Rauða borðið

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson
Valsts Iceland
Žanri Daily News, News, Politics
Valoda IS
Epizodes 600
Jaunākā 01.06.2026

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Epizodes

  • Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun 01.06.2026 4h 24min
    Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar eru tregir til að tilvísa. Augljóst er að staða Hildar Björnsdóttur, sem tekur við stöðu borgarstjóra á morgun, er sterk. Miðað við söguna gæti hún orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta segir Ólafur G, Harðarson stjórnmálafræðingur í samtali við Björn Þorláks. Baldur Jezorski fasteignasali segir Gunnar Smára frá þeim breytingum sem hafa orðið á íbúðamarkaði þar sem fjársterkir aðilar kaupa upp eignir á meðan almenningur hefur ekki efni á íbúðunum. Maðurinn í órofa tengslum við félagslegt og menningarlegt umhverfi sitt og markast vitsmunalega af slíkum tengslum, segir í bókinni Menntun í félagsmenningarlegu ljósi sem Hafþór Guðjónsson kennari hefur skrifað. Hann útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
  • Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 29.05.2026 1h 36min
    Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.
  • Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið 28.05.2026 4h 9min
    Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar.
  • Rauða borðið 27. maí - Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi 27.05.2026 4h 14min
    Miðvikudagur 27. maí Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka Pálsdóttir vill auka heilsulæsi og fjölga heilbrigðum æviárum. Í viðtali við Ásdísi Olsen veltir hún fyrir sér hvers vegna heilsubyltingin mæti þöggun og andstöðu frá kerfinu. Sigurjón Magnús ræðir við Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambandsins, um uppgang í golfíþróttinni. Hátt í 400 nemendur í Árbænum hafa fengið fría leiðsögn á hljóðfæri síðustu ár en stuðningur við verkefnið hefur nú verið blásinn af. Björn Þorláks ræðir við Stefán S. Stefansson tónlistarmann um öfugþróun í listum og menningu.
  • Rauða borðið 26. maí - Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja 26.05.2026 3h 41min
    Þriðjudagur 26. maí Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvaða breyting yrði á samkeppni með aðild að ESB. Gunnar Smári ræðir við Vigdísi M. Jónsdóttur sálfræðing á Sálfræðistöðinni Höfðabakka um einhverfar konur og hvers vegna þær fela svo vel einhverfu sína. Og svo ræða þau svokallaða fúla karla, eldri menn sem lifa einangruðu lífi og verða einmana. Hrefna Guðmundsdóttir vinnu-og félagssálfræðingur ræðir hamingjuna á þriðja æviskeiði við Ásdísi Olsen.
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars 23.05.2026 1h 50min
    Laugardagur 23. maí Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars Ragnari var nýlega sagt upp störfum á Landspítalanum sem hefur vakið sterk viðbrögð. Hann er vinsæll og vel metinn lyf- og gigtarlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann segir yfirstjórn spítalans vanhæfa og segir óhræddur skoðun sína á Landspítalanum og hvað mætti bæta í heilbrigðiskerfinu okkar. Ragnar er í Helgi-spjalli vikunnar með Ásdísi Olsen.
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 21 22.05.2026 1h 35min
    Föstudagur 22. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammt til Björns Þorlákssonar mæta þau Steinunn Ólína leikkona, Bragi Páll rithöfundur, Halldór Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. Þau ræða m.a. pólitík, löggur sem skjóta fólk, dýrtíð, menningu og menningarleysi.
  • Rauða borðið 21. maí - Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar 21.05.2026 4h 34min
    Fimmtudagur 21. maí Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar Brynjar Karl hjá körfuboltafélaginu Aþenu saknar ekki fráfarandi meirihluta Reykjavíkurborgar, enda hafa samskipti hans og borgarinnar verið stirð á umliðnum árum. Hann ræðir við Björn Þorláks og segist reiður, enda sé borgin beint eða óbeint að stuðla að rasisma. Alexandra Briem, Arna Magnea Danks og Svenný Kristins voru allar ofarlega á listum framboða til sveitarstjórna í nýafstöðnum kosningum. Þær lýsa bakslagi. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar. Dýrtíð, vextir, ESB og sveitarstjórnarkosningarnar verða meðal umræðuefna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Þorsteinn Valdimarsson verkefnastjóri Rauða krossins og Kristín Hjörleifsdóttir kennari ræða um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Ragnheiður Davíðs stýrir umræðunni. Þeir eru ekki margir sem fara í gegnum tónlistarnám í FÍH á 20 árum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason stígur á stokk í kvöld með útskriftartónleikum úr rytmískri deild. Hann hóf nám við skólann árið 2006. Björn Þorláks ræðir við Þorvald um drauma sem rætast.
  • Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar 20.05.2026 2h 21min
    Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að fá fleiri vísindamenn á næstu vikum til að uppfræða okkur um rannsóknar sínar. Valgeir Skagfjörð leikari varð fyrir umbreytandi reynslu þegar hann tók þátt í raunveruleikaþættinum Hamingjan sanna fyrir um 15 árum síðan. Valgeir segir Ásdísi frá þessari reynslu en ræðir einnig misnotkun móður sinnar og skömmina sem hann burðaðist lengst af. Stórsöngvararnir og vinir Jónasar Ingimundarsonar heitins, Kristinn Sigmundsson og Gunnar Guðbjörnsson, ræða um Jónas og tónleika sem eru fram undan í samtali við Björn Þorláks.
  • Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar 19.05.2026 4h 39min
    Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að fá fleiri vísindamenn á næstu vikum til að uppfræða okkur um rannsóknar sínar. Valgeir Skagfjörð leikari varð fyrir umbreytandi reynslu þegar hann tók þátt í raunveruleikaþættinum Hamingjan sanna fyrir um 15 árum síðan. Valgeir segir Ásdísi frá þessari reynslu en ræðir einnig misnotkun móður sinnar og skömmina sem hann burðaðist lengst af. Stórsöngvararnir og vinir Jónasar Ingimundarsonar heitins, Kristinn Sigmundsson og Gunnar Guðbjörnsson, ræða um Jónas og tónleika sem eru fram undan í samtali við Björn Þorláks.
  • Rauða borðið 18. maí - Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn 18.05.2026 3h 49min
    Mánudagur 18. maí Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn Blaðamennirnir Jón Trausti Reynisson á Heimildinni og Atli Þór Fanndal, sem starfar sjálfstætt, rýna í helstu atriði kosningaúrslita um helgina og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Umtalaðasta íslenska bókin þessa dagana er lífsreynslusaga Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Þar lýsir Gyrðir eigin baráttu við geðveiki og einkum þeim stökkbreytingum sem urðu til hins verra fyrir nokkrum og leiðir að því líkum að lyfjagjöf sé um að kenna. Guðmundur Andi Thorsson rithöfundur og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður ræða bókina með Birni Þorláks. “Vöruhús tilfinninganna” er dáleiðsluaðferð með nálgun jákvæðrar sálfræði sem Ingibjörg Bernhöft hefur þróað, sem vakti mikla athygli á alþjóðlegri dáleiðsluráðstefnu í Orlando í síðustu viku. Í þættinum dáleiðir hún Ásdísi Olsen til að hætta á nikótíntyggjói. Í dag greindi Morgunblaðið frá því að Árni Tómas Ragnarsson læknir er látinn fyrir aldur fram. Gunnar Smári Egilsson tók viðtal við hann eftir að landlæknir hafði svipt hann lækningaleyfi fyrir nokkrum misserum, þar sem Árni gaf út lyfseðla á morfín til fólks sem háð er ópíóðum. Árni var læknir fíkla. Við endurbirtum viðtalið.
  • Synir Egils 17. maí - Uppgjör kosninga 17.05.2026 2h 13min
    Sunnudagurinn 17. maí Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um niðurstöður kosninganna. Fyrst koma þau Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ráðgjafi og Árni Helgason nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fara yfir kosningabaráttuna, úrslitin og áhrif þeirra. Síðan koma starfsmenn stjórnmálaflokka, Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, Tómas Þór Þórðarson starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og fara yfir stöðu flokka og afleiðingar sveitarstjórnarkosninganna. Þeir bræður fara síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Vigfús Bjarni 16.05.2026 2h 21min
    Laugardagur 16. maí Helgi-spjall: Vigfús Bjarni Vigfús Bjarni Albertsson prestur segir frá lífinu, þessa heims og annars, í helgispjalli við Gunnar Smára; ræðir hversu stórkostleg manneskjan er og breysk, um sorgina, dauðann og lífið sem verður sterkara af áföllum.
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 20 15.05.2026 1h 34min
    Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 Vikuskammtur tekur mið af kjördegi á morgun. Við fáum fólk af listum þeirra þriggja flokka sem hafa mælst með mest fylgi til að ræða stöðuna í Reykjavík: Líf Magneudóttir er í öðru sæti á lista Vinstrisins, Heiða Björg Hilmisdóttir er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar og Brynjar Níelsson er í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Þau ræða kosningabaráttuna við Gunnar Smára. Um hvað er kosið, hvernig standa flokkarnir, hvað tekur við?
  • Rauða borðið - Aukaþáttur: Vinstrið 14.05.2026 45min
    Fimmtudagur 14. maí Vinstrið Aukaþáttur á uppstigningardag: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Finnur Ricart Andrason, María Hjálmtýsdóttir og Svenný Kristins koma að Rauða borðinu og ræða Vinstrið, framboð í Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað vill Vinstrið og hvert stefnir það?
