Eftirvaktin
Birgir Olgeirsson
0
Eftirvaktin er hlaðvarp um íslenskt skemmti-, veitinga- og tónlistarlíf. Við ræðum við fólkið sem þekkir bransann innan frá; barþjóna, kokka, eigendur, tónlistarfólk, dyraverði, birgja og aðra sem hafa staðið vaktina. Sögur af góðum kvöldum, erfiðum kvöldum, eftirminnilegum gestum, rekstrinum, ruglinu og menningunni sem verður til eftir að vinnudegi flestra annarra lýkur.
Episodi
-
8. Oddný Ingólfsdóttir - Frá eldhúsinu í fremstu röð 19.08.2026 1h 5minOddný Ingólfsdóttir, veitingastjóri á Sumac og Vínþjónn ársins 2026, sest hjá Eftirvaktinni. Hún segir frá leiðinni úr eldhúsinu yfir í framreiðslu, árunum í veitingabransanum og metnaðinum sem hefur fleytt henni langt í faginu. Rætt er um þjónustuna, vínin, keppnisheiminn og lífið bak við tjöldin á veitingastað. -
8. Sindri Guðbrandur Sigurðsson: Líf eins fremsta kokks Íslands 08.08.2026 1h 14minSindri Guðbrandur Sigurðsson er einn fremsti kokkur landsins og náði áttunda sæti í Bocuse d’Or, einni virtustu matreiðslukeppni heims.Í Eftirvaktinni fer Sindri yfir leiðina inn í kokkabransann og hvað hefur drifið hann áfram í gegnum ferilinn. Við ræðum Bocuse d’Or, pressuna og metnaðinn sem fylgir því að keppa á hæsta stigi, veitingabransann og auðvitað matinn sjálfan.Inn á milli koma svo sögurnar sem verða til á löngum ferli í eldhúsinu meðal annars af Gordon Ramsay og rabarbaraköku sem reyndist ómögulegt að endurtaka vegna þess að uppskriftin var einfaldlega ekki til.Ferill eins fremsta kokks Íslands, matargerð á hæsta stigi og lífið á bak við tjöldin í veitingabransanum. -
7. Halldór Gunnar Pálsson: Lét sannfæringuna ráða og brekkan söng með 28.07.2026 1h 30minHalldór Gunnar Pálsson hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins, sem leiðtogi Fjallabræðra og höfundur þjóðhátíðarlagsins „Þar sem hjartað slær“. Í þættinum segir hann söguna á bak við lagið, sem fékk dræmar viðtökur í fyrstu en varð eitt það þekktasta í sögu Þjóðhátíðar.Nú er nýr kafli tekinn við og Halldór sestur í upptökustjórastólinn. Hann segir frá samstarfinu við Bubba Morthens, nýjustu plötu hans og 70 ára afmælistónleikunum í Laugardalshöll. -
6. Bjórinn, bransinn og Tenerife – Níels Hafsteinsson 25.07.2026 1h 11minNíels Hafsteinsson þekkir veitingabransann bæði á Íslandi og Tenerife. Hann starfaði á Hótel Sögu í 21 ár og kom síðar að rekstri meðal annars Rauða ljónsins, Steikhússins og Kjallarans. Á Tenerife tók síðan við nýr kafli í veitinga- og barrekstri.Í þættinum ber Níels saman rekstrarumhverfið á Íslandi og Tenerife og útskýrir hvers vegna bjór getur kostað gjörólíkt á þessum tveimur eyjum. Við ræðum einnig lífið í sólinni og það sem gestirnir sjá ekki þegar þeir panta sér drykk á barnum. -
5. Saga Kaffibarsins –Litla rauða húsið sem mótaði Reykjavík 18.07.2026 57minÁrið 1993 varð hugmynd Friðriks Weisshappel og Dýrleifar Ýrar Örlygsdóttur að Kaffibarnum að veruleika. Staðurinn varð fljótt að suðupotti listafólks, tónlistarfólks og næturhrafna og átti stóran þátt í að móta skemmtanalíf og ímynd miðborgar Reykjavíkur. Við förum yfir söguna, fólkið og stemninguna sem gerði litla rauða húsið að einu helsta kennileiti íslensks næturlífs. Gestur þáttarins er blaðamaðurinn Andrés Magnússon, sem var einn af stofnendum Kaffibarsins. -
