Þetta helst
RÚV
0
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Folgen
-
Rígurinn á milli kók og pepsí í ljósi rannsóknar Samkeppniseftirlitsins 16.10.2026 17Min.Hvort er betra, kók eða pepsí? Þetta er ein af þessum spurningum sem sjálfsagt margir hafa skoðun á. Rígurinn á milli þessara sykruðu gossrykkja er langvinnur og sögulegur, bæði hér á Íslandi sem og annars staðar. Í áratugi hafa íslensku fyrirtækin sem framleiða þessa drykki verið á sitt hvorum pólnum í köldu stríði. Þetta eru Ölgerðin og fyrirtækið sem lengst af hét Vífilfell en heitir nú CCEP. Spurningin um þennan mikla ríg hefur komist óbeint í kastljósið á síðustu dögum eftir að Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá íslenska Pepsífyrirtækinu Ölgerðinni. Fjallað er um þennan sögulega ríg á milli framleiðanda Coca Cola og Pepsi á Íslandi og rannsókn Samkeppniseftirlisins á Ölgerðinni. Birt eru viðtöl við Andra Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Ölgerðarinnar, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, og Önnu Regínu Jónsdóttur, forstjóra CCEP. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Samkeppnin á tímum lífeyrissjóðanna 15.10.2026 15Min.Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir þetta áhyggjuefni en framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs segir það fela í sér kosti. Lífeyrissjóðir eftirláta öðrum stjórn skráðra fyrirtækja sem þeir eiga stóra hluti í. Óháðar nefndir sjái um að gæta þess að óháðir stjórnarmenn gæti hagsmuna þeirra. En hver skipar óháðu nefndirnar? -
Ölgerðin í ÁTVR: „Ríkið í Ríkinu“ 14.10.2026 19Min.Ölgerðin hefur verið til umfjöllunar í fréttum síðustu daga út af húsleit Samkeppniseftirlitsins hjá fyrirtækinu út af meintri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur fjallað ítarlega um þessi meintu brot. Ölgerðin er orðið að risa á drykkjarvöru- og matvörumarkaði á Íslandi. Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta kemur fram í sölutölum frá ÁTVR fyrir síðasta ár. 50,3 prósent af öllum seldum áfengiseiningum sem ÁTVR selur og 47 prósent af öllum seldum lítrum koma frá Ölgerðinni. Er viðskiptasamband Ölgerðarinnar og ÁTVR óeðlilegt eða ekki? Rætt er Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur forstjóri ÁTVR um þetta. Einnig er rætt við Arnar Sigurðsson, vínkaupmann í Santé, um fyrirferð Ölgerðarinnar á áfengismarkaði og innkaupakerfi ÁTVR. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Sjálfkeyrandi bílar ryðja sér til rúms 13.10.2026 18Min.Í dag beinum við sjónum okkar að sjálfkeyrandi bílum. Rætt er við Rósu Guðbjartsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, Björn Kristjánsson, bílasérfræðing og ráðgjafa hjá FÍB, og Þórhildi Elínu Elínardóttur hjá Samgöngustofu. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Tímakaup Wolt-sendla 12.10.2026 15Min.Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að fara og hversu margar þeir samþykkja. Wolt sendlar geta fengið 0 krónur á tímann þrátt fyrir að þeir séu að keyra um merktir Wolt, skráðir inn í kerfið þar sem þeir fá sendingar og bíða eftir því að þeir fá slíkar sendingar. Arnhildur Hálfdánardóttir útvarpskona á Rás 1 fjallar um þetta og veruleika Wolt-sendla á Íslandi í útvarpsþættinum Þetta nútímalíf: Á rúntinum með Wolt-sendli: Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann Rætt er við Arnhildi um Wolt í þætti dagsins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Glæpur og refsing í Manchester City 09.10.2026 20Min.Stærð og umfang hneyklisins í kringum fótboltaliðið Manchester City stækkar dag frá degi með nýjum fréttum af málinu. Ólíkar hugmyndir hafa til dæmis komið fram á opinberum vettvangi um hvaða afleiðingar hneykslið muni hafa fyrir fjárfestingar auðmanna frá Abu Dhabi í Bretlandi. Verður eigandi Manchester City, Sheik Mansour, núna svo fúll að hann muni vilja hætta öllum viðskiptum í Bretlandi eða mun hann vilja halda áfram að fjárfesta þar, meðal annars í Manchester City? Og hverjar eru pólitískar afleiðingar málsins? Andy Burnham forsætisráðherra hefur dregist inn í það með ummælum um að fjárfestarnir frá Abu Dabi séu of stórir til og mikilvægir til að þeir geti yfirgefið Bretland. Önnur lið í deildinni hafa áhyggjur af pólitískum afskiptum af málinu og að rannsóknin og refsing Manchester City verði í skötulíki. Rætt er við Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa sem er sérstakur áhugamaður um fjármál fótboltafélaga. