Hlaðvarp Heimildarinnar
Heimildin
0
Í hlaðvarpi Heimildarinnar má finna fjölbreytta þætti um allt frá pólitík til heiðarlegs skyndibita eða nýjustu græjunnar.
Episodios
-
Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum 21.06.2026 8mÞótt meirihluti Grænlendinga vilji ekkert með Bandaríkjamenn hafa gegnir öðru máli um íbúa Narsarsuaq. Þeir binda miklar vonir við að bandaríski herinn komi þar upp herstöð.
-
Eitt og annað: Glansinn hverfur af stígvélunum 07.06.2026 7mSvartar bjarnarskinnshúfur, rauðir jakkar, bláar buxur, byssustingur og gljáandi stígvél. Þetta er hátíðarbúningur lífvarða dönsku hirðarinnar. Samkvæmt reglum um aðbúnað á vinnustöðum verður nú slakað á kröfum um háglansandi skófatnað varðanna.
-
Eitt og annað: 50 gráðu frost, 12 menn og 100 hundar 22.02.2026 8mSirius deild danska hersins er ekki daglega í fréttum en gegnir mikilvægu hlutverki. Þessi fámenna deild á sér langa sögu en nafnið Sirius (Hundastjarnan) er ekki tilviljun. Sirius deildin hefur eftirlit með stærsta þjóðgarði heims.
-
Eitt og annað: Þýski bílabransinn í bobba 08.02.2026 8mFlestir stærstu bílaframleiðendur í Þýskalandi eiga í miklum erfiðleikum. Starfsfólki í þýskum bílaverksmiðjum fækkaði um 114 þúsund á síðasta ári og útlitið framundan er ekki bjart. Kínverjar hafa á örfáum árum „reykspólað“ inn á bílamarkaðinn.
-
Eitt og annað: Kuggurinn: Á meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku 11.01.2026 8mÞegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld. Flakið er talið meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku.
-
Þjóðhættir #73: Jólaskammturinn, laufabrauð og mandarínuát 23.12.2025 42mÞátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja Jónsdóttir og Áki Guðni Karlsson. Þau segja okkur frá sínum matarhefðum yfir hátíðarnar og hvort það er eitthvað sem alls ekki má vanta á matardiskinn. Þetta er síðasti þáttur Þjóðhátta á þessu ári og við segjum því að lokum: Gleðileg jól! Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Eitt og annað: Færa sig sífellt upp á skaftið 21.12.2025 7mÁ Eystrasalti og svæðinu þar umhverfis eru mestar líkur á að Rússar reyni að beita hervaldi gegn NATO-ríkjum. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Leyniþjónustu danska hersins. Rússar færa sig í auknum mæli upp á skaftið og sýna ógnandi framferði.
-
Þjóðhættir #72: Sjálfbærni og matarhættir 16.12.2025 43mHvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Eitt og annað: Hægfara aldursforseti 14.12.2025 6mKemst þótt hægt fari er málsháttur sem flestir kannast við. Hann á sannarlega við grænlandshákarlinn sem verður ekki kynþroska fyrr en við 156 ára aldur og getur orðið 400 ára, eldri en nokkurt annað hryggdýr. Hann setur þó engin hraðamet, nær mest 2,7 kílómetra hraða á klukkustund, syndir kafsund.
-
Þjóðhættir #71: Ljósmæður, meðganga og hjátrú 09.12.2025 22mAð þessu sinni verður umfjöllunarefni þáttarins spennandi nýsköpunarverkefni sem tveir nemendur í þjóðfræði, Birta Diljá Ögmundardóttir og Kári Thayer, unnu síðastliðið sumar í samstarfi við Þjóðháttadeild Þjóðminjasafn Íslands, Ljósmæðrafélag Íslands og Evu Þórdísi Ebenezerdóttur, doktorsnema í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Eitt og annað: Hafa sofið á verðinum 30.11.2025 7mEf netsambandið klikkar fer allt til fjandans, nema viðbúnaður sé til staðar, og það er hann ekki hér í Danmörku,“ sagði ráðherra almannavarna í dönsku ríkisstjórninni eftir að netið lá niðri klukkustundum saman í lok október, vegna bilunar. „Danir og margar aðrar þjóðir hafa sofið á verðinum,“ sagði ráðherrann.
-
Þjóðhættir #70: Á slóðum þjóðlagatónlistar, þjóðdansa og þjóðernis 18.11.2025 39mÞjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Eitt og annað: Eitt þekktasta skip í sögu Danmerkur 16.11.2025 12mMargir þekkja hið vinsæla lag Kim Larsen, Jutlandia, en það hefst á orðunum ,,Det var i 1949 eller cirka der omkring da der var krig I Korea“. Færri þekkja sögu þessa merka skips sem hófst árið 1934 og lauk fyrir 60 árum í Bilbao á Spáni.
-
Þjóðhættir #69: Reðursafnið, gestabækur og torfbæir 11.11.2025 48mÞjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Þjóðhættir #68: Fjárréttir á Íslandi fyrr og nú 04.11.2025 19mÞjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Eitt og annað: Stolið fyrir milljónir á hverjum degi 02.11.2025 5mÞjófnuðum úr dönskum matvöruverslunum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Í fyrra var daglega stolið vörum fyrir 5,5 milljónir danskra króna. Þar við bætast þjófnaðir úr annars konar verslunum. Kaupmenn vita vart sitt rjúkandi ráð í baráttunni við þjófana.
-
Þjóðhættir #67: Skynjun einstaklinga á návist framliðinna 28.10.2025 28mÞjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
-
Þjóðhættir #66: Alþýðutónlist og Vaka - þjóðlistahátið 21.10.2025 48mÞjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón að þessu sinni hafa Auður Viðarsdóttir doktorsnemi og Kristinn Schram dósent í þjóðfræði. Hljóðjöfnun: Egill Viðarsson.
-
Eitt og annað: Óvissan um flaggskipið 04.10.2025 10mPalads, eitt elsta kvikmyndahús Kaupmannahafnar, hefur lengi staðið í óvissu. Nú liggur fyrir ný tillaga að endurbótum frá Cobe arkitektum sem fær jákvæð viðbrögð og gæti tryggt verndun hússins.
-
Eitt og annað: Titringur í kálgörðunum 21.09.2025 9mÍ Danmörku eru tugir þúsunda smáhýsa, svonefnd kolonihavehus, sem mörg hver hafa verið byggð í leyfisleysi og í trássi við lög og reglur. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn vilja nú bregðast við og koma böndum á óreiðuna eins og það er orðað. Eigendur smáhýsanna eru uggandi.
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.