Áhugavaldar

Áhugavaldar

AnnaKrissa og Ari Björn
País Islandia
Géneros Comedia
Idioma IS
Episodios 12
Último 30.06.2026

Sperrtu eyrun, því systkinin Anna og Ari eru mættust hingað með áhugaverðasta hlaðvarp Íslands lóðbeint til þín. Nýir þættir á þriðjudögum.

Episodios

  • 17. Einn af Hverjum Tíu Tannlæknum eru Kolklikkaðir 30.06.2026 1h 39m
    Það er alltaf þessi eini sem er ósammála... í dag fer Ari með Önnu á ókunnugar slóðir. Stoppað er á subredditinu r/The10thDentist þar sem er ekki alveg í lagi með suma. Vonandi finnst ykkur kaldar pullur góðar. Tímastimplar; 0:00 yapperville 4:29 áhugaverðar staðreyndir 14:57 tíundi tannlæknirinn byrjar 16:37 Ég elska þegar hnerrinn minn hverfur 22:00 Ég elska að borða kaldar pylsur + stærsta hláturskast frá upphafi áhugavalda 28:47 tónlist er leiðinleg 37:50 að lesa hljóðbó...
  • 16. Forvitnin Drap Köttinn (Köttur = Anna) 23.06.2026 1h 27m
    TW: Weird og ógeðslegt stuff. Anna hendir Ara aftur í djúpu laugina og segir honum frá mörgum áhugaverðum þráðum sem hún stólpast stundum á þegar hún skoðar /askreddit.
  • 15. ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ!! 17.06.2026 1h 31m
    HÆ HÓ OG JIBBÝ JEI! ÁFRAM ÍSLAND!! WOOHOOOOO! ÍSLAND ER BEST Í HEIMI!! BÆ DANMÖRK ÁFRAM ÍSLAND! RAMMÍSLENSKASTI ÞÁTTUR ÍSLANDS. FARÐU NORÐUR OG NIÐUR OG ÞAÐAN Í VERRI STAÐ DANMÖRK! ÁFRAM ÍSLAND!!
  • 14. SkýrAri Mynd af Ara 16.06.2026 1h 37m
    Ari er grínAri, trommAri, frábær leikAri, algjör töffAri, góður teiknAri, geggjaður söngvAri og tónlistarskapAri, góður söguskrifAri og lesAri og bæði sterkAri, vitrAri, hressAri, nettAri og klárAri en Anna. Í þætti vikunnar fáum við skýrAri mynd af Ara með handahófskenndAri og flottAri spurningum heldur en eðlilegt væri að spurja. FyndnAri og heitAri þátt er erfitt að finna.
  • 13. Spurningar, Spurningar, og Fleiri...Spurningar? 09.06.2026 1h 37m
    Áhugavaldarnir kafa djúpt ofan í heilann á Önnu. Hvort myndir þú? Spurningar um tilveruna, og margt annað áhugavert ™ í þessum fróðlega þætti.
  • 12. Funheitar Frásagnir Fólksins 02.06.2026 1h 59m
    Við spurðum, þið svöruðuð. Dónalegir viðskiptavinir, MJÖG furðulegar uppákomur, játningar og svo miklu meira í þessum funheita þætti. Anna les fyrir Ara sögurnar sem þið senduð inn og það má segja að þær eru svakalegar. Spennið beltin og náið ykkur í popp. Tímastimplar; 0:00 Vitleysisgangur og Yapperville 15:04 Áhugaverðar Staðreyndir 22:10 Umræðuefni Þáttarins 29:40 TW emetophobia /ælufóbía 32:40 ælufóbíusaga búin auka TW: kynferðisleg áreitni, andleg erfiði, og fleira þess hátta...
  • 11. Buzz Buzz.., og Svaraðu Nú! 26.05.2026 1h 23m
    Hvort myndir þú frekar, og kanntu gen alpha tungumál? er meðal þeirra prófa sem Ari leggur fyrir Önnu í þessum þætti áhugavaldanna. Það eru stóru spurningarnar í dag!
  • 10. Heimsmet á (Skrítnum) Heimsmælikvarða 19.05.2026 1h 17m
    Lengstu neglurnar, háværasta ropið, o.fl. Vonandi býður ykkur ekki eins mikið við og honum Ara. Enda fór Anna með ótrúlegustu heimsmet sem hún gat fundið í þessum bráðfyndna þætti hjá áhugavöldunum.
  • 9. Er Ekki Kominn Tími til að Pústa? 12.05.2026 1h 23m
    Það lendir enginn í svona hjá tannlækninum nema Anna... það verður sko sannarlega pústað úr öllum áttum í þessum þætti! Þú vilt sko alls ekki missa af því.
  • 8. Seinustu Tvær Heilasellurnar 07.04.2026 54m
    Í þætti vikunnar förum við í nokkra áhugaverða tveggja manna leiki. Afslappað, fyndið og út um allt, bara eins og við!
  • 7. Snúast Páskarnir um Jesú? 31.03.2026 1h 26m
    Málshættir, trúarbrögð, pólitík, o.fl. Páskarnir eru tíminn þar sem maður borðar yfir sig af súkkulaði (Og rífst kannski smá við ættingja um stjórnmál og samfélagið). Halda samt allir eins upp á páskana? Og hvað þýða þessir djös...Ég meina, forvitnilegu málshættir eiginlega?
  • 6. Stórasti Hatari Íslands 26.03.2026 1h 37m
    Rant - þátturinn mikli! Vonandi er hjartað ykkar fullt af hatri þegar þið smellið á þennan þátt. Það eru samt nokkrir pabba-brandarar til þess að mýkja stemmarann í byrjun.
  • 5. Eru Þjóðsögur Ömurlega Leiðinlegar? 17.03.2026 1h 27m
    Þessi tók skarpa U-beygju. Það eru mörg umræðuefni sem áhugavaldarnir brenna fyrir. Eftirhermur, hot takes, samfélagsleg vandamál o.fl. Ari reynir líka að koma inn nokkrum "æsispennandi" þjóðsögum en Anna reynir sitt allra besta til að villa hann af leiðum...
  • 4.Er Ég Þöngulhausinn?.. M/ Egill Bro 10.03.2026 1h 29m
    Það eru nú allir mismikið gáfaðir... Í þessum bráðfyndna þætti með Áhugavöldunum, kíkir Egill í smá heimsókn. Anna færir okkur svo rjúkandi, sjóðheitar Reddit sögur á diskinn. En hver er aðal þöngulhausinn í þessum þætti?
  • 3. Svaðalega Áhugavalda Spurningakeppnin! 03.03.2026 1h 16m
    Í þessum þætti setur Anna á sig hugsunarhattinn. Ari gerir sitt besta til þess að henda Önnu úr öskunni í eldinn, með því að leggja fyrir ansi strembinn spurningaleik. Kannski fylgir smá rapp og beatbox líka...
  • 2. Furðulegar Samsæriskenningar 17.02.2026 1h 14m
    Settu á þig álhattinn og stilltu geiger-mælinn, því í dag tekur Anna fyrir furðulegar samsæriskenningar. Kannski ertu búin/n að heyra þennan þátt áður?..
  • 1. Sögulegar Reddit Sögur 09.02.2026 1h 29m
    Í þessum fyrsta þætti okkar áhugavalda fáið þið létta kynningu á okkur og nokkrar áhugaverðar staðreyndir - Ari tekur svo fyrir mjög áhugaverðar sögulegar Reddit sögur - og ein svakaleg æskuminning sem þú vilt ekki missa af því að heyra, úff.

Popular en

Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.