Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

RÚV
Šalis Islandija
Žanrai Sports
Kalba IS
Epizodų 42
Naujausias 21.06.2026

Hlaðvarpsþættir um íþróttir frá RÚV. Fjallað er um ýmsar íþróttagreinar, viðtöl við íþróttafólk og umfjöllun um stórviðburði. Þættirnir eru á íslensku og ætlaðir öllum sem hafa áhuga á íþróttum.

Epizodai

  • Aron Jóhanns fer á HM í Brasilíu 2014 21.06.2026 1val 4min
    Aron Jóhannsson varð fyrstur Íslendinga til að spila á heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Það gerðist 2014 þegar mótið var haldið í Brasilíu. Aron fæddist í Bandaríkjunum 1990 þegar foreldrar hans voru þar í námi. Það olli nokkru fjaðrafoki að hann skyldi velja að spila fyrir bandaríska landsliðið sumarið 2013. Í þessum þætti rifjum við upp ótrúlegt ævintýri um hvernig strákur úr Grafarvogi, sem þráði að verða atvinnumaður í knattspyrnu, komst á samning í Danmörku og sló þar í gegn vorið 2012. Jürgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hafði þá reglulega samband við hann til að fá hann liðið sitt. Í þessum þætti verður öll sagan sögð.
  • Sportrásin: HM umræða nördanna 15.06.2026 53min
    HM í knattspyrnu er hafið í Bandaríkjunum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og fjármálaspekúlantinn Björn Berg Gunnarsson eru ótrúlega fróðir um sögu keppninnar. Þeir fara á kostum þegar þeir fjalla um HM í Bandaríkjunum og segja margar skemmtilegar sögur frá fyrri keppnum.
  • Góð Íþrótt-Gulli Betri: Pétur Guðmunds í LA Lakers 22.03.2026 37min
    Um þessar mundir eru 40 ár síðan Pétur Guðmundsson körfuboltamaður gekk til liðs við NBA-liðið Los Angeles Lakers. Árið er 1986 og þarna var Lakers er á hátindinum með Magic Johnson og Kareem Abdul Jabbar innanborðs. Vegurinn sem Pétur gekk í áttina til Lakers var grýttur og hann þurfti svo sannarlega að hafa fyrir því að komast þangað. Í þessum þætti segjum við alla sögu hans. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
  • Góð Íþrótt-Gulli Betri: Eygló Fanndal 01.03.2026 53min
    Eygló Fanndal er einn mest spennandi íþróttamaður sem við eigum. Hún varð evrópumeistari í ólympískum lyftingum í fyrra en nokkrum mánuðum síðar lenti hún í erfiðum bakmeiðslum sem hún er enn að glíma við. Við rifjum upp ótrúlega sögu hennar, hvernig hún byrjaði að æfa lyftingar og hvað verður til þess að hún verður afrekskona á heimsmælikvarða í sinni íþróttagrein. Við fáum einnig innsýn í Afreksmiðstöð Íslands sem er ný af nálinni og hvers vegna stofnun hennar er bylting fyrir afreksíþróttafólk hér á landi. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
  • Góð íþrótt Gulli betri: Fjórar Vetrarólympíuleika sögur 15.02.2026 38min
    Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu eru í fullum gangi og af því tilefni rifjum við upp fjórar ótrúlegar sögur úr litríkri sögu leikanna. Við tökum fyrir íshokkíleik Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1980 í miðju kalda stríðinu. Tvær skondnar sögur koma frá leikunum í Calgary í Kanada 1988 en þar stökk Bretinn Eddie the Eagle í skíðastökki og bobsleðalið Jamaíku sigraði hjarta alls heimsins með framgöngu sinni. Að lokum segjum við ótrúlega sögu skíðakappans Hermans Maier frá Austurríki sem hrasaði illa í sinni fyrstu grein á leikunum 1998 en var mættur í næstu grein aðeins þrem dögum síðar. Ingólfur Hannesson og Einar Örn Jónsson rifja upp þessar sögur og draga ekkert undan. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
  • Góð íþrótt-Gulli Betri: Super Bowl 2026 08.02.2026 40min
