Rokkland
RÚV
0
Rokkland er músík-magasín í útvarpi sem fjallar um tónlist líðandi stundar, segir sögur af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallar við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson.
Episod
-
Liverpool 04.08.2026 1j 47minRokkland með Hljómum og The Beatles í Liverpool. -
Download 2010 19.07.2026 1j 44minRokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 20. Júní 2010 og hann stendur undir nafni í dag vegna þess að í dag er Rokklandið tileinkað Rokk-hátíð með stóru R-i – nefnilega Download þungarokkshátíðinni 2010. Þar komu fram margar af stærstu rokksveitum sögunnar - AC/DC – Rage Against The Machine - Motörhead, Megadeth og Aerosmith - Lamb Of God - Stone Temple Pilots - Stone Sour - Bullet For My Valentine - Saxon, Slash og Billy Idol t.d. Rokkland var á Download. -
Sálin hans Jóns míns 05.07.2026 1j 42minRokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 14. desember 2008 og gestir þáttarins eru þeir Stebbiog Gummi úr Sálinni hans Jóns Míns. Þegar þátturinn var frumfluttur var Sálin að fagna 20 ára starfsafmæli og af þvi tilefni gaf útgáfufyrirtæki þeirra - Sena frá sér þrjár afurðir sem allar bera heitið “Hvar er draumurinn”. Sálin kom fram í fyrsta skipti í mörg ár á 60 ára afmælistónleikum Stebba í Eldborg í Hörpu um síðustu helgi. -
Queens of the Stone Age 28.06.2026 1j 51min -
David Byrne 21.06.2026 1j 53min -
Bergmál Kaleo 14.06.2026 1j 51min -
Bubbi og við 07.06.2026 1j 50minBubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag. Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan. Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu. Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær: "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér". Rokkland vikunnar er þannig að samferðafólk Bubba – gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba – Bubbi og ég - Bubbi og við. -
Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP 31.05.2026 1j 51minÍ Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni. Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu – við höfum öll heyra hann spila án þess kannski að hafa pælt í því. En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er að austan – tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er að spila með hinum og þessum og er búinn að vera bassaleikari í MÚR árum saman. -
Bob Dylan í 85 ár - Hver er þessi maður eiginlega? 24.05.2026 1j 50minBob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil. Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og líka um ástina. Síðan þá hefur margt gerst og Dylan hefur verið meira og minna á tónleikaferðalagi í næstum 40 ár – hann er t.d. að spila í allt suma í Bandaríkjunum. Plöturnar eru margar eins og raddirnar og karekterarnir sem hann hefur sýnt okkur gegnum tíðina. Hver er hann eiginlega þessi maður? Guðmundur Andri Thorsson er Dylan maður og hann er gestur Rokklands á morgun. Guðmundur þýddi sjálfsævisöguna Chronicles sem kom út fyrir nokkrum árum og þar er í bókarlok viðauki frá Guðmundi Andra – lagalisti sem hann setti saman. Við skoðum hann í Rokklandi og förum hingað og þangað. -
G! 2025 17.05.2026 1j 54min -
Baldvin Hlynsson - Bjössi Basti og The Hangmen - Angine de Poitrine og Iron Maiden 10.05.2026 1j 52minÍ Rokklandi vikunnar kynnumst við rokkhljómsveitinni The Hangmen frá Los Angeles sem spilar á tónleikum í Tjarnarbíó næsta föstudagskvöld ásamt Dr. Gunna (Hljómsveitin Dr. Gunni – hOFFMAN og Bleiku Böstunum. Bjössi Basti (Bjorn Helgi Baldvinsson sem t.d. stofnaði X-ið á sínum tíma og er söngvari Bleiku Bastanna stendur að tónleikunum og segir okkur frá The Hangmen. Við skoðum aðeins kanadísku hljómsveitina Angine De Poitrine sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir skemmtilegt stærfræði-jazz-proggrokk – feluleik og áhugaverða búninga. Svo er það Baldvin Hlynsson sem er hljómsveitarstjóri í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu – upptökustjóri – lagasmiður og hljómborðsleikari í 70 ára afmælisbandi Bubba Morthens þar sem Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir er hljómsveitarstjóri. Við kynnumst Baldvin en það er margt í gangi hjá honum alla daga. Svo kemur Iron Maiden aðeins við sögu en splunkunýrri heimildarmynd um Iron Maiden sem var frumsýnd síðasta föstudag. -
