingar, heilsu, kulnun og upprisuna 08.11.2024 1h 4minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is HeilsuErla, drottningin á bakvið eitt af mínum allra uppáhalds hlaðvörpum Með lífið í lúkunum kom til mín í spjall, við splæstum í tveir fyrir einn en við tókum einnig þátt inná hennar hlaðvarpi mér til mikillar gleði. Erla er með orku sem maður vill helst baða sig í og mest smitandi bros sem finnst. Hún hefur tileinkað sér fræði heilsu og miðlar því áfram á hinum ýmsu stöðum. Við ræðum lífið hennar, óvænta og skyndilega kulnun, heilsuna og að leggja inná heilsubankann. Ég mæli með Erlu, að öllu leyti, en hér á Helgaspjallinu. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
-
Þáttur 203 - Obba þingkona Viðreisnar segir hlutina eins og er - "Þetta þarf ekki að vera svona" 31.10.2024 1h 3minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Ef einhver á þingi segir hlutina umbúðarlaust þá er það fyrrum saksóknari og núverandi Alþingiskona, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, en við ætlum að kalla hana Obba! Eftir að Obba kom til mín í sinn fyrsta þá hefur hún vakið mikla athygli fyrir sterkar og réttsýnar skoðanir og þess á milli, stórkostlegan húmor. Við förum yfir mál málanna og förum yfir raunhæfa möguleika til þess að komast útúr því ástandi sem er að drekkja okkur Íslendingum eftir nú, sprungna ríkisstjórn. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
-
Þáttur 202 - Laufey Karitas um kulnun sem endaði í heilablóðfalli og upprisan í kjölfarið 26.10.2024 1h 16minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - www.iceherbs.is Laufey Karitas er birtingarmynd af ofurkonu. Klár, sæt, sjálfsörugg, geislandi nærvera og með eitthvað aðdráttarafl sem maður vill bara kynnast, helst vera vinur hennar. Hún segir okkur frá bakrunni sínum og tilfinningum sínum í kringum að vera ættleidd, en hún fæddist í Indónesíu. Hún segir okkur frá hugarheim hennar sem unglingur og ung kona að stíga inní viðskiptalífið. Við tekur ár af kröftugri vinnu og mikil streita og þau flögg sem mörg okkar, ef ekki öll eigum það til að hundsa. Frásögn hennar er sláandi, en hún endaði í heilablóðfalli þar sem líkaminn hennar sagði stop. Í dag hefur hún tileinkað lífinu sínu að aðstoða aðra og hægt er að fylgjast með henni á samfélagsmiðlum á @karitasflow og karitasflow.com - Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
-
Þáttur 201 - Helgi, Pétur, Ingileif & María fara yfir mál líðandi stunda & viðhald góðs sambands 23.10.2024 1h 18minÞátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - Iceherbs.is Það mætti halda að við Pétur höfðum tekið ákvörðun um að kaupa íbúðina okkar vegna nágranna okkar, en hinum megin við götuna búa hjónin María Rut og Ingileif Friðriksdóttir, sem eru líka okkar bestu vinkonur. Okkur hefur lengi langað að taka upp þátt öll saman, en við höfum eytt ófáum stundum saman og rætt mikið saman sem hefði alltaf verið efni í góðan þátt. En í dag eru skemmtilegir hlutir að gerast, María og Pétur eru í framboði í Alþingiskosningunum yfirvofandi og erum við Ingileif auðvitað þeirra stærstu klappstýrur. Við ræðum saman um breytingar sem fólkið vill ásamt því að fara örlítið undir skinnið og ræðum okkar eigin sambönd hvað hefur verið áhrifaríkt til að halda góðu sambandi gangandi. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Oblíbený v
Tento podcast se objevuje také v podcastových žebříčcích těchto zemí.