    Super Bowl eða Ofurskálin, stærsti íþróttaviðburður Bandaríkjanna, er í kvöld í Santa Clara í Kaliforníu. New England Patriots og Seattle Seahawks spila til úrslita um NFL-titilinn í amerískum fótbolta. Fanney Birna Jónsdóttir og Andri Ólafsson fræða okkur um þennan viðburð, hvað einkennir liðin sem mætast og hvernig leik má eiga von á. Hálfleikssýningin er fastur liður í þessum stóra leik og að þessu sinni treður upp hinn vinsæli Bad Bunny frá Puerto Rico. Hver er hann og af hverju fer hann í taugarnar á Donald Trump forseta Bandaríkjanna? Ingunn Lára Kristjándsdóttir segir okkur allt um Bad Bunny og hálfleikssýninguna. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
  • Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 3) 23.01.2026 1val 2min
    Í þessum þriðja og síðasta þætti um feril Dags Sigurðssonar gerum við upp dvöl hans í Japan, þar sem hann var landsliðsþjálfari, og þegar hann óvænt tók við Króatíska landsliðinu í byrjun árs 2024 þegar liðið var í krísu. Í lok þáttarins er Dagur spurður um framtíð sína, hvað hann ætlar sér að þjálfa lengi og hvort það sé markmið að þjálfa íslenska landsliðið.
  • Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 2) 18.01.2026 1val 2min
    Í þessum þætti byrjar þjálfaraferill Dags. Eftir að hafa gert frábæra hluti í Austurríki og hjá Fucshe Berlin er hann ráðinn landsliðsþjálfari Þýskalands árið 2014 og gerir liðið að Evrópumeisturum tveimur árum síðar. Sama ár segir hann upp hjá þýska landsliðinu og flytur heim. En hvers vegna? - þið komist að því í þessum öðrum þætti um Feril Dags Sigurðssonar.
  • Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 1) 12.01.2026 1val 2min
    Dagur Sigurðsson handboltaþjálfari hefur aldrei gefið ferilsviðtal við íslenskan fjölmiðil. Gunnlaugur Jónsson fékk Dag í ítarlegt viðtal í byrjun desember 2025 og þetta verða alls þrír þættir þar sem við rekjum allan feril hans og meira til. Dagur er mikill tónlistaráhugamaður og í hverjum þætti spjalla þeir um tónlist og önnur áhugamál hans. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
  • Aron Pálmarsson mætir á Biðstofuna 12.01.2026 1val
    Óvæntur leynigestur mætir á svæðið, Aron Pálmarsson, einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar. Farið verður um víðan völl, íslenska liðið í dag, hvar hann sér okkar möguleika, sögur og augnablik úr ferlinum.
  • Biðstofan: Íslenska liðið — stöðu fyrir stöðu 09.01.2026 1val 1min
    Óli, Kári og Logi fara yfir veikleika og styrkleika allra leikmanna liðsins, stöðu fyrir stöðu. Ræða mögulegt byrjunarlið. Hverjir þurfa að stíga upp og hvaða leikmenn verða í mikilvægum hlutverkum.
  • Biðstofan: Krafa á undanúrslit? 08.01.2026 41min
    Helga, Óli, Logi og Kári fara yfir árangur íslenska landsliðsins á síðasta móti, ræða stöðu  þjálfarans Snorra Steins komandi inn í þetta mót. Hverjar eru kröfurnar á liðið og hvað er ásættanlegur árangur á mótinu?
  • Mýtan um beinbrot Jóhannesar á Borg 17.06.2025 47min
    Eitt stærsta „Hvað ef“ í íslenskri íþróttasögu er: Hvað ef Jóhannes Jósefsson hefði ekki viðbeinsbrotnað í undanúrslitum grísk-rómversku glímunnar á Ólympíuleikunum í London árið 1908? Hefðu Íslendingar þá mögulega eignast gullverðlaunahafa í frumraun sinni á Ólympíuleikum? Jóhannes gat ekki beitt sér í undanúrslitaviðureign glímunnar vegna meiðsla sinna og mætti svo ekki til leiks í bronsglímuna, enda með brotið viðbein. Í áratugi hefur verið fjallað um það á fjölmörgum stöðum hvernig viðbeinsbrot Jóhannesar kostaði Ísland sennilega verðlaun á Ólympíuleikunum 1908 og sagan því mjög lífsseig. En er hún sönn? Viðbeinsbrotnaði Jóhannes kannski bara alls ekki neitt á Ólympíuleikunum? Í þættinum Mýtan um beinbrot Jóhannesar á Borg kafar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og sagnfræðingur ofan í málið.
  • Stofan: HM draumar 10.01.2025 1val 44min
    Ólafur Stefánsson, Logi Geirsson og Kári Kristján Kristjánsson sérfræðingar Stofunnar á RÚV fara yfir víðan völl í upphitun fyrir HM í handbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur Íslands á HM er 16. janúar. Umsjónarmaður: Helga Margrét Höskuldsdóttir