  • Rauða borðið 13. maí - Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa 13.05.2026 5h 29min
    Miðvikudagur 13. maí Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa Sævar Ciesielski var misnotaður af séra Georg í Landakotsskóla og síðan píndur, niðurlægður og útskúfaður af íslensku þjóðinni,“ segir vinur hans, Jón Ármann Steinsson, í viðtali við Ásdísi Olsen um nýja sjónvarpsþáttaröð um Geirfinnsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um ferð Trump til Kína og áhrif þessara ferðar á heimsmálin. Heimildin reið á vaðið með fyrstu kappræður allra oddvita í Reykjavík í beinni útsendingu úr Tjarnarbíói í gærkvöldi. Sara Stef Hildar, Björn Þorláks og Laufey Líndal skiptast á skoðunum um kappræðurnar, en þau fylgdust með sem áhorfendur úr sal. Kristín Heba Gísladóttir forstöðumaður Vörðu, rannsóknaseturs ASÍ og BSRB, ræðir rannsókn á kjörum launafólks sem sýnir mjög veika stöðu láglaunafólks, einstæðra foreldra og foreldra almennt. Sameining allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu myndi leiða til mestu samgönguúrbótanna. Þetta segir Runólfur Ólafsson hjá FÍB. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um stöðu Keir Starmer við Gunnar Smára. Margrét Valdimarsdóttir, foreldri drengs með fötlun, segir að mikið vanti upp á að einhverfum dreng hennar sé sinnt sem skyldi. Óvissa með píanónám drengsins hennar bætist ofan á annað.
  • Rauða borðið 12. maí - Viðskiptaráð, kæra Rúv, lögfræðispjall, skólakerfið, læsishrun og mjúkir menn 12.05.2026 5h 17min
    Þriðjudagur 12. maí Viðskiptaráð, kæra á Rúv, lögfræðital, skólakerfið, læsishrun og mjúkir karlmenn Gunnar Smári ræðir við Björn Brynjúlf Björnsson framkvæmdastjóra um stefnu og markmið Viðskiptaráðs, fyrirferð þess í samfélaginu og hverjum það þjónar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa kært Rúv til Fjölmiðlanefndar. Árni Guðmundsson talsmaður samtakanna telur að Rúv stundi ólöglega auglýsingasölu. Þá ræðir Árni aðgengi barna og ungmenna að áfengi netsölufyrirtækja. Ragnheiður Stephensen kennari við Garðaskóla ræðir við Gunnar Smára um umræðuna um skólakerfið sem hefur orðið ákafari á undanförnum árum, kannski aldrei meiri en nú. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks um lagaleg álitaefni, gjarnan tengd fréttum líðandi stundar. Kreditkort borgarstjóra, normalíseringu ofbeldis og fleiri álitamál ber á góma. Sigríður Ólafsdóttir dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands ræðir við Gunnar smára um læsi og lesskilning. Margir ungir karlmenn þurfa að nota Viagra í kynlífi segir Númi Snær Katrínarson nuddari og Crossfit þjálfari. Hann lýsir því fyrir Ásdísi Olsen hvernig hugvíkkandi efni hafa hjálpað honum að gefa eftir inn í mýktina og njóta lífsins.
  • Rauða borðið 11. maí - Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð 11.05.2026 4h 23min
    Mánudagur 11. maí Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Brown-háskóla ræðir við Gunnar Smára um Bandaríki Trump, framtíð Nató, varnarsamninginn og fleira. Þrír formenn pólitískra ungliðahreyfinga ræða hlutskipti ungs fólks og um hvað verður kosið á laugardaginn. Þeir Illugi Gunnarsson, Vinstrinu 18 ára gamall, Halldór Ísak Ólafsson 26 ára sósíalisti og Jóhannes Óli, 22ja ára í Samfylkingunni, leggja spilin á borðið með Birni Þorláks. Úlfar Hauksson sjómaður og aðjúnkt í stjórnmálafræði, ræðir við Gunnar Smára um ESB og sjávarútveg. Það fylgir því sársauki að elska af öllu hjarta, segir Anna Ingólfsdóttir sem upplifði stórfenglegar tilfinningar þegar hún missti manninn sinn. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Þórhallur Jónsson sem klauf sig út úr Sjálfstæðisflokknum á Akureyri og stofnaði sérframboð ræðir við Björn Þorláks um hvernig það er að standa einn og utan hins gamla valdaflokks.
  • Synir Egils 10. maí - Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál 10.05.2026 2h 20min
    Sunnudagurinn 10. maí Synir Egils: Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál Við byrjum á samtali við oddvita framboðanna sem njóta mest stuðnings í Reykjavík og flestir vilja sjá sem næsta borgarstjóra: Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingar og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins ræða kosningarnar á laugardaginn og segja okkur hvað þau vilja gera í Reykjavík. Síðan förum við yfir fréttir vikunnar og stöðu mála: Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri Gímaldsins, Jovana Pavlović, mannfræðingur og oddviti Borgarbyggðarlistans, og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi greina helstu tíðindi og meta stöðuna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigmundur Ernir 09.05.2026 1h 33min
    Laugardagur 9. maí Helgi-spjall: Sigmundur Ernir Sigmundur Ernir Rúnarsson er skáld, blaðamaður, pabbi, eiginmaður, útvistarmaður, þingmaður og er þá ekki allt upp talið. Hann ræðir líf sitt og feril í ítarlegu helgi-spjalli við Björn Þorláks.