Heimskviður
RÚV
0
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Folgen
-
266 - Leiðtogafundir þá og nú og furstadæmið Lichtenstein 10.10.2026 43Min.Það eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og margs að minnast. Af hverju var fundurinn haldinn á Íslandi? Var það fyrir tilstilli íslenskra barna sem skrifuðu Raisu Gorbachevu bréf, var það stjörnuspá eða vegna öryggissjónarmiða? Við skoðum líka í hvaða andrúmslofti fundurinn átti sér stað, bæði hér á landi og í heiminum öllum. Svo ætlum við til Lichtenstein, lands sem við heyrum reglulega nefnt á nafn. Við beinum sjónum okkar að þessu smáríki milli Austurríkis og Sviss, furstadæminu þar sem erfðaprinsinn Alois fer með mikil völd og hefur mikil áhrif. Þau völd hafa til dæmis komið í ljós þegar umræða um aukin réttindi kvenna til þungunarrofs hefur borið á góma í Lichtenstein, nú síðast í sumar. -
265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar? 03.10.2026 39Min.Norski fjarskiptarisinn Telenor er í vandræðum. Lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum þess vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni með því að láta herforingjastjórninni í Mjanmar í té upplýsingar um viðskiptavini þar eftir valdarán hersins árið 2021. Leiðtogi landsins fyrir valdaránið var meðal þessara viðskiptavina. Fyrirtækið segist ekki hafa átt annarra kosta völ, en mannréttindasamtök eru því ekki sammála. Hallgrímur Indriðason kynnti sér þetta áhugaverða mál, og ræddi einnig við forsprakka einna þessara samtaka sem gagnrýna Telenor. Valerí Salúsný, sendiherra Úkraínu í Bretlandi og fyrrum yfirmaður Úkraínuhers, lét þau orð falla að Úkraína væri langt á undan NATO-ríkjum í nýjungum í hernaði. Innan NATO væri einblínt á hugmyndafræði seinni heimsstyrjaldar og menn þar svifaseinir að tileinka sér nýjungar. Því væri ólíklegt að Úkraína ætti nokkurn tíma eftir að ganga þangað inn. Tíminn verður að leiða í ljós hvort Úkraína gangi einn daginn í NATO, en við ætlum nú að kynna okkur nýsköpun Úkraínumanna í hernaði, sem hefur verið töluverð síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í landið 2022. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. -
264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um 26.09.2026 50Min.Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni en í 75 ár hefur verið í gildi mjög strangt eða algjört viðskiptabann af hálfu Bandaríkjanna. Við ræðum við Hafliða Sævarsson um stöðuna á Kúbu, söguna og framtíðarhorfur. Milljónir hafa fylgst með réttarhöldum yfir bandarísku konunni Lindsey Clancy sem ákærð er fyrir að drepa börnin sín þrjú. Þó málið hafi fengið heljarmikla athygli eru fjölskylduharmleikir sem þessir ekki án fordæma þar vestra. Á þeim sex vikum sem réttarhöldin yfir Clancy stóðu drápu átta karlmenn eiginkonu sína og börn í Bandaríkjunum. Alma Ómarsdóttir kynnti sér málið sem allir eru að tala um. -
263 - Lockerbie og ríkasta kona Rússlands 19.09.2026 44Min.Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem missti föður sinn í hryðjuverkunum telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Ólöf Ragnarsdóttir talar við hana í Heimskviðum í dag. Svo fjöllum við um ríkustu konu Rússlands síðustu fimm árin, en hún á og rekur netverslunarrisann Wildberries. Brynja Dögg Friðriksdóttir kynnti sér sögu þessarar konu og Wildberries, en árásir úkraínuhers frá því um miðjan júlí en árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi. -
262 - Graceland og El Niño 12.09.2026 44Min.Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega. Hallgrímur Indriðason rýnir í það og þær alvarlegu afleiðingar sem gætu fylgt fyrir fjölda fólks. Svo förum við til Suður-Afríku. Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð apartheid-tímans í Suður-Afríku. Graceland platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga - tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar. Við tölum við Suður-afríkumenn. Annan sem ólst upp innan aðskilnaðarstefnunnar og hinn eftir að hún var afnumin 1991. Þau tengja bæði við tónlistina á ólíkan hátt og segja hana lifa góðu lífi í Suður-Afríku í dag, 40 árum eftir að hún var gefin út. -