Björgvin Halldórsson kvaddur 03.05.2026 1j 53minRokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess að þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var að búast. Björgvin (Bo Halldorson var lagður til hinstu hvílu á þriðjudaginn síðasta og mörg hundruð manns fylgdu honum síðustu metrana í Hallgrímskirkju. SÝN sá um beina útsendingu frá útförinni á Visi og við á Rás 2 fengum leyfi hjá Sýn og fjölskyldu Björgvins til að útvarpa hluta af útöförinni í Rokklandi í dag. Þau sem sungu í útförinni voru landslið og vinir Börgvins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Páll Rósinkranz, mugison, Daníel Ágúst, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius– Fóstbræður og svo börnin hans 2 af þremur – Krummi Bjorgvinsson og Svala Björgvins. Andrea Ingvarsdottir söng með þeim. Óskar Einarsson spilaði á píanó og var tónlistarstjóri og Guðmundur Pétursson spilaði á gítar. Jakob Frímann talar og líka Ari Eldjárn. Prestur var Guðni Már Harðarsonsem stjórnaði öllu saman. Í lok þáttar eru svo brot frá nokkrum heimsóknum Björgvins í Rokkland gegnum tíðina ❤ 🎵 -
Jesse Welles og MÚR 26.04.2026 1j 50minÍ Rokklandi vikunnar kynnumst við hinum 34 ára Jesse Welles sem ætlaði sér alltaf að verða tónlistarmaður en gafst svo upp þegar ekkert gekk fyrir nokkrum árum og flutti aftur heim til Ozark í Arkansas. Það var svo þegar hann sat við hlið föður síns sem hafði fengið hjartaáfall - á sjúkrahúsi – sem hann ákvað að halda áfram í músíkinni en skipta um aðferð. Síðan 2024 hefur Jesse Welles gefið út 8 plötur og honum er líkt við ungan Bob Dylan. Í einu nýjasta laginu hans (No Kings) syngur Joan Baez með honum. Við kynnumst Jesse Welles í Rokklandi vikunnar og Bubbi Morthens leggur orð í belg. Við förum líka á Eurosonic festival í Hollandi og hittum þar Maríu Rut Reynisdóttur framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands og þá Kára og Haukur úr hljómsveitinni MÚR sem spilaði á hátíðinni og er á hraðri siglingu út í heim þessa dagana. -
Akranes krú - Tíbrá - Gaddavír - Bubbi - Falinn Gjóður 19.04.2026 1j 52minHljómsveitin Tíbrá frá Akranesi er jafn gömul U2 – var stofnuð árið 1976 og hefur verið starfandi með hléum síðan þá en var öflugust milli 1980 og 1990. Núna næsta laugardag ætlar Tíbrá að fagna 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi og Rokkland fór og hitti þá Eirík trommara og Flosa hljómborðsleikara á æfingu í vikunni! Rokkland spjallaði líka lítillega við sigursveit Músíktilrauna eftir sigurinn í Hörpu um daginn. Þetta eru þrír stákar í 10unda bekk sem kalla sig Galinn Gjóður og þeir hlusta aðallega segja þeir á Frank Zappa og Þursaflokkinn. Halldór Gunnars Pálsson segir okkur frá nýja laginu hans Bubba sem kom út í gær og heitir Við föllum – og Halldór er líka hljómsveutarstjóri Bubba á afmælistónleikunum sem verða í Laugardalshöll 6. Júní. Svo er það grjótmulningsvélin frá Akranesi – hljómsveitin Gaddavír sem sigraði í Wacken Metal Battle 2025 og tók þátt í Músíktilraunum fyrir áratug. Gaddavír fór út til þýskalands til að spila á Wacken Open Air – ásamt hljómsveitum frá 30 öðrum löndum í fyrra og var líka að senda frá sér plötuna Akranes krú. Brynjólfur Þór Guðmundsson Skagamaður og fréttamaður hér á RÚV er Wacken maður og hann ræddi við Gaddavír fyrir Rokkland. -
TODMOBILE II 12.04.2026 2j 5minHljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til. Þorvaldur Bjarni heldur áfram að segja frá í Rokklandi vikunnar! -
TODMOBILE 05.04.2026 1j 51minHljómsveitin Todmobile hlaut á dögunum heiðursverðlaun ÍTV fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Íslandi í næstum 40 ár, en rætur hljómsveitarinnar liggja allt aftur til tímans þegar rokk í Reykjavík var að verða til. Þeir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Eyþór Laxdal Arnalds höfðu þekkst frá 6-7 ára aldri og fyrsta hljómsveitin hans Þorvaldar sem hét Exodus spilaði í Stundinni okkar. Skúli Sverris spilaði á bassa í Exodus og Björk Guðmundsdóttir söng. Eyþór Arnalds stal Björk svo úr Exodus og í Tappa Tíkarrass. Seinna voru þeir Eyþór og Þorvaldur skólabræður í tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík og þriðja púslið í Todmobile framlínuna var svo söngkonan Andrea Gylfadóttir sem hafði slegið í gegn með hljómsveitinni Grafík og hafði lokið prófi sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík með hæstu einkun. Todmobile sló í gegn með fyrstu plötunni sinni- Betra en nokkuð annað sem kom út 1989 og þegar ÍTV voru afhent í fyrsta sinn árið 1994 fékk Todmobile næstum öll verðlaunin. Hljómsveitin hefur verið starfandi með hléum allar götur síðan 1988 og á undanförnum árum hefur Todmobile einbeitt sér að því að halda stóra tónleika í stærstu tónleikahúsum landsins. Þau hafa fengið erlendar stórstjörnur til samstarfs við sig – hetjur og átrúnaðargoð sérstaklega Þorvaldar Bjarna sem hefur mest verið við stýrið í Todmobile- Jon Anderson úr Yes og Steve Hacket úr Genesis - og núna síðast voru það Nik Kershaw – Midge Ure úr Ultravox og Tony Hadley úr Spandau Ballet. Þorvaldur Bjarni segir frá í Rokklandi vikunnar! -
