Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um.

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um.

Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag
Pays Islande
Genres Éducation
Langue IS
Épisodes 8
Dernier 14.07.2026

Týndu Strákarnir er hlaðvarp sem fjallar um börn sem kerfið nær ekki utan um. Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag, í umsjón Steindórs Þórarinssonar og Jóns K. Í þættinum er rætt við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur, fagfólk og stundum fólk í ábyrgðarstöðum. Markmiðið er að leita að skýrum dæmum, samhengi og ábyrgð, ekki hávaða. Milli þátta er Nonni á gólfinu og Steindór að fara yfir gögn og halda umræðunni á lofti.

Épisodes

  • Sería 2 Þáttur #2: Móðir, barn og kerfi án svara 14.07.2026 1h 6min
    Ingibjörg Einarsdóttir kemur í Týndu Strákana og segir frá syni sínum, baráttu fjölskyldunnar við kerfið og ákvörðuninni um að leita meðferðar í Suður Afríku eftir að íslensk úrræði dugðu ekki.Í þættinum ræðum við reynslu foreldris sem þurfti að berjast fyrir hjálp, skort á sérhæfðum úrræðum, spurningar um gagnreyndar aðferðir Barna og fjölskyldusstsofu og það sem Ingibjörg lýsir sem óheiðarlegum vinnubrögðum í kerfi sem á að vernda börn í bráðum vanda.Við förum einnig inn á Stuðla, brunann þar sem Geir Örn Jacobsen lést, ábyrgð, eftirlit og alvarlegar frásagnir um öryggi barna í vistun. Þar tengist saga Ingibjargar sögu Jóns K. Jacobsen, föður Geirs Arnar. Þau koma að umræðunni frá ólíkum stöðum, en snerta sama kjarna: börn í lífshættu, foreldra sem treysta á kerfið og spurninguna um hvað gerist þegar það kerfi bregst.Í þættinum kemur einnig fram að Týndu Strákarnir hafa óskað eftir gögnum frá Barna og Fjölskyldustofu um verklag, gæðaviðmið, gagnreyndar aðferðir, árangursmat, frávik, kvartanir, úttektir og ábyrgð.Þetta er ekki þáttur um orðróm. Þetta er þáttur um reynslu, gögn og ábyrgð.
  • Sería 2 #1 Þáttur - Það er auðvelt að tala um börnin fyrst. 26.06.2026 1h 6min
    Týndu Strákarnir eru mættir aftur. Beittari, ákveðnari og með minni þolinmæði fyrir fallegum orðum sem breyta engu.Í fyrsta þætti Seríu 2 fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jackopssen yfir stöðuna eftir stutt hlé, hvað hefur gerst síðustu vikur og hvert verkefnið stefnir næst. Rætt er um börn með fjölþættan vanda, barnavernd, fósturheimili, Lækjarbakka, Týndu börnin, samfélagsmiðla, slæmar fyrirmyndir og þann þröskuld sem virðist aftur og aftur rísa þegar börn, foreldrar og fagfólk þurfa skýr svör.Við förum líka yfir samskipti við ráðuneytið, boð okkar til barna og fjölskylduráðherra um að koma í þáttinn, yfirlýsingar ráðherra og bilið sem getur myndast milli orða, áforma og raunverulegrar stöðu barna og fjölskyldna.Í þættinum er einnig rætt um unga konu sem segir frá alvarlegri reynslu af lyfjameðferð, sjálfsvígshugsunum og viðbrögðum læknis. Sú frásögn er sett fram sem reynsla einstaklings, ekki sem almenn niðurstaða um alla lækna eða allt heilbrigðiskerfið.Týndu Strákarnir gagnrýna kerfi, verklag, ábyrgð og afleiðingar. Ekki fólk til að skora stig. Markmiðið er ekki að öskra hæst, heldur að spyrja spurninga sem of lengi hafa verið skilin eftir ósvaraðar.Þátturinn var tekinn upp 24. júní 2026Nánari upplýsingar um þáttinn, siðareglur verkefnisins, hlekki á miðla og stuðningsvörur eru á:https://tyndustrakarnir.isTýndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is.
  • Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson: Stelpur, kerfi og rými sem stendur tómt 25.04.2026 1h 3min
    Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum.Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna.Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veggjum sem erfitt er að útskýra með almennri skynsemi.Við þáttastjórnendur fórum á æfingu hjá Aþenu og ræddum þar við móður einnar stúlku. Hún lýsti starfinu sem einstöku og sagði það í raun hafa bjargað dóttur sinni. Það samtal situr eftir og setur umræðuna í skýrt samhengi. Hér er ekki verið að tala um hugmynd á blaði. Hér er verið að tala um börn, traust, öryggi og starf sem skiptir raunverulegu máli.Brynjar segir meðal annars frá sláandi atviki þar sem matur sem félagið ætlaði að gefa stelpum hafi verið skemmdur. Hann lýsir líka hvernig rými sem gæti nýst til að skapa samfélag, styrk og skjól fyrir ungar stelpur standi tómt í stað þess að vera nýtt.Við ræðum einnig okkar eigin samskipti við stjórnvöld og stofnanir. Það vekur spurningar þegar mál sem varða börn, úrræði, ábyrgð og kerfisbresti mæta þögn eða undanbrögðum. Hvorki heilbrigðisráðherra né mennta og barnamálaráðherra hafa svarað boði okkar um að koma í þáttinn.Barna og fjölskyldustofa hafnaði einnig þátttöku og vísaði til þess að stofnunin geti ekki tjáð sig um einstök mál eða málefni skjólstæðinga. Við skiljum að stofnunin sé bundin trúnaði í einstökum málum. En þegar alvarlegar frásagnir, gögn og endurtekin mynstur birtast aftur og aftur, þá er ekki nóg að vísa allri umræðu frá sér. Kerfið þarf að geta rætt ábyrgð, verklag og almennar brotalamir án þess að fela sig á bak við þagnarskyldu.Þessi þáttur er um íþróttir, börn, vald, kerfi og fólk sem syndir á móti straumnum þegar straumurinn liggur í ranga átt.Þátturinn er jafnframt fyrsti þáttur Týndu Strákanna sem kemur út í mynd og á YouTube og Spotify.Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is í samstarfi við Raddir hlaðvarpsupptökuver.
  • Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka 16.04.2026 53min
    Í þætti #5 af Týndu Strákunum ræðum við við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu.Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri.Í dag helgar Kristján líf sitt því að hjálpa öðrum mönnum að snúa við blaðinu og vinnur meðal annars með Tolla að því að ná til þeirra sem eru enn fastir í sama vítahring.Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar.Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369
  • Þáttur #4 Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást 10.04.2026 58min
    Þáttur #4 af Týndu Strákunum fjallar um það sem gerist þegar barn biður um hjálp en fær í staðinn þögn, fordóma, lyf og kerfi sem virðist hvorki hlusta né grípa. Við ræðum við ungan mann sem hefur verið eitt af týndu börnunum, er nú kominn yfir 18 ára aldur og fastur á milli kerfa sem eiga að taka við, en skilja fólk of oft eftir á jaðrinum.Í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að vera í umhverfi þar sem ekki var raunverulega talað við börnin, þar sem hjálparbeiðnir fengu ekki alltaf það samtal, traust og stuðning sem þyrfti að fylgja. Í stað þess að mæta vanda af alvöru segir hann frá kerfi sem of oft svarar með lyfjum, viðbrögðum og fjarlægð, en nær ekki utan um manneskjuna sjálfa.Hann ræðir einnig gaslýsingu, fordóma og það hvernig börn og ungmenni geta upplifað að enginn sé í raun að hlusta, þótt allir tali eins og þeir séu að hjálpa. Eitt af því sláandi sem kemur fram í frásögn hans er að auðvelt hafi verið að nálgast eiturlyf inni á Stuðlum, á sama tíma og raunverulegur stuðningur og meðferð virtist skorta.Þetta er þungur og hreinskilinn þáttur um það hvernig kerfið getur brugðist þeim sem mest þurfa á því að halda. Um börn sem kalla eftir hjálp, en mæta veggjum. Um ungmenni sem þurfa stuðning, en fá of oft stimpla, fjarlægð og úrræði sem duga ekki. Og um það hvað gerist þegar enginn virðist hlusta fyrr en allt er komið of langt.Þetta er þáttur um afleiðingarnar þegar kerfið sem á að verja börn bregst þeim.Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369