261 - Pólitík í Úkraínu og sumarið sem leið 05.09.2026 44Min.Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem virðist teygja sig alla leið inn á skrifstofu forseta landsins, Volodymyrs Zelenskýs. Dagný Hulda Erlendsdóttir fer yfir stöðuna í úkraínskum stjórnmálum. Þau Birta og Bjarni Pétur fara svo yfir nokkrar af helstu fréttum sumarsins. Þar kemur meðal annars við sögu fatastíll Georgiu Meloni, tónlistarsmekkur Andy Brunham, frændsystkinin Margrét Þórhildur og Karl Gústaf og fleira. -
Sumarheimskviður - Flókin talning og áttræðir rapparar 29.08.2026 39Min.Nú fer sumrinu að ljúka og þetta er síðasti þáttur sumarsins. Við byrjum af fullum krafti næsta laugardag með splunknýjar Heimskviður, þar sem við ætlum að gera upp það helsta í fréttum sumarsins á erlendum vettvangi. Í þættinum í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun okkar frá því í vor um eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar. Indverjar eru langt komnir með að telja fjölmennustu þjóð heims. Núna í lok september lýkur fyrri áfanga þessa flókna verkefnis en því á ekki að ljúka fyrr en um mitt næsta ár. Svo fjöllum við líka um Harry Potter og höfund bókanna um galdrastrákinn J.K. Rowling, og að lokum áttræðu rapparana Pete og Bas. -
Sumar-Heimskviður - Morð 22.08.2026 43Min.Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beittu konur sínar ofbeldi og þær sáu enga aðra leið úr viðjum þess. Ástæðan fyrir því að við fjöllum um málið í vetur er sú að nýlega kom út bók þessa voveiflegu atburði í byrjun síðustu aldar. Bókin heitir The Women Are Not Fine, eða konurnar hafa það ekki gott. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við höfund bókarinnir og hún segir að karlarnir hafi síður en svo haft það gott heldur. En voru konurnar kaldrifjaðir morðingjar eða þolendur ofbeldis sem í örvæntingu sinni fundu ekki aðra leið út? Bók og glæpir fortíðar er sömuleiðis útgangspunkturinn í seinni umfjöllun dagsins. Þá ætlum við að huga að geðheilsu þeirra sem fremja voðaverk. Kveikjan er bók sem kom út 2013 sem lýsir sambandi geðlæknisins Douglas M. Kelley við Hermann Göring sem honum var gert að meta í aðdraganda Nuremberg réttarhaldanna. Saga sem nú er búið að gera bíómynd um. Birta Björnsdóttir fjallar um málið. -
Sumar-Heimskviður - Barneignir og uppeldi 15.08.2026 40Min.Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það á komandi árum? Jarðarbúum er vissulega enn að fjölga en nýjasta spá Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að mannfjöldinn á jörðinni nái hámarki eftir rúma hálfa öld, árið 2084. Þá verði jarðarbúar samtals um tíu milljarðar og fimmti hver jarðarbúi verði þá eldri en sextíu og fimm ára. Björn Malmquist rýnir í framtíðina. Svo þegar börnin eru komin þá þarf að ala þau upp, og það er ekkert endilega alltaf auðvelt, sérstaklega á öld snjallsíma og samfélagsmiðla. Að deila eða ekki deila, það er spurningin. Hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar eru hætturnar? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur allt um fyrirbæri sem kallast sharenting og stjórnvöld á Spáni vilja setja lög um. -
Sumar-Heimskviður - Færeyjar 08.08.2026 43Min.Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta. Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um málið. En Færeyingar eru ekki bara duglegir að gera jarðgöng, þeir eru alltaf að verða betri í handbolta. Það sannaðist á Evrópumóti karla í handbolta í janúar þegar færeyska landsliðið sigraði hjörtu margra áhorfenda. Þeir komust reyndar ekki áfram á mótinu, en áfanginn og árangurinn vakti athygli víða. Og okkur langaði að forvitnast um uppgang handboltans í Færeyjum. Við tölum við íslenskan handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu. -
Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá 01.08.2026 41Min.Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld í Kína. Og Kínverjar kölluðu til sín tvær pöndur frá Japan fyrr á árinu. Borgaryfirvöld í Tókýó hafa óskað eftir að fá aðrar pöndur í staðinn . Ætli svarið velti ekki á því hvernig samskipti Kína og Japans þróast á næstunni? Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur allt um krúttlegustu diplómatana. Það er svo ekki hægt að fjalla um dýr án þess að minnast á afmælisbarn ársins, David Attenborough varð 100 ára þann 8.maí síðastliðinn. Attenborough er af mörgum talinn einn áhrifamesti maður samtíðarinnar. Hann hefur frætt og skemmt í áratugi og varð aðgerðasinni á efri árum. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough. -