  • Gunnar Huseby 04.11.2023 29min
    Ein af fyrstu íþróttastjörnum Íslands, Gunnar Huseby, fæddist 4. nóvember 1923 eða fyrir 100 árum. Hann var tvöfaldur Evrópumeistari í kúluvarpi en vandamál með áfengi varð til þess að hann keppti aldrei á Ólympíuleikum. Síðar setti hann þó tappann í flöskuna alveg sjálfur. Gunnar setti fjölda Íslandsmeta í kúluvarpi og kringlukasti og var landsfrægur. Í þessum þætti er saga Gunnars Huseby sögð og spiluð brot úr viðtölum við hann. Rætt er við íþróttafréttamennina Ómar Ragnarsson og Bjarna Felixson, Sigurbjörn Árna Arngrímsson frjálsíþróttasérfræðing og Jón Þ. Ólafsson fyrrverandi Íslandsmethafa í hástökki. Lesarar í þættinum eru Hreinn Valdimarsson og Birgir Þór Harðarson. Tæknimaður var Úlfhildur Eysteinsdóttir. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
  • Anton Sveinn McKee 25.08.2023 50min
    Gestur Íþróttavarpsins í dag er sundkappinn Anton Sveinn McKee. Anton fer yfir víðan völl um andlegu hliðina, um Ólympíuleikana í París á næsta ári og mánuðina og mótin fram undan, en gerir líka upp síðustu mót auk þess að ræða almennt um lífið og tilveruna. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Ingi Þór Ágústsson
  • HM í fótbolta 2023 - Úrslitaleikurinn fram undan 18.08.2023 33min
    Það er komið að endastöð á heimsmeistaramótinu í fótbolta árið 2023, úrslitaleikurinn er fram undan nú á sunnudag en þar mætast Spánn og England eftir sigra í fjörugum undanúrslitaleikjum. Hér í þætti dagsins ætlum við að fara yfir undanúrslitaleikina tvo og kryfja úrslitaleikinn. Gestir Íþróttavarpsins að þessu sinni eru Gunnar Birgisson og Albert Brynjar Ingason, þeir velja líka leikmann mótsins hingað til og nudda kristalskúluna fyrir úrslitin. Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir
  • HM í frjálsíþróttum - Sigurbjörn Árni fer yfir líklega hápunkta á HM 17.08.2023 1val 38min
    Heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum hefst í Búdapest á laugardaginn. Við tókum hús á Sigurbirni Árna Arngrímssyni á Laugum í Reykjadal. Sigurbjörn mun af sinni alkunnu snilld lýsa HM í frjálsíþróttum. Spurningin er hins vegar hvort hann verði búinn að finna símann sinn fyrir mótið. Ísland á þrjá keppendur á HM, sleggjukastarann Hilmar Örn Jónsson, kringlukastarann Guðna Val Guðnason og kúluvarparann Ernu Sóleyju Gunnarsdóttur. Rætt er líka við þau í þessum þætti en Sigurbjörn Árni fer svo ítarlega yfir líklega hápunkta mótsins í þættinum. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
  • HM kvenna í fótbolta 2023 - 8-liða úrslitin gerð upp 14.08.2023 32min
    8-liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta voru spiluð um helgina og eftir standa fjögur lið fyrir undanúrslitin sem eru framundan. Adda Baldursdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir fara yfir nýjustu leikina og spá í spilin fyrir framhaldið. Verður það Spánn/Svíþjóð eða Ástralía/England sem leika til úrslita? Geta heimakonur farið alla leið? Og svo er það stóra spurningin; hefði Ísland átt erindi á þetta mót? Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir
  • HM kvenna í fótbolta 2023 - 16-liða úrslitin gerð upp 09.08.2023 30min
    Það er hlé á heimsmeistaramótinu í fótbolta í dag og á morgun og 8-liða úrslitin fara af stað aðfaranótt föstudags. Albert Brynjar Ingason og Hörður Magnússon fara yfir 16-liða úrslitin og spá í spilin fyrir 8-liða úrslitin með Helgu Margréti Höskuldsdóttur. Hrun Bandaríkjanna, sannfærandi japanskt lið og fleira er til umræðu í þættinum þar sem Albert og Hörður spá líka fyrir um heimsmeistara. Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir

Populiari šalyje

Ši tinklalaidė taip pat patenka į šių šalių tinklalaidžių topus.