Lestin

Lestin

RÚV
País Islandia
Idioma IS
Episodios 448
Último 15.10.2026

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Episodios

  • Beðið eftir Grand Theft Auto VI 15.10.2026 51m
    Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin því gríðarleg. Sögusvið leiksins er sólríka syndabælið Vice City og verður borgin sem er fyrirmyndin - Miami í Florida - undirlögð auglýsingum og kynningargjörningum næstu vikur. Stikla fyrir leikinn kom út fyrr í dag og hafa milljónir skoðað hann nú þegar. Það eru rétt tæplega 30 ár frá því að fyrsti leikurinn í seríunni kom út á vegum lítils leikjaframleiðanda í Dundee í Skotlandi. Eins og nafn leiksins gefur til kynna, “stórfelldur bílaþjófnaður” fengu spilarar færi á að leika smákrimma og framkvæma hin ýmsu glæpaverkefni, en einnig flakka frjálsir umi í umfangsmiklum og opnum leikjaheimi. Við ræðum við tölvuleikjafræðing um seríuna og spennuna eftir GTA6, einn af höfundum fyrsta GTA leiksins, og fáum sögur og minningar frá fjölbreyttum hópi fólks.
  • Digger og einkarými farsímans 14.10.2026 55m
    Í Lestinni í dag fjöllum við um nýja kvikmynd sem gagnrýnendur geta ekki verið sammála um. Digger, í leikstjórn Alejandros Inárritu, fjallar um olíujöfurinn Digger Rockwell, sem leikinn er af Tom Cruise. Þrátt fyrir stórleikara og gríðarlegt fjármagn gekk opnunarhelgin vægast sagt illa en Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands er ekki sama sinnis. Myndin er þess eðlis að erfitt er að ræða hana án þess að spilla söguþræðinum og því setjum við viðvörun á umfjöllun okkar í dag, vilji hlustendur láta koma sér á óvart í bíó. Rithöfundurinn og skáldið Birgitta Björg Guðmarsdóttir flytur nýjan pistil í pistlaröð sinni um einkarýmið. Að þessu sinni er það farsíminn sem er henni hugleikinn.
  • Bottarnir sprengdir, Widows bay, Gervigreind til góðs 13.10.2026 55m
    Sjónvarpsþættirnir Widows Bay fjalla um illa vætti sem ásækja heimamenn og túrista í samnefndum smábæ. Þetta er grín-hryllingur sem hefur sankað að sér verðlaunum að undanförnu. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi rýnir í þættina. Við fáum svo pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi. Að þessu sinni gluggar hann í nýrri skýrslu sem nefnist hinu upplífgandi titli: “Gervigreind til góðs” en hana skrifaði starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Norsk bókhilla, Project panama og frelsisbarátta málma koma meðal annars við sögu í pistli Hauks Más. En við ætlum hins vegar að byrja á fréttum dagsins. Í gær bárust fregnir af því að enn eitt rússneskt gagnaver hefði verið sprengt í loft upp af Úkraínumönnum - það þriðja á einni viku. Gagnaverið var í eigu Yandex sem er eitt stærsta rússenska tæknifyrirtækið, og heldur meðal annars út vinsælli leitarvél og ýmiskonar þjónustu sem lá niðri í kjölfarið. En það sem hefur vakið meira athygli er sú staðhæfing Zelensky Úkraínuforseta að vegna árásarinnar hafi virkni rússneskra vef-botta sem dreifa áróðri og misvísandi upplýsingum á samfélgsmiðlum minnkað til muna. En hvað er hæft í því?
