Stóra myndin

Stóra myndin

Stóra myndin
Ország Izland
Műfajok Történelem
Nyelv IS
Epizódok 2
Legutóbbi 29.09.2026

Stóra myndin er íslenskt hlaðvarp sem tengir málefni samtímans við sögu, heimspeki og mannlegt eðli. Þar er fjallað um hringrás sögunnar, ris og fall menningarheima og lærdóm fortíðarinnar. Í þættinum er horft á stóru myndina frekar en að festast í málefnum líðandi stundar. Rætt er um hugsuði og tímabil allt frá Móses til nútímans, svo sem Platón, Cíceró, Rómaveldi, Dante, Machiavelli, Shakespeare og René Girard. Einnig eru teknar fyrir bækur og einstakir hugsuðir.

Epizódok

  • #2 - Hermiþrá og René Girard 29.09.2026 2ó 13p
    Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma langanir okkar ? Hvað langar þig að langa í?Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal annars fjalla um það hvaðan langanir okkar koma og hvernig þær smitast manna á milli. Af hverju verður leikfang skyndilega spennandi þegar annað barn tekur það upp? Eru nútíma áhrifavaldar að spila á eðli mannsins?Hvernig breytist fyrirmynd í keppinaut eða samkeppni í fjandskap? Getur sundraður hópur fundið samstöðu með því að finna sér blóraböggul? Sumir vilja meina að pólitíkusar spili á þetta eðli þegar þeir búa til óvini til að sameinast gegn.Við tengjum Girard við Biblíuna, þjóðsögur, Peter Thiel, stjórnmál, vinnustaði og samfélagsmiðla. Einnig skoðum við hvort við stjórnumst alfarið af rökhugsun eða fyrst og fremst af ríkjandi orðræðu í samfélaginu, og hvernig tengist það hugmyndum Girard?
  • #1 - Ekkert nýtt undir sólinni 29.09.2026 1ó 54p
    Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri? Við ræðum gamlar og góðar bókmenntir og skoðum hvað helstu hugsuðir fortíðarinnar höfðu að segja. Hér má til dæmis nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis. Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það hefur áhrif á samfélög og þróun sögunnar. Öfund, metnaður, freistingar, vald, sjálfsblekking og hjarðhegðun, en líka hugrekki, tryggð og fyrirgefningu. Hvernig tengist þetta allt nútímanum, erum við að endurtaka gömul mistök? Samfélagsmiðlar, gervigreind og nútímastofnanir eru ný fyrirbæri, en tæknibreytingar geta gert það að verkum að maðurinn fær nýjar leiðir til að endurtaka sömu mistökin.

Népszerű itt:

Ez a podcast ezeknek az országoknak a podcast-listáin is szerepel.