Bíóblaður

Bíóblaður

Hafsteinn Sæmundsson
Maa Islanti
Genret TV ja Elokuva
Kieli IS
Jaksot 379
Viimeisin 10.09.2026

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Jaksot

  • #338 Topp 10 með Snorra Rafni 10.09.2026 2t 22min
    Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022. Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2 er og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Snorri Rafn eða Snow Raven06:40 - Leiklist og kvikmyndaáhugi32:00 - Honorable mentions36:38 - Capote40:20 - Phantom Thread46:33 - There Will Be Blood54:42 - Joker1:03:28 - Dr. Strangelove1:20:38 - Vonarstræti1:32:55 - Eternal Sunshine of the Spotless Mind1:42:10 - The Piano Teacher1:46:44 - Forrest Gump1:54:10 - Uppáhalds myndin hans Snorra2:10:17 - Hot takes og grín
  • #337 Topp 10 með Coach Clean 02.09.2026 2t 47min
    Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Hvað gerir Coach Clean?11:41 - Orra gæði14:51 - Kvikmyndaspjall24:27 - Honorable mentions og Will Smith33:38 - Topp 10 listinn35:17 - Tropic Thunder49:57 - Snatch56:17 - Ocean’s Eleven1:07:11 - The Hateful Eight1:19:22 - The Rock1:30:30 - The Departed1:40:25 - Die Hard with a Vengeance1:54:04 - The Dark Knight2:07:13 - Heat2:21:42 - Uppáhalds myndin hans Orra2:43:41 - Lokaorð
  • #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier 24.08.2026 2t 41min
    Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda. Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð. Christof hefur einnig leikið lítil hlutverk í ýmsum verkefnum og hefur skrifað handrit. Hafsteinn var spenntur að spjalla við hann en í þættinum ræða þeir meðal annars ferilinn hans Christof, bestu Michael Mann myndina, stöðuna á Star Wars í dag, hversu mikil áhrif A.I. mun hafa á bransann, hvort Christopher Nolan sé stærsti leikstjóri heims í dag og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Hver er Christof Wehmeier?04:41 - Christof og markaðssetning á kvikmyndum20:53 - Christof, KMÍ og innlend kvikmyndagerð35:17 - Innlend og erlend kvikmyndagerð á Íslandi42:11 - Unga kynslóðin í kvikmyndagerð53:35 - Christopher Nolan57:20 - Nýjar raddir fyrir unga fólkið1:00:26 - Christopher Nolan1:03:43 - Ofurhetjur og Dunesday1:11:29 - Netflix myndir og streymisveitur1:21:08 - Er Hollywood á góðum stað í dag?1:31:27 - Kvikmyndafókus hefur breyst1:33:53 - Eldri kvikmyndir vs. nýjar1:41:20 - Norræn kvikmyndagerð1:48:26 - Star Wars1:56:39 - Framhaldsmyndir2:02:26 - Michael Mann2:06:01 - Handritagerð2:19:12 - James Bond2:31:13 - Gervigreind2:35:45 - Ásgeir Kolbeins fór með rangt mál2:37:41 - Tom Cruise
  • #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins 06.01.2026 3t 25min
    Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira.00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!00:14 - Intro00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf03:19 - Avatar: Fire and Ash23:20 - Var árið gott?32:42 - One Battle After Another51:03 - Sinners1:10:07 - Weapons1:30:35 - Jurassic World: Rebirth1:37:51 - Marvel myndir ársins1:57:50 - Ballerina og Nobody 22:24:19 - Grínmyndir ársins2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning2:55:35 - F12:58:36 - Superman3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth
  • #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni 21.12.2025 2t 3min
    Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar.Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár!00:10 - Intro00:25 - Jólaþátturinn í ár!00:48 - Er Die Hard jólamynd?03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir!04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur14:48 - Atriði30:22 - Almennar spurningar41:48 - Plakatleikur52:45 - Rétt eða rangt1:02:19 - Persónur og leikarar1:19:38 - Valmöguleikar1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur)1:57:29 - Sigurvegarar krýndir
  • #333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat 10.12.2025 1t 49min
    Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.
  • #332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni 01.12.2025 1t 41min
    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey. Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.00:00 - Intro00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin07:10 - Best of the Best11:40 - Plakatleikur31:31 - Almennar spurningar42:11 - Persóna og leikari55:01 - Rétt eða rangt1:02:25 - Atriði1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix)1:35:58 - Sigurvegarar krýndir