  • Költmyndin Hlemmur og verðlaunasaga eftir gervigreind 12.10.2026 55m
    Grunur leikur á því að verðlaunasaga hinna afrísku smásagnasamkeppni Caine hafi verið unnin af gervigreind. Lestin kannaði málið og leitaði upplýsinga hjá Forlaginu um það hvernig þau leggja mat á sögur, myndefni og ljóð sem þeim berast í samkeppnum. Þá kemur gömul smásaga eftir Roald Dahl við sögu auk þess sem við ræðum önnur vandræðaleg mál í tengslum við höfunda sem villa á sér heimildir, bæði hér heima og utanlands. Við hringjum svo til Berlínar og ræðum við Ólaf Sveinsson um íslensku költ heimildarmyndina Hlemmur sem kom út árið 2002. Aðalpersónurnar eru strætóbílstjóri sem er að byggja sig upp eftir áratugalanga neyslu, menn sem glíma við andleg veikind, trúlofað par með þroskahömlun, og tveir drykkjumenn sem ýmist gista fangageymslur eða sofa á götunni. Allt er þetta fólk sem venur komur sínar á Hlemm og dvelur þar langdvölum af ýmsum ástæðum. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís síðar í mánuðinum.
  • Heimskautaleiðangur listakvenna, vinnustofa Tómasar Jóns, Komum út í mínús 08.10.2026 55m
    Í nóvember í fyrra fóru tvær íslenskar listakonur með heimskautarannsóknarskipinu Kronprins Haakon í leiðangur á norðurheimskautið að rannsaka hafsbotninn. Þær fylgdust með skipinu brjótast í gegnum heimskautaísinn, vélmennið Ægi 6000 kafa niður á 4 kílómetra dýpi, og áþreifanlegri spennu hagsmuna vísindamanna og olíuleitarmanna. Leiðangurinn var hluti af Extremes verkefninu sem verður kynnt frekar í Norræna húsinu um helgina. Þorgerður Ólafsdóttir og Hekla Dögg Jónsdóttir segja frá í Lestinni í dag. Sviðslistahátíðin Komum út í mínus fer fram í annað sinn á laugardaginn. Hátíðin mun standa yfir í 12 klukkustundir þar sem gestum verður boðið upp á ýmis konar sviðslistir, dansnámskeið, uppistand og gufubað svo eitthvað sé nefnt. Við forvitnumst um hátíðina. Katrín Helga Ólafsdóttir kíkir svo á vinnustofu hjá tónlistarmanninum Tómasi Jónssyni, en hann á gríðarstórt hljómborðasafn. Þetta er önnur vinnustofuheimsókn Katrínar í vetur.
  • AI barnabækur, Sundruð tilvera innflytjanda, bílar sem einkarými 07.10.2026 56m
    Teiknimyndin Sundruð eða Hold it together hlaut nú helgina verðlaun sem besta íslenska stuttmyndin á RIFF. Myndin fjallar um sundferðir ungs innflytjanda á Íslandi og þörfina fyrir félagsleg tengsl. Við ræðum við höfund myndarinnar, hina fransk-malísku Fanny Sissoko, sem gæti ekki búið hér klakanum ef ekki væri fyrir sundlaugarnar. Undanfarnar vikur hafa einkarými verið Birgittu Björg Guðmarsdóttur verið hugleikin í pistlum sínum. Að þessu sinni eru það einka- og sameiginleg rými í umferðinni: bílar, strætó og reiðhjól. Gervigreind er farin að verða meira áberandi í barnaefni. Lestin kíkti í bókabúð ásamt myndhöfundi þar sem við skoðuðum barnabækur með þetta í huga. Þar vöknuðu ýmsar spurningar, meðal annars um höfundarétt, þroska barna og stétt myndhöfunda. Þá spjölluðum við við bóksala sem íhugar að krefja útgefendur um að staðfesta skriflega að gervigreind hafi ekki verið notuð í þeim verkum sem hann hyggst selja. Þá skoðum við nýja bók Skoppu og Skrítlu þar sem meintur myndhöfundur reyndist ekki vera raunveruleg manneskja. Útgefendur sem ráða erlenda aðila af netinu til að gera myndefni fyrir sig þurfa greinilega að hafa varann á.
  • Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík 06.10.2026 54m
    “Ef við útvistum viti okkar til véla og sannfærum þær um að útrýma þær þó ekki, þá mun okkur ekkert skorta.” Mögulega erum við á leið inn í heim án skorts. En hvað þýðir það fyrir mannlega tilveru og samfélagið? Haukur Már Helgason rithöfundur flytur okkur sinn fyrsta pistl í Lestinni þetta haustið, hann ætlar að hugsa upphátt um tækniþróunina sem stendur nú yfir, og í dag er það skorturinn sem er viðfangsefnið - eða öllu heldur skortur á skorti. Við förum líka í heimsókn í Marshallhúsið, nánar tiltekið í Þulu Gallerí, sem er þar til húsa. Weaving Cosmologies – dreymendur og draumgjafar er heiti samsýningar 5 listamanna þar sem þeir velta fyrir sér trúarlegum heimsmyndunarkenningum, líkömnuðum nálgunum, skáldskap og sögulegum rannsóknum í verkum sínum, líkt og segir í sýningartexta. Ásdís Þula, eigandi gallerísins fór með okkur um sýninguna. Og svo fáum við okkar þá Rafael og Carlos, sem eru báðir frá Mexíkó. Á dagvinnutíma starfa þeir sem arkitekt og kokkur en á kvöldin spila þeir í reykvísku cumbia-hljómsveitinni La Dimenson og haldi úti suðuramerískum tónlistarkvöldum í borginni undir merkjum Kumbíavíkur. Nú um helgina halda þeir í annað skipti árlega tónlistarhátíð, með heimildamyndum, ljósmyndasýningu, skífuþeytingum og auðvitað lifandi tónlist.
  • Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF 05.10.2026 55m
    1867 nefnist ný breiðskífa með tónlistarkonunni Alaska 1867 sem kom út á dögunum. Alaska, eða Kolfreyja Sól eins og hún heitir réttu nafni, hefur vakið athygli undanfarið ár fyrir bersögla rapptexta og töffaraskap, en á nýju plötunni sækir hún í fjölbreyttari áttir en áður. Þetta er poppplata sem sækir í ýmiskonar raf- og danstónlist. Kolfreyja kemur í Lestina og ræðir hvernig málmur og vatn mótaði hljóðheim plötunnar, andspyrnuna gegn gervigreindarslori og sagnamennsku í dægurtónlist. Við ræðum svo nokkrar verðlaunamyndir af RIFF sem lauk um helgina. Gunnar Theodór og Sigga Regína ræða La Gradiva, If Luck Will Come, Do You Love Me og fleiri.
  • Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF 01.10.2026 54m
    Um eitt þúsund Íslendingar mættur í stóra sal Háskólabíós í vikunni til að berja hjartaknúsarann og kúltúrbarnið Alexander Skarsgaard augum, en hann er heiðursgestur á RIFF. Þrátt fyrir tæknilega örðugleika við sýningu myndar hans The Wicker var stemningin eldheit. Gagnrýnendur Lestarinnar rýna í myndina, auk þess sem Lucy Lost, Teenage Sex and Death at Camp Miasma og The Loneliest Man in Town verða teknar fyrir. Um svipað leyti og samfélagsmiðillinn TikTok var að nema land á vesturlöndum, þá var að verða til í heimalandi miðilsins nýtt form kvikmyndagerðar, sérstaklega þróað til að fanga athygli fólks á snjallsímaskjánum. Þetta var árið 2018 og Duanju nefndist þetta nýja form, leiknar seríur með örstuttum þáttum, yfireitt í kringum tvær mínútur. Nú er fyrsta íslenska örþáttaröðin fyrir síma komin til sögunnar. Við ræðum við Unnar Stein Sigurðsson um þættina sem nefnast Skólinn.
