Frjálsar hendur
RÚV
0
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Episodios
-
Jón Steingrímsson og kolakláfar 1 11.10.2026 49mJón Steingrímsson var sonur Steingríms Matthíassonar sem margoft hefur komið við sögu í Frjálsum höndum. Hann reyndist ekki vera síður skemmtilegur minningahöfundur en faðir hans þegar hann gaf út bókin Kolakláfar og kafbátar þar sem hann segir frá sjómennskuferli sínum. Í þessum þætti er lesið úr bók hans. -
Reykjavík og nágrenni um 1800 04.10.2026 50mVið lok 18. aldar var ástand lands og þjóðar með versta móti en jafnframt var að hefjast margvíslegt umbótastarf. Embættismenn ræddu landsins gagn og nauðsynjar, skáldin kváðu kvæði og athyglin beindist ekki síst að Reykjavík. Var hinn nýi höfuðstaður framtíðin eða einskær "saurvilpa". Lesið er úr bók Þóris Óskarssonar, Svipum brotanna, ævisögu Bjarna Thorarensen. -
Sögur Chekhovs 3: Lyfsalafrúin, Það var þá hún, Rökkur, Loforð og efnir 27.09.2026 50mÞriðji þátturinn þar sem lesnar eru nokkrar af þeim fyrstu smásögum eftir Anton Chekhov sem birtust í íslenskum fjölmiðlum og smásagnasöfnum. Þessar fjórar sögur þýddi Brynjólfur Sveinsson. -
Sjókonan Þorbjörg Kolka 20.09.2026 50mHjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi á 12. öld, var alin upp hjá huldukonu á Hornströndum en fluttist síðan á Skaga þar sem hún gerðist rómuð sjókona og reri ein á tíæringi. -
Ódysseifskviða 13 - Sírenurnar, Skylla og Kabarydís, 13.09.2026 49mHér segir af því Ódysseifur og félagar hans sigla heimleiðis frá eyju Kirku eftir að hafa heimsótt land hinna dauðu og fyrst liggur leið þeirra framhjá sírenunum, dísum sem seyða til sín sæfarendur með fögrum söng, en síðan er siglt um klettasund milli ófreskjanna Skyllu og Charybdisa, og loks komið að landi á eyju þar sem sólarguði Helíos geymir nautgripi sína og sauðfé. Aldrei hafa félagarnir komist í aðrar eins raunir! Þetta er 12. kafli kviðunnar. -
Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar 06.09.2026 1h7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson. Umsjónarmaður fjallar stuttlega um aðdraganda aftökunnar og les síðan kaflana þrjá. -
Ódysseifskviða 12 - Í landi dauðans 30.08.2026 50mHér er lýst för Ódysseifs og félaga til heljar. Hinir daufu draugar í dauðramannalandinu ganga hver af öðrum fyrir Ódysseif og hann spyr spámanninn Tíresías um hvernig framhaldið á heimferð hans til Íþöku muni ganga. Við sögu koma meðal annars Akkiles, Agamamnon og Sísýfos. -
Norman Lewis 6 - Sovéskir stríðsfangar afhentir Stalín 23.08.2026 50mBreski dátinn Norman Lewis var í setuliði Breta í Napólí 1943-1944. Áður hefur verið lesið úr stórmerkilegum og skemmtilegum endurminningum hans í Frjálsum höndum. Nú segir hann frá því þegar honum var falið að fylgja hópi sovéskra stríðsfanga frá Ítalíu áleiðis heim til Sovétríkjanna en þeir höfðu mátt þola hræðilega vist í þýskum fangabúðum, og er því lýst á mjög hispurslausan hátt. En ekki var víst að betra tæki við þegar til Sovétríkjanna kæmi. -
Árni Thorsteinsson 16.08.2026 50mÁrni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu. -
Trippa-Sigga 3: Hestakona verður til 09.08.2026 50mÞriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína. -
Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 2 02.08.2026 50mFramhald af síðasta þætti. Hér er áfram lesið úr viðtali Vilhjálms S. Vilhjálmssonar við Bjarna Brandsson sjómann sem nú segir m.a. frá því er hann kom úr siglingu haustið 1918 þegar spænska geisaði sem harðast í Reykjavík og síðan frá hörmulegu strandi togarans Jóns forseta við Stafnes 1928. -
Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 1 26.07.2026 50m.Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður á Alþýðublaðinu var kunnur fyrir fjölda merkilegra viðtala við alþýðufólk. Hér er gluggað í magnað samtal hans við Bjarna Brandsson sjómann sem segir m.a. frá því þegar hann var talinn látinn eftir að togarinn Skúli fógeti sigli á tundurdufl árið 1914 -
Jósef á Svarfhóli 2 19.07.2026 50mAnnar þáttur þar sem lesið er úr minningum Jósefs Björnssonar (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Leitað er fanga í bókinni Æskustöðvar þar sem hann segir áfram af ættmennum sínum og eigin æskuárum. -
Ódysseifskviða 11 - Í höll hinnar göldróttu Kirku 12.07.2026 50mHér segir áfram frá tilraunum Ódysseifs og manna hans til þess að komast heimleiðis. Nú liggur leiðin meðal annars til eyjar þar sem hin mjög svo viðsjála Kirka býr og reynist félögum Ódysseifs mjög þung í skauti en hann reynir að snúa vörn í sókn með hjálp sendiguðsins Hermesar. -
Jósef á Svarfhóli 1 05.07.2026 50mJósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum þætti lýsir hann foreldrum sínum bæði fallega og hispurslaust. -
Skjaldbökur, sporðdrekar og furðulegt fólk 28.06.2026 50mEnski náttúrufræðingurinn og rithöfundurinn Gerald Durrell (1925-1995) skrifaði æskuminningar um undir nafninu Fjölskylda mín og fleiri dýr. Þar lýsir hann á bráðskemmtilegan hátt lífi fjölskyldu sinnar á grísku eyjunni Korfu er hann var 10 ára. Þar koma dýr mjög við sögu en einnig litríkt mannlíf, því mjög gestkvæmt var hjá fjölskyldunni. -
40 ára afmælisþáttur: Hvað ef ...? 21.06.2026 50mÞessi þáttur er fluttur um það bil sem 40 ár eru frá því fyrsti þáttur Frjálsra handa var sendur út. Sá þáttur fjallaði um "hið sögulega ef" - það er að segja hvað hefði breyst ef einhver tiltekin smáatriði í sögunni hefðu farið öðruvísi en þau fóru. Í tilefni dagsins verður fjallað um sama efnið í þessum þætti og sér í lag hvað hefði breyst ef valdarán kommúnista í Rússlandi 1917 hefði misheppnast. -
Stefan Zweig og Veröld sem var 6 - Kynlíf í Vínarborg 14.06.2026 50mUmsjónarmaður las á síðasta ári margvíslegt efni úr Veröld sem var, æviminningabók Stefans Zweigs sem jafnframt er mögnuð samtímalýsing á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld í Vínarborg og síðan eftirstríðsáranna. -
Þýskur kafbátur birtist á ytri höfninni 07.06.2026 49m19. september 1939 birtist þýskur kafbátur óforvarandis á ytri höfninni í Reykjavík. Síðari heimsstyrjöldin var þá nýhafin og þýskir kafbátar farnir að láta að sér kveða á hafinu. Það sem Íslendingar vissu ekki þá var að skipverjar einmitt þessa báts höfðu nýlega framið einn fyrsta stríðsglæp stríðs, og kafbátaforinginn átti síðan eftir verða örlagavaldur í stríðinu. -
Ódysseifskviða 10 - Viðureign við Kýklópa 31.05.2026 50mNú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.