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Manchester City-hneykslið snýst um miklu meira en fótbolta 08.10.2026 19Min.Hneykslið í kringum enska fótboltaliðið Manchester City hefur verið nær stöðugt í fjölmiðlum víða um heim síðastliðna viku. Stærð þessa skandals hefur magnast upp frá því að málið kom fyrst upp í lok september og er nú líka orðið að pólitísku og viðskiptalegu hneyksli sem teygir anga sína frá Englandi til arabíska furstadæmisins Abu Dhabi. Rætt er við Sigrúnu Davíðsdóttur, blaðamann og stjórnmálaskýranda sem hefur verið búsett í London um árabil, og Magnús Þorkel Bernharðsson, sagnfræðiprófessor sem er sérfræðingur í sögu Miðausturland, um þetta fordæmalausa mál. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst 07.10.2026 15Min.Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála eru aukin. Í þætti dagsins beinum við sjónum að nýju vígbúnaðarkapphlaupi á tímum þar sem árangur í afvopnun er rifjaður upp. Rætt er við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði, og Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu 06.10.2026 15Min.Í þætti dagsins fjöllum við um aðgengi almennings að íslenska dómskerfinu, sér í lagi hjá héraðsdómum á landsbyggðinni. Fréttastofa RÚV og aðrir fjölmiðlar hafa ítrekað orðið að ganga á eftir birtingum dóma og oft gengið erfiðlega að fá upplýsingar um réttarhöld. Héraðsdómur Norðurlands eystra birti tuttugu og níu dóma í sumar, eftir að fréttastofa gerði athugasemd við vinnulag dómstólsins. Sumir dómanna höfðu legið óbirtir mánuðum saman og farið þannig gegn reglum Dómstólasýslunnar. Umsjón: Ólöf Rún Erlendsdóttir -
Baráttan um Brasilíu 05.10.2026 15Min.Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár vikur. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor og sérfræðing í málefnum Rómönsku-Ameríku. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur 02.10.2026 16Min.Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar er rætt við Guðmund Ármann Pétursson, formann Þroskahjálpar, og Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur, prófessor emiritus í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Einnig er rætt um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og stöðuna í réttindabaráttu Þroskahjálpar sem í ár fagnar 50 ára afmæli. Í þætti gærdagsins sagði Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat. -
Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur 01.10.2026 15Min.Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat. Þetta er fyrri þáttur af tveimur en í næsta þætti er rætt við prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og formann Þroskahjálpar. -
Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum 30.09.2026 18Min.Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á ástarsvikum. Þetta eru svik sem oft eru kennd við Nígeríusvindl. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að fólk sætti sig oft við þessi svik og vilji jafnvel ekkert endilega að fólk rannsaki þau. ,,Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin." Elín segir að áætlað fjárhagstjón Íslendinga vegna slíkra netglæpa hafi verið 427 milljónir króna á fyrsta helmingi þessa árs. Þetta er mikil aukning á milli ára en til samanburðar nam tilkynnt tjón 586 milljónum króna allt árið í fyrra og tæplega 200 milljónum króna árið 2024. Hugsanlegt er að á milli 80 og 90 prósent slíkra svika megi rekja til Nígeríu. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru glæpahópar í Nígeríu sem sérhæfa sig í Íslandi og tala við íslensk fórnarlömb á íslensku sem líklega er þýdd af gervigreind. Rætt er við Elínu Agnesi og Alexander Logi Jónsson sérfræðing í netsvikamálum hjá Arion banka. Hann hefur unnið við þetta í tvö ár, þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall, og er að verða þekkt nafn hjá þeim sem fylgjast með netsvikamálum í kerfinu. Alexander kannast við það að fólk geti jafnvel sætt við að greiða peninga til svikara fyrir samskipti. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk 29.09.2026 16Min.Við förum til Hafnarfjarðar í þætti dagsins þar sem bærinn hefur hafið samstarf við Stólpa um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi - fyrir erlent starfsfólk sem kemur hingað til lands í skemmri tíma - við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg, rétt við Vellina. Gert er ráð fyrir allt að 130 húsum og um 260 íbúðum sem verða um 35 fermetrar. Töluverð ólga hefur þó verið í bænum vegna áformanna. Nú hafa rúmlega tvö þúsund sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem staðsetningunni er mótmælt. Rætt er við dósentana Má Wolfgang Mixa og Kolbein Hólmar Stefánsson, og Elínu Sigríði Óladóttur, íbúa á Völlunum í Hafnarfirði. -