  • Hexekver, heyrnartól sem einkarými, hundaganga með Ófeigi 30.09.2026 55m
    Hexekver er heiti lítt þekktrar galdrabókar frá 1859. Hinn fjölkunnugi bóndi Þorsteinn Guðmundsson skrifaði bókina á sínum tíma en nú er hún fáanleg á ensku í öllum helstu bókabúðum. Við ræðum við þýðendurna Kára Pálsson og Giorgiu Sottotetti um rúnir og galdra. Svo fáum við glænýjan pistil um einkarýmið eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, en að þessu sinni beinir hún sjónum sínum að byltingarkenndri uppfinningu, heyrnartólunum. Og fyrir þá hlustendur sem hafa saknað Lóu Bjarkar sem hefur verið fjarri góðu gamni undanfarið ætlum við að spila innslag úr Tengivagninum frá því í sumar þar sem hún kíkti í hundagöngutúr á Hólmsheiði með rithöfundinum Ófeigi Sigurðssyni.
  • Boltamömmur, bútasaumsljóð og þorrablót 29.09.2026 57m
    Brjálaðar boltamömmur á hliðarlínunni á leik í fimmta flokki kvenna rífast í dómaranum og lenda í átökum sín á milli. Þessa mynd kannast flestir við sem tengjast fótboltahreyfingunni á einhvern hátt. Og þetta er einn þráðurinn í nýjum íslenskum gamanþáttum Boltamömmur sem eru sýndir á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, og segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Við skoðum líka niðurstöður nýrrar rannsóknar sem fjallar um endalok kvikmynda. Er öld hinna gleðilegu Hollywood-endalokanna liðin? Samljóða er ritvinnslusmiðja sem fer fram á hverjum miðvikudegi á Borgarbókasafninu í Grófinni. Karólína Rós Ólafsdóttir, skáld, stýrir þar vinnustofum sem hún kallar Bútasaumsljóð. Þar skrifa þátttakendur texta út frá orðum sem þeir elska, orðum sem þeir þola ekki eða orðum sem vekja áhuga þeirra á einhvern annan hátt. Þátttakendur með íslensku sem annað mál eru hvattir til að taka þátt, enda kemur ýmislegt í ljós þegar gests augu líta á tungumálið okkar. Á föstudaginn sendir Karólína líka frá sér ljóðabókina Lífskán, ljóðsögu um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Karólína hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að bókinni og nú kemur það út hjá Benedikt. Við heyrum svo um viðskiptamanninn sem átti þá frábæru hugmynd að fá Íslendinga til að skemmta sér í janúarmánuði með því að borða skemmdan mat, og bjó þar með til hefð sem þúsundir Íslendinga elska að sameinast um enn þann dag í dag. Björn Teitsson fjallar um menningararf og mat í fjórða og síðasta pistli sínum í lestinni þetta haustið: Þorramatur, Kentucky Fried, Pad Thai, og Kebabpizza koma meðal annars við sögu.
  • Meme í popplögum, fjallaspenna á RIFF, aðgengileiki á internetinu, 28.09.2026 55m
    Væntanlegt dómsmál vekur upp spurningar um höfundarétt og persónuvernd. Söngvaranum Elvari hefur verið stefnt fyrir að nota hljóð úr vinsælu myndbandi þar sem tvær stelpur rífast harkalega um mann sem heitir Elvar. Önnur þeirra leitar nú réttar síns, en hún er ekki sátt við að rödd sín hljómi í laginu. Við skoðum fleiri svipuð dæmi, bæði úr íslenskri og erlendri tónlist. Afdrifarík ferð John Snorra Sigurjónssonar og fleiri fjallagarpa á tind K2 veturinn 2021 er til umfjöllunar í opnunarmynd RIFF í ár. Við rýnum í heimildarmyndina The Last First: Winter K2. Við rýnum einnig í La Pieta, Yön lapsi (eða Barn Næturinnar) og Dissociated Me. Við lifum stóran hluta tilveru okkar í tækjum og stafrænum rýmum, en mörg þeirra er ekki sérstaklega aðgengileg fólki með fatlanir. Aðgengileiki í hönnun hins stafræna heims skiptir æ meira máli. Við ræðum þetta og fleira við Irene Pereyra, einn stofnenda hönnunarstofunnar Anton & Irene, sem er hér á landi vegna alþjóðlegu hönnunarráðstefnunnar AGI Open sem fram fer í lok vikunnar. Spunagreindarpizzu-app og mikilvægi kjarnorku koma einnig við sögu.
