Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

Ghost Network®
Pays Islande
Genres News
Langue IS
Épisodes 101
Dernier 01.06.2026

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

Épisodes

  • 101. Ufo og alien disclosure - Hvað er verið að plana? 01.06.2026 9min
    Undanfarið hefur umræðan um UFO og opinbera birtingu og allskonar upplýsingar um geimverur aukist til muna, en á bak við tjöldin gæti verið að krauma dularfullt plan djúpríkisins og eru uppljóstrarar að segja að árið 2027 mun þetta "plan" koma upp á yfirborðið og þá hefst í raun leiksýningin.Það hefur verið talað um að djúpríkið sé búið að vera hægt og rólega að setja upp sviðsmynd og planta fræum í okkur "venjulega fólkið" og nú árið 2027 muni koma „innrás“ úr geimnum. Um er að ræða mögulega manngerða aðgerð þar sem valdamiklir aðilar nýta leynilega tækni (mögulega frá geimverum) til þess að sviðsetja alheimsógn úr geimnum.Markmiðið? Að skapa samfélagslegan ótta, sameina þjóðir undir eina stjórn og herða eftirlit með almenningi. Í þessum þætti skoðum við þetta og spyrjum okkur hvort árið 2027 verði stærsta tæknibrella sögunnar eða blákaldur veruleiki?Komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 100. Andleg árás – Spiritual Attack 27.05.2026 1h 14min
    Andleg árás kemur fyrir flesta hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Það er mikilvægt að þekkja merkin og ná að breyta þessari neiðkvæðu orku áður en það nær tökum á þér.Þegar fólk byrjar að vakna andlega, styrkja innsæið sitt og tengjast hærri orku er oft sagt að það geti orðið næmara fyrir neikvæðum áhrifum sem reyna að skapa ótta, efa og orkuleysi.Andleg árás getur byrjað sem neikvæðar hugsanir, sjálfsefi, kvíði eða tilfinning eins og allt fari á versta veg. Sumir upplifa martraðir, orkuleisi eða að þeir missi tengingu við eigin kraft og ljós. Í andlegum kenningum er talað um að markmiðið sé að halda manneskju fasti í lágri tíðni svo hún nái ekki að vaxa andlega eða sjá eigin styrk.Margir trúa því að því meira ljós sem einstaklingur ber í sér, því meiri andleg átök geti hann upplifað. Þess vegna leggja margir áherslu á að vernda orkuna sína með hugleiðslu, bænum, orkubreinsun og því að forðast neikvæð áhrif. Einnig er talað um mikilvægi þess að hlusta á innsæið sitt og styrkja tenginguna við sjálfan sig og jákvæða orku.Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? Komdu í áksrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
  • 99. Fyrrilífs upplifun Dagný 25.05.2026 11min
    Í þessum þætti segir Dagný okkur frá sinni mögnuðu lífsreynslu eftir fyrrilífs dáleiðslu og heilun hjá hinni mögnuðu Vigdísi. Það er ótrúlegt að heyra það sem hún upplifði í þessum tíma og hvað það hjálpaði henni mikið!Selma horfði á og ekki er það sýðri upplifun að vera vitni af svona fyrrilífs dáleiðslu og heilun. Það er magnað hvað sálin man og getur tekið með sér allskonar úr fyrrilífum inn í þetta líf sem við lifum núna og oft erum við að burðast með hluti sem við getum losnað við.Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 98. Ufo sightings í Hafnarfirði 20.05.2026 57min
