Morðskúrinn

Morðskúrinn

mordskurinn
Χώρα Ισλανδία
Γλώσσα IS
Επεισόδια 300
Τελευταίο 14.10.2026

Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.

Επεισόδια

  • Suzanne Adams 14.10.2026 54λ
    Hin 83 ára Suzanne bauð syni sínum Stein-Erik að koma og búa hjá sér þegar hann var að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Stein-Erik var meðal annars að glíma við andleg veikindi, og í stað þess að leita til fagaðila þá fór hann að spjalla við ChatGPT. Hann og forritið, sem hann kallaði Bobby, urðu nánir vinir með tímanum og að lokum kom Stein-Erik til með að taka mjög slæma ákvörðun.  Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
  • Theresa Fusco 07.10.2026 47λ
    Árið 1984 var viðburðarrík helgi framundan hjá hinni 16 ára gömlu Theresu Fusco. Vakt á vinnustaðnum, gistipartý með vinkonu og svo dagur með pabba hennar - en hún skilaði sér aldrei til vinkonu sinnar eftir vinnu. Við tók leit sem skilaði litlum árangri í margar vikur en að lokum fannst Theresa látin. Við tók heilmikil rannsókn sem átti eftir að fara í bókstaflega allar áttir áður en morðingi Theresu var að lokum handtekinn.    Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 
  • Colleen Slemmer 30.09.2026 51λ
    Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig, þar sem hún varð fyrir miklu einelti af hálfu annarra nemenda sem stunduðu prógrammið. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að upplýsa mál hennar, þar sem ein af þeim sem réðst á hana hafði meðal annars tekið brot úr höfuðkúpunni hennar og sýnt samnemendum þeirra. Sú stelpa hét Christa Pike, en hún hefur setið inni á dauðadeild síðan 1995 og mun aftaka hennar fara fram í dag, 30. september 2026 klukkan 15:00.
  • Russel og Shirley Dermond 23.09.2026 1ώ 2λ
    Russel og Shirley Dermond voru komin vel á níræðisaldur og búin að koma sér vel fyrir í úthverfi við Lake Oconee. Lífið snerist fyrst og fremst um að njóta, þau eyddu tíma sínum með börnum, að sinna félagslífinu og voru dugleg að mæta á viðburði. Það kom því virkilega á óvart þegar þau mættu ekki á einn slíkan þann 3 maí árið 2014. Þremur dögum síðar fannst Russel látinn inn á heimili þeirra en Shirley var hvergi að finna.Þátturinn er í boði  Heimaskipulag - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.heimaskipulag.is  Define the Line - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is   Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn 
  • Robert Brashers 15.09.2026 57λ
    Einn dag var Robert tekinn við að reyna að brjótast inn á heimili viðskiptavinar síns, hann var á leiðinni í fangelsi en ákvað að fara á flótta. Hann fór hinsvegar ekkert langt og eyddi oft á tíðum tíma með eiginkonu sinni og börnum á meðan hann átti að vera í felum. Einn daginn bankaði lögreglan svo upp á hjá þeim, sem varð til þess að Robert sá ekki aðra leið en að taka sitt eigið líf. Það sem átti eftir að koma í ljós var að hann var viðriðinn miklu meira heldur en grunur var um í fyrstu. 
  • Stacey Colbert 09.09.2026 38λ
    Stacy Colbert var 23 ára gömul, nýútskrifuð úr markaðsfræði og nýbyrjuð í starfi sem markaðsgreinandi í Columbus, Ohio.Hún hafði komið sér vel fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi en það var einmitt þaðan sem hún hvarf eitt kvöld árið 1998 og það algjörlega sporlaust.  Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 
  • Dustin Wehde 02.09.2026 45λ
    Dustin hafði kynnst nágrönnum sínum Tracey og Michael nokkuð vel, og var hann duglegur að hjálpa þeim með allskyns verkefni sem stóð honum til boða. Hinsvegar mætti hann einn daginn óboðinn inn á heimili Tracey með vini sínum og ætlaði að ráðast á börnin hennar, svo Tracey tók til sinna ráða að verja fjölskylduna sína. Enginn skildi hvers vegna, en rannsókn átti eftir að leiða það í ljós.  Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
  • LaNelle Barsock 26.08.2026 38λ
    LaNelle Barsock var ótrúlega dugleg kona, búin að mennta sig, kaupa sér hús og hlakkaði til að koma sér þar betur fyrir. Hún var vel liðin af öllum enda ótrúlega ljúf og góð við allt og alla. Það var því gríðarlegt áfall þegar LaNelle var myrt inn á heimili sínu. Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn  
  • Staudte fjölskyldan 19.08.2026 34λ
    Staudte fjölskyldan samanstóð af Mark, Diane og börnum þeirra fjórum, þeim Shaun, Sarah, Rachel og Brianna. Á fimm mánaða tímabili árið 2012 gerðust dularfullir hlutir innan fjölskyldunnar, þegar fjölskyldumeðlimur byrjuðu að veikjast og að lokum deyja. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hvað raunverulega var að gerast fyrir fjölskyldumeðlimina.  Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
  • Taylor Behl 12.08.2026 50λ
