Spursmál

Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins
Valsts Iceland
Žanri News, Politics
Valoda IS-IS
Epizodes 138
Jaunākā 29.05.2026

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is. Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

Epizodes

  • #124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti 29.05.2026 1h 48min
    Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst.Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?
  • #123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu? 22.05.2026 1h 33min
    Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.
  • Bókaspjall: Frelsið eftir Mill með Hannesi Hólmsteini 14.05.2026 1h 9min
    Frelsi, nytjastefna, málfrelsi og staða hugmynda í samtímanum voru til umræðu þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, ræddi við Stefán Einar Stefánsson í Bókaklúbbi Spursmála um bókina Frelsið eftir John Stuart Mill.
  • #122. - Mun ríkisstjórnin koma atkvæðagreiðslunni í gegn? 08.05.2026 1h 27min
    Meirihlutinn á Alþingi hefur sléttar þrjár vikur til að koma ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í gegnum þingið. Takist það ekki 29. maí eða fyrr getur ekki orðið af henni í lok ágúst. Þessa dagana er hart tekist á um málið, ekki síst á vettvangi utanríkismálanefndar þingsins.Pawel Bartoszek er formaður nefndarinnar en í henni situr einnig Diljá Mist Einarsdóttir. Þau eru gestir Spursmála að þessu sinni og ræða málið frá ýmsum hliðum. Ljóst er að stór gjá er á milli meirihluta og minnihluta í þinginu um málið.Áður en þau mæta til leiks fara þau Andrés Magnússon og Andrea Sigurðardóttir yfir stöðuna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mun kreditkortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur hafa áhrif á fylgi Samfylkingarinnar og mun Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi standa af sér árásir Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra.
  • #121. - Gæti eldgos í Eyjum sett jarðgangagerð í uppnám? 24.04.2026 1h 14min
    Í Spursmálum dagsins verður öllum helstu spurningum svarað um það hvort mögulegt sé að bora 18 kílómetra göng milli lands og Eyja. Þá verður rætt við nýja oddvitaframbjóðendur í Garðabæ og Reykjavík.Þannig mæta þau til leiks, Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Munu þau ræða fréttir vikunnar sem eru af ýmsu og ólíku tagi.Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing og Árna Sigfússon, stjórnarformann Eyjaganga, um hugmyndina að göngum milli lands og Eyja.
  • #120. - Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera 17.04.2026 1h 16min
    Varaformaður Flokks fólksins er flúinn af hólmi og Seðlabanki og ríkisstjórn virðast leggja sitt af mörkum til þess að viðhalda háum vöxtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Spursmálum dagsins. Í fyrsta hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Andrés Magnússon um gögn sem nú hafa verið dregin fram í dagsljósið og varpa ljósi á það hvaða augum Evrópusambandið lítur áframhald viðræðna við Ísland um mögulega aðild þess að sambandinu.Í öðrum hluta þáttarins er rætt við þá Hlyn Bæringsson, oddvita Framsóknarflokksins í Garðabæ og Tómas Þór Þórðarson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins um fréttir vikunnar. þar ber margt forvitnilegt á góma, meðal annars hækkandi verðbólgu, yfirvofandi stýrivaxtahækkanir, brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og stöðuna í efstu deild í körfunni og fótboltanum.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Kjartan Örn Sigurðsson, eiganda Ormsson, en hann hefur stórar skoðanir á þeim aðgerðum sem Seðlabankinn hefur gripið til á síðustu árum í formi hækkandi vaxta, viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við versnandi efnahagsástandi og þrengingum á húsnæðismarkaði og síðast en ekki síst fyrirhuguðum breytingum á Suðurlandsbraut.
  • Bókakvöld: Grænland í brennidepli 16.04.2026 1h 20min
    Samtal við Heiðar Guðjónsson, Eld Ólafsson og Ragnar Axelsson um stöðu Grænlands.
  • #119. - Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? 10.04.2026 1h 34min
    Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því.Hann er  væntanlegur í Spursmál í dag til þess að ræða þetta áleitna mál en hann verður einnig til svars um það hvernig alþjóðamálin í víðara samhengi blasa við honum. Hann var um nokkurra ára skeið sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum í Washington D.C. og er því öllum hnútum kunnugur þegar kemur að stöðu og stefnu Bandaríkjanna, jafnt heima fyrir og um veröld víða.Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Sævar Helga Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnuvefsins með meiru, og Herbert Guðmundsson tónlistarmann. Rætt verður við þá um geimskot, fráfall Björgvins Halldórssonar og margt fleira.Í þáttinn mætir einnig Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins en hann mun í dag sitja fyrir hönd blaðsins blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem bæði kynnir nýja atvinnustefnu fyrir Ísland og tímabundnar aðgerðir til að mæta efnahagslegum þrengingum sem gert hafa vart við sig á síðustu mánuðum.Hann mun fara yfir helstu atriði í tillögum ríkisstjórnarinnar.
  • #118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi 27.03.2026 1h 35min
    Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík.Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist óhætt að upplýsa um þjóðerni mannanna sem nú sæta rannsókn vegna afar hættulegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Höfðatorgi í Reykjavík.Þetta og fleira er til umræðu á vettvangi Spursmála.Alþingismennirnir Bergþór Ólason frá Miðflokki og Grímur Grímsson frá Viðreisn ræða málið á vettvangi Spursmála. Almenningur spyr sig út í hvort öryggi fólks sé ógnað vegna uppgangs erlendra glæpagengja hér á landi. Grímur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn og þekkir vel til málaflokksins.Þeir ræða einnig stöðuna í efnahagslífi landsins en ný verðbólgumæling sýnir að ekki hefur tekist að ná böndum á verðhækkanir hér á landi. Mælist hún 5,4% samkvæmt Hagstofunni og fátt bendir til þess að kjarasamningar muni halda þegar þeir koma til endurskoðunar þann 1. september næstkomandi.Í síðari hluta þáttarins mæta alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson frá Sjálfstæðisflokki og Ingvar Þóroddsson frá Viðreisn. Þeir ræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.Einnig munu þeir takast á um nýbirta fjármálaáætlun ríkisins sem gildir fyrir árin 2027 til 2031. Báðir sitja þeir í fjárlaganefnd sem nú tekur áætlunin fyrir.
  • #117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt 20.03.2026 1h 36min
    Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur smíðað tvær afar áhugaverðar heimasíður sem notast við mállíkön til þess að greina íslenskt samfélag úr tveimur áttum.Þar er annars vegar um að ræða síðuna Þingfréttir (thingfrettir.is) þar sem starfsemi Alþingis er greind með áhugaverðum hætti og nýstárlegum og hins vegar ESB vaktin (esbvaktin.is) þar sem umræðan um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er greind og vegin og metin. Er hér um að ræða einskonar staðreyndavakt sem mun nýtast almenningi til að greina kjarna frá hysmi og sannleika frá lygi.
  • #116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB 12.03.2026 2h 8min
    Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB.Þessi mál verða tekin fyrir í fréttum vikunnar í Spursmálum þar sem Heiða Kristín Helgadóttir, nýráðinn ráðgjafi utanríkisráðherra, og Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans og stjórnandi hlaðvarpsins Komið gott, leiða saman hesta sína.Þá mætir Gauti Geirsson á svæðið en hann er framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells við Ísafjarðardjúp. Fyrirtæki hans beinir tæknibúnaði sem helst hefur orðið vart við í Star Wars í baráttunni við hina skæðu laxalús sem bæði herjar á eldislax og villtan.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Gísla Ragnar Guðmundsson sem leiðir samnorræna stofnun um gervigreind. Hann er flestum ef ekki öllum hnútum kunnugur þegar kemur að gervigreindinni en ekki er vanþörf á að skýra fyrirbærið fyrir fólki sem oft virðist ráðvillt þegar kemur að umræðu um kosti og galla þessarar mögnuðu tæknibyltingar.
  • #115. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? 09.03.2026 1h 23min
    Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð?Það er stóra spurningin sem varpað var fram í opinberri umræðu síðastliðinn föstudag þegar forystukonur ríkisstjórnarinnar boðuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið en hún mun fara fram 29. ágúst, verði þingsályktunartillaga þar um samþykkt á Alþingi.Góðir gestirFyrst mæta þeir á vettvang, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins.Þá leiða saman hesta sína Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar þingsins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður hans.