  • #331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael 25.11.2025 1t 40min
    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta.Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.00:00 - Intro00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!01:58 - Ísrael og Kilo03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti)10:40 - Almennar spurningar16:00 - Plakatleikur25:19 - Rétt eða rangt38:09 - Atriði50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain59:17 - Persónur og leikarar1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir)1:36:40 - Sigurvegarar krýndir
  • #330 Nördaspjall með John Inga Matta 03.11.2025 3t 38min
    John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar.John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels. Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd. Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Samanburður á ólíkum myndum09:16 - Hver er John Ingi?16:17 - Íslenski bransinn24:55 - Hryllingsmyndir48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat1:29:10 - John Wick og Ballerina1:35:05 - Weapons og Sinners1:51:04 - One Battle After Another2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix2:58:59 - Marvel3:12:14 - DC3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind
  • #329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull 27.10.2025 1t 25min
    Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu.Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni! Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal annars atriði úr myndum, scream queens, alls konar plaköt og almennar spurningar.00:00 - Intro00:15 - Pétur og Jökull hittust fyrir utan podcastið10:17 - Atriði22:00 - Plakatleikur28:23 - Almennar spurningar36:39 - Scream queens46:54 - Rétt eða rangt56:01 - Flokkar (Draugagangur, Beittar tennur, Blóðug slóð, Óþekk börn)1:13:16 - Sigurvegari krýndur1:17:29 - Hrekkjavöku meðmæli
  • #328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael 13.10.2025 1t 30min
    Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni. Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum. Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurfa að giska á úr hvaða mynd ramminn er og margt, margt fleira.00:00 - Intro01:37 - Bíóblaður spurningaspil kemur út fyrir jól!03:07 - Kilo og Ísrael12:35 - Plakatleikur25:41 - Valmöguleikar46:39 - IMDB leikur56:42 - Atriði1:12:02 - Flokkar (1999, Tom Cruise, Julia Roberts, 1989)1:22:00 - Sigurvegari krýndur1:25:12 - Kilo og Ísrael team up?
  • #327 Dahmer með Kiddu Svarfdal 08.10.2025 2t 8min
    Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona menn og margt, margt fleira.
  • #326 Bransaspjall með Ólöfu Birnu 02.10.2025 2t 19min
    Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024. Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir. Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Bíóblaður spurningaspil02:01 - Handrit skipta máli15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I.25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita38:46 - Sjónvarpsþættir45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla1:09:35 - Topp 10 möst1:14:41 - Kvikmyndasjóður1:28:20 - Genre myndir á Íslandi1:30:36 - Topp 10 möst1:50:16 - Grín er ekki að selja2:06:57 - Kvikmyndasjóður2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð
  • #325 Grindhouse með Pétri Ragnhildar 15.09.2025 1t 48min
    Grindhouse myndin hafði mikil áhrif á kvikmyndaáhugamanninn Pétur Ragnhildarson þegar hún kom út árið 2007. Pétur kíkti til Hafsteins til að ræða þessa áhugaverðu kvikmynd.Strákarnir ræða einnig Quentin Tarantino, Robert Rodriguez, Machete, hvort Grindhouse myndi virka betur í dag, af hverju myndin floppaði á sínum tíma, hvort Tarantino geri nokkurn tímann tíundu myndina sína og margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Pétur er loksins í solo þætti03:03 - Af hverju Grindhouse?09:37 - Rodriguez og Tarantino14:11 - Grindhouse myndir og samband R og T29:45 - Machete og Planet Terror1:00:53 - Fake trailerarnir1:09:23 - Death Proof og Tarantino
  • #324 90’s Gullmolar III með Bjarna Thor 04.09.2025 2t 56min
    Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90’s sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90’s gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Siege, Cop Land, Red Rock West, Clifford, Split Second, Bordello of Blood, Fair Game og margar fleiri.00:00 Intro00:16 - 90’s Gullmolar III12:16 - My Blue Heaven 199025:45 - Dazed and Confused 199337:14 - Sneakers 199245:26 - Bulletproof 199654:39 - Raising Cain 19921:01:15 - The Full Monty 19971:12:05 - Split Second 19921:19:45 - Falling Down 19931:27:09 - Leap of Faith 19921:36:23 - Clifford 19941:43:39 - Red Rock West 19931:55:18 - Fair Game 19952:00:50 - Judgment Night 19932:07:44 - Bordello of Blood 19962:13:34 - The Paper 19942:17:09 - Fled 19962:22:49 - Cop land 19972:38:21 - The Siege 19982:43:55 - Stir of Echoes 19992:47:45 - Kolamolinn hans Hafsteins
  • #323 Bíóspjall með Benjamín Fannari 03.09.2025 1t 44min
    Benjamín Fannar útskrifaðist sem leikari árið 2020 frá Kvikmyndaskóla Íslands og þrátt fyrir hæga leiklistarbyrjun þá stefnir hann ótrauður á leiklistarframa. Benjamín kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá náminu og leiklistardraumum. Í þættinum ræða þeir einnig sjónvarpsseríuna The Boys, rithöfundinn Stephen King, Game of Thrones, Harry Potter, Jim Carrey myndir og margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Bíóblaður spurningaspil er jólagjöfin í ár03:25 - Benjamín og leiklistin09:21 - Benjamín hefur leikið Jesú13:19 - Draumahlutverk15:50 - Jim Carrey20:09 - Grínmyndir25:14 - Streymisveitur, Plex og videoleigur30:12 - Blockbusters35:35 - Prisoners40:30 - Marvel og DC53:40 - Nýlegar bíóferðir59:17 - Harry Potter1:07:15 - Sjónvarpsseríur1:24:59 - Game of Thrones og Stephen King
  • #322 The Infinity Saga: Part II með Degi, Ragga og Ara 24.08.2025 2t 8min
    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Captain America: Civil War, Spider-Man: Homecoming, Black Panther, Avengers: Infinity War og margar fleiri.00:00 - Intro00:43 - Ant-Man 201514:49 - Captain America: Civil War 201630:52 - Doctor Strange 201643:05 - Guardians 2 201756:58 - Spiderman: Homecoming 20171:09:28 - Thor: Ragnarök 20171:18:12 - Black Panther 20181:25:27 - Avengers: Infinity War 20181:35:42 - Ant-Man and the Wasp 20181:38:27 - Captain Marvel 20191:47:10 - Avengers: Endgame 2019
  • #321 The Infinity Saga: Part I með Degi, Ragga og Ara 24.08.2025 2t 53min
    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Iron Man, The Incredible Hulk, The Avengers, Thor, Guardians of the Galaxy og margar fleiri.00:00 - Rétt MCU röð?05:16 - Iron Man 200832:35 - The Incredible Hulk 200849:26 - Iron Man 2 20101:03:25 - Thor 20111:22:35 - Captain America 20111:38:03 - The Avengers 20121:54:16 - Iron Man 3 20132:05:59 - Thor: The Dark World 20132:17:31 - Captain America: The Winter Soldier 20142:28:16 - Guardians of the Galaxy 20142:40:37 - Avengers: Age of Ultron 2015
  • #320 Topp 10 með Vilhjálmi Þór 20.08.2025 2t 36min
    Karate/einkaþjálfarinn Vilhjálmur Þór Þóruson er mikill kvikmyndaáhugamaður með sterkar skoðanir. Hann hefur fylgst með Bíóblaðri í nokkur ár og Hafsteinn var því spenntur að fá hann í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars topp 10 listann hans Villa, nokkur “hot takes” sem Villi er með, hvort Snape sé besta Harry Potter persónan, hversu vönduð Snerting er, hvort Marvel séu alveg búnir að missa það og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - NCIS og ótrúlegir hlutir03:18 - The Amazing Spider-Man 205:19 - Villi og karate14:02 - Eldamennska og kvikmyndir15:49 - Villi er með hot takes!31:25 - Snerting40:39 - The Whale48:11 - Primal Fear1:03:08 - Sleepers1:17:03 - Good Will Hunting1:23:45 - Warrior1:32:39 - Harry Potter and the Half-Blood Prince1:58:41 - Captain America: Civil War2:10:16 - Under Siege2:19:05 - Uppáhalds myndin hans Villa
  • #319 Superman 2025 með Gumma Sósu 15.07.2025 1t 48min
    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Superman myndina eftir James Gunn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Gunn hafi tekist að gera góða mynd, hvort búningurinn sé flottur, hversu björt DCU framtíðin er, hvort þetta sé besti Lex Luthor sem fólk hefur fengið að sjá, hvort Lois Lane fái nóg að gera í myndinni og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Gummi er DC gaurinn02:00 - Bíóblaður spurningaspil er væntanlegt fyrir jólin04:59 - Superman 2025 (SPOILER FREE)29:27 - Superman 2025 (SPOILER SPJALL)1:35:00 - DCU framtíðin

Suosittu maassa

Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.