Tveggja Turna Tal
Tveggja Turnatal
0
Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.
Episod
-
#65 Björn Daníel Sverrisson part II 15.01.2026 1j 7minÞáttur vikunnar er seinni hluti spjallsins við Björn Daníel Sverrisson. Björn Daníel er þjálfari, leikmaður, tónlistarmaður og lífskúnsner!
-
#64 Aron Baldvin Þórðarson 08.01.2026 1j 23minAron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni. Víkingar vildu ekki selja. Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði!
-
#63 Andri Freyr Hafsteinsson 29.12.2025 1j 49minAndri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni. Andri Freyr hefur þjálfað hjá Stjörnunni, KR og FH á höfuðborgarsvæðinu, en býr í dag á Stykkishólmi þar sem hann rekur vefsíðuna aperformance.net, sem býður upp á þjónustu fyrir félög, þjálfara og leikmenn. Við Andri fórum vítt yfir sviðið. Hvernig er hægt að þjálfa 100 stráka í 4. flokki og gera það faglega? Hvernig leysir maður flækjustigið í því að halda úti 2. flokksstarfi kl. 20:45 í febrúar? Eru leikmenn of oft meiddir á undirbúningstímabilinu og af hverju? Þetta er þáttur fyrir þjálfara, foreldra, stjórnendur og alla sem vilja skilja betur hvað fagleg uppbygging í íslenskum fótbolta krefst. Turnarnir eru í afar nánu og góðu samstarfi við nokkra góða aðila: Hafið Fiskverslun Lengjan Spíran Dave & Jones Budvar World Class
-
#62 Björn Daníel Sverrisson 25.12.2025 2j 9minFyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í þessum hluta. Samstarfsaðilar Turnanna eru: Hafið FIskverslun Lengjan Budvar Dave&Jones Valitor Ferðaskrifstofa Spíran World Class
-
#14 Turnar Segja Sögur: Graeme Souness 03.10.2025 1j 2minGraeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur. Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti dagsins. Turnar segja sögur ætla að ræða Graeme Souness í þætti dagsins.
-
#61 Milan Stefán Jankovic 29.09.2025 1j 18minMilan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru Visitor, Lengjan, Hafið, World Class og Budvar félagi okkar!
-
#13 Turnar Segja Sögur: Svikarhrappar & sóun á hæfileikum 12.09.2025 1j 22minAndri Geir kom í heimsókn og við ræddum svikahrappa, drullusokka og leikmenn sem hefðu getað nýtt hæfileikana sína betur!
-
#12 Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992 29.08.2025 58minEvrópuævintýri Dana sumarið 1992 í Svíþjóð er merkileg saga. Krissi veit meira um knattspyrnusögu daga en Sacchi um 442 leikkerfið. Njótið vel!
-
#60 Dagbjartur Sigurbrandsson 25.08.2025 57minDagbjartur varð á dögunum Íslandsmeistari í golfi, eingöngu 22 ára gamall. Hann er þrátt fyrir ungan aldur útskrifaður úr háskóla í Bandaríkjunum og stefnir á að verða atvinnumaður í golfi á næstunni. Við fórum yfir hvernig þetta byrjaði, hvað er í gangi hjá honum og hvert hann er að fara!
-
#11 Turnar Segja Sögur: Risar vs Dvergar 21.08.2025 1j 9minÓmar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu. Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum? Góða skemmtun!
-
#10 Turnar segja sögur: Pizzagate 15.08.2025 1j 4minSir Alex Ferguson og Arsène Wenger eru tveir goðsagnakenndir knattspyrnustjórar sem gerðu Manchester United og Arsenal að risum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir börðust á banaspjótum í meira en áratug, skiptust á að vinna titla og kveiktu í áhorfendum með ógleymanlegum leikjum. En úr eldi hatursins kviknaði virðing og úr virðingunni óvænt vinátta.“
-
#59 Guðrún Brá Björgvinsdóttir 14.08.2025 1j 4minGuðrún Brá Björgvinsdóttir varð um helgina Íslandsmeistari í golfi í fjórða sinn þegar hún sigraði á frábæru móti á Keilisvelli í Hafnarfirði. Hún hefur verið atvinnumaður í golfi undanfarin ár, fór í gegnum háskólagolf í Bandaríkjunum og má segja að golfið hafi verið henni í blóð borið , hún fékk það nánast með móðurmjólkinni! Saga Guðrúnar Brár er bæði áhugaverð og lærdómsrík. Hún hefur frá miklu að segja: kostir og gallar þess að spila golf á námsstyrk, samskipti við kylfusveina á atvinnumannaröðinni, hvernig stress getur virkað jákvætt og margt fleira. Vinir Turnanna eru: Hafið fiskverslun World Class Visitor ferðaskrifstofa Lengjan Budweiser Budvar
-
#9 Turnar segja sögur: Gullit & Rijkaard 08.08.2025 50minFélagarnir Hermann Rijkaard og George Gullit fóru með skipi frá Surinam til Hollands árið 1957. Í septembermánuði fimm árum seinna áttu þessir félagar báðir eftir að eignast syni sem áttu eftir að breyta fótboltanum í Hollandi og víðar. Njótið vel!