    Selma var í göngutúr í Hafnarfirði um helgina og varð hún og sunor hennar vitni að mjög undarlegum fljúgandi furðurhlut. Á himninum birtist hlutur sem hafði fyrst kassalaga form, en á nokkrum sekúntum áður en hún gat byrjað að taka upp video þá breytti þetta um form og varð hringur. Hreyfingar voru óvenjulegar og erfitt var að bera þær saman við hefðbundnar flugvélar, þyrlur eða dróna. Á köflum leit út fyrir að hluturinn afmyndaðist eða flökti, eins og hann væri ekki með fasta lögun.Í fyrstu var hún alveg viss um að þetta væri bara gasblaðra eða ruslapoki, en heilinn á okkur á það til að reyna að finna rökrétta útskýringu og efast um það sem maður er að sjá.Hvað sem þetta var á himninum þá var þetta fljúgandi furðuhlutur, mögulega ufo eða bara eitthvað sem á sér eðlilega skýringu eins og ruslapoki eða blaðra. En ef þið skoðið videoið og myndirnar þá hafa nákvæmlega svona furðuhlutir verið að birtast út um allan heim! Hvað haldið þið að þetta geti verið?Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
  • 97. Andleg vegferð er allskonar 18.05.2026 10min
    Andleg vegferð er eitthvað sem flestir fara í gegnum á einn eða annan hátt, jafnvel þó fólk noti mismunandi orð yfir hana. Fyrir suma tengist hún trú, fyrir aðra sjálfsþekkingu, tilfinningum, lífsreynslu eða tengingu við hinn andlega heim. Andleg vegferð snýst í grunnin um að læra að skilja sjálfan sig betur og hjálpa við að finna innri frið.Oft halda margir að andlegt fólk þurfi að vera í hörklæðnaði, sitja í hugleiðslu allan daginn eða vera eins og jóga gúrú eða munkur. En andleiki snýst ekki um útlit eða ákveðinn lífsstíl. Maður þarf ekki að fylgja einhverri sérstakri ímynd til að teljast andlegur. Andlegur einstaklingur getur alveg verið venjuleg manneskja sem vinnur venjulega vinnu, hlustar á tónlist, hittir vini sína og lifir sínu daglega lífi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 96. Vadíkanið 13.05.2026 1h 2min
    Vatíkanið hefur lengi verið eitt dularfyllsta og áhrifamesta ríki heims, bæði vegna trúarlegs valds og sögulegrar arfleifðar. Sem miðstöð Rómversk-kaþólska kirkjan gegnir það lykilhlutverki í lífi milljóna manna, en jafnframt hefur það verið uppspretta fjölmargra samsæriskenninga og sögusagna í gegnum tíðina.Ein þekktasta kenningin snýr að leyniskjölum sem eiga að vera geymd í Vatíkanleyndarsafnið. Þar er talið að finna skjöl sem kirkjan vill ekki að almenningur sjái, til dæmis um raunverulegan uppruna kristni, mögulegar tengingar við utanjarðarlíf eða jafnvel sönnunargögn sem gætu kollvarpað hefðbundnum trúarkenningum. Þó safnið sé raunverulega til og innihaldi mikilvæg söguleg gögn, er aðgangur mjög takmarkaður, sem hefur ýtt undir vangaveltur og grunsemdir.Sumir halda því fram að Vatíkanið búi yfir leyndum þekkingum eða gripum sem tengjast yfirnáttúrulegum fyrirbærum. Þar má nefna sögur um „tímavél“ sem kallast Chronovisor, tæki sem á að geta sýnt atburði úr fortíðinni.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift
  • 95. Innsæið 11.05.2026 8min
    Innsæi er oft eitthvað sem við upplifum sem svona „innri tilfinningu“ eins og lítil rödd eða gut feeling sem segir okkur hvað sé rétt eða rangt, jafnvel áður en við höfum hugsað málið almennilega í gegn. Sumir líta á innsæi sem eins konar tengingu við eitthvað meira en bara okkur sjálf eins og við séum að „túna okkur inn“ á stærri orku eða vitund. Þá getur innsæið birst sem sterk tilfinning, hugboð eða jafnvel tilfinning fyrir því að vita eitthvað án þess að geta útskýrt af hverju.Fólk sem vill styrkja innsæið sitt reynir oft að hægja á sér, vera meira í núinu og hlusta betur inn á við, til dæmis með kyrrð eða hugleiðslu. Þá verður auðveldara að greina á milli þess hvað er bara hávaði og hvað er þessi rólega, innri tilfinning.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 94. Arthur Findlay collage - okkar reynsla 06.05.2026 1h 31min
