Tilveran

Tilveran

Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Ország USA
Műfajok Health & Fitness, Mental Health
Nyelv IS
Epizódok 30
Legutóbbi 27.05.2026

Þetta verður allt í góðu, við finnum út úr þessu saman!

Tilveran er hlaðvarp fyrir miðaldra konur í tilvistarkreppu! Sjálf hætti ég að skilja lífið fyrir nokkrum árum og í stað þess að ráða mér hreinlega aðstoðarmanneskju ákvað ég að taka völdin í mínar hendur og stofna hlaðvarp þar sem gæti rætt við einstaklinga sem ég lít upp til og búa yfir reynslu eða vitneskju sem ég veit að mun nýtast mér og okkur öllum.

Epizódok

  • „Ég ætla að opna mínar eigin sultukrukkur í framtíðinni“ 27.05.2026 1ó 11p
    Í þessum þætti fékk ég sálfræðinginn og heilsugúrúinn Röggu Nagla til þess að ræða við mig um hvað best væri að gera til þess að koma sér á beinu brautina í hreyfingu og næringu. Við ræddum einnig um stórborgarást hennar, æskuárin og ýmislegt fleira.
  • Hæ, Ási hérna! 20.05.2026 1ó 3p
    Í þessum þætti fékk ég Ása Guðna til þess að ræða við mig um allt sprellið, föðurhlutverkið, bróðurmissinn, ást sína á Vopnafirði og sjómennskuna sem togar hann alltaf aftur til sín. Þátturinn er í boði Venju.
  • Hugarheimur matarfíkils í leit að bata 13.05.2026 1ó 6p
    Í þessum þætti fékk ég Láru Kristínu Pedersen til þess að tala við mig um áralanga baráttu sína við matarfíkn og leið sína að bata. Þátturinn er í boði Venju.
  • Þekkir þú Endó og Adenó? 05.05.2026 54p
    Í þessum þætti fékk ég Karen Ösp Friðriksdóttur til þess að tala við mig um Endómetríósu, krónískan bólgu- og verkjasjúkdómu sem hefur áhrif á milljónir kvenna um allan heim. Þátturinn er í boði Venju og sjallforritsins Íslenskar krossgátur.
  • Þegar dauðastundin nálgast 29.04.2026 1ó 9p
    Í þessum þætti fékk ég Alexandreu Rán Syen, hjúkrunarnema á líknardeild, til þess að tala við mig um starf sitt og hvað það er sem gerist síðustu sólarhringana í lífi einstaklinga. Þátturinn er í boði Venju.
  • „Ég hefði átt að trúa eigin tilfinningum“ 22.04.2026 1ó 9p
    Í þessum þætti fékk ég listakonuna Helenu Reynis til þess að tala við mig um listamannalífið, hvaðan hún fær innblástur, hvernig hún kemur sér að verki þegar hún nennir því ekki, andlegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi fyrrum kærasta og nýlegum fósturmissi.Þátturinn er í boði Venju.
  • „Ætlar þú að vera fórnarlamb aðstæðna eða taka ábyrgð?“ 15.04.2026 1ó 3p
    Í þessum þætti fékk ég Ólöfu Helgu Pálsdóttur, körfuboltakonu og Grindvíking með meiru, til þess að ræða við mig um körfuboltaferilinn, brjóstakrabbameinið, skilnaðinn og hvernig það var að þurfa að yfirgefa sinni heimabæ eftir eldumbrot. Einnig ræddum við sjálfseflingu og mikilvægi þess að verða ekki fórnarlamb aðstæðna.
  • „Mikill léttir að fá Bipolar-greininguna “ 08.04.2026 1ó 1p
    Í þessum þætti fékk ég Anítu Ósk Georgsdóttur til þess að ræða við mig um Bipolar-greininguna og hvernig henni hefur tekist að fóta sig í lífinu á ný. Aníta Ósk heldur úti samfélagsmiðlinum Hennar heimur á Instagram og TikTok þar sem hún deilir sinni reynslu.
  • „Var alla tíð harðákveðin í því að lifa ekki A4 lífi“ 18.03.2026 1ó 28p
    Í þessum þætti fékk ég Ástu Hafþórsdóttur, leikgervahönnuð, til þess að ræða við mig um bransann hérlendis og erlendis, ævintýraþrána sem alltaf hefur blundað í henni og því þegar henni tókst að breyta kerfinu og verða fyrsta einstæða konan hérlendis til þess að gangast undir frjósemismeðferð.
