Besta sætið
bestasaetid
0
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Episodios
-
2. júní - Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? 02.06.2026 25mFreyr Alexandersson lærði ekki af mistökum annarra íslenskra þjálfara og hefur verið látinn fara frá Brann. Hvað verður um Alfreð Finnbogason hjá Rosenborg? Einhvern veginn tókst Noregi að taka yfir þátt dagsins í Besta sætinu. Stórliðin þar í landi, með Íslendinga í brennidepli, hafa tekið risaákvarðanir síðastliðinn sólarhring. Svo sendu Norðmenn frá sér alvöru yfirlýsingu með sigrinum gegn Svíum í gær. Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins í Besta sætinu.
-
1. júní - Er hægt að stöðva Víkingana? 01.06.2026 24mBesta deild karla, stjóraskipti Liverpool, Lengjudeildin, blóðbaðið hjá Kolla box og fleira til í þætti dagsins.
-
29. maí - Óskar Hrafn á hælana? 29.05.2026 26mÞað er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan. Þá skrifaði Óskar Hrafn Þorvaldsson undir nýjan samning í Vesturbæ og gjaldkeri liðsins hlær alla leið í bankann.
-
28. maí - Aron vildi ráða eftir þrjár æfingar 28.05.2026 25mAron Pálmarsson er orðinn aðalþjálfari FH og er rennt ítarlega yfir þessi merkilegu tíðindi í Besta sætinu í dag. Svo er staðan í hinni skemmtilegu Lengjudeild karla krufin aðeins.
-
27. maí - Körfuslúður og KR með hreðjatak á Valsmönnum 27.05.2026 26mBesta deild karla er að spilast á áhugaverðan hátt en fátt virðist geta stöðvað Víkinga. Stjarnan veldur vonbrigðum og KR er með alvöru hreðjatak á Valsmönnum. Lengjudeildin er jöfn og spennandi og svo er mikið slúðrað í körfunni.
-
26. maí - Slot á skilið annað tækifæri og KR fær líklega á baukinn 26.05.2026 28mArsenal Englandsmeistari en hvað gerist næst? Aron Pálmarsson á leið í þjálfarabransann og hver er framtíð Steraleikanna? Lifir Jökull af annað tap og mun Valur valta yfir KR í kvöld?
-
22. maí - Dagur stórra tíðinda krufinn 22.05.2026 24mÞað var af nægu að taka á þessum glimrandi fína föstudegi þar sem tíðindi hrönnuðust inn. Pep Guardiola, Michael Carrick, Alfreð Gíslason og Haukur Þrastarson meðal annars til umræðu, sem og lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þá eru fimm leikir á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld.
-
21. maí - Þarf að finna nýja fermingargjöf fyrir drenginn 21.05.2026 20mLandsliðshópur, óvænt skipti landsliðsmanns, Besta deildin og Evrópu-Emery er meðal þess sem er til umræðu í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.
-
20.maí - Til hamingju Arsenal! 20.05.2026 23mÍ Besta sætinu í dag verður farið yfir stóru tíðindi gærkvöldsins þegar að Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár eftir að Manchester City skrikaði fótur. Baráttan er hörð í deildinni neðar í töflunni fyrir lokaumferð helgarinnar.
-
Ingibergur Þór Jónasson - Sorgartár urðu að gleðitárum 19.05.2026 15mIngibergur Þór Jónasson hefur verið formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í gegnum ólgusjó undanfarin ár. Eldsumbrot, rýming og hætta á niðurlagningu körfuboltaliðs Grindavíkur hafa verið meðal áskorana. Liðið varð Íslandsmeistari eftir hafa verið nærri titli undanfarin ár og gleðin ósvikin. Hann ræddi undanfara titilsins við Val Pál Eiríksson í Besta sætinu.
-
19. maí - Pargo sýningin í Síkinu 19.05.2026 19mJeremy Pargo vann Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta fyrir Grindavík með ótrúlegri körfuboltasýningu sem seint mun gleymast. Baldur Ragnarsson fór frá Stjörnunni yfir á Álftanes og svo er dramatískt kvöld fram undan í enska boltanum.