  • Þáttur #3 Þáttur Rósa Ólöf Ólafíudótir - Systir Lalla Johns um kerfið, skýrslurnar og skaðann 02.04.2026 53min
    Í þriðja þætti Týndu Strákanna ræðum við við Rósu Ólöfu Ólafíudóttur, systur Lalla Johns, um bókina sem hún hefur skrifað um bróður sinn, tengsl þeirra systkina og sögu sem varpar hörðu ljósi á kerfi sem brást ekki aðeins honum heldur líka aðstandendum hans.Í þættinum förum við yfir sláandi gögn og skýrslur um Lalla John, þar sem orðalag, mat og framsetning bera með sér fordóma, gaslýsingu og valdbeitingu sem skildu eftir djúp sár. Rósa lýsir því hvernig það var að fá þessi gögn í hendurnar og hvað þau segja í raun um kerfi sem afgreiddi fólk í stað þess að styðja það.Við ræðum líka viðbrögðin þegar umræðan um Breiðavík fór af stað, reynslu Rósu úr skólakerfinu og þá erfiðu niðurstöðu að mynstur fortíðarinnar séu enn sýnileg í dag. Þátturinn snýst um meira en eina fjölskyldu. Hann snýst um hvernig kerfið bregst börnum, ungmennum og aðstandendum þeirra og hvað gerist þegar fordómar fá að stýra í stað mannúðar og ábyrgðar.Þetta er þáttur um Lalla John, bókina, sárin sem lifa áfram og kerfi sem virðist enn ekki hafa lært.Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369
  • Þáttur #2 Sævar Hlynur Jónsson - Skólakerfið, fíkn og heimilisleysi 25.03.2026 46min
    Í þessum þætti segir Sævar Hlynur Jónsson frá því hvernig hann var dæmdur snemma af skólakerfinu sem vandræðaunglingur og hvernig sú stimplun ýtti honum síðar inn í neyslu, heimilisleysi og líf á ystu brún. Þetta er ekki bara saga um einn mann heldur líka um fjölskyldu sem brotnar með honum, foreldra sem standa úrvinda eftir og móður sem á einum stað í örvæntingu veltir því fyrir sér hvort best sé að leyfa syni sínum að fara. Sævar ræðir líka þá sláandi staðreynd að það var æskuvinkona sem á endanum bjargaði lífi hans.Þetta er ekki bara saga um einn mann. Þetta er saga um fjölskyldu sem brotnar með honum.Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369
  • AUKAÞÁTTUR: Bruninn á Stuðlum og stjórnkerfið 20.03.2026 1h
    Í þessum aukaþætti fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen beint í skýrslu HMS um brunann á Stuðlum 19. október 2024, sem birt var 18. mars 2026.Farið er í það sem stendur í skýrslunni, það sem hún varpar ljósi á, það sem enn vantar svör við og upplifun Jóns af kvöldinu sem breytti öllu.Þetta er ekki snyrt útgáfa. Ekki mýkt. Ekki þynnt. Í þættinum ræðum við ábyrgð, afleiðingar, spurningarnar sem enn standa eftir og spillingu í stjórnkerfinu.Samhliða þættinum birtist einnig pistill á Samson.is þar sem málið er rýnt út frá skýrslunni og því sem enn er óupplýst.Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369
  • Þáttur 1: Hvað við erum að gera 18.03.2026 45min
    Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is.Í fyrsta þætti ræða Steindór Þórarinsson aka ADHD pabbi og Jón K. Jacobsson, Nonni Lobo, um hvað þetta verkefni er, hvað er verið að gera í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bakvið tjöldin, og af hverju við leggjum svona mikla áherslu á skýr dæmi, samhengi og ábyrgð.Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri Páli, útvarpsmanni á K100, tekið upp í studioinu Raddir.Við greinum á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er enn óljóst. Ítarleg kynning og siðareglur eru á vefsvæði þáttarins:www.samson.is/tyndustrakarnirÞátturinn er á Spotify og YouTube. Fyrsti þáttur er hljóðþáttur, en frá og með þætti tvö verður þátturinn einnig í mynd.Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

Populaire dans

Ce podcast figure aussi dans les classements de podcasts de ces pays.