Spor

Spor

RÚV Hlaðvörp
Země Island
Jazyk IS
Epizody 1
Nejnovější 07.10.2026

Spor er íslenskur hlaðvarpsþáttur þar sem Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og leitar í hversdeginum að sannleikskornum um hver við erum í dag. Í þættinum kynnist hún alls konar fólki og spyr tilvistarspurninga um spor í nútíð, fortíð og framtíð – sporin sem við skiljum eftir okkur og sporin sem heimurinn markar í okkur. Fjallað er um tækni, vísindi, umhverfið, samtímann og söguna. Hlusta má á þáttinn í hlaðvarpi RÚV.

Epizody

  • Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann 07.10.2026 55min
    Hvernig er að vinna í gigghagkerfinu, harkhagkerfinu, nú eða úllen dúllen doff hagkerfinu? Hagkerfi þar sem ófyrirsjáanlegur algóriþmi ræður því hver fær verkefni og hver ekki? Getur algóriþmi verið sanngjarn? Hvað getur talist vinna og hvað er bara hangs? Í þættinum kynnumst við veruleika Wolt-sendla á Íslandi, sérstaklega honum Mani sem rúntar með okkur um götur Reykjavíkur, segir okkur frá starfi sínu fyrir Wolt, áhyggjum og framtíðardraumum, já og því hvers vegna sendlarnir hanga svona oft í Fellsmúlanum. Við ræðum við forsvarsmann Wolt á Íslandi og í Noregi, nýkjörinn talsmann Wolt-sendla á Íslandi, gervigreindarsérfræðing og sendla sem fylktu liði á skrifstofur Wolt í Ármúla þegar verktakar hjá Wolt fengu langþráðan fund með yfirmönnum fyrirtækisins í lok september.Viðmælendur í þættinum:Christian KamphaugKristinn ÞórissonGersónGheorghe Mihai CacaliceanuMani Shahidi Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Verði þinn greiðsluvilji 23.09.2026 57min
    Hvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin? Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda? Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt. Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð. Viðmælendur í þættinum: Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum. ***Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Óreiðan sem gerir okkur brjáluð 16.09.2026 55min
    Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut?Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk um mannlegt eðli og það að losa sig við hluti.Viðmælendur í þættinum:Arnrún Árnadóttir skipuleggjariMarkús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingurRagna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræðiSvala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennariÞórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði***Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • Þegar búslóðin fuðrar upp 01.09.2026 51min
    Hvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Oblíbený v

Tento podcast se objevuje také v podcastových žebříčcích těchto zemí.