Spegillinn
RÚV
0
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Epizódok
-
Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB 16.07.2026 10pÍslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli. En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Bílabólgan mikla - bílar stækka og stækka 15.07.2026 10pBílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi. Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og hvorutveggja breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á ári. Þetta þýðir að á fyrsta fjórðungi aldarinnar hafa þeir lengst um 30 sentimetra og hækkað og breikkað um 12 - 13 sentimetra - að meðaltali. Áhrif þessarar þróunar eru margvísleg og ekki endilega af hinu góða. Ævar Örn ræðir við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Stríð Bandaríkjanna og Írans II 14.07.2026 10pÞað sem átti að verða stríð til að steypa klerkastjórninni í Íran hefur að talsverðu leyti þróast út í stríð um þá mikilvægu siglingaleið, Hormússund, sem bæði ríki vilja stjórna allri umferð um og jafnvel rukka fyrir - eða ekki. Annar ásteytingarsteinn, sem nauðsynlegt er að ryðja úr vegi ef nokkur von á að vera um eitthvað í líkingu við varanlegan frið, er árásarstríð Ísraela á Líbanon. Íranar líta á það sem hluta af því sama stríði sem þeir standa í gegn Bandaríkjunum - en Bandaríkjamenn eru á öðru máli. Mikilvægast er þó að semja um kjarnorkuáætlun Írana - og það vill til að til er ágætur samningur frá 2015 sem hægt er að miða við og vinna með - ef núverandi Bandaríkjaforseti fæst til að brjóta odd af oflæti sínu. Þetta segir Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor í Miðausturlandafræðum við Williamsháskóla í Massachusetts, í seinni hluta viðtals Spegilsins við hann um stöðu og horfur í Íransstríðinu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Stríð Bandaríkjanna og Írans 13.07.2026 10pSkipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af jafnvel enn meiri þunga en áður en hlé var gert á þeim fyrir tæpum mánuði með sameiginlegri viljayfirlýsingu og Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri í raun lokið. Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í sögu Miðausturlanda. Hann segir það ekki koma á óvart að vopnahléið hafi farið út um þúfur. Það hafi verið á sandi byggt og til þess eins gert að vinna tíma. Hann telur ólíklegt að önnur Persaflóaríki láti draga sig inn í stríðið og að allsherjarstríð brjótist út í Miðausturlöndum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
-
Þúsund manns krefjast skaðabóta af Samherja 09.07.2026 14pAlþjóðasamtökin Transparency International afhentu héraðssaksóknara í dag skaðabótakröfur ríflega eitt þúsund Namibíumanna sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna meintra mútubrota og spillingar Samherja í Namibíu. Transparency samtökin hafa lengi hafi barist fyrir því að fórnarlömb spillingar í alþjóðaviðskiptum fái áheyrn og skaða sinn metinn. Samherjamálið hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fjölda fólks og fjölskyldur þeirra. Undir það taka fyrrum sjómenn á togurum Samherja.
-
Nigel Farage boðar til kosninga 08.07.2026 9pNigel Farage, formaður breska Umbótaflokksins, sem kosinn var á þing fyrir tveimur árum, sagði í gær af sér þingmennsku og tilkynnti um leið að hann hygðist bjóða sig fram í aukakosningunum sem afsögn hans kallar á. Næsta öruggt má heita að hann fari með sigur af hólmi, enda ætla aðrir helstu flokkar landsins að sniðganga kosningarnar, sem þeir segja ódýrt auglýsingatrix hjá Farage, til þess ætlað að dreifa athyglinni frá ásökunum og rannsóknum um fjármálamisferli hans og flokksins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
-
Kynningarefni Landskjörstjórnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og íslenskir kafbátar 07.07.2026 10pLandskjörstjórn er falið að sjá um kynningarefni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar síðsumars. Hún þarf að gæta hlutleysis og ekki er hægt að gefa afdráttarlaus svör við öllum spurningum sem vakna en það er mikilvægt að fólk taki ígrundaða afstöðu og kynni sér málin að mati Ástríðar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Íslenska fyrirtækið Teledyne Gavia, sem eitt sinn hét Hafmynd - hefur í vaxandi mæli sótt inn á markaði fyrir búnað sem nýttur er bæði í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.
