Handkastið

Handkastið

Handkastið
Ország Izland
Műfajok Sport
Nyelv IS
Epizódok 352
Legutóbbi 16.09.2026

Podcast by Handkastið, a show dedicated to handball. It covers handball-related topics, likely including match analyses, player interviews, and discussions about the sport.

Epizódok

  • Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar? 16.09.2026 1ó 7p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer fram í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára 14.09.2026 1ó 2p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
  • Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti 10.09.2026 53p
    Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks 07.09.2026 1ó 9p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu 04.09.2026 1ó 1p
    Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.
  • Olís deildirnar að byrja, Iðkendagjöld HSÍ og yfirferð á Olísdeild kvenna 31.08.2026 1ó 18p
    Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka ekki þátt í Olís deild kvenna var rædd. Selfyssingar ósáttir við vinnubrögð Víkinga. Yfirferð yfir öll liðin í Olís deild kvenna Olís deildirnar hefjast í vikunni. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Tvær bombur úr Virkinu og yfirferð yfir Olís deild karla 27.08.2026 1ó 32p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir helstu mál handboltans í dag. Kvennalið Víkings hefur afþakkað sæti sitt í Olís deild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta leik. Stiven Tobar Valencia er ennþá án liðs. Fórum yfir öll liðin í Olís deild karla og veltum fyrir okkur félagskiptaglugga liðanna, áhyggjum fyrir komandi tímabil, þakinu, gólfinu og hver er með lyklavöldin þegar nýtt tímabil fer af stað. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Barnalandsliðin vinna ekkert án Heimis og mánuður í mót 06.08.2026 1ó 20p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir Ríkharðsson er eini þjálfarinn sem hefur klárað þann stóra. Mánuður í mót og mörg lið þurfa ennþá að styrkja sínar herbúðir fyrir veturinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Stútfullur fréttapakki í sumarútgáfu Handkastsins 09.07.2026 57p
    Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir sumarsins. Vinstri hornamenn landsliðssins á ferð og flugi. Unglingalandsliðin út um allan heim undanfarnar viku. Hreyfingar á íslenska markaðnum. Ótímabær spá í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Gústi Jó fer yfir tímabilið og fréttir vikunnar með Handkastinu 02.06.2026 1ó 8p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gústi Jó mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp fréttir vikunnar. Dagur Árni genginn í raðir KA. Er Benedikt Gunnar Óskarsson á leiðinni heim í Val. Valur tekur alltaf stöðuna á strákunum sínum erlendis eftir hvert ´tímabil. Aron Pálmarsson tekinn við FH. Handboltafólkið okkar heldur áfram að gera frábæra hluti erlendis með félagsliðum sínum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Viðtal við nýráðinn þjálfara FH - Aron Pálmarsson 28.05.2026 8p
    Aron Pálmarsson var kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH í dag.
  • Viðtal við Steina Arndal fráfarandi þjálfara FH 28.05.2026 9p
    Viðtal við Steina Arndal eftir að hann var kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari FH og stígur til hliðar sem aðalþjálfari liðsins eftir sjö ár í starfi.
  • Þjálfarabreytingar í Krikanum og samningarlausir Íslendingar 26.05.2026 55p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum. Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson gæti verið næsti þjálfari karlaliðsins. Valsmenn eru byrjaðir að styrkja sig. Íslendingar í Kolstad á leiðinni heim? Elín Klara og Einar Bragi að gera það gott í Svíþjóð. Hvar enda Bjarki Már og Stiven Tobar? Hvað eru heitustu take Stymma og Kidda fyrir næsta tímabil? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Egyptaland sigrað og hver er framtíð Handboltapassans? 18.05.2026 50p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdí´ó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Landsliðið gerði góða ferð til Egyptalands og sigraði heimamenn í tveim æfingarleikjum. Yngri flokkarnir kláruðust um helgina með handboltaveislu í Kaplakrika. Hafa niðurstöður kosninganna áhrif á þj´álfaramál ÍR? Óvænt úrslit í undankeppni HM. Skuldir HSÍ og hvað ætlum við að gera með Handboltapassan? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Til hamingju Valur og þjálfarakapallinn fer að leysast 12.05.2026 1ó 12p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé komu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp síðustu daga í handboltanum hér heima og erlendis. Til hamingju Valskonur með Íslandsmeistaratitilinn. Landsliðið spilar 2 æfingaleiki við Egypta í vikunni í beinni á Rúv Afturelding og Selfoss eiga eftir að ráða þjálfara fyrir næsta tímabil en það ætti að fara að skýrast. Búið að draga í undanúrslit í Meistaradeild karla. Ársþingið enn og aftur til umræðu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • ÍBV svara fyrir sig og fyrsta ótímabær spáin 10.05.2026 54p
    Stymmi Klippari, Davíð Már Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og ræddu handboltann undanfarna daga. ÍBV gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Val saman í leik þrjú hjá þeim. Þórsarar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin á næsta ári. Ársþing HSÍ fór fram um helgina og nóg að ræða þaðan. Fyrsta ótímabæra spá næsta tímabils leit dagsins ljós. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Valur Íslandsmeistari eftir frábært úrslitaeinvígi 07.05.2026 1ó 8p
    Stymmi Klippari, Geiri Sly og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp úrslitaeinvígi karla og kvenna. Valur er Íslandsmeistari eftir eins marks sigur á FH á Hlíðarenda. Er verið að sprengja konfetti á vitlausum tímapunktum í leikjum? Ársþing hjá HSÍ framundan og verður spennandi að sjá hvaða breytingar verða. Læti í Vestmannaeyjum og umgjörðin ekki nógu góð? Final 4 er klárt og Álaborg eru einu nýliðarnir. Þetta og svo miklu miklu í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Allt undir á fimmtudaginn og ÍBV fengu ekki neyðarlán 04.05.2026 1ó 21p
    Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Það var stórkostlegur leikur í Kaplakrika í kvöld og orðið ljóst að við förum alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Thea Imani er á leið í atvinnumennsku. Það ræðst í vikunni hvaða lið leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Handboltaþingið er um helgina og nokkrar breytingartillögur til umræðu. Valur er komið í 1-0 gegn ÍBV í einvígi þeirra um titilinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Ræðst einvígið í næsta leik og tveir oddaleikir framundan 27.04.2026 1ó 4p
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. FH svaraði fyrir sig í einvíginu gegn Val og allt er orðið jafnt. Ræðst einvígið í næsta leik á Hlíðarenda og er pressan komin yfir á Val? Þurfum að Haukar að fara sjóleiðina í oddaleikinn gegn ÍBV? Stjarnan og Grótta mætast í oddaleik en það er vonlaust að spá fyrir um sigurvegara í því eftir síðustu leiki liðanna. Meistaradeildin fer aftur af stað í vikunni og Final 4 er undir. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Hiti innan og utan vallar og djók rautt spjald er Valur vann FH 24.04.2026 1ó 7p
    Það hefur verið mikill hiti innan og utan vallar í Þjóðaríþróttinni síðustu sólarhringa en Handkastið gerir upp það helsta í þessum þætti. Valur leiðir í úrslitaeinvíginu gegn FH 1-0 eftir sigur á heimavelli þar sem Jóni Bjarna Ólafssyni var vikið upp í stúku af dómurum leiksins - sem ekki allir virðast sammála um.

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.