Víkingur Heiðar 29.03.2026 1j 51minGestur Rokklands þessa vikuna er enginn annar en píanósnillingurinn OKKAR – Víkingur Heiðar Ólafsson En Víkingur Heiðar er með 2 og hálfa milljón hlustenda á mánuði á Spotify - hann ferðast um heiminn þveran og endilangan og spilar í glæsilegustu tónleikahúsum heims – Carnegie Hall – Royal Albert Hall- og svo framvegis. Hann býr á Seltjarnarnesinu - spilar yfir 100 tónleika á ári í útlöndum - er dáður og virktur – gefur út hjá elsta plötufyrirtæki heims – hinu virta Deutche Grammophone. Hann hefur komið fram hjá Jools Holland á BBC – var í löngu viðtali hjá upptökustjóranum Rick Rubin fyrir skemmstu og þannig mætti lenggi halda áfram. Víkingur Heiðar er stórstjarna – og ekki bara í útlöndum vegna þess að við landar hans erum líka afskaplega hrifin af honum. Hann er að spila í Eldborg í Hörpu í næstu viku – þrisvar sinnum – miðvikudag – skírdag og laugardaginn fyrir páska. Hann gaf sér tíma til að koma í upptöku fyrir Rokkland í stúdíó 12 í stuttu stoppi hérna heima - hann stoppaði í tæpa tvo sólarhringa – var að koma frá París þar sem hann var að spila – og var á leiðinni til Bandaríkjanna til að spila nokkra tónleika – áður en hann kom svo aftur heim – og hann var veikur. Undir lok þáttarins förum við svo í Hljóðrita í Hafnarfiði og hlustum á Vintage Caravan ásamt Tómasi Jónssyni og Eyþóri Inga spila og syngja Deep Purple – en þeir eru með tónleika í Eldborg og Hofi núna í apríl þar sem þeir ætla að spila Deep Purple – og ég get sagt ykkur að það er ekki hægt að gera það betur en þeir gera það. Frábærir! -
Atli Örvarsson 22.03.2026 1j 51minAtli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitalífið á Íslandi fyrir rúmum 30 árum – hætti í Sálinni hans Jóns Míns sem þá var vinsælasta hljómsveit landsins og fór til Ameríku í nám í hinum virta Berklee tónlistarháskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts. Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem við þekkjum flest – og Atli Örvarsson er í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heims. Hann hefur hlotið allskyns viðurkenningar - verið tilnefndur til Grammy verðlauna og fyrir tveimur árum hlaut hann Bafta verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á Apple TV+. Atli er líka einn af sigurvegurum Músíktilrauna – sigraði 17 ára með Stuðkompaníinu sem hann var ásamt Kalla bróður sínum og fleiri strákum frá Akureyri. Lukkan hefur verið í liði með Atla – honum hefur gengið alveg ótrúlega vel, en hvað er þetta mikið lukka og hvað mikið af allt öðru? Við ætlum að kynnast Atla Örvarssyni í Rokklandi í dag – hann segir sjálfur sögu sína en hann verður á sviðinu í Hofi á Akureyri á skírdag með SinfoniuNord – stjórnar hljómsveitinni og músíkin er öll eftir hann. -
Ragga 15.03.2026 1j 49minBorgarlistamaður 2025 – Ragga Gísla er gestur Rokklands þessa vikuna. Ragga úr Grýlunum og Stuðmönnum sem er búin að gleðja okkur Íslendinga með söng og músík og frumleigheitum ýmiskonar. Og Ragga á sér svo margar hliðar en hún er alltaf í tengingu við sjálfa sig. Hún veit hvað hún vill og er með stíl sem hefur einnkennt hana í áratugi. Ragga er söngkona/tónlistarmaður/tónmenntakennari/Stuðmaður/tónskáld/Grýla og svo margt fleira. Ragga er fyrirmynd kvenna í músík og kvenna almennt - hún stofnaði fyrstu kvennahljómsveitina á Íslandi og hún er mikill jafnréttissinni. Rokkland vikunnar er RögguRokkland! -
TÞM - útrás Utangarðsmanna og Europe´s Biggest Gig 08.03.2026 1j 47minÍ Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel – Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin að vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en nú er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess að TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum að spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna – Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku. Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á að kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður – þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.
Popular di
Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.