-
Skipting framlaga Íslands til varnarmála 06.07.2026 10p49 milljarðar fara í varnartengd verkefni í ár, samkvæmt útreikningum utanríkisráðuneytisins – 0,92% af vergri landsframleiðslu. Garðar Forberg, fyrrverandi fastafulltrúi Íslands hjá NATO í Brussel efast um þessa útreikninga. Nær sé að skoða hvernig við stöndum okkur í samanburði við aðra – og sá samanburður er ekki alltaf hagstæður.
-
Samskipti við Bandaríkin, NATO og heilbrigðisþjónusta við heimilislausa 03.07.2026 20pSérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó. Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast. Rétt þjónusta á réttum stað. Þetta er eitt af leiðarstefjum lýðheilsu- og heilbrigðisstefnu íslenskra stjórnvalda. En það vantar töluvert upp á að þetta sé haft að leiðarljósi í heilbrigðisþjónustu við fólk sem býr við heimilisleysi. Rætt við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar.
-
Olíuverð og rannsókn Rótarinnar á aðstæðum heimilislausra í Reykjavík 02.07.2026 20pBensín og dísilolía hækkaði áður en opinber gjöld lækkuðu um síðustu áramót og hið sama gerðist rétt áður en virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið fyrsta maí. Samkeppniseftirlitið segir það standa upp á olíufélögin að útskýra þessar hækkanir betur og að sveiflur í heimsmarkaðsverði á olíu skili sér ekki eins hér og í flestum öðrum ríkjum. FÍB segir alvarlegast af öllu sé að álagningin hafi stóraukist hér og olíufélögin í raun svíni bara á neytendum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Ný rannsókn Rótarinnar sýnir að 60 prósent af þeim um það bil þúsund manns sem búa eða hafa búið við heimilisleysi í Reykjavík leituðu á bráðamóttökur Landspítalans á fimm ára tímabili. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Rótarinnar, segir þetta sýna glöggt, að brýnt sé að bæta aðgengi þessa fólks að lágþröskulds-úrræðum - sem myndi allt í senn bæta hag þess, létta á bráðamóttökunum og spara hinu opinbera stórfé. Ævar Örn Jósepsson talaði við Kristínu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Kókaínfíkn vex og gervigreind rekur mál 01.07.2026 20pSegja má að gervigreindarlögfræðistofa hafi nýlega unnið mál fyirr breskum dómstól, Málflutningsmaður flutti málið en allan undirbúning vann gervigreind. Hún er farin að gegna ákveðnu hlutverki í réttarkerfi víða og líka því íslenska, nokkrar vefsíður bjóða upp á lögræðiráðgjöf hér. Níu menn eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa smyglað 106 kílóum af kókaíni frá Brasilíu til Straumsvíkur. Aldrei hefur lögregla lagt hald á svo mikið kókaín í einni sendingu. Í mars fundust 43 kíló af kókaíni í húsbíl í Norrænu. Hingað berst mikið af fíkniefnum ekki síst kókaíni og eftirspurnin virðist óþrjótandi. Stór hluti þeirra sem leita sér hjálpar á Vogi glímir við kókaínfíkn og hefur hlutfallið farið vaxandi segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.
