Bíófíklar

Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp
Maa Islanti
Genret TV ja Elokuva
Kieli IS
Jaksot 128
Viimeisin 14.09.2026

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Jaksot

  • Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan? 14.09.2026 1t 16min
    Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en annað.Íris Árnadóttir samdi megnið af spurningunum, en þá er bara að hlera herlegheitin, og í senn spyrja sig hvernig í ósköpunum fimm manns eru í þættinum þegar míkrafónarnir eru bara fjórir…Efnisyfirlit:00:00 - ‘Öðruvísi teik’08:12 - Óþægilegur bangsi12:04 - Kokkurinn eða mannætan?15:09 - Flokkaskipti24:42 - Erlent rímeik28:40 - Þrenna og söngleikir41:06 - Frændsemisbarn…49:01 - “Ha…??!’ mynd59:14 - Horror-klisjur01:05:05 - Rom-com klisjur
  • Ghost World (2001) 07.09.2026 59min
    Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar.Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla með samnefndu myndasöguna og hefjast þá ýmsar umræður um muninn á kvikmyndinni og smásögunum, vanmetna leiksigurinn hjá Steve Buscemi og jafnframt hinni viðkunnanlegu Thoru Birch - sem lítið hefur til sést á undanförnum árum. Hið sama á reyndar við um leikstjóra myndarinnar líka.Setjið nú sígildu og fágætu vínylplötuna á fóninn, dressið ykkur upp eftir þörfum og skottist með í þetta sérkennilega ferðalag um líf og langanir minnisstæðra sérvitringa.(Beðist er velvirðingar á því hvað nokkrir við míkrafónana eru slapparalegir til hljóms, en þar er vesalings haustpestin að verki...)Efnisyfirlit:00:00 - Sorgarfregnir úr mannaheimum13:52 - Draugaveröld20:56 - List eða ekki list31:07 - Enid + Seymour38:28 - Thora Birch 44:55 - Scarlet Johansson48:52 - ‘Wowsville’...53:11 - Samantekt
  • Grease (1978) & Grease 2 (1982) 31.08.2026 1t 16min
    Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu. Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi skortur á heilum kynslóðunum sem þekkja allflest lögin úr þeirri mynd. Þar að auki var þetta bíómyndin sem skaut John Travolta (og Oliviu Newton-John í einhverjum mæli) hraðar upp stjörnuhimininn.Grease 2 er önnur saga; sú mynd hefur verið stuttlega rædd annað slagið í hlaðvarpinu en aldrei til fulls… fyrr en núna!Það er vægt til orða tekið að fullyrða að Grease 2 er óvinsælli myndin af þeim tveimur; fæstir úr upprunalegu myndinni snéru aftur (en persónurnar voru svo sem löngu búnar að útskrifast…) og lögin þótti alls ekki jafn grípandi að mati áhorfenda og gagnrýnenda. Að vísu er erfitt að neita því að Michelle Pfeiffer átti þarna massasvala innkomu og gladdi fáeinan einstaklinginn með sóló-söngnum ‘Cool Rider’, en listinn yfir kosti þessarar mynda ná sjaldnast lengra en það.Þá að sjálfsögðu er einn ónefndur Bíófíkill sem hefur í áraraðir tekið upp mótorhjólahanskann fyrir hinni veraldlega hötuðu Grease 2. Hvers vegna? Það veit enginn, nema jú, hlustandi góður sem kýs að ganga í klíkuna og hlera þetta djúsí spjall um myndirnar tvær.Efnisyfirlit:00:00 - Minningar af Koppafeiti17:05 - Kynjapólitíkin24:45 - Litrík flóra persóna29:52 - Dans- og bílakeppni36:58 - ‘Fimm-söngleikja-reglan’45:47 - Grease 2…54:01 - Umdeildari lög58:00 - Dólgslæti persóna01:07:22 - Týnda sjónvarpsserían…
  • Topp 5: John Waters 25.08.2026 1t 58min
    Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar.Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry Baby, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Má þá líka gjarnan færa þau rök að Waters hafi kynnt heiminum fyrir óviðjafnanlega skemmtikraftinum Divine.Íris Árnadóttir heldur utan um taum þessa innslags og í stúdíóið með henni eru mættir þeir Ormur Guðjónsson og Haukur Heiðar Steingrímsson. Saman velja þau sínar uppáhalds myndir eftir þennan snilldarlega sérvitring - sem er svo sannarlega ekki allra - og skoða þau ýmsu mynstur sem hafa fylgt honum í áratugaraðir. En aðdáendahópar Waters eru dyggir, mjög svo utangarðs í ýmsum samfélögum og e.t.v. prakkaralegir, líkt og heilinn á bak við titlaflóruna.Hér verður allsvakalega gramsað, rökstutt og róterað í alls konar gúrme skít í tengslum við þessa óvenjulegu filmógrafíu frá enn óvenjulegri kvikmyndagerðarmanni.Ríðum á vaðið, pössum upp á kjúklinginn og höfnum öllum samfélagslegum normum. Hláturtaugar verða sennilega kitlaðar. Efnisyfirlit:00:00 - Testum nú Waters07:03 - Fyrsta upplifunin14:49 - Uppáhalds leikari17:35 - Divine legasían24:27 - Cameo’in og einkennin38:47 - Cry Baby49:42 - Hairspray58:56 - Polyester01:15:27 - Serial Mom01:26:56 - Female Trouble01:42:23 - Pink Flamingos
  • Deadpool (2016-2024) 22.08.2026 1t 6min
    Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda. Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng og á tíðum kolólögleg, þegar stærsti aflgjafinn var svonefnt ‘test reel’ lak með undraverðum hætti á internetið við ómælanlegan fögnuð netverja og áhorfenda. Á þeim tíma voru margir enn með óbragðið í munninum eftir að Deadpool karakterinn fékk hlægilega ef ekki móðgandi meðhöndlun í sorpmyndinni X-Men Origins: Wolverine.En talandi um Wolverine! Þá hefur Jarfinn sjálfur oft verið hluti af Deadpool-seríunni, beint eða óbeint, og leiddi það á endanum til þess að þeir sameinuðust með ógleymanlegum hætti í þriðju Deadpool-myndinni. Engu að síður vakna þarna upp ýmis konar spurningar, eins og: Eru vinsældir þessara mynda sjálfkrafa ávísun á gæði? Hversu vel eldast þær eiginlega eða eru þær jafnvel bara ákveðin búbbla síns samtíma? Og þá að sjálfsögðu líka, að öllu sögðu: Hver er besta Deadpool myndin af þessum þremur?Bíófíklar leggja í það að svara þessum og miklu, miklu fleiri spurningum með óforskammaðri greiningu á myndasyrpunni þar sem engu er tilsparað varðandi slettur og blótsyrði. Nú er lagt í subbulegt ferðalag skoðana og sturlaðra staðreynda.Beint í búningana með alla, smellum fáeinum [RITSKOÐAÐ]-línum í nasirnar og bölvum út í allar áttir, því nú skal hefja fjörið. Þess að auki er hlustandi jafnframt hvattur til að hlaða í eina eða tvær Chimichanga-rúllur á meðan hlustun stendur.Efnisyfirlit:00:00 - Forsagan og Fox-fíaskóið07:27 - X-Men Origins: Wolverine14:38 - Deadpool31:43 - Deadpool 252:03 - Deadpool & Wolverine
  • The End of Oak Street (2026) 17.08.2026 1t 4min
    Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk upp á því við Bíófíkla að fjalla um kvikmyndina þar sem þeir J.J. Abrams og David Robert Mitchell (It Follows ofl.) snúa saman bökum með vonir um að kæta og hrella bíógesti um allan heim.The End of Oak Street er ráðgáta, skrímslamynd og sci-fi spennutryllir sem gerist á níunda áratugnum. Eftir að dularfullt yfirnáttúruafl flytur Eikargötu - og allt hverfið eins og það leggur sig - á óþekktan stað (og mögulega í óþekktan tíma…), uppgötvar fjölskylda fljótlega að tilvera hennar veltur á því að þau standi saman á meðan þau reyna að átta sig á því