hún hlaðvarp
Erna Hrund Hermannsdóttir
0
Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.
Epizodes
-
hún hlaðvarp #9 Bókaklúbbur og trúnó 28.05.2026 1h 9minÍ þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo fyrir hverja bók fyrir sig og ræða hana og áhrifin sem hún hefur. Ég hvet ykkur til að lesa þær í sumar, ég er búin með bókina Leiðin Heim og fékk höfundinn hana Karitas Sigurðardóttur til mín í smá spjall. Loks svara ég svo alls konar spurningum frá ykkur og frá mér sjálfri í takt við þær sem viðmælendurnir hafa svarað, kominn tími til að gefa ykkur ennþá meiri innsýn inn í minn hugarheim. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, ILVA , Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #8 Sesselía Birgisdóttir 19.05.2026 1h 42minSesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast. Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyrum hvernig maður fer inn í nýja heima, byggir frá grunni, leiðir fólk í gegnum breytingar, og lærir að treysta því og hlusta þegar næsti kafli kallar.hún hlaðvarp er í boði: Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #7 Arna Harðardóttir 05.05.2026 1h 34minArna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sjálfur sé ein mikilvægasta, en jafnframt vannýttasta, auðlind heilbrigðiskerfisins.Í þessu samtali förum við yfir leiðtogahlutverkið, ábyrgðina, gildin og lærdóminn sem fylgir því að stíga inn í stór verkefni án þess að missa tengingu við sjálfa sig.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir PlanmanUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #6 Edda Konráðsdóttir 28.04.2026 1h 26minEdda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín fyrstu skref. Það var virkilega áhugavert að heyra hennar sýn á hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að fyrstu skrefum í heimi nýsköpunar, hvernig hún nálgast erfiðar aðstæður og það stendur uppúr að heyra hvernig hún talar um aðra og mikilvægi fyrirmynda bæði fyrir sig og aðra. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir PlanmanUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #5 Salóme Guðmundsdóttir 21.04.2026 1h 23minSalóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #4 Guðrún Aðalsteinsdóttir 14.04.2026 1h 23minGuðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt. Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en einnig fyrir fólkið í landinu. Hún hefur haldið gildum sínum á lofti í gegnum sín störf þar sem allir eiga að upplifa að þeir og þeirra störf skipti máli, það eigi að koma eins fram við alla og allir ættu að hafa val og aðgengi að vörum sem stuðla að heilsusamlegri lífstíl. Mikið var gaman að heyra alla söguna og skilja enn betur hvað það var sem mótaði hana að þeirri konu og leiðtoga sem hún er í dag.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur 07.04.2026 57minÍ þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? hvað getum við gert til að lyfta upp konum? afhverju forðast konur við að breyta? Svo að lokum deili ég 5 bestu ráðunum sem ég hef fengið á ferlinum mínum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #3 Dr. Ásta Dís Óladóttir 01.04.2026 1h 12minLeiðtogi sem vill breyta hlutunum og vinnur hörðum höndum að því að efla tengsl milli háskóla og atvinnulífs. Dr. Ásta Dís Óladóttir, nýkjörin forseti Viðskiptafræði Háskóla Íslands, háskólakona ársins 2025 og stofnandi rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- & atvinnulífi. Ásta Dís er leiðtogi sem hefur haft mikil áhrif á umræðuna um stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi og hefur helgað ferlinum sínum rannsóknum á þessu máli. Við ræddum um ferilinn hennar, fórum yfir nýjust rannsóknir og hvernig við þurfum að beita okkur fyrir áhrifum í umræðunni. Samkvæmt nýjustu tölum munum við ekki ná 40% markmiðinu okkar um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með 50 eða fleiri starfsmenn fyrr en árið 2070. Tölurnar og samtalið okkar sýnir hve mikilvægt það er að við stöndum saman og höldum þessari umræðu á lofti.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #2 Edda Hermannsdóttir 24.03.2026 1h 9minHvernig verður maður leiðtogi sem nær að halda ró í sviðsljósinu og lyfta öðrum með sér. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og Heilsu, er gestur þáttarins. Hún hefur sýnt að það að sameina skýra stefnu og annlega forystu skilar árangri. Við Edda ræddum nýja stefnu Apótekarans og áherslur sem hún setti sér strax á fyrsta degi í nýju starfi. Edda hefur átt áhugaverðan feril sem gæti virkað fyrir mörgum óvenjulegur en þarna er alltaf einhver dýpri hugsun á bakvið. Auk þess má nefna að samtöl okkar Eddu eru ein af ástæðunum fyrir þessu hlaðvarpi og ég er viss um að hún muni veita fleirum en bara mér innblástur. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp #1 Rakel Guðmundsdóttir 17.03.2026 1h 19minKraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum yfir víðan völl í samtalinu okkar. Við ræddum um hvernig hlutverk stjórnar styður við bakið á stjórnendum fyrirtækja, frumkvöðlalífið og hvernig góð yfirsýn fjármagns skiptir öllu, stefnumótun og 100 daga áætlun. Að sjálfsögðu ræddum við líka móðurhlutverkið og hvernig forgangsröðun skiptir lykilmáli þegar kemur að því að halda jafnvægi. Í lokin ræddum við svo hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta stutt við foreldra í fæðingarorlofi og sérstaklega eftir það, málefni sem stendur okkur báðum nær. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
-
hún hlaðvarp með Ernu Hrund - KYNNING 10.03.2026 8minHvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri stað varð til hún hlaðvarp. Í þessum kynningarþætti langar mig að gefa ykkur innsýn í það hvert ég ætla með þetta ferðalag og afhverju, ég reyni að gera þetta fyrst og fremst af einlægni og hreinskilni og með það í huga að við séum alltaf sterkari saman og sérstaklega þegar við leitum ráða hver hjá annarri. Í hverjum þætti fær ein kona sviðsljósið, við heyrum um þeirra ferðalag og lærdóm og verðum vonandi fróðari eftir hlustun. Inn á milli koma svo styttri þættir þar sem ég ætla að deila með ykkur mínum lærdómi.Markmiðið er að gefa konum innblástur og innsýn í ferðalag annarra kvenna, fá tækifæri til að spegla sig og þannig fá aukið sjálfstraust í að sækjast eftir tækifærum. Fá að heyra sögur af erfiðum ákvörðunum eða áskorunum sem þær hafa mætt og þroskað þær á sínu ferðalagi. Mig langar að opna umræðu um konuna sem vill ná langt, sem vill skapa sér sterkan stað í íslensku atvinnulífi og hafa áhrif. Eflaust hafa margar konur upplifað að þær þurfi að velja á milli fjölskyldu og starfsferilsins en er hægt að gera bæði eða má gera bæði? Í þáttunum kynnumst við ólíkum stjórnendastílum, hugsungargangi og hvernig viðmælendur hafa þróað sinn stíl yfir ferilinn.
Populārs valstī
Šis podkasts parādās arī šo valstu podkastu topos.