-
Glæpir Ísraela gegn palestínskum börnum, upplýsingamiðlun og áróður í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 30.06.2026 20p„Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar á börnum hafa verið framin á milli 23. október 2023 og 23. október 2025,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu. Nýjasta skýrsla nefndarinnar fjallar sérstaklega um stöðu barna á hernumdu svæðunum og niðurstaðan er blátt áfram hryllingur. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið. Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segja já og þeirra sem ætla að segja nei. Heldur fleiri segjast öruggir um jáið eða 39% en 35% segjast örugglega munu segja nei. Könnunin var gerð 12. til 24. júní. 26% eru ekki alveg afdráttarlaus en 13% segjast líklega munu segja já og 13% eru á því að líklega verði neiið ofan á. Það eru væntanlega þessi 26%, sem eru ekki tilbúin til að segjast örugglega ætla að kjósa svona eða hinsegin, sem barist er um í sumar. En hvar sleppir upplýsingum og áróðurinn tekur við? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
-
Hirðingjar hafsins, varnir Evrópu og stafrænir innviðir 29.06.2026 20pHerskáir hirðingjar voru liðsmenn Sea Shephard samtakanna kallaðir þegar þeir komu hingað fyrir fjörutíu árum undir forystu Pauls Watsons. Menn og skip á vegum samtakanna sem hann leiðir nú eru þessa stundina vestan við land að leita að hvalbátunum og tilbúnir til að gera hvað sem þarf til að stöðva hvalveiðar, en Watson segir enga hættu steðja að áhöfnum hvalbátanna. Jim Townsend var um áratugaskeið hátt settir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og þekkir Ísland vel. Hann ræðir hugsanlegt brotthvarf Bandaríkjahers frá Evrópu, rússnesk viðbrögð og þýðingu fyrir Ísland. Efla þarf viðnámsþrótt Íslands gagnvart fjölþáttaógnum með því að efla stafræna innviði. Uppbygging gagnavera og aðstaða fyrir skýjaþjónustu er lykilþáttur segir formaður Samtaka gagnavera. Orkunýting og skattaumhverfi þurfi að liggja ljós fyrir.
-
Hitabylgja og Grand Theft Auto 26.06.2026 20pEvrópubúar eru að kikna undan skæðri hitabylgju síðustu daga. Sérfræðingar segja að sambærileg hitabylgja hafi aldrei geta orðið fyrir fimmtíu árum. Halldór Björnsson, loftslagssérfræðingur Veðurstofunnar, ræðir ástæðurnar. Milljónir biðu í ofvæni eftir því að forsala á nýjustu útgáfu tölvuleiksins Grand Theft Auto hæfist. Bjarki Þór Jónsson, tölvuleikjafræðingur, útskýrir hvers vegna.
-
Þjóðaratkvæðagreiðsla, lögleysa í lóðaleigumálum, hitaörmögnun og hitaslag í hitabylgjum 25.06.2026 20pHanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra segir að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist hvorki um að aðild né aðlögum heldur hvort taka eigi skref áfram. Þjóðin taki afstöðu - ekki bara þingmenn, og því sé þetta hárréttur tími fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Hönnu Katrínu. Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga. Víðir Smári Petersen lagaprófessor segir brýnt að setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi í lögleysunni. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Víði. Tugir og hundruð milljóna Evrópubúa búa við nánast óbærilegan og jafnvel lífshættulegan hita þessa dagana, í annarri hitabylgju sumarsins. Hitamet halda áfram að falla, jafnt á Bretlandi sem meginlandinu, og daglega berast fréttir af dauðsföllum sem rekja má beint eða óbeint til hitans. En hvað er svona hættulegt við hitann? Ævar Örn Jósepsson kannar málið og rætt er við Sasan Má Nobakht bráðalækni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
-
Bretland 10 árum eftir Brexit og Kúrasá á HM í fyrsta sinn 24.06.2026 20p23. júní 2016 ákváðu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu að Bretland væri betur sett utan Evrópusambandsins, efnahags- og stjórnmálalegs ríkjasambands sem Bretar áttu þó ríkan þátt í að stofna og síðan móta um áratugaskeið. Af könnunum má ráða að meirihluti Breta telji Brexit hafa verið mistök, -ferlið allt hafa verið óttalegt klúður og að Bretland standi hallari fæti nú en áður. Rætt við Jón Daníelsson, prófessor við LSE. Kúrasáar eru fámennasta þjóð sem hefur komist á HM karla í fótbolta og landsmenn eru að rifna úr stolti. Um helgina gerðu þeir jafntefli við Ekvador og markvörður Kúrasá var hetja leiksins, varði 15 sinnum. Sjö - eitt tap fyrir Þjóðverjum í fyrsta leik fyllti menn líka gleði. Halla Fróðadóttir lýtalæknir hefur unnið og búið á Kúrasá undanfarin ár.