sem gerðist. Arnar og Bíófíklar leggjast nú saman í ferðalag um að meta og kanna ágæti þessa ferðalags sem þau Anne Hathaway, Ewan McGregor og fleiri prýða svo hressilega. Er þetta drekkhlaðið stuð, innantómt fjör eða hreinlega allt bara innantómt gól? Lifir hundurinn þetta af? Hvað með kettina?Og hvað segir risaeðluséníið í stúdíóinu?Flytjum okkur nú á slóðir út fyrir endimörkin þar sem tími og rúm er komið í algjört rugl, og metum afþreyingargildi þessa rugls. Athugið að búast má við öskrum. Og spillum.Efnisyfirlit:00:00 - Hemmi Gunn og 4DX14:41 - Hvert fór JJ Abrams?20:30 - Eikarstæti án spilla30:26 - Risaeðlupælingar38:17 - Yfir í spoilera…50:13 - Klappað í salnum
  • Mighty Morphin Power Rangers (1995) 09.08.2026 1t 7min
    Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns. Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum útfærslum, formum, litum og myndum, hefur aldrei verið gífurlegur hluti af íslenskum kúltúr en víða um heim hefur þetta vörumerki haldið stjórnlausri göngu í áraraðir og séð sinn skerf af lægðum og hæðum. En vissulega skulu fullorðnir ekki gera kröfur um hágæðaefni þegar umrædda vörumerkið hófst með því að ‘stela’ óbeint frá annarri þáttaröð, og sérstaklega þegar hugmyndin gengur út á að kæta sykuróða krakkalinga og selja þeim gommur af leikföngum.Bíófíklar buðu Vilmundi Erni Gunnarssyni aftur í stúdíó Podcaststöðvarinnar en hann átti hugmyndina að grandskoða mátt og mistök tveggja þekktustu Power Rangers-bíómyndanna, með áherslu á legasíu batterísins eins og það leggur sig. Í brennidepli er það sum sé Mighty Morphin Power Rangers: The Movie frá ’95, með léttri skimun á hundaskítinn frá 1997 sem kallast ’Turbo: A Power Rangers Movie. Vilmundur og vinir eru heldur ekki sparsamir á steiktar og sturlaðar staðreyndir um Power Rangers í gegnum árin, harmsögur af leikurum þáttanna og - að sjálfsögðu - græðgina og nískuna í spottatogaranum Haim Saban. Þá er einnig spreytt sig í stóru málunum, eins og hvers vegna foringinn Zordon vill eingöngu safna til sín liðum unglinga og af hverju hann ákvað að búa til taugaveiklað vélmenni til að aðstoða sig í höfuðstöðvum sínum...Fjórmenningarnir í settinu koma sér í stellingar, kalla út nöfn á risaeðlum með háfleygum hætti og rýna í umfjöllunarefni þar sem einn við míkrafóninn spyr réttilega að eftirfarandi spurningu; Er þetta nördalegasti þáttur Bíófíkla til þessa?Og hvernig í heitasta helvítinu ná drengirnir að þræða Glæstar vonir og Leiðarljós inn í þetta umfjöllunarefni?Efnisyfirlit:00:00 - Klám og græðgi11:44 - Frá sjónarhorni barns19:46 - Ríbútt, Twitch og ‘special’inn’35:50 - “Notist í neyð”45:12 - Skósveinar úr leir51:11 - Sambærileg ofurgengi01:00:11 - Glæstar vonir og Leiðarljós…
  • Spider-Man: Brand New Day (2026) 03.08.2026 1t 47min
    Nú er Peter Parker orðinn niðurlútur, enda liðin fáein ár síðan allir hans nánustu gleymdu honum og þýðir þá ekkert annað fyrir hann að sökkva sér dýpra í hlutverk vingjarnlegu hverfishetjuna í New York. Spider-Man: Brand New Day er fjórða kvikmyndin með Tom Holland í burðarhlutverkinu og má fastlega reikna með að um sé að ræða eina af langstærstu myndum ársins.Bíófíklar tóku á móti fastagestinum Siggu Clausen, sem oft hefur verið útnefnd sérfræðingur hlaðvarpsins í Marvel málum. Nóg er til að ræða í tengslum við vegferð Hollands sem Köngulóarmaðurinn þar sem nú eru heil tíu ár liðin síðan hann skaut fyrst upp kollinum í Captain America: Civil War. Farið er grimmt í gegnum Home-þríleikinn svokallaða og fjórðu myndina, með spillum og án þeirra. Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá mörgum netverjum og aðdáendum MCU-mynda að mikil leynd hefur hvílt yfir myndinni. En að sama skapi komast bíófíklar ekki yfir að kanna stærri spurningar Spider-Man myndanna; þá varðandi réttindamál og ekki síst: Hvar í ósköpunum geymir Peter Parker snjallsímann sinn þegar hann er í búningnum?Þá er bara að smella á sér grímurnar og skoða sveiflurnar á milli gæða.Efnisyfirlit:00:00 - Lúsmý í Hveragerði11:50 - Tom Holland slær metið26:56 - Home-þríleikurinn57:00 - Brand New Day án spilla01:11:00 - Spoiler-umræða01:33:35 - Atli Freyr sveiflast inn
  • The Warriors (1979) 29.07.2026 1t 27min
    Walter Hill vissi stundum vel hvað hann söng og þegar hann afhjúpaði The Warriors á sínum tima fylgdi útgáfunni heilmikið vesen. Visssulega hitti ræman alveg í mark hjá ungu fólki en var ítrekað gagnrýnd fyrir að vera áhrifagjörn og hreinlega bara stórhættuleg. Þetta var líka fyrsta Hollywood-myndin sem fjallaði um gengi án þess að það fjalla um slíkt sem rót alls hins versta. Hill tók mjög pönkaða afstöðu í staðinn og legasía myndarinnar skýrir sig sjálfa.Ekki nema þú hafir aldrei heyrt um þessa mynd… En þá er ekkert minna tilefni til að hlusta á innilega krufningu Bíófíkla á The Warriors og sögunum á bak við gerð hennar. Í stuttu máli gerist hún í ‘myndasögulegri’ dystópíu þar sem gengi ráða ríkjum. Þegar Warriors-glæpagengið er ranglega sakað um morð, þurfa allir sem einn að slást við óvinahópa sem hundelta þá úr öllum áttum.Hugmyndin að þessari úttekt skrifast á góðkunnan gest, en það er plötu- og kanilsnúðurinn Atli Viðar Þorsteinsson (e. ‘Atli Kanill’). Atli á sér sterkar tengingar við kvikmyndina, söguna og tónlistarsöguna. Þá færir hann líka rök fyrir því að þetta gæti verið ein af þessum myndum sem FULLT af fólki hefur heyrt vísanir í, án þess að hafa séð myndina eða þekkja til hennar.Komið nú út að leika og verið öll með í eltingarleiknum því nóg er um bransasögur og fróðleiksmola.Efnisyfirlit:00:00 - Algjör steypustöð14:40 - The Warriors25:21 - Eltingarleikur41:17 - Skrítin kúrekamynd57:00 - New York-mynd01:10:05 - Áhrif og eftirhermur01:21:10 - “Alltof sætt tyggjó”
  • The Rules of Attraction (2002) 24.07.2026 1t
    Hefur þú heyrt um vanmetnu ’systkinamynd’ hinnar geggjuðu American Psycho? Nei? Já? Hvílíka lukkulega tilviljunin, því nú skal ítarlega leggjast yfir kolsvörtu unglingamyndina sem (því miður) of fáir hafa séð. Þetta er The Rules of Attraction, sem fjallar meðal annars um ónytjunginn Sean (bróður Patricks…) Bateman og sveittu ævintýri nokkurra ólíkra háskólanema; ástir þeirra og örlög með smá sukki.Hér fara James Van Der Beek, Shannyn Sossamon, Ian Somerhalder, Eric Stoltz og Clifton Collins Jr. með lúmskan leiksigur. Útkoman er ekki allra, en algjört partí engu að síður! (Kannski ekkert sérstaklega gott partí, og bersýnilega fráhrindandi satt að segja, en án efa brjálæðislega áhugavert innlit.)Auður Svavars er mætt aftur í Podcaststöðina til að ræða þessa óvenjulegu kvikmynd úr smiðju Rogers Avary og byggð á samnefndri skáldsögu eftir Bret Easton Ellis. Efnisyfirlit:00:00 - Spice World & Rules...07:49 - Ógagnkvæm hrifning11:24 - Ferðalag og fávitaskapur19:51 - 'NC-17 útgáfa'28:28 - Roger Avary45:12 - Endir og byrjun55:14 - Pjúra óskhyggja?
