Þjóðmál
Þjóðmál
0
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Episodios
-
#467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun 16.10.2026 1h 47mJens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalista ríkisstjórnarinnar, viðvaranir forystumanna í ferðaþjónustu vegna skattahækkana, horfur á lækkun vaxta, komandi loðnuvertíð og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira. -
#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma 13.10.2026 1h 5mIngvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira. -
#465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður 09.10.2026 2h 3mStefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við Fjölmiðlanefnd og margt annað. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, viðmælendur stíga á svið, hraðaspurningar og bókameðmæli. -
#464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar 06.10.2026 1h 9mBjörn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ESB-umræðuna í heild sinni og áhrif hennar á íslensk stjórnmál. Sjónum er einnig beint að brothættri stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar. Björn rifjar upp fyrri ummæli sín um að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði sem alvöru stjórnmálaflokkur og metur þá þróun sem orðið hefur. Að lokum er slegið á sögulega strengi þegar farið er yfir leiðtogafund Reagans og Gorbatsjevs í Höfða, en í vikunni eru liðin 40 ár frá þeim sögulega viðburði sem Björn fylgdist náið með sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. -
#463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af 02.10.2026 1h 39mAndrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með vinningskeflið í stjórnmálum þessa dagana, komandi vetur sem kann að verða þungur í efnahagslegu tilliti, ræðu utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ, kosningastjóra á launum hjá utanríkisráðuneytinu og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar og hraðaspurningar, auk þess sem viðmælendur stíga á svið með eigin málefni. -
#462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt 29.09.2026 1h 3mJóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um tæknihliðina á starfsemi Wolt, hvað skýrir vinsældir þeirra þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, áhrif á veitingastaði, hvernig heimsendingum kann að verða háttað í framtíðinni og margt annað. -
#461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja 25.09.2026 1h 58mHildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt er upp þeirri kenningu hvort breytingar séu í vændum á ríkisstjórnarsamstarfinu, farið er yfir verkföll hálaunastétta, vaxandi atvinnuleysi og svartsýni í íslensku atvinnulífi. Einnig er rætt um tilefni og tilgang funda sem utanríkis- og forsætisráðherrar sækja nú erlendis, úrillan fjármálaráðherra, stöðu fjölmiðla og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, viðmælendur reima á sig skó og stíga á svið, skoða mögulega ferðafélaga, mæla með bókum og svara hraðaspurningum. -
#460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði 22.09.2026 43mGunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól fyrir daglega fjármálastjórn og stærri ákvarðanir á lífsleiðinni. Rætt er um kosti og galla verðtryggðra og óverðtryggðra lána við mismunandi vaxtastig, um sparnað og fjárfestingar, raunhæf dæmi um fasteignakaup ungs fólks og margt fleira. -
#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni 18.09.2026 1h 51mÁrni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bílaleigur sem eru að fá Skattinn í bakið eftir að hafa farið að ráðum Skattsins, áhrif gervigreindar á hagkerfið og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar. -
#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna 15.09.2026 1h 26mÓli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á hegðun fólks, um afskipti hins opinbera af fjölmiðlum og margt fleira. Hér er um að ræða aðgengilegt samtal fyrir alla sem vilja dýpri skilning á samfélagsmálum, efnahagslífinu og frelsisbaráttunni á Íslandi í dag. -
#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað 11.09.2026 1h 32mÁsdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfamarkaðinn og skort á einkafjárfestum, stórfjárfestingar í tækni og gervigreind erlendis og efnahagsáhyggjur í borgarpólitíkinni. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hraðaspurningar, hrós vikunnar auk þess sem viðmælendur reima á sig skóna og stíga á svið. -
#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum 08.09.2026 1h 13mSigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landamæravörslu og menningarmálum, breyttan pólitískan veruleika, andstöðu við frekari miðstýringu og minnkandi samkeppnishæfni og aðra þætti sem reyna sífellt meira á þolrif álfunnar. -
#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar 04.09.2026 1h 36mHeiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa vexti og kjarasamninga sem kunna að vera í uppnámi, háa bankaskatta og áhrif þeirra, breytingar á fjölmiðlamarkaði og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, bókarýni, hrós vikunnar og hraðaspurningar. -
#454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál 31.08.2026 2h 2mAndrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettvangi stjórnmála og í hagkerfinu og margt fleira. -
#453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið 28.08.2026 1h 46mÞórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvöru viðtölum, hreyfingar í veðbönkum, skattalækkanir hægri manna í sveitastjórnum og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira. -
#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun 25.08.2026 1hStefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku. -
#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa 21.08.2026 4h 36mFjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina. -
#450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni 19.08.2026 1h 8mAlbert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands. -
#449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann 18.08.2026 57mTrausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira. -
#448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar 14.08.2026 2h 20mSnorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að veruleika fyrr en árið 2031 — sem stangast á við bjartsýni forsætisráðherra um að hlutirnir stefni í rétta átt. Þá er rætt um ESB-atkvæðagreiðsluna, viðhorf ungs fólks til ESB, örvæntingu þeirra sem vilja ganga í ESB og fleira í þeim dúr. Loks eru fastir liðir á sínum stað; Hrós vikunnar, hraðaspurningar, bókameðmæli og nýr liður þar sem viðmælendur velja sér þjóðarleiðtoga til að taka með í frí. Við minnum síðan á miðasöluna á Þjóðfund Þjóðmála inn á Tix.
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.