  • Gráðugir algóritmar, vinnustofuheimsókn og einkarými 24.09.2026 54m
    Í New York hefur sendlafyrirtækið DoorDash gert sátt við borgaryfirvöld eftir að upp komst að sendlar á þeirra vegum hafi ekki fengið greitt sem skyldi vegna algrímis sem sumir segja gallað en aðrir óheiðarlegt. Við ræðum við Sigmund Halldórsson, sérfræðing hjá VR, um algrími á íslenskum vinnumarkaði. Katrín Helga Ólafsdóttir kíkti í heimsókn á vinnustofu tónlistarkonunnar Sóleyjar Stefánsdóttur í Hafnarhúsinu. Nýr pistlahöfundur, rithöfundurinn Birgitta Björg Guðmarsdóttir, fjallar um einkarými í lok þáttar.
  • Njálsbrenna í myndasögu, veitingastaðir á brauðfótum, RIFF 23.09.2026 55m
    Nú á dögunum kom út á bók fyrsta íslenska myndasagnaserían. En það var myndasaga byggð á Njálssögu - fjallaði um njálsbrennu og hefnd Kára. Myndirnar gerði teiknarinn Halldór Pétursson og birtust þær vikulega í Lesbók Barnanna, fylgiriti morgunblaðsins árin 1959 og 60. En nú loksins er hefur þetta brautryðjendaverk verið tekið saman og gefið út á bók. Við ræðum við ritstjórana Jón Karl Helgason og Bjarni Hinriksson. Saga veitingarekstrar á Íslandi er fremur stutt og kannski umfram allt saga af fallvaltleika og ótryggu rekstrarumhverfi. Björn Teitsson heldur áfram að flytja okkur pistla um matarmenningu. Og að þessu sinni fjallar hann um veitingahúsið - athyglisverðar orðsifjar, Meg Ryan og kjúlingur í körfu koma meðal annars við sögu í pistlinum. Við byrjum á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst á morgun. Við flettum í bæklingnum og ræðum meðal annars Club Kid, Amicar, The Siege of Paradise svo einhverjar myndir séu nefndar.
  • Grasrótin í húsnæðiskrísu 22.09.2026 51m
    Á undanförnum vikum höfum við frétt af stöðugt fleiri samfélagsverkefnum og skapandi rýmum í Reykajvíkurborg sem er verið að loka. Víðsvegar um borgina hefur iðnaðarhúsnæði sem er í einhverskonar biðstöðu, byggingar sem er óljóst hvernig á að nýta í framtíðinni, verið leigt út undanfarin ár til listamanna og ýmiskonar samfélagsverkefna. Í Gufunesi, í Skerjafirði, á Sævarhöfða og á Bergþórugötu. En nú hefur fjölmörgum slíkum samningum verið sagt upp og hin ýmsu grasrótarverkefni þurfa að finna sér nýtt húsnæði ef þau eiga að tryggja sér framhaldslíf. Í þætti dagsins ætlum við að flakka um grasrótina í Reykjavík, flökkum milli listarýma og samfélagsverkefna sem horfa nú fram á óvissa framtíð.
  • Mónókúltúr og Svanasöngur Selinu 21.09.2026 56m
    Á undanförnum árum höfum við tekið eftir því að skortur er á menningarefni sem öll þjóðin sameinast um. Maður mætir ekki á kaffistofuna á þriðjudögum til að ræða nýjasta þáttinn af Lost, fjölskyldan safnast ekki saman á föstudögum til að horfa á Idol stjörnuleit eða Á tali með Hemma Gunn. Er menningin að glata möguleikanum á að sameina heiminn, sameina Íslendinga, sameina stóra hópa ólíks fólks? Er mónókúltúrinn dauður? Til þess að ræða þetta höfum við fengið til okkar þau Nínu Hjálmarsdóttur, lektor við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Ísabellu Lenu Borgarsdóttur (bellamix69), plötusnúð, og Gísla Martein Baldursson, umsjónarmann Vikunnar. Í spilara RÚV er nú að finna skandinavíska þáttaröð sem slegið hefur í gegn í Skandinavíu. Upp úr aldamótum hóf utangarðs-unglingur Í Norður-Noregi, Selina, að blogga. Áður en hún vissi af hafði hún öðlast landsfrægð og var orðin að umdeildum áhrifavaldi. Fylgst er með Selinu Rekviem for Selina, eða Svanasöngur Selinu er umfjöllunarefni Brynju Hjálmsdóttu, sjónvarpsgagnrýnanda að þessu sinni.