  • The Odyssey (2026) 18.07.2026 2t
    Stærsta, furðulegasta og sennilega drungalegasta kvikmyndin til þessa frá Íslandsvininum Christopher Nolan, sem enn eina ferðina lætur reyna á nýja vöðva og vinkla. Hér hefur ofurþjarkurinn snúið sér að Ódysseifskviðu Hómers þar sem öllu er allsvakalega tjaldað til og erfitt er að þverneita fyrir umfangið. Peningurinn sést svo sannarlega á skjánum, bæði í leikmyndum og leikaravali. Þrátt fyrir hið undarlegasta bakslag hjá ýmsum ‘virkum í athugasemdum’ (sem fjallað verður nánar um í þættinum…) þá hefur The Odyssey verið að fá glimrandi lof um allan heim. Sumir hafa jafnvel gerst svo djarfir að kalla þetta bestu mynd Nolans til þessa, en Bíófíklar hefja sínar ástríðufullu umræðu um hvernig tókst til með þennan gígantíska pakka. Hlustandi skal allavega ekki búast við einróma hljómi og áliti í þessari samantekt.Við gestamíkrafónana sitja nú fastagestirnir Páll Eyjólfsson (Nolan-fræðingur með meiru) og Viktor Árni Júlíusson, sem fékk þann heiður í fyrrasumar að vera staddur á tökustað myndarinnar. Viktor leysir frá skjóðunni innan leyfilegra marka NDA-samninga og kemur með skrautlegar sögur af settinu.Upp með hjálmana, út með sverðin og úr bátunum með alla, því nú leggjumst við saman í epískt ferðalag.Efnisyfirlit:00:00 - Bakslag og umtal08:17 - Ódysseifskviða Nolans19:46 - IMAX-flykki38:33 - Ódysseifskviða Páls45:14 - Ódysseifskviða Viktors01:00:09 - Sögur af settinu01:22:51 - Ódysseifskviða Kjartans01:26:36 - Tommi á báti 01:43:40 - Allt farið í hundana 01:51:07 - Samantekt?
  • The Mask (1994) & Son of the Mask (2005) 17.07.2026 1t 7min
    Hin brjálæðislega vinsæla (og að margra mati sígilda) The Mask var á meðal fyrstu myndanna til að koma gúmmíkarlinum Jim Carrey á kortið og skjóta honum hátt upp á stjörnuhimininn. Ekki nóg með það, heldur markaði þetta jafnframt fyrsta stóra hlutverkið fyrir Cameron Diaz, sem á þarna ógleymanlega innkomu. Sjálfstæða Carry-lausa framhald þeirrar myndar var… vægast sagt ekki jafn vinsæl eða umtöluð og forverinn, og af gildri ástæðu. Frá útgáfu hefur sú mynd oft verið talin með verri myndum síðustu tuttugu ára, ef ekki allra tíma. Mætti jafnvel fullyrða að ónefndur einstaklingur við míkrafóninn líki þessa framhaldsmynd við opið sár.Merkilegt nokk, þá tókst Bíófíklum að finna Íslendinga sem hefur ekki alfarið slæma hluti að segja um Son of the Mask. Það er enginn annar en fastagesturinn Einar Michaelsson, sem fram að þessu hefur glatt hlustendur með þekkingu sinni á Star Wars heiminum, og síðan bíóséníið Hafsteinn Hugi Laxdal eða ‘Haffi Lax. Það var frumkvæði Einars að vaða skammarlaust í stúderingu á báðum myndunum um The Mask. Þó er ekki hægt að lofa því að annar stjórnenda Bíófíkla hafi verið Einari þakklátur fyrir að horfast í augu við gamlar (og nýjar) erfiðar minningar af myndinni þar sem Jamie Kennedy tók við Grímunni af Jim Carrey. Þá má sömuleiðis deila um það hvort fyrri myndin eldist einu sinni vel. Eða hvað?Best er þá að hlustandi smelli á sig grímuna, snúi sér í marga hringi og taki opnum örmum á móti þessum skrípaleik Bíófíkla, og sýni samstöðu í fagnaði nostalgíunnar og ekki síður þjáningunni. Efnisyflit:00:00 - Hvers vegna báðar?08:03 - The Mask33:28 - Son of the Mask54:01 - Betri hugmyndir