Sumar-Heimskviður - Sjónvarp 25.07.2026 53Min.Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra var gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Þeir voru meðal kyndilbera á vetrarólympíuleikunum og hafa dúkkað upp á öllum helstu rauðu dreglum ársins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft. Það bárust fregnir af því fyrir áramót að sjónvarps og tónlistarstöðin góðkunna MTV væri að leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir að hún var stofnuð árið 1981. Birta Björnsdóttir skoðaði sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn -
Sumar-Heimskviður - Íþróttir 18.07.2026 44Min.Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni. Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050. Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því. Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum. -
Sumar-Heimskviður - Saga Palomu 11.07.2026 47Min.Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata með lyfjameðferð. Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt sem hjúkrunarfræðingur í kórónuveirufaraldrinum fyrir að dreifa skaðlegum upplýsingum um Covid-19. Kate Shemirani tókst að sannfæra dóttur sína um að hafna lyfjameðferð og gangast frekar undir óvísindalegar meðferðir skottulækna. Hún tapaði því baráttu sinni við meinið. Dánardómstjóri í Bretlandi segir umsjá Kate Shemirani yfir dóttur sinni ófullnægjandi og skammarlega, en ekki glæpsamlega. Bróðir Palomu er ósáttur við niðurstöðuna. Í viðtali við Odd Þórðarson segir bróðirinn, sem heitir Gabriel, að hann kenni móður þeirra um andlát systur sinnar. Mamma þeirra hafi á grundvelli samsæriskenninga og vantrúar á heilbrigðiskerfið, sannfært hana um að hafna lyfjameðferð. -
Sumar-Heimskviður - Breskur aðall 04.07.2026 47Min.Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten Windsor eftir að hann var sviptur öllum sínum tiltlum og meðfæddri meðgjöf í lífinu. Anna Lilja Þórisdóttir segir okkur söguna alla. Svanasöngur Downton Abbey kom í kvikmyndahús fyrir áramót. Þetta var þriðja og síðasta rmyndin sem kom í kjölfar feykivinsælla sjónvarpsþáttaraða um Crowley fjölskylduna og aðra íbúa á öllum hæðum Downton Abbey. Þættirnir hafa unnið alþjóðleg verðlaun um allan heim, slegið áhorfsmet og persónurnar eiga sér margar fastan sess í hjörtum aðdáenda. Birta Björnsdóttir fjallar um þættina vinsælu. -
Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla 27.06.2026 42Min.World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Hallgrímir Indriðason vann þessa umfjöllun í febrúar og ræddi við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún sagði umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra. -
Sumar-Heimskviður - Afmælisþátturinn 20.06.2026 46Min.Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjölluðum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna. -
Sumar-Heimskviður - Netið 13.06.2026 39Min.Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra. Það sem kannski færri vita er að merkið sjálft á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekki aðeins verið notað í hinum stafræna heimi. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um sögu @ merkisins. Svo eru það dekkri hliðar netsins, það er orð ársins 2025 hjá Oxford-orðabókinni, bræðibeita. Í desember fjölluðum við um þetta orð síðasta árs, bræðibeita eða rage bait á ensku. Orðið er notað yfir efni á netinu sem er ætlað að kveikja bræði eða reiði lesenda til þess að fá fólk til að smella á efnið. Notkun orðsis hafði þrefaldast síðustu tólf mánuði þegar það varð fyrir valinu sem orð ársins. Oddur Þórðarson fjallar um málið. -
Sumar-Heimskviður - Tækni 06.06.2026 41Min.Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Hulda segir okkur allt um hálfleiðarana og stöðu Taívan. Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda segir frá. -
260 - Hraðstefnumót í Heimskviðum 30.05.2026 57Min.Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur. Þarna eru meðal annars stjórnmálamenn, sjónvarpslæknar, áhrifavaldar, tónlistarmenn og ferfætlingar svo eitthvað sé nefnt.
Beliebt in
Dieser Podcast erscheint auch in den Podcast-Charts dieser Länder.