    Við erum komnar heim frá Arthur Findlay og erum ekekrt smá ánægðar með þessa geggjuðu ferð! Við lærðum svo mikið og höfum tekið rosalegan vaxtarkipp í andlega heiminum. Þetta var ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi og lærdómsríkt.Við förum aðeins yfir þetta í þessum þætti, hvað við lærðum og hvernig okkur fannst skólinn og námið. Við vorum að læra trans heilun í 7 daga í geggjuðu umhverfi með yndislegu fólki. Við mælum með að kíkja á þennan skóla!!! Við eigum pott þétt eftir að fara aftur mjög fljótlega enda verður fólk háð því að fara þangað, við vorum með þeim örfáu sem voru að fara í fyrsta skiptið.p.s. Þetta er alls ekki dýrt, 7 dagar í gistingu, námið og fullt fæði á um 140þús á mann (fyrir utan flug) https://www.arthurfindlaycollege.org/Komdu og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
  • 93. Samsæriskenningar um Tunglið 04.05.2026 10min
    Samsæriskenningar um tunglið eru ansi margar. Sumir halda að tunglið sé ekki náttúrulegt heldur gervihnöttur eða jafnvel geimstöð sem fylgist með jörðinni og jafnvel stýri henni að hluta til. Aðrar kenningar eins og það að tunglið sé mögulega holt að innan eða innihaldi mannvirki sem hafi áhrif á jörðina og mannkynið og að leyndarmál séu falin á tunglinu eins og byggingar eða geimverur.Ein frægasta samsæriskenningin um Tunglið er að lendingin í Apollo 11 Moon Landing hafi verið sviðsett og að tunglferðir manna hafi aldrei átt sér stað og þessar ferðir hafa allar verið sviðsettar. Talsmenn þessarar kenningar benda á meintar „ósamræmi“ í myndum og myndböndum.Okkur finnst mjög skemmtilegt að velta þessum kenningum fyrir okkur og leifa ýmyndunaraflinu að taka okkur; "út fyrir endamörk alheimsins"!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 92. Geimfréttir með Gunnari Dan 29.04.2026 1h 25min
    Við fengum að vita það allra nýjasta og heitasta slúðrið úr geimfréttum með Gunnari Dan. Það er svo mikið að gerast í þessum málaflokk að það er eiginlega bara vandræðanlegt!En við ræddum m.a. um dularfullu morðin og mannshvörfin á vísindamönnunum sem flestir hafa tekið eftir í fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði. Við snertum aðeins á samsæriskenningum um Epstein skjölin og Covid sem komið er á yfirborðið og margt margt fleira.Það er alltaf gaman að hitta Gunnar og fræðast um geimfréttir!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
  • 91. Heilun - Trans heilun 27.04.2026 10min
    Heilun snýst um að endurheimta þetta jafnvægi. Með því að vinna með orku og ásetning er markmiðið að styðja við náttúrulega getu líkamans til að stilla sig af. Aðferðir eins og Reiki, Englareiki, kristallaheilun og transheilun nálgast þetta á mismunandi hátt, en eiga það sameiginlegt að leitast við að róa taugakerfið, hreinsa orkuflæði og efla innri frið. Heilun þykir okkur magnað tól sem hjálpar okkur að ná ró og létta á orkulíkamanum, losa um orkustíflur og bæta flæðið og þá líður okkur betur.