433.is
433.is
0
Hlaðvarpsveita 433.is er íslenskur podcast sem fjallar um ýmis efni tengd Íslandi. Þættirnir eru á íslensku og koma frá vefsíðunni 433.is.
Épisodes
-
Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season 05.06.2026 1hHelgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna á föstudögum yfir sumartímann. Sara Björk farin í Hauka, FH gæti farið á gervigras, Freyr Alexandersson látinn fara, félagaskiptafréttir og miklu fleira.
-
Íþróttavikan: Viðar Örn fer yfir sviðið 29.05.2026 50minViðar Örn Kjartansson er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Viðar sneri heim á Selfoss í vetur og tekur slaginn með liðinu í 2. deild í sumar. Hann ræðir þessa endurkomu, kaflaskiptan tíma með KA og kemur inn á sína persónulegu baráttu utan vallar í þættinum, svo fá dæmi séu tekin.ComposeWrite to Helgi Fannar Sigurðsson
-
Íþróttavikan: Bjössi Þorfinns og Tommi Steindórs - Gleði í Grindavík og norðurhluta Lundúna 22.05.2026 1hÍþróttavikan er í boði Lengjunnar!Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður, skákmeistari og Arsenal-maður, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars í Íþróttavikuna.Það er að sjálfsögðu rætt um hina nýkrýndu Englandsmeistara, Arsenal. Félagið og stuðningsmenn hafa beðið í 22 ár frá síðasta titli og því hefur eðlilega verið fagnað dátt víða um heim.Lokaumferðin sem framundan er í ensku úrvalsdeildinni er sömuleiðis skoðuð og þá fær körfuboltinn gott pláss. Grindvíkingar hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum á dögunum.Þetta, Besta deildin og alls konar fréttir úr liðinni viku.
-
Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal 15.05.2026 56minHelgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna og skoða það sem framundan er. Landsliðshópur, Mjólkurbikarinn, enski boltinn og fleira til umræðu.
-
Íþróttavikan: Arnar Grétarsson 08.05.2026 1h 18minArnar Grétarsson, knattspyrnuþjálfari og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, er gestur Helga Fannars í þætti dagsins. Þeir ræða pólitíkina í fyrsta hluta þáttarins áður en farið er í fótboltann, þar sem Arnar ræðir til að mynda síðasta sumar sem þjálfari Fylkis og einnig Bestu deildina sem er í fullum gangi.
-
Íþróttavikan: Jói Skúli með Helga og Herði 29.04.2026 1h 12minJóhann Skúli Jónsson er gestur Helga Fannars í þættinum og Hörður Snævar er með honum einnig. Þeir félagar ræða Bestu deildina rækilega en fara einnig yfir aðrar íþróttir og kíkja út í heim.
-
Íþróttavikan: Leikirnir í Bestu gerðir upp og eru Skytturnar menn eða mýs? 24.04.2026 49minHelgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þriðju umferð Bestu deildar karla og rýna í helgina framundan á Englandi.
-
Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea 17.04.2026 43minGlódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Eins og flestir vita eru þær tvær af allra fremstu leikmönnum íslenska landsliðsins, sem mætir Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.
-
Íþróttavikan: Blikinn Kristján og Víkingurinn Tómas fyrir opnunarleikinn 09.04.2026 1hÞeir Kristján Óli Sigurðsson og Tómas Guðmundsson voru gestir Helga Fannars í þætti vikunnar.Þeir eru fyrrum leikmenn og stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings, sem mætast í opnunarleik Bestu deildarinnar á heimavelli síðarnefnda liðsins. Einnig er farið yfir stóru málin úr vikunni.
-
Íþróttavikan: Spáin fyrir Bestu deildina 01.04.2026 1h 13minÍþróttavikan kemur fyrr út í dymbilviku og er með aðeins breyttu sniði. Helgi Fannar og Hörður Snævar opinbera spá 433.is fyrir Bestu deild karla og ræða hvert lið fyrir sig.
-
Íþróttavikan: Adam Páls og Jónatan Ingi - Er umræðan um Val á villigötum? 27.03.2026 47minAdam Ægir Pálsson og Jónatan Ingi Jónsson, leikmenn Vals, eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.Þeir félagar ræða komandi tímabil, stöðuna á liðinu og margt fleira. Auk þess er auðvitað farið út í heim.
-
Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda 20.03.2026 1h 3minBenedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Þeir fara yfir fréttavikuna, ræða komandi fótboltasumar, enska boltann og miklu fleira til.
-
Íþróttavikan: Höskuldur Gunnlaugs og Ívar Örn 13.03.2026 1h 1minHöskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, eru gestir Helga Fannars í þættinum.
-
Íþróttavikan: Kjartan Atli og Nablinn fara yfir allt íþróttasviðið 06.03.2026 1h 17minKjartan Atli Kjartansson og Andri Már Eggertsson, Nablinn, eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Það er farið vítt og breytt um sviðið í þætti dagsins, þar sem fótbolti, handbolti og körfubolti koma við sögu.
-
Íþróttavikan: Staðan tekin með Bjössa Hreiðars og Jóa Má þegar 6 vikur eru í þá Bestu 27.02.2026 1h 27minSigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Það eru sléttar sex vikur í að Besta deild karla fari af stað og eftirvæntingin er orðin mikil.Deildin fær sviðið í þætti dagsins, þar sem staðan er tekin á öllum liðunum. Félagaskiptamarkaðurinn, undirbúningstímabil þeirra og miklu fleira er skoðað.Þátturinn er einnig í mynd inni á 433.is.
-
Íþróttavikan: Hiti á fréttamannafundi og skjálfti í Norður-London 20.02.2026 50minHelgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þétta fréttaviku, ræða boltann út í heimi og miklu meira.
-
Íþróttavikan: Daníel Hafsteinsson - Landslið og Víkingur 13.02.2026 42minDaníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, er gestur Helga Fannars í þætti vikunnar.Daníel er í hópi íslenska landsliðsins sem mætir Mexíkó síðar í mánuðinum og eru þau mál rædd í þættinum, auk síðasta tímabils, þess sem framundan er og auðvitað miklu fleira.
-
Íþróttavikan: Hjálmar Örn og Helgi Jean (Hæhæ) 06.02.2026 1h 2minHjálmar Örn og Helgi Jean, sem halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi HæHæ, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.
-
Íþróttavikan: Ísland í undanúrslitum og augu heimsins eru á Framaranum unga 29.01.2026 1h 9minÞorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars í þættinum.Ísland er komið í undanúrslit á EM karla í handbolta og fær handboltinn sviðið í fyrri hluta þáttar, áður en fótboltinn tekur við.
-
Íþróttavikan: Gummi Tóta gerir upp viðburðaríkan atvinnumannaferil og ræðir komandi tíma uppi á Skaga 23.01.2026 1h 29minGuðmundur Þórarinsson, nýjasti leikmaður ÍA, á sviðið í þætti vikunnar.Guðmundur ræðir skref sitt upp á Akranes og sumarið framundan og fer ítarlega yfir atvinnumannaferilinn, þar sem kappinn upplifði ýmislegt í fjölmörgum löndum.
Populaire dans
Ce podcast figure aussi dans les classements de podcasts de ces pays.