Fordæmisgildi tveggja hæstaréttardóma fyrir bókun 35 28.09.2026 15Min.Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis sendi skilaboð til Alþingis um að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleidd með réttum hætti í íslensk lög. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur haft á stefnuskránni að höfða mál gegn Íslandi fyrir að hafa ekki innnleitt bókun 35 með réttum hætti. Gunnar Þór telur að slíkt dómsmál þurfi ekki að fara fram þar sem Hæstiréttur Íslands hafi lagt línurnar með orðum sínum í dómunum í máli Önnu Bryndísar. Skiptar skoðanir eru hins vegar um þetta mat á þýðingu máls Önnu Bryndísar og á bókun 35 sem slíkri. Sigríður Andersen er þingkona Miðflokksins og hefur hún tjáð sig mikið um bókunina á Alþingi. Hún er á móti frumvarpinu sem utanríkisráðherra lagði fram í síðustu viku og ætlar að berjast gegn því. Rætt er við Gunnar Þór og Sigríði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Konan á bak við sögulegt dómsmál í Hæstarétti 25.09.2026 17Min.Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019. Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læk nisfræði og hafði unnið sem læknir og unnið sér inn réttindi til ákveðinna greiðslna í fæðingarorlofi. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þegar tekjutengdar greiðslur heldur einungis lágmarksgreiðslur. Anna Bryndís ákvað að leita réttar sínar í málinu þar sem hún taldi niðurstöðuna vera brot á EES-samningnum. Hún ræðir um þessa sjö ára baráttu sína við íslenska ríkið í viðtali við Þetta helst. En hvaða máli skiptir þessi dómur í stóra samhengi hlutanna og er hann sögulegur? Gunnar Þór Pétursson er prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti. Hann segir dóminn í máli Önnu Bryndíar vera sögulegan að mörgu leyti og að hann hafi bæði lögfræðilegar og mögulega pólitískar afleiðingar. Dómurinn tengist hinni svokölluðu bókun 35 sem snýst tengsl EES-samningsins við löggjöfina í þeim ríkjum sem hafa tekið upp samninginn. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands 24.09.2026 18Min.Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá árinu 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en nú er reksturinn orðinn hluti af útgerðarrisanum Samherja. Þar er eru þorskhausar meðal annars þurrkaðir og seldir til Nígeríu og kallast skreið. Um hvað snýst þessi tímabundna lokun á fiskþurrkuninni og hversu umfangsmikil er skreiðarsala Íslendinga til Nígeríu? Rætt er við Elvar Einarsson fiskútflytjanda frá Dalvík, Ólöfu Rún Erlendsdóttur fréttakonu og birt svör frá Samherja um fiskþurrkunina. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Heimir Hallgrímsson í miðju stormsins 23.09.2026 14Min.Í þætti dagsins eru sjónum beint að deilum um leiki Írlands og Ísraels. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, stendur í miðju stormsins. Rætt er við Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann, og Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking. -
Wolt-væðingin á Íslandi 22.09.2026 19Min.Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins. Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála í síðustu viku. Sendlarnir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki, þeir séu gerviverktakar hjá Wolt og að laun þeirra fyrir sendlastörfin hafi verið lækkuð um helming á árinu. Rætt er við lögfræðinginn Karen Ósk Nielsen Björnsdóttur hjá ASÍ um Wolt og sænska doktorsnemann Pontus Blume sem skrifar doktorsritgerð um fyrirtækið og önnur giggfyrirtæki. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja 21.09.2026 13Min.Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu viðræðna og mögulega lagasetningu stjórnvalda við Aldísi Guðnýju Sigurðardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í samningatækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Beliebt in
Dieser Podcast erscheint auch in den Podcast-Charts dieser Länder.