Ekkert plan
Ekkert plan
0
Í þessu hlaðvarpi ræðir áhrifavaldurinn Fanney Dóra um lífið sem fullorðin kona. Hún fer yfir margs konar efni eins og sjálfsrækt, atvinnu, sambönd, móðurhlutverkið og félagslíf. Hún ætlar að fá góða gesti og takast á við umræðuefni með hlustendum. Þátturinn heitir Ekkert plan en er engu að síður skipulagður.
Episode
-
Losaðu þig við óvelkomna orku ft. Ellý Ármanns 04.10.2026 56mntEllý Ármanns kom í Ekkert plan og gerði mig heldur betur orðlausa! Ég mæli innilega með því að hlusta á þáttinn í hvert einasta skipti sem þig vantar að komast á hærri tíðni. -
Fórstu í bótox svikari? 27.09.2026 49mntÍ þætti sex af Ekkert plan fór ég inná ansi mörg sprengjusvæði. Ég legg til að þið hlustið með opnum hug og eins og alltaf þá verði þið að senda á mig ef þið tengið eða jú tengið alls ekki neitt. Þátturinn er í boði Happy Hydrate. -
Mamma, það segir þetta engin ft. Mamma 20.09.2026 57mntÞað er enginn önnur en Mamma sem er mætt í hlaðvarpið að þessu sinni. Hún er minn eigin lífsþjálfi og flestir ættu að vilja hafa hana í sínu horni. Við förum yfir vandamál úr lausnahorninu gagnvart stjúpfjölskyldum. Þaðan förum við yfir víðan völl, hvorug með plan eins og við viljum hafa það. -
Því sem þú ert ekki að breyta ertu að velja ft Fanney Skúla 12.09.2026 1j 13mntFanney Skúla kemur í fjórða þátt af Ekkert plan og fer yfir lífið sitt seinustu árin með okkur. Hvernig er að vinna sem markaðsmanneskja, vera einstæð móðir og að hafa verið ung móðir - til að stikla á stóru. -
Það eru bara lausnir guys 06.09.2026 49mntÍ þætti þrjú er nýr liður! Lausnahorn Fanneyjar byrjaði af fullum krafti með vandamál sem eflaust margir tengja við. Það er að sjálfsögðu ekki eina sem ég fer yfir í þættinum enda er ekkert plan. -
Ég þarf að ögra þér aðeins ft. Kara Hólm 30.08.2026 1j 1mntKara Hólm kom upp í rúm til mín og við ræddum um deitmenningu, body positivity og ýmislegt fleira, enda er ekkert plan og engin dagskrá. -
Það er verið að öskra á þig 23.08.2026 40mntí fyrsta þættinum fer ég yfir seinasta árið, hvernig frestunar áráttan endaði á að vera það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég hef fullorðnast mikið seinasta árið og ég hvet ykkur til að fullorðnast með mér! -
Ekkert plan en með allt a hreinu 23.08.2026 2mntKynningarþáttur fyrir hlaðvarpið Ekkert plan!
Populer di
Podcast ini juga muncul di daftar podcast negara-negara ini.