Áhugavaldar
AnnaKrissa og Ari Björn
0
<p>Sperrtu eyrun, því systkinin Anna og Ari eru mættust hingað með áhugaverðasta hlaðvarp Íslands lóðbeint til þín. Nýir þættir á þriðjudögum. </p>
Epizódok
-
12. Funheitar Frásagnir Fólksins 02.06.2026 1ó 59pVið spurðum, þið svöruðuð. Dónalegir viðskiptavinir, MJÖG furðulegar uppákomur, játningar og svo miklu meira í þessum funheita þætti. Anna les fyrir Ara sögurnar sem þið senduð inn og það má segja að þær eru svakalegar. Spennið beltin og náið ykkur í popp. Tímastimplar; 0:00 Vitleysisgangur og Yapperville 15:04 Áhugaverðar Staðreyndir 22:10 Umræðuefni Þáttarins 29:40 TW emetophobia /ælufóbía 32:40 ælufóbíusaga búin auka TW: kynferðisleg áreitni, andleg erfiði, og fleira þess hátta...
-
11. Buzz Buzz.., og Svaraðu Nú! 26.05.2026 1ó 23pHvort myndir þú frekar, og kanntu gen alpha tungumál? er meðal þeirra prófa sem Ari leggur fyrir Önnu í þessum þætti áhugavaldanna. Það eru stóru spurningarnar í dag!
-
10. Heimsmet á (Skrítnum) Heimsmælikvarða 19.05.2026 1ó 17pLengstu neglurnar, háværasta ropið, o.fl. Vonandi býður ykkur ekki eins mikið við og honum Ara. Enda fór Anna með ótrúlegustu heimsmet sem hún gat fundið í þessum bráðfyndna þætti hjá áhugavöldunum.
-
9. Er Ekki Kominn Tími til að Pústa? 12.05.2026 1ó 23pÞað lendir enginn í svona hjá tannlækninum nema Anna... það verður sko sannarlega pústað úr öllum áttum í þessum þætti! Þú vilt sko alls ekki missa af því.
-
8. Seinustu Tvær Heilasellurnar 07.04.2026 54pÍ þætti vikunnar förum við í nokkra áhugaverða tveggja manna leiki. Afslappað, fyndið og út um allt, bara eins og við!
-
7. Snúast Páskarnir um Jesú? 31.03.2026 1ó 26pMálshættir, trúarbrögð, pólitík, o.fl. Páskarnir eru tíminn þar sem maður borðar yfir sig af súkkulaði (Og rífst kannski smá við ættingja um stjórnmál og samfélagið). Halda samt allir eins upp á páskana? Og hvað þýða þessir djös...Ég meina, forvitnilegu málshættir eiginlega?
-
6. Stórasti Hatari Íslands 26.03.2026 1ó 37pRant - þátturinn mikli! Vonandi er hjartað ykkar fullt af hatri þegar þið smellið á þennan þátt. Það eru samt nokkrir pabba-brandarar til þess að mýkja stemmarann í byrjun.
-
5. Eru Þjóðsögur Ömurlega Leiðinlegar? 17.03.2026 1ó 27pÞessi tók skarpa U-beygju. Það eru mörg umræðuefni sem áhugavaldarnir brenna fyrir. Eftirhermur, hot takes, samfélagsleg vandamál o.fl. Ari reynir líka að koma inn nokkrum "æsispennandi" þjóðsögum en Anna reynir sitt allra besta til að villa hann af leiðum...
-
4.Er Ég Þöngulhausinn?.. M/ Egill Bro 10.03.2026 1ó 29pÞað eru nú allir mismikið gáfaðir... Í þessum bráðfyndna þætti með Áhugavöldunum, kíkir Egill í smá heimsókn. Anna færir okkur svo rjúkandi, sjóðheitar Reddit sögur á diskinn. En hver er aðal þöngulhausinn í þessum þætti?
-
3. Svaðalega Áhugavalda Spurningakeppnin! 03.03.2026 1ó 16pÍ þessum þætti setur Anna á sig hugsunarhattinn. Ari gerir sitt besta til þess að henda Önnu úr öskunni í eldinn, með því að leggja fyrir ansi strembinn spurningaleik. Kannski fylgir smá rapp og beatbox líka...
-
2. Furðulegar Samsæriskenningar 17.02.2026 1ó 14pSettu á þig álhattinn og stilltu geiger-mælinn, því í dag tekur Anna fyrir furðulegar samsæriskenningar. Kannski ertu búin/n að heyra þennan þátt áður?..
-
1. Sögulegar Reddit Sögur 09.02.2026 1ó 29pÍ þessum fyrsta þætti okkar áhugavalda fáið þið létta kynningu á okkur og nokkrar áhugaverðar staðreyndir - Ari tekur svo fyrir mjög áhugaverðar sögulegar Reddit sögur - og ein svakaleg æskuminning sem þú vilt ekki missa af því að heyra, úff.
Népszerű itt:
Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.