4. Vantar Reykjavík alvöru „dinner & a show“? 12.07.2026 45minÍ fjórða þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi, Birgir og Kristján Högni niður og ræða það helsta úr veitinga-, skemmti- og borgarlífinu.Þeir fara yfir Hjarta Hafnarfjarðar, velta fyrir sér hvar sé best að horfa á HM og ræða hvað vanti í miðbæ Reykjavíkur — þar á meðal hvort það sé kominn tími á alvöru „dinner & a show“.Þetta og ýmislegt fleira í fjórða þætti Eftirvaktarinnar. -
3. Bak við barinn með Fannari Loga 03.07.2026 53minÍ þriðja þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi Heimisson og Kristján Högni Kristjánsson niður með Fannari Loga Jónssyni barþjóni, veitingastjóra, brand ambassador hjá Ölgerðini og ræða starfið, stemninguna og lífið í bransanum þegar kvöldið fer af stað. -
2. Steinþór Helgi: Ég vildi bara opna bar 25.06.2026 1h 14minSteinþór Helgi Arnsteinsson hefur komið víða við í íslensku skemmti-, tónlistar- og fjölmiðlalífi. Hann hefur starfað í fjölmiðlum, verið umboðsmaður listamanna, haldið tónleika og sinnt viðburðastjórnun hjá CCP áður en hann hellti sér út í veitingarekstur.Í þessum þætti af Eftirvaktinni fer Steinþór yfir tilurð Röntgens, fyrstu árin í rekstri, höggið sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum og hvernig staðurinn náði að festa sig í sessi í miðbæ Reykjavíkur. Hann ræðir líka Skreið, Bullseye, skemmtanabransann, rekstrarumhverfið og áfengisgjöldin sem hann segir komin langt úr hófi.Þáttur um barinn sem átti bara að vera bar, lífið á bak við tjöldin í miðbænum og spurninguna um hver taki í raun stærsta hlutann þegar bjórinn kostar 1.800 krónur. -
1. George Leite: Frá Kalda bar til víngerðar með stórstjörnum 18.06.2026 1h 51minGeorge Leite er fyrsti gestur Eftirvaktarinnar. Margir þekkja hann sem Gogga á Kalda, manninn á bak við einn þekktasta bar miðbæjarins. Í þættinum fer George yfir rekstur Kalda bars, lífið í bransanum og hvað þarf til að skapa stað þar sem fólk vill koma aftur og aftur. Hann segir líka frá nýju verkefni sínu með Róbert Wessman, þar sem hann hefur fært sig úr barrekstri yfir í vínframleiðslu og alþjóðlegt samstarf við nöfn á borð við tónlistarkonuna Norah Jones og körfuboltamanninn Tony Parker. -
George Leite: Frá Kalda bar til víngerðar með stórstjörnum 18.06.2026 1h 51minGeorge Leite er fyrsti gestur Eftirvaktarinnar. Margir þekkja hann sem Gogga á Kalda, manninn á bak við einn þekktasta bar miðbæjarins. Í þættinum fer George yfir rekstur Kalda bars, lífið í bransanum og hvað þarf til að skapa stað þar sem fólk vill koma aftur og aftur.Hann segir líka frá nýju verkefni sínu með Róbert Wessman, þar sem hann hefur fært sig úr barrekstri yfir í vínframleiðslu og alþjóðlegt samstarf við nöfn á borð við Norah Jones og Tony Parker.
Popolare in
Questo podcast compare anche nelle classifiche dei podcast di questi paesi.