  • Súrt og svarað: Best lyktandi bíómyndin 10.07.2026 1t 36min
    Eins og hlustendur kunna að vita, Súrt og svarað er kvikmyndatengdur spurningarleikur þar sem engin svör eru rétt eða röng. Þetta er eingöngu gert til flipps og fróðleiks enda frískandi leið til að betur kynnast kvikmyndasmekk gest.Hugleikur Dagsson, fyrirmyndar- og atvinnunörd sem þarf vart að kynna, settist í heita sætið hjá Kjartani og Tomma þar sem markmið allra var að brjóta heilann, finna sniðugar tengingar eða svara t.d. nokkrum af neðangreindu spurningum:Hver væri versta myndin til að upplifa í 4DX?Hver væri besta myndin til að endurvekja Smell-O-Vision?En sú allra versta?Efnisyfirlit:00:00 -  Ömurlegt í 4DX09:02 - Verst lyktandi myndin26:11  - Sveiflur í sarpi Lóa32:41  - Múmínálfar með budget’i41:10 - Hryllileg ofhugsun50:02 - Besti þristurinn54:24 - Klær Disney-veldisins01:06:28 - Söguforminu víxlað01:12:00 - Brennandi álit…01:27:17 - Fíflin í salnum
  • Supergirl (2026) 06.07.2026 1t 13min
    Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sína og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gregs Gillespie (Lars and the Real Girl, I, Tonya, Cruella ofl.). Hingað til hafa flestir þekkt til Alcocks úr House of the Dragon en Bíófíklar taka innkomu og DC-ævintýrum hennar fagnandi. Annað en bíógestir, því miður…Aðsóknartölur myndarinnar um Supergirl hafa ekki verið upp á marga fiska og viðbrögð gagnrýnenda misjöfn en sagan hennar er alls ekki öll og tölurnar stoppa ekki Kjartan og Tomma frá því að rýna í myndina og skoða hvernig hún stendur sem sjálfstæð saga og hvernig persónuleiki hetjunnar ganga upp. Við gestamækinn að sinni er afburðanördið- og enn fremur myndasöguséníið Svanhvít Ada Sif Björnsdóttir til að taka þátt í umfangi umræðunnar, ásamt tilheyrandi og kannski óhjákvæmilegum útúrdúrum í tengslum við SnyderBros, fjölbreytni, menningarstríð, CW þættina um Supergirl og Star Trek (?). Þetta skýrist auðvitað betur í hlustunni.Flugið verður fróðlegt, furðuleg og margbrotið, eins og umdeilanlega mætti eflaust segja um sjálfa Supergirl. Efnisyfirlit:00:00 - Trekkara-trivia07:15 - DC eða Marvel23:49 - Woman of Tomorrow35:45 - Supergirl og spoilerar46:46 - Heildartónn59:13 - Glötuðu "sérfræðingar" netsins
  • Possession (1981) 03.07.2026 1t 1min
    Possession segir frá ungum hjónum. Þau Mark og Anna eiga í hjónabandsörðugleikum en Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni. Hann upplifir furðulega hegðun og dúkka þá upp vísbendingar um að um sé að ræða skelfilegri yfirnátturlegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu.Þetta yfirdrifna en bitastæða hrolllvekjudrama eftir Andrzej Zulawski gerði allt vitlaust víða um heiminn þegar myndin leit fyrst dagsins ljós, eða svo segja sögurnar (enda voru Bíófíklar ekki á lífi á þeim tíma...). Það er ekki erfitt að ímynda sér hvers vegna, enda áhrifamikil ef ekki alræmd mynd með body-horror ívafi sem markaði mikilvæg spor á níunda áratugnum í sínum geira. Auk þess er framleiðslusagan vægast sagt óhugguleg.Mætti jafnvel færa rök fyrir því að velgengni kvikmyndarinnar Obsession eigi einhverjar rætur að rekja til þessarar myndar. Á sinn hátt.Hvernig varð þessi mynd fyrir valinu? Það skrifast nú auðvitað á Frikka fastagest og áframhaldandi