-
Bændur taka afstöðu til ESB-aðildar á aukabúnaðarþingi, hitabylgja og Austlendingum finnst sér naumt skammtað 23.06.2026 20pÁ aukabúnaðarþingi sem haldið verður 14. ágúst taka bændur afstöðu til Evrópusambandsaðildar - ekki til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður síðar í ágúst, segir Trausti Hjálmarsson, formaður samtaka þeirra. Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita og fólk drukknar þegar það reynir að kæla sig. Í Frakklandi hafa að minnsta kosti fjörutíu drukknað í ám og vötnum undanfarna daga. Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann í nýrri samgönguáætlun að mati Ragnars SIgurðssonar, formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Brýn samgönguverkefni sem vilyrði var fyrir hafi ýmist verið slegin af eða færð aftar í áætluninni.
-
Keir Starmer segir af sér - Skuggagervigreind 22.06.2026 20pStarfsmenn fyrirtækja og stofnana nota gervigreind í síauknum mæli í vinnu sinni en átta sig e.t.v. ekki á því að sum gagnanna sem unnið er með mega ekki fara út úr húsi, innihalda viðkvæmar og eða verðmætar upplýsingar. En um leið og gögn hafa verið sett inn í gervigreindarforrit er voðinn vís. Við ræðum við Ými Vigfússon sem er doktor í tölvunarfræði og tæknistjóri hjá Keystrike í lok þáttar. Áður en sumarið er úti fá Bretar sinn sjöunda forsætisráðherra á tíu árum. Stjórnmálaskýrandi segir að ekkert eitt skýri óstöðugleikann í breskum stjórnmálum undanfarinn áratug en í ljós hafi komið að Keir Starmer, sem sagði af sér í morgun, hafi hvorki verið heillandi né góður stjórnandi.
-
Allt um innviðafélag og staða samningaviðræðna milli Íraks og Bandaríkjanna 19.06.2026 20pJD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt að friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé. Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað að halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt að tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna. Allt hlutafé félagsins á að vera í eigu ríkissjóðs. Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði. Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar.
-
Ráðherrafundur NATO í Brussel, baráttan um ferjuna Baldur og lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu 18.06.2026 19pViðvera Bandaríkjahers í Evrópu verður endurskoðuð á næstu sex mánuðum, sagði Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi NATO í Brussel í morgun. Og hann kom kyrfilega á framfæri óánægju stjórnvalda í Washington með viðbrögð evrópskra aðildarríkja, þegar hernaðurinn gegn Íran hófst í byrjun febrúar. Fulltrúar þriggja sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum funduðu með innviðaráðherra í dag um siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð segir það hafa valdið miklu tjóni að missa Baldur úr siglingum yfir Breiðarfjörð og mögulega hafi Vegagerðin og ráðuneytið vanmetið áhrifin af þeirri ákvörðun. Upplýsingaóreiðan var til umræðu á stórri ráðstefnu í Reykjavík í dag, sem bar yfirskriftina: „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu.“ Þar kom fram að smæðin hér á landi hjálpar til við að sporna við því að óprúttnir aðilar komi villandi upplýsingum til fólks, en sífellt erfiðara verður þó að greina á milli réttra og rangra upplýsinga. Íslendingar þurfi að læra af reynslu annarra ríkja.
Népszerű itt:
Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.