Í transheilun er lögð áhersla á að fara í djúpt meðvitundarástand þar sem heilari stillir sig á tíðni og verður jarðsamband fyrir ljósverur og "lækna að handan". Unnið er með skýrum ásetningi um að fá heilun sem hentar fyrir þyggjandann á þessum tímapunkti og ávallt er unnið með orku eða ljósverum sem eru tengdar hæðstu tíðni, hinum æðsta kærleika og vinnum með ljósinu.Sá sem er að heila er ekki heilarinn, heldur einungis millistykkið. Við tengjum okkur eins og útvarpsrás á ákveðna tíðni og gefum ljósverum aðgang að því að nota okkar líkama og orku til að koma heilun í gegn á þann sem á að taka við heiluninni. Þetta hljómar skrítið, en flestir hafa eflaust heyrt um "læknamiðla" en þetta er það sama nema við köllum þetta trans heilun, við ábyrgjumst aldrei lækningu og hvetjum fólk að leita til alvöru læknis ef það er eitthvað vandamál, en trans heilunin og þeir læknar að handan sem koma að heiluninni geta gert ansi mikið og margt, stundum kraftaverki líkast, en allt er orka, þeir jafna út orku og vinna með orkuflæði líkamans og oft á tíðum ef það hefur fest mikil neikvæð orka inn í líkamanum okkar þá getur það valdið sjúkdómum. Orkuvinna er því mjög mikilvæg til að halda öllu kerfinu í jafnvægi.Markmiðið er ekki að „laga“ eitthvað, heldur að styðja líkamann og orkukerfið við að finna sitt eigið náttúrulega jafnvægi.Taka skal fram að ALLIR hafa þennan hæfileika að geta heilað, þú getur heilað sjálfan þig. Það er ekkert eitt rétt og rangt í þessu, allt snýst þetta um ásetning, kraft og mátt hugans og orkuflæðið í líkamanum. Við getum læknað ansi margt í líkamanum okkar einungis með því að breyta hugsunum! Pælum aðeins í því!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 90. Búálfar 22.04.2026 58min
    Búálfar eru ekki aðeins hluti af íslenskri þjóðtrú, heldur finnast svipaðar verur í sögum og menningu víða um heim. Þó að nöfnin og smáatriðin breytist milli landa, eiga þessar verur oft margt sameiginlegt.Á Norðurlöndum eru álfar og huldufólk talin búa í steinum, hólum og fjöllum. Þeir eru oft líkir mönnum í útliti en lifa aðskildu lífi og fylgja eigin reglum. Í keltneskri þjóðtrú, til dæmis á Írlandi og í Skotlandi, finnast verur sem kallast „fairies“.Í Þýskalandi og öðrum hlutum Mið-Evrópu eru til sögur af smáum verum sem líkjast búálfum og búa á heimilum fólks. Þær hjálpa stundum til við heimilisstörf á nóttunni, en aðeins ef þeim er sýnd virðing. Ef þær eru móðgaðar geta þær hins vegar valdið usla. Svipaðar hugmyndir má finna á fleiri stöðum út um allan heim, þar sem „domovoi“ eru heimilisandar sem vernda hús og fjölskyldur.Þessar sögur sýna að hugmyndin um hulduverur er nær alþjóðleg. Búálfar og skyldar verur endurspegla oft tengsl mannsins við náttúruna, óttann við hið óþekkta og löngunina til að útskýra það sem ekki er auðvelt að skilja. Hvort sem fólk trúir á þær eða ekki, lifa þessar verur áfram í menningu, sögum og ímyndunarafli fólks um allan heim.Komdu í áskrift á:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
  • 89. Appalachia fjöllin 20.04.2026 55min
    Appalachia fjöllin eru ein af elstu fjallakeðjum heims og hafa ríka sögu bæði jarðfræðilega og menningarlega. Fjöllin eru þekkt fyrir fallegt landslag, stóra skóga og fjölbreytt lífríki sem hefur varðveist í þúsundir ára.Hið dularfulla við Appalachia er margþætt. Fyrst ber að nefna náttúruna sjálfa. Þykku skógarnir, dimma dali sem skapa ævintýralega stemningu. Þar hafa fundist margir fornir hellar, falin vötn og ósnortin svæði sem minna á að menn eru aðeins gestir í þessari miklu náttúru. Þessar afskekktu byggðir hafa oft verið staðir goðsagna, þar sem sögur af huldufólki og fleiri dularfullum verum hafa lifað frá kynslóð til kynslóðar.En Appalachia er einnig staður þar sem yfirnáttúrulegir hlutir eiga sér stað. Þarna hafa orðið endalaus dularfull mannshvörf, skinwalkers, big foot, geimverur, mannætur, draugar, portals og í raun og veru allt sem þú getur ýmyndað þér er á þessu svæði!