tilraun hans til að skóla Kjartan í fjölbreytileika og fjöri hryllingsmynda á meðan Tommi glottir prakkaralega og klórar sér í hausnum yfir myndinni þegar loks kom að því að kíkja aftur á hana í fyrsta sinn í hundlangan tíma.Hvort sem markmið Frikka sé að ganga endanlega frá geðheilsu Kjartans (við gleymum nú seint Meet the Feebles fíaskóinu...) eða dýpka kvikmyndasmekk hans á enn eftir að skýrast. Þá skal bara leggjast aðeins í kennslu um viðbjóðslegt eignarhald og andsetja á sig heyrnartólin.Efnisyfirlit:00:00 - Hörð viðbrögð10:04 - Átakanleg framleiðsla28:07 - Einkennilegir tónar39:00 - Samanburður við Obsession53:52 - Frægustu senurnar57:41 - Samantekt
  • Star Wars: The Phantom Menace vs. Attack of the Clones 29.06.2026 1t 26min
    Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að klára óuppgerð mál, ásamt aukagesti eða svokölluðum lærlingi Einars, Halldór Smári Kárason að nafni. Seinast þegar Einar sast við gestamækinn ræddu þeir tvær af umdeildari Stjörnustríðsmyndum allra tíma, ef ekki þá 'Disney-áranna'. Vegna fjölda áskorana frá hlustendum, sem virtust kunna að meta þrasið í seinasta Star Wars-tengdum þætti Bíófíkla með Einari, er komið að því að stúdera aðeins forsöguþríleikinn frá George Lucas, nánar til tekið þær tvær myndir sem vel og lengi voru með þeim hötuðustu í syrpunni. Jú jú, enda elska Stjörnustríðsaðdáendur að tuða, svo alltaf fylgir eitthvað hatur með hverri kynslóð þegar kemur að þessum bíóheimi.Það er ómögulega hægt að undirstrika hversu mikið hæp fylgdi komu nýja þríleiksins á sínum tíma, þá sérstaklega The Phantom Menace árið 1999. Eftirvæntingin var gígantísk og legasía þeirrar myndar er þyrnum stráð þó hún hafi alveg frá upphafi átt sína verjendur. Attack of the Clones lenti síðan þremur árum seinna og gerði allt vitlaust í nördaheimum, og enn þann dag í dag er rifist um það (ekki hvort, heldur...) hversu slæmur rómansinn er í þeirri mynd. Mátturinn er sterkur með þessum málefnum, svo drengirnir skiptast á að finna hið góða og illa sem fylgir hundgömlu þrasi frá markhópnum. Eins og ungur Anakin segir: "Jibbí!!!"Efnisyfirlit:00:00 - Forleiksþríleikurinn06:57 - Samanburðarleikur15:12 - The Phantom Menace24:32 - Attack of the Clones36:10 - Prinsessuraunir46:28 - Sith happens01:01:05 - Jar Jar Binks01:13:15 - Hvor er betri?01:21:11 - "Af hverju" spurningar...
  • Toy Story (1995-2026) 22.06.2026 1t 53min
    Margir hafa mögulega gleymt því en heimurinn fór nánast á hliðina þegar fyrsta Leikfangasaga Pixar-stúdíósins var gefin út. Þetta var fyrsta tölvugerða teiknimyndin í fullri lengd þar sem sköpunarteymið lagði það að markmiði að gera hálfgerða 'anti-Disney mynd'. Sem betur fer stóðu gæðin undir vinsældunum, því seinna meir urðu Toy Story myndirnar enn vinsælli og að margra mati betri eftir því sem á leið.Til að ræða hæðir og umdeildu lægðir Toy Story seríunnar fengu Kjartan og Tommi hina massakláru og ávallt skemmtilegu Siggu Clausen til að róta aðeins með þeim í dótakassanum. Allar fimm myndir syrpunnar eru ræddar (að ógleymdum stuttmyndunum) og jafnframt ólíkar tengingar hvers og eins í stúdíóinu við ævintýri Vidda, Bósa, Dísu og félaga. Þetta þýðir bara eitt; það er kominn leiktími! Efnisyfirlit00:00 - ”Marvel Rouge"09:12 - Toy Story38:10 - Toy Story 251:28 - Toy Story 301:07:53 - Toy Story 401:15:43 - Toy Story Toons01:22:16 - Toy Story 5
