Besta sætið

Besta sætið

bestasaetid
Paese Islanda
Generi Sport
Lingua EN
Episodi 100
Ultimo 16.10.2026

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Episodi

  • 16. okt - Óvænt lausir miðar á HM og fótbolti í fárviðri 16.10.2026 22min
    Leikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í beinni á Vísi og verður áhugavert að sjá okkar bestu bakgarðshlaupara berjast við vindinn. Viðtalið íþróttadeildar við Arnar Gunnlaugsson ber einnig á góma og svo kom í ljós að það eru til miðar á HM í handbolta.
  • Arnar Gunnlaugs ræðir agabrot landsliðsmanna 16.10.2026 33min
    Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægi­lega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.  
  • 15. okt - Arnar Gunnlaugsson opnar sig og hvað er Inga Sæland að spá? 15.10.2026 16min
    Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir að leyfa ekki atvinnuhnefaleika á Íslandi.
  • 14. okt - Heimir sagður á leið til ÍA 14.10.2026 23min
    Heimir Guðjónsson er sagður vera næsti þjálfari ÍA og svo gerði Lisandro Martinez, leikmaður Man. Utd, allt vitlaust eftir leik gegn Atletico í gær. Stelpurnar okkar afgreiddu svo Króatíu með miklum glæsibrag.
  • 13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet 13.10.2026 19min
    Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal. Formúlan til Afríku og svo er rætt um balletviðburð ársins.
  • 12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. Utd 12.10.2026 26min
    Enski boltinn, Besta deildin, NFL og körfubolti í þætti dagsins.
  • 9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný 09.10.2026 20min
    Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og því fagna mjög margir.
  • 8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla 08.10.2026 24min
    Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.
  • 7. okt - Uppgjör á slökum leik gegn Eistum 07.10.2026 24min
    Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi ytra í gær. Leikurinn var arfaslakur af hálfu íslenska liðsins. Lionel Messi kvaddi svo argentínska landsliðið formlega í gær.
  • 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin 06.10.2026 24min
    Ísland sækir Eistland heim þar sem toppsætið er undir. Sigur er líka mikilvægur upp á að komast á næsta stórmót. Sú staða er vel skoðuð og svo er stutt karaoke horn einnig í þættinum.
  • 5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu 05.10.2026 25min
    Fókus dagsins er á landsleik Eistlands og Íslands sem fer fram á morgun. Það er krafa á sigur frá Besta sætinu. Heimir Hallgrímsson er farinn í langþráð frí eftir hasar síðustu daga. Bónusdeild karla hefst á fimmtudag og er hitað upp á Sýn Sport í kvöld.
  • 2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus 02.10.2026 26min
    Landsleikur gegn Búlgaríu á morgun og Arnar Gunnlaugsson er varkár í yfirlýsingum. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum í körfu karla og fallið klárast í Bestu kvenna í kvöld.
  • 1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra 01.10.2026 21min
    Cristiano Ronaldo, Man. City og Heimir Hallgrímsson á matseðli dagsins.
  • 30. sept - Man City og Lúxus í Lúx 30.09.2026 27min
    Það var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um helgina. Manchester City er þá á allra vörum. Á landsliðið að þurfa Gylfa Þór Sigurðsson til að halda liðinu gangandi? Það var í það minnsta allt annað að sjá til liðsins með hann innanborðs í gær. Hvar á maður svo að byrja á þessu Manchester City-máli? Það eru ævintýralega margir vinklar á því. Valur Páll Eiríksson, Sindri Sverrisson og Smári Jökull Jónsson fóru yfir málin í Besta sætinu.
  • 29. sept - Pressa á Arnari 29.09.2026 19min
    Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa. Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson fóru yfir sviðið á þessum ágæta þriðjudegi. Landsliðin okkar áttu sviðið þar sem bæði U21 árs liðið og A-landsliðið verða í eldlínunni í dag. Þá átti 39 ára gamall Case Keenum stórleik í NFL-deildinni þrátt fyrir að vera að spila sinn fyrsta leik í þrjú ár. Bónus-deild kvenna í körfubolta fer þá af stað í kvöld með þremur leikjum þar sem áhugavert verður að sjá KR og Grindavík sem spáð er góðu gengi.
  • 28. sept - Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi 28.09.2026 21min
    Slakur landsleikur Íslands og havarí í kringum Írland, Ísrael og Manchester City bar hæst í Besta sætinu þennan mánudaginn. Valur Páll Eiríksson, Bjarki Sigurðsson og Sindri Sverrisson fóru yfir sviðið í þætti dagsins. Menn voru enn að jafna sig eftir slaka frammistöðu karlalandsliðsins í fótbolta á laugardaginn var en strákarnir okkar eru mættir til Lúxemborgar þar sem þeir geta svarað fyrir frammistöðuna.
  • Rúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið 26.09.2026 27min
    Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem  tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við sig austan tjaldsins í Rúmeníu og Kasakstan. Rúnar Már neyðist til að hætta vegna þrálátra meiðsla sem hafa áhrif á hans daglega líf og því fylgir ákveðið sorgarferli. Hann fer yfir ferilinn í ítarlegu viðtali við íþróttadeild Sýnar.
  • 25.sept - Ekkert elsku mamma lengur 25.09.2026 19min
    Besta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun. Ræddum líka frábæra leiki í Olís deildinni, Þjóðadeild og þau vandræði sem Valur er í. Ákveðin krísa á Hlíðarenda. Það og margt fleira í þætti dagsins. Góða helgi!
  • 24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi 24.09.2026 19min
    Það verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna. Lægðin hafði sín áhrif á landsliðin okkar sem færðu sig úr Laugardalnum inn í hallir að æfa í dag. Kvennalandsliðið, U21 landsliðið, Olís-deildin og stórleikir í Þjóðadeildinni í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.
  • 23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met 23.09.2026 19min
    Ákvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu. Þar var einnig farið yfir leikina í Meistaradeild kvenna í fótbolta, þar sem fjöldi Íslendinga kom við sögu, og einvígin sem Breiðablik og FH hefja í dag í Evrópubikarnum.

Popolare in

Questo podcast compare anche nelle classifiche dei podcast di questi paesi.