    Hin 17 ára gamla Taylor Behl var skynsöm og ábyrg stelpa og nýbyrjuð í háskóla þegar hún hvarf að virtist sporlaust. Hún hafði ætlað að skreppa frá til að gefa herbergisfélaga sínum smá næði en hún átti aldrei eftir að skila sér heima aftur. Það var ekki fyrr en 10 dögum eftir hvarf hennar sem að málið rataði í hendur lögreglu - fram að því hafði háskólalögreglan haldið því fram að hún hafi bara látið sig hverfa sjálf. Þátturinn er í boði Define the Line SportHeimaskipulag   Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn 
  • Dan Markel 05.08.2026 36λ
    Dan og fyrrverandi eiginkona hans Wendy voru með sameiginlegt forræði, sem gerði það að verkum að hún gat ekki flutt aftur til foreldra sinna. Það kom henni þó í opna skjöldu þegar Dan var myrtur á heimili sínu einn daginn, og tókst rannsóknarlögreglumönnum að rekja ferðir þeirra sem höfðu orðið honum að bana.  Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Define The Line Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Heimaskipulag
  • Sherri Jo Elliot 29.07.2026 33λ
    Hin 16 ára gamla Sherri Jo hélt af stað í skólann þann 16 nóvember árið 1983 en í skólann átti hún aldrei eftir að skila sér. Lögreglan tók ofboðslega létt á hvarfi Sherri og taldi að hún væri unglingur í uppreisn. Svo var aldeilis ekki því lík hennar átti eftir að finnast fjórum dögum síðar og við tók ansi löng lögreglurannsókn. Þátturinn er í boðiDefine the Line Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 
  • Sade Robinson 23.07.2026 46λ
    Sade var aðeins 19 ára gömul þegar hún hvarf en hún hafði aldrei skilað sér heim eftir vinnu og kom bíllinn hennar til með að finnast brenndur til kaldra kola.  Þátturinn er í boði - Define the Line  - Heimaskipulag
  • Tiffany Campbell og Melissa Chilton 15.07.2026 42λ
    Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum. En það var þar sem að lík þeirra beggja áttu eftir að finnast einn góðan veður dag en þær höfðu báðar verið stungnar til bana. Við tók rannsókn sem að leiddi lögreglu í margar áttir og enn er mörgum spurningar ósvarað.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 
  • Orrin og Orson West 08.07.2026 35λ
    Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis að byrja. Fjölskyldan flutti frá Bakersfield til California City, en ekki löngu eftir það voru strákarnir tilkynntir týndir. Að sögn Trezell höfðu þeir verið úti í garði að leika sér þegar þeir hurfu, líklegast í gegnum hliðið í garðinum. Rannsókn lögreglu leiddi til tímalínu dularfullra atburða sem átti eftir að láta þá vilja breyta stefnu rannsóknarinnar.  Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.  Þátturinn er í boði Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt á heimasíðu og í verslun. 
  • Sherita Williams 01.07.2026 37λ
    Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra sína um örlítið meira frelsi svo þau héldu ró sinni. En daginn eftir stóð þeim ekki á sama og úr varð leit.   Þátturinn er í boði HeimaskipulagDefine the Line Sport   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   
  • Krim börnin 24.06.2026 31λ
    Krim hjónin ákváðu að ráða inn barnfóstru þar sem fjórða barn þeirra var á leiðinni og það var nóg að gera hjá þeim, en sú ákvörðun átti eftir að reynast þeim ansi dýrkeypt.  Þátturinn er í boði - Define The Line - Heimaskipulag
  • Helen McCourt 17.06.2026 45λ
    Þann 9. febrúar árið 1988 var hin 22 ára gamla Helen McCourt að drífa sig heim að borða kvöldmat því hún átti planað stefnumót með kærastanum sínum. Þennan dag hafði hún sérstaklega beðið móður sína um að hafa matinn tilbúinn þegar hún kæmi heim og var því afar óvenjulegt þegar Helen seinkaði. Fljótt var þó ljóst að Helen var ekki sein, hún var horfin.   Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn  
  • Rey Rivera 10.06.2026 49λ
    Árið 2006 hafði Allison, eiginkona Rey, ferðast út úr bænum í vinnuferð. Þegar hún ætlaði að heyra í eiginmanni sínum til að láta hann vita að hún væri komin á leiðarenda þá fékk hún engin svör. Morguninn eftir stóð henni ekki lengur á sama og ákvað að aka heim og þar með tilkynna hvarf hans. Sex dögum síðar fannst bíllinn hans lagður nálægt Belvedere hótelinu í Baltimore og ekki leið á löngu þar til lík hans kom til með að finnast innan þess svæðis.  HEIMASKIPULAG: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.heimaskipulag.is DEFINE THE LINE: Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inni á www.definetheline.is 
  • Keeshae Jacobs 03.06.2026 50λ
    Keeshae Jacobs var 21 árs gömul þegar hún kvaddi mömmu sína kvöld eitt og sagðist ætla út að hitta vin. Keeshae hafði þennan dag rifist við kærastann sinn og var mamma hennar ekkert hissa á að hún vildi finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Það lág fyrir að hún ætlaði að gista en þegar næsti dagur rann upp og ekkert bólaði á Keeshae þá fóru áhyggjur að vakna. Við tók langt og flókið ferli sem skilaði fáum svörum.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag

Δημοφιλές σε

Αυτό το podcast εμφανίζεται και στις λίστες podcasts αυτών των χωρών.