-
18. maí - Sjóðheitt í Síkinu 18.05.2026 19mGrindavík fær annað tækifæri til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Það verður heitt og það verða læti. Arsenal getur að sama skapi sett marga fingur á Englandsbikarinn með sigri á Burnley í kvöld. Svo var Besta deild karla á fullu í gær og margt að gerast.
-
15. maí - Þreföld öryggisgæsla í Grindavík 15.05.2026 27mGrindavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Tindastóli í kvöld og Besta sætið býst við miklum látum. Forkólfar FIBA Europa fá að kynnast því besta, og mögulega því versta, sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða í kvöld. Mun Grindavík gera það sem Njarðvíkingum mistókst í gærkvöldi, tryggja titilinn? FA bikarinn fer svo á loft á morgun. Einhvern veginn, eins og alltaf, er Chelsea í séns en Manchester City verður að teljast sigurstranglegri eftir að hafa hvílt allar helstu stórskytturnar. Spennan magnast í enska boltanum og heil umferð fer fram í Bestu deild karla. Að ógleymdu PGA meistaramótinu, þar sem Rory McIlroy hefur látið kosta Nike margar milljónir dollara.
-
13. maí - Þetta er svo asnalegt hjá Kane 13.05.2026 25mDeAndre Kane gaf Stólunum puttann á Króknum og allt er brjálað. Strákarnir okkar unnu í Egyptalandi og Arnar Gunnlaugs valdi Ögmund Kristins í landsliðið. Hann reyndar valdi tvo hópa í dag.
-
12. maí - Ætla að kveikja í tréslaufu Rúnars 12.05.2026 20mRúnar Ingi Erlingsson á ekki von á góðu í ferðalagi dagsins á Krókinn enda stendur til að kveikja í einni af hans frægu tréslaufum. Einnig er rennt yfir handbolta kvöldsins en Valur getur orðið Íslandsmeistari. Njarðvík er í toppstöðu í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna og Tottenham er enn í kröppum dansi í enska boltanum.
-
11. maí - Hvar er eiginlega samræmið? 11.05.2026 20mVAR-dómurinn í leik West Ham og Arsenal er á vörum allra í dag. Það verður líklega eitthvað rifist um hann næstu vikurnar. Bakgarðshlaupið ótrúlega fór fram um helgina. Það var ýmislegt áhugavert á ársþingi HSÍ og Baldur Þór Ragnarsson hætti með Stjörnuna í miðjum þætti. BOMBA! Annar leikurinn í úrslitum Bónus kvenna fer fram í kvöld og þá er einnig spilað í Bestu deild kvenna. Svo er mikið undir hjá Tottenham í enska boltanum.
-
8. maí - Ætla að fagna þar til ég dey 08.05.2026 23mValsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í gær og þeir voru enn að fagna er íþróttadeild Sýnar heimsótti þá í dag. Úrslitin í Bónus kvenna hefjast í kvöld og þá fara líka fram fimm leikir í Bestu deild karla. Við hitum vel upp fyrir þá alla.
-
7. maí - Galin hegðun sjálfboðaliða 07.05.2026 23mTveir oddaleikir í körfu karla og Tindastóll og Grindavík komust í úrslit. PSG mun spila í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Arsenal eftir hörkuleik gegn Bayern. Mikið líf í Bestu deild kvenna þar sem sjálfboðaliði á Akureyri stal senunni með galinni hegðun. Svo er barist til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld.
-
6. maí - Hvar er Hlynur Bærings? 06.05.2026 21mBesti íþróttadagur ársins er runninn upp. Tveir oddaleikir í Bónus deild karla og seinni undanúrslitaleikur Bayern og PSG í Meistaradeildinni. Ótrúleg veisla. Einnig rætt um leiki kvöldsins í Bestu deild kvenna og vanvirðingu við úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna.
-
5. maí - Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay 05.05.2026 25mBesta íþróttavika ársins er í fullum gangi. Það verða fjórir oddaleikir í íslenskum íþróttum næstu þrjá dagana og undanúrslit í Meistaradeildinni klárast einnig á morgun. Man. City er svo að kasta frá sér Englandsmeistaratitlinum.
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.