Þetta hefur gefið svæðinu orðspor sem eitt af „yfirnáttúrulegastu fjallasvæðum“ Bandaríkjanna.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
  • 88. Dark web 15.04.2026 45min
    The dark web er hluti af internetinu sem er ekki aðgengilegur með hefðbundnum vöfrum eins og Chrome eða Safari. Til að komast inn á það þarf sérstakan hugbúnað, til dæmis Tor, sem felur auðkenni notenda og gerir þeim kleift að vafra um nafnlaust.Dark web er þekkt fyrir ólöglega starfsemi. Þar má finna markaði fyrir fíkniefni, stolnar upplýsingar, fölsuð skilríki, morð, mannakjöt og allskonar ólöglega þjónustu. Vegna nafnleyndarinnar er erfitt fyrir yfirvöld að rekja notendur, sem gerir svæðið aðlaðandi fyrir glæpastarfsemi.Fólk fer á dark web af mjög mismunandi ástæðum og það er mikilvægt að skilja að ekki allir sem nota dark web hafa slæman ásetning. Fyrir suma snýst þetta um nafnleynd og frelsi eins og í löndum þar sem tjáningarfrelsi er takmarkað þá getur dark web verið eina leiðin til að nálgast upplýsingar, tala frjálst eða hafa samband við umheiminn án eftirlits. Blaðamenn og uppljóstrarar nota það stundum til að vernda heimildir sínar og sjálfa sig.Vertu hluti af yfirnttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
  • 87. Fyrrilífs dáleiðsla - upplifun! 13.04.2026 7min
    Eftir að við tókum viðtalið við hina mögnuðu Vigdísi þá fór Selma í fyrrilífs dáleiðslu til hennar um daginn og auðvitað kom Dagný með og fylgdist með.Þetta var vægast sagt MÖGNUÐ upplifun! Við förum yfir þetta allt í þessum þætti og Selma fer á persónulegu nóturnar og opnar sig upp á gátt. Þessi upplifun var svo áhrifarík og blandar Vigdís öflugri heilun saman við fyrrilífs dáleiðsluna og vinnur þannig með líkamanum, losar og heilar.
  • 86. Mandela effect 08.04.2026 58min
    Mandela Effect er eitt af þessum fyrirbærum sem fær mann til að efast um sjálfa raunveruleikann. Hugtakið er kennt við Nelson Mandela, því margir muna eftir því að hann hafi dáið í fangelsi á níunda áratugnum, þó að hann hafi í raun lifað lengi eftir það. Þetta er ekki bara einföld minnisvilla hjá einum einstaklingi, heldur eitthvað sem virðist tengja saman heila hópa fólks sem deila sömu „röngu“ minningunni.En hvað ef þetta er ekki bara mistök í heilanum? Hvað ef þetta er eitthvað meira?Í yfirnáttúrulegri umræðu er Mandela Effect oft túlkað sem merki um að raunveruleikinn sé ekki eins stöðugur og við höldum. Sumir telja að við séum að upplifa skörun á milli mismunandi tímalína eða jafnvel parallel heima. Í slíkri hugmynd gæti eitthvað hafa breyst, lítil smáatriði eins og nöfn, setningar eða útlit hluta og við sem höfum einhvern veginn „minningar“ úr annarri útgáfu af veruleikanum tökum eftir því.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
  • 85. Arthur Findlay "nornaskóli" 06.04.2026 5min