  • Topp 10: Elín Ósk 21.06.2026 1t 19min
    Hversu oft hefur þú séð The Mummy frá 1999? Hvað með Titanic? Léstu nokkuð Little Women frá 2019 fram hjá þér fara? Hefurðu kynnt þér leikstjóraútgáfuna af Midsommar? Eða júmbóútgáfuna af Kill Bill?Þessar kvikmyndir og fleiri eru allar í miklu uppáhaldi hjá topplistagesti Bíófíkla að sinni, en það er Elín Ósk Jóhannsdóttir sem hefur verið áberandi með innslög sín á TikTok síðustu misseri. Elín er svo sannarlega sjónvarps- og bíófíkill og þar af leiðandi meira en velkomin við gestamækinn í Podcaststöðinni. Hún leiðir Kjartan og Tomma í gegnum úttekt sína á titlum sem hafa verið í gríðarlegum metum hjá henni.Fjölbreytnin er borðliggjandi og við fögnum að sjálfsögðu fjölbreytileikanum. Elín fær orðið, og sviðið.Efnisyfirlit:00:00 - Elín Ósk á TikTok08:49 - Pride and Prejudice 13:30 - Titanic23:32 - The Dark Knight30:54 - Tangled34:06 - Arrival37:32 - The Mummy45:32 - Midsommar53:24 - American Psycho 01:01:38 - Little Women01:10:09 - Kill Bill (vol. 1...)
  • Spurt og spilað: Stóra MCU prófið 18.06.2026 1t 6min
    Nú skal kanna þekkingu tveggja ólíkra bíófíkla á sarpinum úr hinu svonefnda Marvel Cinematic Universe. Kveikiþráðurinn að þessum spurningaleik kom þegar Kjartan skoraði á Dag Lárusson, sjálfskipaðan MCU sérfræðing, og þá ákvað Tommi að hlaða í eitt heljarinnar próf, ef svo má kalla það, með dómnefndaraðstoð frá Atla Frey. Kjartan og Dagur Lár settu sér í stellingar þar sem heili og hugvit þeirra beggja var grillað með alls konar spurningum um einn vinsælasta kvikmyndaheim síðari ára, enda vægast sagt úr nægu að taka. Aðeins einn getur komið út úr þessu sem sigurvegari og þá með betri innistæðu fyrir því að sverja sig í hóp helstu MCU-sérfræðinga landsins. Haldið ykkur fast, hér er það Dagur Lár vs. Kjartan...Efnisyfirlit:00:00 - TikTok og áskorun06:02 - Hvor svarar fyrst? - MCU sagan16:21 - Einn í einu - Staðreyndir32:41 - Kvikmyndagerð og leikarar44:52 - MCU þættir56:03 - Niðurstaða og Doomsday
  • Disclosure Day (2026) 15.06.2026 1t 46min
    Steven Spielberg og geimverur. Er það ekki býsna sígild og (oftast) skotheld blanda? Er einn þekktasti leikstjóri okkar kynslóða kannski farinn að reiða eingöngu á gömul trix eða er nóg eftir í tankinum?Til að viðra þessi svör og almennt skoðanir á mysteríunni Disclosure Day hafa Kjartan og Tommi snúið aftur bökum saman við þau Ragnar og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn.Að þessu sinni eru bíófíklar ekki staddir í Podcaststöðinni við þessar upptökur, heldur í sérstöku ‘gettó stúdíói’ Video rekkans. Um er að ræða svokallaðan collab-þátt þar sem nóg af gúrme umræðum eru á boðstólnum ásamt einkennilega fríkuðum haug af skemmtilegum útúrdúrum.Og að sjálfsögðu afhjúpunum - á persónulegri nótunum.Veisla þessi hefst með einum litlum Play-takka!Efnisyfirlit:00:00 - Afhjúpanir við borðið07:04 - Raunveruleikasjónvarpsflipp20:44 - Rant um útileigur31:37 - Bíósalir landsins40:29 - Obsession-pælingar56:46 - Stebbi Spilaborg01:01:42 - D-Day, án spilla01:16:48 - "Spoiler-tími!"01:35:02 - Stóra afhjúpunin

Suosittu maassa

Tämä podcast esiintyy myös näiden maiden podcast-listoilla.