Besta sætið
bestasaetid
0
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Odcinki
-
5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu 05.10.2026 25minFókus dagsins er á landsleik Eistlands og Íslands sem fer fram á morgun. Það er krafa á sigur frá Besta sætinu. Heimir Hallgrímsson er farinn í langþráð frí eftir hasar síðustu daga. Bónusdeild karla hefst á fimmtudag og er hitað upp á Sýn Sport í kvöld. -
2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus 02.10.2026 26minLandsleikur gegn Búlgaríu á morgun og Arnar Gunnlaugsson er varkár í yfirlýsingum. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum í körfu karla og fallið klárast í Bestu kvenna í kvöld. -
1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra 01.10.2026 21minCristiano Ronaldo, Man. City og Heimir Hallgrímsson á matseðli dagsins. -
30. sept - Man City og Lúxus í Lúx 30.09.2026 27minÞað var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um helgina. Manchester City er þá á allra vörum. Á landsliðið að þurfa Gylfa Þór Sigurðsson til að halda liðinu gangandi? Það var í það minnsta allt annað að sjá til liðsins með hann innanborðs í gær. Hvar á maður svo að byrja á þessu Manchester City-máli? Það eru ævintýralega margir vinklar á því. Valur Páll Eiríksson, Sindri Sverrisson og Smári Jökull Jónsson fóru yfir málin í Besta sætinu. -
29. sept - Pressa á Arnari 29.09.2026 19minPressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa. Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson fóru yfir sviðið á þessum ágæta þriðjudegi. Landsliðin okkar áttu sviðið þar sem bæði U21 árs liðið og A-landsliðið verða í eldlínunni í dag. Þá átti 39 ára gamall Case Keenum stórleik í NFL-deildinni þrátt fyrir að vera að spila sinn fyrsta leik í þrjú ár. Bónus-deild kvenna í körfubolta fer þá af stað í kvöld með þremur leikjum þar sem áhugavert verður að sjá KR og Grindavík sem spáð er góðu gengi. -
28. sept - Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi 28.09.2026 21minSlakur landsleikur Íslands og havarí í kringum Írland, Ísrael og Manchester City bar hæst í Besta sætinu þennan mánudaginn. Valur Páll Eiríksson, Bjarki Sigurðsson og Sindri Sverrisson fóru yfir sviðið í þætti dagsins. Menn voru enn að jafna sig eftir slaka frammistöðu karlalandsliðsins í fótbolta á laugardaginn var en strákarnir okkar eru mættir til Lúxemborgar þar sem þeir geta svarað fyrir frammistöðuna. -
Rúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið 26.09.2026 27minSauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við sig austan tjaldsins í Rúmeníu og Kasakstan. Rúnar Már neyðist til að hætta vegna þrálátra meiðsla sem hafa áhrif á hans daglega líf og því fylgir ákveðið sorgarferli. Hann fer yfir ferilinn í ítarlegu viðtali við íþróttadeild Sýnar. -
25.sept - Ekkert elsku mamma lengur 25.09.2026 19minBesta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun. Ræddum líka frábæra leiki í Olís deildinni, Þjóðadeild og þau vandræði sem Valur er í. Ákveðin krísa á Hlíðarenda. Það og margt fleira í þætti dagsins. Góða helgi! -
24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi 24.09.2026 19minÞað verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna. Lægðin hafði sín áhrif á landsliðin okkar sem færðu sig úr Laugardalnum inn í hallir að æfa í dag. Kvennalandsliðið, U21 landsliðið, Olís-deildin og stórleikir í Þjóðadeildinni í Besta sætinu þennan fimmtudaginn. -
23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met 23.09.2026 19minÁkvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu. Þar var einnig farið yfir leikina í Meistaradeild kvenna í fótbolta, þar sem fjöldi Íslendinga kom við sögu, og einvígin sem Breiðablik og FH hefja í dag í Evrópubikarnum. -
22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í 22.09.2026 20minPólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson með ykkur í dag. -
21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka 21.09.2026 22minValur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur komst í Bestu deildina, Víkingur varð Íslandsmeistari og óvænt úrslit á Englandi. -
18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu? 18.09.2026 25minRosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn. -
17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll 17.09.2026 26minÞað er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli? -
Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg 16.09.2026 26minÁ rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli. -
16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina 16.09.2026 28minKjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni. -
15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum 15.09.2026 19minVíkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld. -
Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham 15.09.2026 19minDagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu. Í viðtali við Vísi fer Dagný um víðan völl. Hún er flutt heim til Íslands og lék með Selfossi í Lengjudeildinni í lok sumars, og vill láta að sér kveða til að bæta umgjörð í fótbolta kvenna hér á landi. Hún segir sorglegt að sjá Ísland dragast þar aftur úr öðrum þjóðum sem séu allar að gefa í. Þá ræðir Dagný um sitt nýja hlutverk sem sérstakur sendiherra enska félagsins West Ham. -
11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester 11.09.2026 23minÞað er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina. -
10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona? 10.09.2026 25minYfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið.
Popularny w
Ten podcast pojawia się również w listach podcastów tych krajów.