Golf með Bödda Bergs
Böðvar Bergsson
0
Þátturinn fjallar allt um golf og fólk. Böðvar Bergsson ræðir við gesti og fer yfir málefni tengd golfi, keppnum og þeim sem stunda íþróttina. Hann veitir innsýn í golfheiminn, bæði á Íslandi og erlendis.
Episodios
-
Þáttur 4 - Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn. 02.10.2026 1h 9mÓlafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn. Óli golf eins og hann var kallaður sem ungur drengur talar um gamla tíma og nýja. Hvernig Hraunið eða fyrri níu varð að veruleika og pælinguna bakvið breytingarnar á Hvaleyrinni. Ný verkefni og margt fleira. Ólafur er maður í fremstu víglínu í íslensku golfi og ástríðan leynir sér ekki. -
Þáttur 3 - Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim 23.09.2026 1h 10mHólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim. Hólmar segir frá uppvaxtarárum, náminu, starfinu og svarar spurningum frá kylfingum varðandi ástand vallar. Hin hliðin á peningnum er alltaf áhugaverð. Hérna komumst við að rót vandans í orðsins fyllstu. -
Þáttur 2 - Ragnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981 fer yfir ferilinn. 08.09.2026 1h 10mRagnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981. Lifandi goðsögn í íslensku golfi. Sögur sagðar og ráð gefin. Viðtal sem allir kylfingar hafa vonandi gott og gaman af - ungir sem aldnir. Raggi var sjötugur 1. september því tilvalið að renna yfir ferilinn. -
Þáttur 1 - Jón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði 26.08.2026 59mJón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði. Hýreygur en með vott af eftirsjá, reglubundinn í andlitsfalli, krumlur sterkar og faðmur stór. Brúnt andlitið segir þér að þessi maður hefur séð hafið og horft í sól. Jón segir frá lífinu og golfi - einsog honum er einum lagið.
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.