  • Sheeran í klípu, heimsendi frestað, Fuglar (og menn), No Rest for the Wicked 17.09.2026 54m
    Stormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn. Rómantíski hryllingurinn No Rest for the Wicked gerist í færeyjum 1862 og fjallar um ástir sjómanns frá eyjunum og Dana. Þetta er ein stærsta og metnaðarfyllsta færeyska kvikmyndaframleiðslan til þessa, unnin í samstarfi Færeyinga, Dana og Íslendinga. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina og einnig heimildarmyndina Fuglar og menn en myndin er tekin upp í loðmundarfirði, en á hverju ári í þrjá mánuði safnast í þeim afskekkta firði tólf þúsund fuglar og fimm manneskjur. Forstjórar nokkurra helstu gervigreindarfyrirtækja heims hafa kallað eftir sameinuðu átaki í að hægja á þróun gervigreindar til að tryggja öryggi mannkyns. Fréttir af gervigreindarmódelum sem láta ekki af stjórn hafa vakið athygli, og innanbúðarmenn sem hafa spáð því að 10% líkur séu á að gervigreind muni ganga að mannkyninu dauðu innan áratugar. Við berum þessa spádóma undir Kristinn R. Þórisson prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnanda Vitvélastofnunar íslands.
  • Draumaríngl og kuðungar 16.09.2026 55m
    Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu. Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn. Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist. Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV.
  • NAZA, töframáttur matarins, verslunin 114, Rómönsk-amerísk kvikmyndahátíð 15.09.2026 56m
    Menning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Taniu Zarak. Í gamla húsi Tryggingarmiðstöðvarinnar á Laugavegi 114 hefur verið opnuð ný listamannarekin verslun sem heitir 114, eftir húsnúmerinu. Það sem gerir búðina sérstaka er að vörurnar sem þar eru til sölu eru mestmegnis framleiddar á staðnum og gestir geta jafnvel fylgst með handverksfólki skapa þær í rýminu, allt frá fatnaði og fylgihlutum til ilmvatna. Húsið er núna, eins og margir þekkja, kallað Hlemmur Haus og er undirlagt af alls kyns skapandi einstaklingum. Bræðurnir Rik og Ross McNair stofnuðu verslunina en þeir vinna einnig í húsinu undir nafninu Endurtakk. Verslunin þjónar þeim tilgangi að vera sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna og býður fólki inn. Við spjöllum við Maddý Hauth, framkvæmdastýru Hlemms Haus um búðina. Svo er það matur. Í síðustu viku fjallaði Björn Teitsson um sjónvarpsmanninn og rokkstjörnukokkinn Anthony Bourdain. Og hann ætlar að halda áfram að pæla í matarmenningunni út frá hugðarefnum Bourdain - það hvernig matur tengir fólk, En nú veltir hann því fyrir sér hvar og hvernig við verslum í matinn í samtímanum. Kaupmaðurinn á horninu og heimsending, kemur við sögu. Og svo heyrum við um Ísraelsku heimildarmyndina NAZA sem hefur vakið hörð viðbrögð í heimalandinu.
  • Hið slor-móderníska ástand og menningarhátíðin Ulga/Fró 14.09.2026 55m
    Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til að forvitnast um málið. Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er að ná nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins. Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er að verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB?

Popular en

Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.