  • „Mig langar að skilja eftir mig jákvæð fótspor“ 11.03.2026 1ó 13p
    Í þessum þætti fékk ég Ásthildi Ómaríudóttur, eiganda og framkvæmdastýru framleiðslufyrirtækisins Míósak Multimedia, til þess að ræða við mig um ADHD konur, útvíkkun þægindahringsins, jákvæð líkamsímynd, neikvæð áhrif áfengis, og mikilvægi þess að halda uppi jákvæðri orku.
  • „Stundum þurfum við að fá kennara inn í lífið til þess að sýna okkur hvar maður er ekki að standa með sér“ 04.03.2026 1ó 13p
    Í þessum þætti fékk ég Söru Barðdal, heilsumarkþjálfa og eiganda Sjálfsins heilsuseturs, til þess að tala um foreldramissinn, áfallaúrvinnsluna, óheilbrigð sambönd, heilsuferðalagið, tantra, lífsorkuna og hið magnaða meðferðarúrræði sem 9D öndunarferðalagið er.
  • „Meðvirkni verður að mestu öll til fyrir tíu ára aldur“ 25.02.2026 1ó 15p
    Í þessum þætti fékk ég Valdimar Þór Svavarsson, eiganda ráðgjafaþjónustunnar Fyrsta skrefið, til þess að ræða við mig um hinar margslungnu hliðar meðvirkni. Valdimar heldur einnig úti hinu vinsæla hlaðvarpi Meðvirknipodcastið.
  • „Ekki láta óttann við það óþekkta stoppa þig“ 18.02.2026 1ó 17p
    Í þessum þætti fékk ég Bjargeyju Ingólfsdóttur, Yin Yoga kennara og fararstjóra, til þess að tala við mig um þriðju vaktina, hugræna byrði, heilsubrestinn, tækifæri breytingaskeiðsins, nýtt upphaf, tvíkynhneigð og hinn óútreiknanlega íslenska deitmarkað.
  • „Systir mín var myrt“ 11.02.2026 1ó 6p
    Í þessum þætti fékk ég Ragnheiði M Kristjónsdóttur, markaðs- og kynningarstjóra, til þess að tala við mig um morðið á Áslaugu Perlu systur hennar, foreldramissinn, dauðahræðsluna og baráttuna við matarfíknina.
  • „Bróðurmissirinn var erfiðasta lífsreynsla í heimi en jafnframt sú fallegasta“ 04.02.2026 58p
    Í þessum þætti fékk ég Maríu Kristu Hreiðarsdóttur, eiganda Kristu design, til þess að tala um bróðurmissinn, sinn heilbrigða lífsstíl, áhrifavaldasamfélagið og hvaðan hún hefur allan sinn drifkraft.
  • „Ég er með þetta lucky girl syndrome“ 28.01.2026 1ó 15p
    Í þessum þætti fékk ég Írisi Líf Stefánsdóttur, eiganda Accounta bókhaldsþjónustu, til þess að ræða við mig um hugtakið Digital nomad, lucky girl syndromið sem hún segir elta sig, fjáhagslegt frelsi, nískuna og mikilvægi sjálfstrausts.
  • „ Það eru forréttindi að fá að vera til“ 21.01.2026 1ó 2p
    Í þessum þætti fékk ég Olgu Björt Þórðardóttur, fjölmiðlakonu og ljósmyndara, til þess að tala um sína áfallasögu, aktivisma, meðvirkni, samskipti og mikilvægi þess að byggja sér upp gott tengslanet.
  • „Ég er klassísk ADHD stelpa“ 14.01.2026 1ó 1p
    Í þessum þætti fékk ég Vigdísi Diljá Óskarsdóttur, stjórnanda samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, til að tala við mig um hvernig það er að vera klassísk ADHD-stelpa, álheiminn, starfsferilinn, samfélagsmiðlana, móðurhlutverkið og hversu gott það er að búa á landsbyggðinni.
  • „Ég hef sótt öll mín tækifæri sjálf“ 17.12.2025 1ó 8p
    Í þessum þætti fékk ég Berglindi Guðmundsdóttur, hjúkrunarfræðing, markþjálfa og gusumeistara, til þess að tala við mig um tækifærin, alla framtakssemima, breytingaskeiðið, veikindi foreldra, gjaldþrotið, ferðalögin og nýjasta hluta starfsferilsins, stjórnmálin. Berglind heldur úti hinum vinsæla instagramreikning, Lífsgleðinni.
  • „Jólin eru fjallganga“ 10.12.2025 1ó 4p
    Í þessum þætti fékk ég Hildi Eir Bolladóttur, sóknarprest í Akureyrarkirkju, til þess að ræða við mig um jól og sorg.

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.