  • #114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson 06.03.2026 1h 42min
    Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála.Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005.Viðkvæm staða efnahagsmálaÞá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað.Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi?Hvað finnst Bjarna Benediktssyni um atkvæðagreiðsluna um mögulega aðild að ESB?Mun stríðið í Íran leiða áföll yfir Ísland?Í fyrri hluta þáttarins  verður hins vegar rætt við þá Þórð Gunnarsson, hagfræðing og Stefán Gunnar Sveinsson, blaðamann á Morgunblaðinu en þeir hafa báðir sérþekkingu á málefnum sem tengjast hinum miklu stríðsátökum sem nú geisa í Íran.Í viðtali við þá verður reynt að varpa upp mynd af atburðum síðastliðinnar viku og hvaða áhrif þeir kunni að hafa vítt og breitt um heimsbyggðina.
  • 113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af? 27.02.2026 1h 57min
    Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð.Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári.Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna.Flugfélag í kreppuBogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum.Rangir hvatar í stærstu bótakerfum landsinsÍ lok þáttar mætir geðlæknirinn og viðskiptafræðingurinn Oddur Ingimarsson og ræðir tvær afar athyglisverðar greinar sem hann hefur ritað í Morgunblaðið á síðustu tveimur vikum um örorkubætur og lífeyrisgreiðslur og hvernig samspil þeirra geta latt fólk til þess að koma aftur út á vinnumarkaðinn eftir að hafa misst starfsgetu sína um stundarsakir.
  • #112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? 20.02.2026 1h 39min
    Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa?Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum.Rýnt í fréttir vikunnarÍ fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins.Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hvort þeir hygðust ekki ábyggilega „taka af lífi“ nafngreinda menn úr íslenskum fjölmiðlum.
  • #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? 13.02.2026 2h 11min
    Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.Hversu hátt geta vextirnir farið?Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju.Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög.Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.
  • #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn 09.02.2026 48min
    Í morgun var tilkynnt að Ari Edwald myndi leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir með því skilið við Sjálfstæðisflokkinn sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir síðustu áratugi.Hann er gestur í aukaþætti af Spursmálum kl. 14.00 í dag. Þátturinn var sendur út í beinni útsendingu frá ritstjórn Morgunblaðsins í Hádegismóum.
  • #109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu? 06.02.2026 1h 36min
    Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi.Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi.Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum.Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs?
  • Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar 05.02.2026 58min
    Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í janúar. Viðmælandi er séra Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, sóknarprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins, sem er sjálfstæður fjölmiðill um málefni kirkju ogtrúar.
  • #108. - Eru kjarasamningar í uppnámi? 30.01.2026 1h 34min
    Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í Spursmálum. Það gerir hún ásamt Þórði Pálssyni, forstöðumanni fjárfestinga hjá Sjóvá.Þá ræða þau stöðuna í pólitíkinni, Hilmar Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Mosfellings og oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.Í þættinum ræðir Stefán Einar einnig við Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu en hann fylgir landsliðinu okkar eftir í Danmörku þar sem það mætir heimamönnum í æsispennandi leik í kvöld.

Populārs valstī

Šis podkasts parādās arī šo valstu podkastu topos.