-
#58 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir 04.08.2025 1j 25minAndrea Rán á nokkuð áhugaverðan knattspyrnuferil. Hún byrjaði að spila 15 ára í efstu deild á Íslandi og hefur spilað í Bandaríkjunum í tveimur efstu deildunum þar, í háskólaboltanum í Frakklandi og í Mexico! Í dag er hún akkeríð á miðju FH-inga sem tryggðu sér sæti í bikarúrslitum á dögunum. Við fórum yfir þetta allt saman ásamt því að fara yfir það hvernig þarf að búa til sterka liðsheild, hvað sé mikilvægt í fari þjálfara og margt fleira. Góða skemmtun
-
#8 Turnar segja sögur: El Fenomeno 31.07.2025 56minRonaldo Nasário var með ljótustu hágreiðslu knattspyrnusögunnar á HM 2002 í undanúrslitum gegn Tyrkjum og í úrslitum gegn Þjóðverjum. Afhverju skartaði hann þessari sjónmengun. Við fórum yfir sögu þessar hágreiðslu í þætti dagsins. Ronaldo - El Fenomeno
-
#57 Jónas Grani Garðarsson 28.07.2025 2j 16minJónas Grani á ótrúlega áhugaverða sögu að baki! Hann er sá elsti til að þreyta frumraun sína í efstu deild og er líka sá elsti til að fá gullskóinn. Ferillinn hófst á Húsavík en við fórum líka yfir árin í Kaplakrika, hvernig var að vera þjálfaður af Ásgeiri El áður en við brugðum okkur til Katar, Belgíu og AC Milan! Sögur Jónasar Grana frá þessum stöðum eru stórmerkilegar. Alegri stakk hann í bakið en hvar ætli hann endi næst! Ég er allavega búinn að bóka mig í heimsókn... Njótið
-
#6 Turnar Segja sögur: The Crazy Gang 22.07.2025 59minWimbledon FC á einhverja merkilegustu "öskubuskuævintýr" í sögu ensku fótboltans. Við fórum yfir sögu the Crazy Gang, þar sem eigandinn, þjálfararnir, leikmennirnir og meira að segja búningastjórinn voru allir kolruglaðir !
-
#7 Turnar segja sögur: Dómari, skipting! 21.07.2025 57minVaramaður eða leikbreytir? Það er ekki öllum í lófa lagt að koma inn af bekknum og breyta gangi knattspyrnuleikja en það eru þó til mörg dæmi um slíkt. Við settumst niður og fórum yfir reglur knattspyrnusögunnar er varðar varamenn og fundum til sögur hérlendis og erlendis af mönnum sem skrifuðu nöfn sín í sögubækurnar af bekknum!
-
#6 Turnar segja sögur: The Crazy Gang 14.07.2025 59minWimbledon FC á einhverja merkilegustu "öskubuskuævintýr" í sögu ensku fótboltans. Við fórum yfir sögu the Crazy Gang and af nægu að taka !
-
#5 Turnar segja sögur: Gullmörk, bikarævintýri og fallslagur í Noregi! 03.07.2025 51minVið Turnarnir bjóðum upp á pálínuboð í þætti dagsins. Fannar Freyr Guðmundsson, einn af bestu sonum Hafnarfjarðar, FH-ingur, Liverpoolmaður og þjálfarari Hrottanna á Litla Hrauni kom til okkar. Fáranleg saga af gullmarkinu, bikarævintýri á Íslandi og einkennileg fallbarátta í Noregi koma við sögu! Turnarnir eru í boði Lengjunnar, World Class og okkar besta Budvar!
Popular di
Podcast ini turut muncul dalam senarai podcast negara-negara ini.