    Við erum svo spenntar að segja ykkur frá því að núna 10. apríl erum við á leiðinni til Arthur Findlay collage að læra trans heilun!Í þessum þætti ræðum við um þennan spiritual skóla og söguna á bak við hann. Við komum svo fullar af fróðleik tilbaka og hlökkum til að segja ykkur allt af létta frá okkar upplifunum, hvað við lærðum og hvernig var í þessum magnaða skóla.komud í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 84. Mount Shasta - Yfirnáttúrulegt fjall 01.04.2026 54min
    Mount Shasta er fjall í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum sem hefur lengi verið talið eitt af dularfyllstu og andlegu stöðum heims. Fyrir marga er það ekki aðeins náttúruundur heldur einnig orkustaður þar sem tenging við andlega heima er sterkari en annars staðar. Fjallið hefur laðað að sér leitendur, hugleiðendur og andlega kennara sem telja að þar sé að finna sérstaka tíðni eða vitund sem hægt er að tengjast.Í kringum Mount Shasta hafa myndast margar sögur og trúarhugmyndir, og ein sú þekktasta tengist Lemúríu. Lemúría er talin vera fornt og háþróað samfélag eða heimsálfa sem átti að hafa sokkið í hafið fyrir þúsundum ára. Nú er sagt að Lemúríu búar hafi byggt sér neðanjarðar borg undir Mount Sjasta og búa saman í djúpri sátt við náttúruna og höfðu þróað með sér mikla andlega visku og hæfileika sem nútímamaðurinn hefur að mestu gleymt.Sagan segir að hluti af íbúum Lemúríu hafi sloppið undan eyðingu heimsálfunnar og fundið sér skjól undir Mount Shasta. Þar eigi þeir að hafa byggt upp falda borg, oft kölluð Telos, þar sem þeir lifa enn í dag á hærra meðvitundarstigi. Þeir eru sagðir vera friðsælir, upplýstir og vinna að því að hjálpa mannkyninu að þróast andlega, þó þeir birtist sjaldan beint.Fyrir þá sem trúa á þessar hugmyndir er Mount Shasta eins konar hlið milli heima staður þar sem efnislegi og andlegi veruleikinn mætast. Margir sem heimsækja fjallið segja frá sterkum upplifunum, eins og auknu innsæi, djúpri ró eða tilfinningu fyrir tengingu við eitthvað stærra en sjálfa sig. Aðrir líta á þetta sem táknrænar sögur sem endurspegla þrá mannsins eftir uppruna, tilgangi og andlegri vakningu.Hvort sem litið er á Lemúríu sem sögulega staðreynd, goðsögn eða andlega myndlíkingu, þá hefur þessi saga haft djúp áhrif á nútíma andlega menningu. Hún minnir á möguleikann á öðrum leiðum til að lifa í meiri samhljómi við náttúruna, hvort annað og eigin innri visku.Þetta magnaða fjall er einnig einn helsti UFO hot spot í Bandaríkjunum. Geimskip hafa sést koma inn og út úr fjallinu.Komdu í áskrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
  • 83. Vigdís Steinþórsdóttir - seinni hluti (fyrrilífs dáleiðsla) 30.03.2026 11min
    Við höldum áfram að ræða við hana mögnuðu Vigdísi um fyrrilífs dáleiðslur og hvernir karma og fyrrilífin hafa áhrif á okkur í þessu lífi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
  • 82. Vigdís Steinþórsdóttir - Fyrrilífs dáleiðari, heilari og hjúkrunarfræðingur. 25.03.2026 1h 29min
    Gestur dagsins er engin önnur en Vigdís Steinþórsdóttir. En þessi magnaða kona er hjúkrunarfræðingur, heilari, fyrralífs dáleiðari og hreint út sagt alveg mögnuð kona.Vigdís er hokin af reynslu, alger norn af náttúrunnar hendi, ótrúlega næm og mikil ljósvera.Hún heldur kærleiksdaga út um allt land sem er nærandi samvera fyrir líkama og sál.Einnig er hún með Heimsljós messuna og Heilunar guðþjónustur.Þetta er fyrrihlutinn af tveimur þáttur með henni Vigdísi.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

Populaire dans

Ce podcast figure aussi dans les classements de podcasts de ces pays.